Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2000, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2000, Blaðsíða 4
F F T T R Y T N N I) Vikan 5. maí til 11. maí ÍÁA Ifókus Hailá Óðinsvéum „Ég fór á nýja veitingahúsið hans Sigga Hall. Það var alveg æðisleg upplifun. Þetta er ekkert smágóður staður, ég gef honum alveg hiklaust 9,5 í einkunn. Ég fékk mér nautafilé með bour- bonsósu og alies, ljúífengt, ljúf- fengt. Við vorum þrjú saman og fengum öll jafn frábæra rétti. Ég mæli alveg hiklaust með því að fólk prófi þennan stað.“ Chloé Ophelía módel Blender á öll heimili „Blender! Ég er nýbúinn að kaupa mér blender sem tætir saman mjólk og skyr. Svona sem býr til sjeik. Þannig að núna get ég mixað mér staðgóðan morgun- mat á fimm mfnútum áður en ég fer í vinnuna á morgnana. Ég mæli með Blender á öll heimili." Bernhard Trauner aðstoöarproppari. Pekingöndin í Kfnahúsinu Bíóborgin og Bíóhöllin frum- sýna nýjustu mynd Olivers Stones, Any Given Sunday. Hún fjallar um Miami Sharks, amerískt fót- boltalið. Fókus gefur miða á myndina í dag og er hann vandlega falinn hér í Lífinu eftir vinnu. Myndin skartar fjöldanum öllum af frægum leikurum. í henni má sjá A1 Pacino, Cameron Diaz, Denn- is Quaid, James Woods, Jamie Foxx, LL Cool J, Matthew Modine og Charlton Heston. íþrótt hittir markað Miami Sharks er virt lið I amer- iska fótboltanum. Upp á síðkastiö hefur gengi liðsins þó nokkuð dal- að og er það í höndum Christina Pagniacci (Cameron Diaz), sem ný- lega erföi liðið eftir föður sinn, að rífa það upp úr lægðinni. Christina er holdgervingur nýrra tíma, hún boðar markaðshyggju og gefur skít í gömlu íþróttagildin á meðan fjár- Ætli LL Cool J hafi fengiö aö ráða nafngift persónu slnnar, J Man. festingin er í hættu. Þjálfari Há- karlanna, Tony D’Amato (A1 Pacino), er ekki alls kostar sáttur við aðferðir Christinu og hugsar einungis um íþróttina. Þetta eru ekki einu átökin í liðinu. Fyrirlið- inn til margra ára, Cap Rooney (Dennis Quaid), þarf að vanda sig til að verða ekki ýtt til hliðar af Steamin’ Beamen (Jamie Foxx), sem er nýjasta undrabam liðsins. J Man (LL Cool J) er einnig mjög illa við Beamen þar sem hann skyggir á sviðsljósið. Þá eiga læknamir í liðinu (James Woods og Matthew Modine) einnig í deilum vegna ágreinings um vinnubrögð. Heiðinn siður Oliver Stone hefur verið þekktur fyrir það í gegnum tíðina að flakka grimmt á milli málefna. Hann fjall- aði um stríð í Salvador og Platoon, „Fótboltinn er heiðinn siöur þar sem menn og konur hreinsa sig af djöflum í trú- arathöfn," segir Oliver Stone. Al Pacino leikur þjálfara liösins. Áhyggjufulla týpan sem klórar sér í hausnum. hagkerfið og hlutabréfamarkaðinn í Wall Street, tónlist í The Doors, sögu og pólitík í JFK og Nixon og búddatrú í Heaven and Earth. Hann segist hafa haft mikinn áhuga á amerískum fótbolta á sín- um yngri árum og safnaði upplýs- ingum um allt sem viðkemur íþróttinni. Hann vann handritið að Any Given Sunday upp úr þremur öðrum handritum með því að taka allt það bitastæðasta úr hverju. „Amerískur fótbolti er keppni í formi trúarathafnar,“ segir Stone. „Hann er bæði trú sem er iðkuð á sunnudögum og á sama tíma of- beldisfull, amerísk útgáfa af skylm- ingunum í hringleikahúsum Róm- verja. Það er ekki tilviljun að við kölluðum bikarinn sem keppt er um í myndinni Pantheon. Fótbolt- inn er heiðinn siður þar sem menn og konur hreinsa sig af djöflum í trúarathöfn." Beamen Rap Það var mikil tilhlökkun hjá Pacino og Stone að vinna saman. Það hafa þeir ekki gert áður. Þeir hafa samt verið viðloðandi sömu myndir, t.d. skrifaði Stone handrit- ið að Scarface. Mörgum kom á óvart að Stone skyldi velja Jamie Foxx í hlutverk Beamen. Foxx hef- ur ekki starfað mikið við kvik- myndir hingað til. Hann hefur not- ið mikilla vinsælda fyrir leik sinn í gamanþættinum In Living Color. Eftir fyrsta fund Stone og Foxx var hann staðráðinn í að sannfæra leikstjórann um að velja sig I hlut- verkið. í kjölfarið fór hann klædd- ur í fótboltabúning út í garð með vini sínum og lét hann taka mynd- ir af sér þar sem hann kastaði bolta í bland við að rífa kjaft við mynda- vélina. Hann rappaði einnig nokkr- ar rímur og segist hafa lúmskan grun um að það hafi gert útslagið hjá Stone. Rímurnar, sem þeir kalla Beamen Rap, fá að halda sér í myndinni. Foxx rappaði einnig með Guru og Common í titillagi myndarinnar, Any Given Sunday. Nóg um það, Fókus ætlar að bjóða öllum sem vilja að sjá þessa klassa- mynd í dag, ef þeir bara fmna mið- „Pekingöndin á Kínahúsinu með bambus, sveppum og hrís- grjónum var himnesk, alveg ótrú- lega góð. Þjónustan var líka mjög góð. Eiginlega er þetta alveg frá- bær staður - og ekki síst ódýr.“ Kristín Davíðsdóttir kvikmyndageróarkvendi. Heimtur úr helju Síðustu helgi lá ég heima hjá mér hund- veikur með hita, hálsbólgu og tilheyrandi. Einna næst því| að að vera eft- irminnilegt var| kannski þegar ég var næstum' dottinn niður stigann heima eftir að hafa flækt fætuma i bandinu á sloppnum mínum. Þannig að segja má að ég hafi verið heimtur úr helju um helgina (þetta er brattur stigi) og það er í sjálfu sér nokkuð merkilegt. Finnur Vilhjálmsson, fréttamaður á Skjál. Úrslitin fara fram á laugardag: Ford-fyrirsætan 2000 Úrslit i Ford-fyrirsætukeppninni urinn sem þar fer fram, enda hús- fara fram á laugardag með pomp og næðið alveg glænýtt. Það eru 14 prakt í íslenska kvikmyndaverinu stúlkur sem keppa til úrslita en i Grafarvoginum en þetta mun þær voru valdar úr 35 manna und- vera fyrsti stóri fjölmiðlaviðburð- anúrslitahópi. Fyrir utan þrjú efstu Þessl mynd var tekin á æfingu hjá Ford-stúlkunum en úrslltln fara fram á laug- ardag í hlnu nýja kvikmyndaveri í Grafarvoginum. sætin verða einnig valin andlit Top shop og KEA skyrs og keppendur verða með tískusýningu frá Top shop og Futurice. Húsið verður opnað kl. 21 og eru það þau Svavar Öm og Elva Dögg, ungfrú ísland.is, sem sjá um að kynna herlegheitin en fyrir utan keppnina þá eru ýmis skemmtiatriði í boði og má þar nefna GusGusarann Daníel Ágúst, hljómsveitina 110 Rottweiler og Gjörningaklúbbinn. í dómnefnd sitja þau Elísabet Daviðsdóttir fyr- irsæta, Bára Hólmgeirsdóttir stílisti, Einar Ágúst Eurovision- fari, Steinunn fatahönnuður, Mich- ael Stein frá Ford París og Claire frá Models 1 London. Það kosta 1500 krónur inn á herlegheitin en miðasala fer fram í Loftkastalan- um. r i i i i i i i i i i i i L Mission lm Á þriðjudag er málið að smella sér inn á Fókusvefinn á Visi.is því þar er að finna Mission Impossible-veflnn. Og þar gefst netveijum kostur á aö taka þátt í leik sem gæti komið þér á gala-frumsýningu á Mission Im- possible hér á íslandi þann fyrsta júlí næstkomandi. Um er að ræða þvílíka sýningu þar sem allir verða klæddir í kjól og hvítt og fá að berja Tom Cruise augum undir leikstjóm Johns Woo.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.