Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2000, Blaðsíða 17
Inga Magnea Skúladóttir
þjonn:
„Nei. Þetta er bjánaleg klisja. Reglan ætti að
vera „kúnninn á aö fara ánægður út - án þess
að hafa vaðið yfir þjónustufólkið". Það sem fer
mest í taugarnar á mér við kúnnann er þegar
mér er sýndur hroki. Þetta er alltaf sama fólkið
sem er dónalegt og frekt, þaö er greinilega aliö
upp svona. Verstu kúnnarnir eru ungt nýrikt fólk
á uppleið með gsm-snúruna hangandi úr öðru
eyranu og hefur aldrei lært mannasiði. Þessar
týpur láta sjá sig með Wallpaper og GQ undir
hendinni og þykjast hafa fágaðan smekk á mat
og vínum. Fólkið sem heldur að það sé að verða
frægt."
Fólk á vegum gallabuxna-
framleiðandans Levi’s er
statt á íslandi í leit að fyrir-
sætum fyrir auglýsingaher-
ferð og vill meira en
gjarnan ná mynd af þér.
Þór Tulinius kúnni:
„Ég held að ég sé frekar umburðarlyndur svona almennt við það fólk
sem að ég umgengst, ég skeyti kannski helst skapi mínu á þjónustu-
fólki. Mér finnst þaö líka vera til þess, keyþt vinnuafl fýrir mig. Svo
finnst mér óþolandi þegar þjónninn tekur einkalífið með sér í vinnuna.
Um daginn fékk ég kalt kaffi á kaffihúsi hér í bæ en það var á mörk-
unum að ég þyrði að kvarta þvl að þjónninn var svo pirraöur, sjálfsagt
út af laununum, yfirmanninum eða einhveiju öðru sem ég vil ekkert
vita af, þó að það sé líklega vandasamt að vera þjónn sem gerir 511-
um til hæfis. Það er auðvelt að láta þjóninn fara I taugarnar á sér, en
ég má það alveg - ég er kóngur á kaffihúsinu því kúnninn hefur alltaf
rétt fyrir sér!"
Ætti að skylda alla
þjóna f Tae kwon Do
Rassinn þinn
I gallabuxna-
auglýsingu?
Kóngur á kaffihúsinu
Ef þig hefur dreymt um að gerast módel eða
tískuljósmyndari þá ættirðu að kíkja á Hótel
Holt milli kl. 9 og 17 mánudaginn 1. maí. Þar
verða nefnilega
útsendarar frá
Levi’s-gallabuxna-
framleiðandanum
staddir I leit að
módelum fyrir
nýja auglýsinga-
herferð. Álíka
herferð var gerð I
Hollandi fýrir
skömmu og tókst
hún svo vel að
framleiðendurnir
vilja endurtaka
leikinn og það á
íslandi. Um er að
ræöa Ijósmyndir
af vorlfnunni
2000 og munu
myndirnar birtast I pappafígúrum I fullri stærð I
Levi'sbúðum víðs vegar um Evrópu. Verið er að
leita að 12 einstaklingum á aldrinum 15-30
ára og einu skilyrðin eru að stelpurnar passi I
gallabuxur nr. 28 og strákarnir I gallabuxur nr.
32. Síðan munu þessir 12 einstaklingar taka
myndir hverjir af öðrum sem notaöar verða á
pappastandana. Á prufunni á Hótel Holti á
mánudaginn verða allir þeir sem mæta á stað-
inn látnir máta gallabuxur og siðan verður tekin
af þeim Polariodmynd. Úr hópnum veröa síðan
valdir 12 sem munu síðan mynda hverjir aöra
og verða þeir látnir vita næstu daga á eftir. Það
skal tekið fram aö maður þarf ekkert að kunna
á myndavél til þess að taka þátt I þessu, hvað
þá að líta út eins og módel, því verið er að leita
að alls konar týpum, en þeir sem fá verkefnið
fá 20 þúsund krónur fýrir.
Kemstu í gallabuxur
nr. 28 eða 32? Ef svo
er þá gæti Levi’s haft
not fyrir einmitt þig.
Guðmundur Magnússon þjónn:
„Ég lít á þessa vinnu sem mína köllun. Ég veit að viðskiptavinurinn hefur alltaf
rétt fýrir sér, aðeins tvisvar sinnum hef ég svarað fýrir mig og ég sé eftir að hafa
gert það. Svo æfi ég Tae kwon Do og reyni að beina gremjunni úr vinnunni I Iþrótt-
ina - fá útrás þar. Það ætti kannski að skylda alla þjóna I Tae kwon Do þvi að þar
fá þeir aukið þol, verða rólegri á eftir og öðlast meira jafnvægi. Þjónsstarfið hent-
ar ekki öllum, auðvitaö koma dagar þar sem áreitið verður of mikið - en hjá mér
er það sjaldnar en hitt; gaman I vinnunni. Það má ekki láta einstök atvik sitja I
sér, maður verður að vera undirgefinn án þess að ganga of langt."
Hressi þjénninn
er óþolandi
Stefán Már Magnússon kúnni:
„Já, nema kannski helst þegar viöskiptavinurinn er fullur og leiðinlegur. Það
er grátt svæði. Ég geri kröfur til þjónsins þegar ég fer út að þorða. Það sem
ég kalla góöa þjónustu er þegar ég tek ekki eftir neinu; þjónninn er ósýnileg-
ur - en allt gengur eins og I sögu. Hann á að vera eins og góður dómari I fót-
boltaleik, láta leikinn halda áfram og ekki trufla þegar ekkert er að. Ekki
spyrja mig I hjúkrunarkonutón: „Hvernig smakkast hér...?" Hressi þjónninn
er óþolandi, sá sem gengur of langt I almennilegheitum og lætur þig ekki I
friöi. Svo er það hrokafulli þjónninn sem fór I þjónanám I útlöndum og finnst
hann of fínn til að þjóna mér, ég kann ekki nógu vel inn á Bordeaux-vínin
hans... Ef til vill þarf að taka upp hefð fýrir þvl að veita þjórfé, þá myndi þjón-
ustan á íslandi sjálfsagt breytast til batnaðar."
Fólk sevn heldur
að það verði frægt
28. apríl 2000
f ó k u s