Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2000, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2000, Blaðsíða 4
f Ó k U S 31. mars 2000 jf Árr þú stóra rðöLSKYLeu? 1M TfNNU&NAfe IRU 8V0 iFTtRiÓTfAÍS NJll, Bft 6R $Á ÍÍÖASTI, ÞAÖ Sfe g.ÚI© A© ÚTfiUÍMA STÖrNINUM,.: NÚ? ÚTAf HV6R3U? Fegurð er sögð afstæð og það er alltaf verið að finna upp nýj- ar leiðir til þess að meta hana. Nýjasta dæmið er fegurðarsam- keppnin Ungfrú ísland.is en forsvarsmenn keppninnar aug- lýstu hana sem öðruvisi feg- urðarsamkeppni þar sem hæfi- leikar og sjálfstæði keppenda væri jafn mikils metið og útlit þeirra. í kanadíska smábænum Alberta er búið að finna enn eina leið til að dæma um feg- urðina og sú virðist síður en svo slæmur kostur. Um daginn, þegar keppt var um Miss Al- berta og Miss Teen Alberta í bænum var blindur maður lát- inn sitja í dómnefndinni. Hann átti ekki að dæma stúlkurnar út frá þeirra ytra útbti heldur innri fegurð þar sem aðstand- endur keppninnnar vildu að greind þeirra og persónuleiki hefði sitt að segja. Ættum við íslendingar kannski að taka þetta kerfi upp á næsta ári? Hefði blindur maöur valið þessa stúlku? GRIM Um götur Reykjavíkur þeysist Suzuki Samurai jeppi með tuskuljónið Simba á húddinu. Fókus hafði uppi á eiganda bílsins en bíllinn hefur vakið mikla athygli, ekki síst hjá börnum sem elska Simba, konung Ijónanna. Samúel Richard Oppon hefur reynt að kveikja afríska safarístemningu á götum höfuðborgarinnar með konung Ijónanna á húddinu. , „Mig langaði til þess að skapa svona afríska stemningu á bíln- um,“ segir Samúel Richard Oppon sem er eigandi ljónsins Simba sem flatmagar á strábeði á húddinu á bílnum hans, silfurlitum Suzuki Samurai, árgerð ‘89. „Fyrst var ég með apa á húddinu en honum var stolið og þá fékk ég mér Simba. Hann er líka miklu flottari en apinn enda er ljónið kon- ungur frumskógarins. Draumurinn væri samt náttúrlega sá að fá al- vöru ljónaskinn á húddið," segir hinn 27 ára gamli Samúel. Dansari frá Ghana Samúel er uppruninn I Ghana en hefur búið síðustu 3 árin hér á íslandi. Hann vinn- ur sem fulltrúi á með- ferðarheimilinu á Ár- völlum en einnig hef- ur hann verið að kenna afriskan dans og trumbuslátt. „Áhugi minn á íslandi kviknaði þegar ég var 15 ára. Þá var ég með finnskan kenn- ara sem talaði mikið um Norð- urlöndin og ég varð strax mjög hrifmn af íslandi. Seinna, þegar ég bjó í London, kynntist ég íslenskum manni sem hvatti mig til þess að koma hingað til lands til að kenna dans. Ég kom hingað fyrst árið 1995 í gegnum skátahreyfingu og var hér í hálft ár. Þá vissi ég strax að ég ætti eftir að koma aftur,“ segir Samúel sem segist hafa hrifist strax af landi og þjóð og hann seg- ist svo sannarlega vera kominn til þess að vera. Búinn að sjá Konung Ijónanna Samúel er mikil jeppafrík og þeg- ar hann bjó í Ghana hafði hann gaman af því að fara í safaríferðir á eigin jeppa. Súkkuna er hann bú- inn að eiga í ár og þegar hann fékk hana byrjaði hann strax að spá í það hvemig hann ætti að fara að því að gera bílinn safarílegri. „Fyrst var ég að spá í að mála svona sebramunstur á hana en það var allt of mikið mál þannig að ég endaði með þetta skraut á húddinu. Þetta hefur vakið mikla athygli og fólk er aðallega forvitið að vita hvemig ég festi þetta niður,“ segir Samúel sem ekki vill gefa það uppi. Simbi er á húddinu hvemig sem viðrar og segir Samúel að það fari bara vel um hann á strábeði sem búinn er til úr stráum frá móður hans í Ghana. „Já og ef það er rign- ing þá er það mjög gott því þá fær hann bað,“ segir Samúel sem ætlar að ferðast um landið á jeppanum í sumar. Þess má að lokum geta að Samúel er að sjálfsögðu búinn að sjá teiknimyndina um Kon- ung ljónanna og það margoft. Safarí í frumskógi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.