Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2000, Blaðsíða 3
Stuttmyndadagar eflast með hverju árinu og nú styttist óðum í keppnina í ár.
Það verður spennandi að sjá gróskuna árið 2000 sem er feikilega mikil,
að sögn Jóhanns Sigmarssonar, forsprakka hátíðarinnar, en Fókus heyrði
í honum hljóðið og grennslaðist fyrir um stuttmyndaveisluna.
Stuttmyndin Slurpurinn, eftir Katrínu Ólafsdóttur og Reyni Lyngdal, varö í fyrsta sæti keppninnar í fyrra og vann einnig
til verölauna á hátíöum í Toronto og Chicago.
Það er ekki seinna vænna að fara
að huga að því að koma hugmyndum
sínum í framkvæmd fyrir Stutt-
myndadaga i Reykjavík nú í vor.
Skilafresturinn rennur út föstudag-
inn 21. aprO þannig að þeir sem ætla
að vera með þurfa að setja aUt á fullt
þessa dagana. Umsóknargögnum með
upplýsingum um höfunda og stutt-
myndum skal skOa tO Sigríðar Rögnu
Jónsdóttur hjá Kvikmyndasjóði Is-
lands, Túngötu 14, og verða allar um-
sóknir að sjálfsögðu að vera vandlega
merktar Stuttmyndadögum í Reykja-
vík. SkOagjald er 1500 krónur. Mynd-
irnar eiga að vera á S-VHS/BETA eða
Hi-8 og mega ekki vera lengri en 15
mínútur (þannig að dómnefndin og
hinir sem horfa á þurfi ekki að deyja
úr leiðindum).
Gróskan mikla
„Við erum að opna fyrir þann
mögiOeika að gera Stuttmyndadaga
að alþjóðlegri hátíð og eigum von á
myndum frá New York og einhverju
frá Berlín,“ segir Jóhann Sigmars-
son kvikmyndagerðarmaður, betur
þekktur undir nafninu Jonni. Að
sögn hans er áætlað að stækka há-
tíðina og skipta henni í aðalkeppni
og aukakeppni í framtíðinni. „Ég
býst þó ekki við því formi
nú í ár nema við fáum svo
margar fagmannlegar
myndir að við neyðumst til
að skipta þeim í ex-
perimental-myndir og pró-
fessjónal-myndir. Við feng-
um tO dæmis 60 myndir í
fyrra og sýndum þær á
þremur dögum. Svona er
gróskan mikO árið 2000 en
hún var engin þegar ég
byijaði árið 1992 og þurfti
nánast að leita eftir mynd-
um tO að fá í keppnina,“
útskýrir Jonni og bætir við
að keppnin hafi verið
stofnuð tO að vekja athygli
á stuttmyndaforminu og
oft hafi myndirnar verið
tOrauna- og skólamyndir.
Þótt faglegri myndir skipi
nú stærri sess en áður er
„Svona er gróskan
mikil árið 2000 en
hún var engin þegar
ég byrjaði árið 1992
og þurfti nánast að
leita eftir myndum
til að taka þátt
í keppninni."
jafnframt nauðsynlegt að áhugafólk
geti líka tekið þátt i keppninni. Að-
spurður segist hann ekki vita fyrir
víst hvar keppnin verði haldin en
veðjar þó á Tjamarbíó, enda hefur
keppnin verið haldin þar áður.
Allir út að taka upp!
Annars verður dagskrá Stutt-
myndadaga með svipuðu sniði og
áður: Einhverjir kvikmyndagúrúar
koma og halda fyrirlestra og nýjar ís-
lenskar kvikmyndir verða kynntar
(það er af nógu að taka þessa dagana).
Fimm bestu stuttmyndirnar verða
síðan valdar af faglegri dómnefnd og
verðlaun veitt fyrir fyrsta, annað og
þriðja sætið frá Reykjavíkurborg.
Einnig verða veitt DV-2000-verðlaun-
in, áhorfendaverðlaun og Leikstjóra-
stóUinn frá Samtökum kvUunynda-
leikstjóra. Verðlaunamyndirnar
verða svo sýndar í sjónvarpi. Þetta er
í níunda sinn sem Stuttmyndadag-
arnir eru haldnir og miðað við þróun-
ina undanfarin ár ætti þessi keppni
að vera ein sú öflugasta hingað tU. Ef
þið vUjið vita eitthvað meira eða bara
angra aðstandendurna þá er hægt að
senda inn fyrirspumir á iff@iff.is.
Fókus mun síðan fylgjast náið með
framvindu mála í kringum
Stuttmyndadagana. Nóg um það, aUir
út að taka upp!
Jóhann: „Viö erum aö opna fyrir þann mögu-
leika aö gera Stuttmyndadaga aö alþjóðlegri
hátíö og eigum von á myndum frá New York og
einhverju frá Beriín."
Þegar hljómsveitin Soma gaf upp öndina tóku þrír meðlimir hennar sig til og stofnuðu nýtt band.
Þeir eru búnir að halda sig í skúrnum frá þeim tíma að búa til tónlist og pæla í hlutunum.
Þeir eru nú óðum að springa út og voru fyrir stuttu að brenna lag á disk svo að útvarpsstöðvar
geti leyft fólki að hlusta á afkvæmið. Fókus barst lagið til eyrna, fannst það gott og
talaði við Snorra Gunnarsson og Kristin Jón Arnarson, tvo meðlimi sveitarinnar.
„Við Kiddi og Mummi erum búnir
að vera kjarninn í þessu bandi í fjög-
ur ár. Síðan erum við búnir að vera á
trommarahrakhólum þangað til núna
í vetur,“ segir Snorri Gunnarsson, glt-
arleikari hljómsveitarinnar Stolið.
Hann, Kristinn Jón Amarson bassa-
leikari og Guðmundur Annas Árna-
son, söngvari og gítarleikari, voru all-
ir í hljómsveitinni Soma. Þegar hún
síðan lagði upp laupana ákváðu þeir
að rotta sig saman og stofna nýtt band.
Það sem er búið að hijá þá félaga er
trommaraleysi. „Trommarar eru
skrýtnir og erfiðir í umgengni," lýsir
Kristinn yfir. Þeir eru þó búnir að
koma sér upp einum trommara sem
virðist hafa fest sig í sessi og heitir
hann Huldar Freyr Amarson. Þegar
hann gekk til liðs við þá kumpána
höfðu þeir drengir gefið sér það fróma
nafn Hljóðnótt en ákváðu nú fyrir
stuttu að breyta því yfir í Stolið.
Snorri útskýrir: „Við vorum með ann-
an trommara þegar við ákváðum fyrra
nafnið en hann hætti og þegar Huldar
byrjaði ákváðum við að breyta því.
Það var síðan ekki fyrr en við brennd-
um lagið Stolið á disk að við fottuðum
að það var bara fint hljómsveitamafn
líka.“ „Já, það má eiginlega segja að
lagið hafi gefið bandinu nafn,“ bætir
Kristinn við.
Góðar og slæmar fréttir
Talið berst að opinberu spiliríi og
segir Kristin það allt vera í deigl-
unni. „Við eigum allavega nóg af
efni orðið til að spila á tónleikum og
ef tækifæri gefst þá grípum við gæs
ina.“
Ekkert cover í gangi?
„Nei, takk,“ kyrja þeir báðir í
einu. „Við erum búnir að prófa
þetta coverdót, auk smá-sveita-
ballarúnts, og okkur líkaði það
engan veginn," segir Snorri.
Þegar þeir em beðnir um að út-
skýra tónlistina sína þá rekur þá
í rogastans: „Ja. Ég veit það ekki.
Það er svona ánægjulegt þung-
lyndi í tónlistinni. Eins og þegar
maður fer til læknis og hann segir
að hann sé með góðar fréttir og
slæmar fréttir. Slæmu fréttimar em
þær að maður er þunglyndur en góðu
fréttimar þær að maður getur samið
góða tónlist út af því,“ segir Kristinn.
Farvegur sveitarinnar í augnblikinu
er sá að þeir eru komnir með ágætan
banka af lögum og er stefnan tekin á
að gefa út disk seinnipartinn á þessu
ári. Á meðan verður fólk bara að hafa
augu og eyra opin til að fylgjast með
þeim félögum.
Eftir langa og strang'a leit er loksins
búiö aö landa trommuleikara og þeir í
Stoliö ekki lengur r\1ma- og taktlausir.
PW
íslenskir karl-
menn eru
jæðablóð
Taktu prófið:
Ertu nirfill? /
íþróttamenn Q
perrar? u
Popp:
Rokkhrott-
arnir í a r\
AC/DCl Z
snúa
Ónothæfir
hlutir á
21. öldirim
Glæsi-
kvendið
Venus
hefur verið
á togara
Hvað hugsarðu í
vinnunni?
I#
1 T 1 0
íslenskur Mozart semur messu
Fókus bvður á Scream
Selma á leið norður
Hin dimma hlið tunalsins
De Niro oa draadrottninoin
osa
Ov
7T
C
f ókus
fylgir DV á
föstudögum
Forsíöumyndina tók Teitur af
Venusi.
31. mars 2000 f ÓkUS
3