Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2000, Blaðsíða 3
J^'V LAUGARDAGUR 11. MARS 2000
39
miar
Santa Fe, nýjasta viöbótin í Hyundai-fjölskyldunni, var kynnt meö pomp og
prakt eins og sjá má. DV-mynd NG
Hyundai Santa Fe
Nýjasta útspil þeirra Suður-
Kóreumarma er jepplingurinn
Santa Fe sem heimsfrumsýndur var
á bílasýningunni í Genf. Þessi fimm
dyra sportlegi jepplingur er fáanleg-
ur með 2,7 lítra V6 bensínvél sem
nær út 170 hestöflum. Ef hann er
fenginn aðeins með framdrifi kem-
ur hann með tveggja lítra vél, ann-
ars er hann venjuiega með 4 strokka
2,2 lítra vél sem er um 150 hestöfl.
Fyrir þá sem vilja dísilvélar er 2
lítra, 115 hestafla dísilvél möguleiki
með forþjöppu og millikæli. H-Matic
sjálfskiptingin, sem hönnuð var í
samráði við Porsche, býður upp á
valskiptingu fyrir ökumanninn.
Vel er hugsað um öryggi i nýja
Santa Fe jepplingnum. Hann er með
hemlalæsivöm sem einnig er búin
EBD-kerfi sem sér um að dreifa
hemlunaraflinu eftir því hvemig
bíllinn er hlaðinn. Það er reyndar
aðeins einn öryggispúði frammi í
fyrir ökumann en fyrir farþegann
er hægt að panta hann sem auka-
búnað. Það vegur hins vegar upp á
móti aö nýlega fékk hann góða
dóma í árekstrarprófi NCAP þar
sem öryggi bilstjóra fékk 4 stjömur
og farþega frammi í 5 stjörnur.
Bamalæsingin aftur í virkar þannig
að ef bíllinn fer yfir 40 km/klst. læs-
ist hún sjálfkrafa.
Santa Fe þeirra Suður-Kóreu-
manna er framleiddur í Ulsan-verk-
smiðjunni, þar sem Galloperinn var
framleiddur áöur, og er hún búin til
að framleiða 100.000 bíla á ári. Búast
má við hinum í sali bifreiðaumboða
i Evrópu í september. -NG
Þrír nýir frá Opel
Opel Agila
Opel er nú kominn með fyrsta
smásendibílinn, framleiddan í Evr-
ópu, Opel Agila. Agila er byggður á
hönnun frá Suzuki og útfærsla Opel
á honum var sameiginlegt verkefni
Opel- og Renault-verksmiðjanna.
Nýi bíllinn verður framleiddur í
nýrri verksmiöju í Póllandi. Hann
verður í boði sem 4 manna og 5 dyra
og þá með 1-1,2 lítra vélum.
Opel Astra coupá
Astran er nú komin í tveggja
dyra sportútgáfu, Astra coupé, sem
var heimsfrumsýnd í Genf. Hægt
verður að fá bilinn með þremur
gerðum véla, 1,8-2,2 lítra. Minnsta
vélin er 116 hestöfl en sú öflugasta
er 2 lítra 190 hestafla rokkur með
túrbínu.
Opel Agila er aö mestu leyti sami bíllinn og Suzuki Wagon
R+, nema hvaö vélarnar eru frá Opel.
Opel Speedster
hreinræktað-
ur og er kall-
aður Speedst-
er. Þessi
tveggja sæta,
tveggja dyra
sportbíll er
með 2,2 lítra
vélina aftur
í.
Vélin er úr
áli og skilar
147 hestöfl-
um og nær
bíllinn hund-
rað kíló-
metra hraða
á sex sekúnd-
um. Einnig
frumsýndi
Opel nýja
Omegu með V8 vél sem skilar 315
hestöflum. -NG
Nýjasti Opel-sportbíllinn er
Renault Scénic RX4
Nýjasta útgáfa Scénic kemur nú
með fjórhjóladrifi og verður nokkur
áhersla lögð á sölu hans hér á landi.
Tveggja lítra vélin skilar 140 hestöfl-
um og þaö er nokkuð hátt undir
hann sem er kostur fyrir okkar
óslétta land. Vegna þess minnir út-
lit hans meira á jeppa en fjölnota
fólksbíl. Einnig verður hægt að fá
hann með 1,9 lítra dísilvél en búast
má við nýja Scénic-bílnum í sali
B&L í byrjun sumars. -NG
Honda HR-V, fimm dyra
HR-V jepplingurinn kemur nú í
fimm dyra útgáfu með hinni vin-
sælu VTEC-vél sem valmöguleika.
Hún er 1,6 lítra og skilar 125 hestöfl-
um sem er gott fyrir þennan létta
bíl, en hann er ekki nema 1275 kíló.
í VTEC-útgáfunni er hann hlaðinn
búnaði eins og topplúgu og má bú-
ast við honum til landsins í apríl.
Daewoo eða
SsangYong?
Það hefur valdið rugl-
ingi hjá sumum að undan-
fómu að gamli SsangYong
Musso-jeppinn skuli allt í
einu vera kominn með
Daewoo-framenda og
merki. Á heimasíðu Bíla-
búðar Benna hefur hann
líka að undanfómu verið
kynntur sem Daewoo.
Svona til að gera út um
þetta mál birtum við hér
þessa mynd af Musso-
jeppa sem tekin var á
bílasýningunni í Genf á
dögunum. Sjá má að
Musso-jeppinn er i Da-
ewoó-básnum og merktur
Daewoo í bak og fyrir.
Það er reyndar nokkuð
siðan Daewoo-verksmiðj-
urnar yfirtóku Musso- og
Korando-jeppana frá
SsangYong eða rúm tvö
ár. Líklega hafa þær þó
viljað minnka birgðir af
bílum, merktum Ssang-
Yong, áður en þær hæfu
sölu á honum sem
Daewoo. Sem sagt, Da-
ewoo var það, heillin.
-NG
DV-mynd NG
www.brimborg.is
brimborgar
Volvo S40 2,0,07/98,
ssk., 4 d., rauður, ek. 22 þús. km, framdr.
Verð 1.960.000
Volvo 460 2,0,10/95,
5 g., 4 d., grænn, ek. 105 þús. km, framdr.
Verð 890.000 Tilboð 690.000
Ford KA 1,3,04/98,
5 g., 3 d., svartur, ek. 17 þús. km, framdr.
Verð 850.000
MMC Carisma 1,8,02/98,
5 g., 5 d., rauður, ek. 49 þús. km, framdr.
Verð 1.490.000
Daihatsu Cuore 1,0,04/98,
ssk., 5 d., rauður, ek. 8 þús. km, framdr.
Verð 890.000
brimborg
Reykjavlk • Akuroyrl
Opið laugardaga 11-16