Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2000, Qupperneq 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 2000
s>v
Fréttir
Guðmundur Hallvarðsson gagnrýnir kostun Alþingis á bréfum Samfylkingarinnar:
Segir Samfylk-
inguna siðlausa
- höfum farið að reglum, segir Rannveig Guðmundsdóttir
„Við höfum farið að reglum. Það
hefur þótt eðlilegur hluti af störfum
þingmanna og þingflokka að senda út
fundarboð eða upplýsingabréf um
það sem þeir eru að fást við í þing-
inu,“ segir Rannveig Guðmundsdótt-
ir, formaður þingflokks Samfylking-
arinnar, og vísar þar með á bug ásök-
unum Guðmundar Hallvarðssonar,
alþingismanns Sjálfstæðisflokks, sem
á Alþingi í gær sakaði Samfylking-
una um siðleysi fyrir að hafa látið
Alþingi kosta útsendingu 16 til 18
þúsund bréfa.
Rannveig Guðmundsdóttir segir
Guðmund vísa til þriggja aðskildra
bréfa til flokksmanna og telur það
fjarri lagi að þau hafl samtals verið
16 til 18 þúsund talsins.
Fyrsta bréfið segir Rannveig
raunar hafa verið sent út á árinu
1998 af þingflokki jafnaðarmanna,
annað bréfið af þingmönnum Sam-
fylkingar í Reykjanesi, um síðustu
áramót, og að þriðja bréfið hafi ver-
ið fréttabréf Samfylkingarinnar frá
i mars sl. „Mjög oft eru þingmenn
að gera þetta einir og sér en af því
að við vorum í
mjög óvenju-
legri stöðu þá
lögðum við
mikla áherslu á
það að senda
saman,“ segir
Rannveig og
bendir á að ef
rétt væri að um
18 þúsund bréf
væri að ræða,
sem í sjálfu sér
væri aukatriði, þá gerði það ekki
í tilefni af því að enginn nem-
andi í 9. bekk Hamraskóla reykir
buðu skólinn og foreldrar ung-
lingunum í siglingu niður Hvítá
og síðan í pitsu á Selfossi í gær.
„Við erum ofsalega ánægð með
það hvernig unglingarnir okkar
eru núna,“ sagði Guðrún Snorra-
dóttir, námsráðgjafi og forvarnar-
fulltrúi.
Hún sagði að ekki hefði þurft
að hafa afskipti af neinum nem-
enda í öllum skólanmn þetta árið
vegna reykinga á skólatíma, en
vitað væri til þess að það væri
nema 1000 bréf á hvem þingmann
Samfylkingarinnar.
„Þingmennirnir í stjórnarand-
stöðu verða að eiga möguleika á að
ná til fólksins öðru vísi en i gegnum
fjölmiðla vegna þess að það er und-
ir hælinn lagt hverju stjórnarand-
staðan kemur að þar. Stjómar-
flokkarnir hafa allt aðra stöðu og
reyndar hafa oft heyrst háværar
gagnrýnisraddir á litskrúðuga bæk-
linga ráðherra gegnum árin,“ segir
Rannveig Guðmundsdóttir.
eitthvað flkt i 10. bekk utan skóla-
tíma. Hins vegar eru 8. bekkir
skólans reyklausir.
Unglingarnir í Hamraskóla fá
mikla fræðslu um reykingar, og
eins er gott samstarf á milli skól-
ans og foreldra. Þetta er annað
árið í röð sem skólinn, sem hefur
reyklausan skóla að yfirlýstri
stefnu, hefur verðlaunað 9. bekk
fyrir að vera reyklaus. Tæplega 30
nemar úr tveimur 9. bekkjum
skólans fóru í ferðina, ásamt for-
eldrum, Guðrúnu og tveim öðrum
kennurum. -SMK
Fimm teknir
í hassmálum
OV, AKUREYRI:
Fimm menn voru handteknir
vegna tveggja fikniefnamála á Ak-
ureyri um helgina. í öðru tilfellinu
voru tveir menn staðnir að verki
við að reykja hass.
í hinu málinu voru þrír menn
teknir á bifreið og i henni fundust
um 100 grömm af hassi og áhöld
sem notuð eru við neyslu. Einn
mannanna þriggja, sem er aðeins 17
ára, játaði að eiga hassið og hafa
ætlað að selja það. Hann viður-
kenndi einnig neyslu á hassi og það
gerðu félagar hans tveir einnig.
Að sögn Daníels Snorrasonar, yf-
irmanns rannsóknardeildar lögregl-
unnar á Akureyri, eru fikniefnamál
á árinu komin vel á þriðja tuginn að
fjölda. Það eru fleiri mál en komu
upp allt árið 1995 og ekki miklu
færri mál en komu upp á hverju ári
frá 1996-1998. Á síðasta ári fjölgaði
málum svo mjög og virðist lítið eða
ekkert lát á þeirri þróun. -gk
Blönduós:
Brotist inn
í Árvirkni
Brotist var inn á bifreiðaverkstæð-
ið Árvirkni ehf. við Norðurlandsveg á
Blönduósi aðfaranótt mánudags.
Þjófurinn eða þjófarnir reyndu að
opna með verkfærum peningaskáp í
húsinu en tókst það ekki. Eins var
hurðum sparkað upp, gramsað í skrif-
stofum og í verslun sem er i húsinu og
fleiri skemmdarverk unnin á húsinu.
Þjófurinn eða þjófamir komust inn
i húsið með því að brjóta rúðu og upp-
götvaðist innbrotið þegar fólk mætti
til vinnu klukkan 8 á mánudagsmorg-
un. Ekki er talið að miklu hafi verið
stolið en talsverðar skemmdir voru
unnar á húsnæðinu.
Lögreglan á Blönduósi biður fólk
sem hefur orðið vart við mannaferðir
við Árvirkni aðfaranótt mánudags að
hafa samband við sig.__-SMK
Brotist inn í
heilsugæslustöð
Brotist var inn í heilsugæslustöð-
ina á Vopnafirði aðfaranótt mánu-
dags.
Innbrotsþjófurinn hafði tekið heila
rúðu úr glugga og lagt hana til hliðar.
Þegar inn var komið fór í gang öflugt
þjófavamarbjöllukerfi sem gerði
Securitas í Reykjavík viðvart.
Securitas hringdi síðan í lögregl-
una á Vopnafirði sem kom á staðinn.
Svo virðist sem bjöllukerfið hafi
hrætt viðkomandi því heilsugæslan
var mannlaus þegar lögreglan kom að
henni og engu hafði verið stolið. Mál-
ið er i rannsókn. -SMK
Umræðuþátturinn frægi:
Kolbrún gekk
lengra
Kolbrún Halldórsdóttir alþing-
ismaður gekk lengra í ummælum
sinum gagnvart Árna Johnsen al-
þingismánni í
umræðuþættin-
um Silfur Egils
á Skjá einum
heldur en hún
fullyrti í DV í
gær. í þættinum
tókust alþingis-
mennimir á um
lögfestingu
sfjúpættleiðing-
ar hjá samkyn-
________________ hneigðum. Eft-
irfarandi orða-
skipti áttu sér stað í þættinum.
Kolbrún: „í dag eru ungir menn
að fremja sjálfsmorð af því að
menn eins og þú eru ekki tilbúnir
að leyfa þeim að horfast í augu við
kynhneigð sína og það er vitað...
Ámi: „Þú ert að segja það að ég
beri ábyrgð á sjálfsmorðum?"
Kolbrún: „Þú berð ábyrgð á
mörgu í lífi fólks því þú ert að
Kolbrún
Segir Árna
predika fordóma.
hluta til löggjafinn og þú berð
ábyrgð á umræðunni."
Ámi: „Ert þú að segja...?“
Kolbrún: „Þú ert að predika for-
dóma. Mér finnst það ámælisvert
hjá manni eins og þér, Árni, að
predika fordóma.“
Árni: „Ert þú að segja að ég beri
ábyrgð á sjálfsmorðum?“
Kolbrún: „Nei, og fordóm-
um...já, ég sagði menn eins og þú
sem halda uppi fordómum í sam-
félaginu.
Við eigum að opna faðm okkar
fyrir ungu fólki... og við eigum að
bera umburðarlynd..."
Árni: „Hefurðu ekki gengiö of
langt núna?“
Kolbrún: „Nei,...kærleika...við
erum að tala um það að fólki sé
heimilt að koma út með tilfinning-
ar sínar og elska eins og tilfinn-
ingar þeirra bjóða. Þetta er spum-
ing um kærleika."
Árni: „Þá eigum við ekkert van-
talað í þessum efnum.“
-JSS
Rannveig
Guðmundsdóttir.
-GAR
DV-MYND HILMAR ÞÓR
Reyklausir unglingar
Nemendur 9. bekkjar Hamraskóla í Grafarvogi eru reyklausir. Þess vegna
bauð skólinn þeim í siglingu á Hvítá og pitsu á Selfossi í gær.
Reyklausir nem-
endur verðlaunaðir
Veörið í kvöld
Skúrir vestan til
Um eftirmiödaginn má gera ráö fyrir
suövestanátt, 8-13 m/s, en hægari í kvöld og
nótt. Búist er viö skúrum vestan til en
léttskýjuöu austan til. Hiti veröur yfirleitt á
bilinu 4 til 9 stig, mildast austan til síödegis
en kólnar meö kvöldinu.
Sólargangur og sjávarföll
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag i kvöld 22.19 22.18
Sólarupprás á morgun 04.28 04.00
Síödeglsfló& 22.52 14.57
Árdegisflóð á morgun 11.31 03.25
Skýringar á veðurtáknum
—VINDÁTT 10V-HITI -10° “^sVINDSTYRKUR VrensT 1 nwtrum i sekiiivlu * HBOSKÍRT
íD D3 o
LÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ ALSKÝJAO
w W Q
RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA
& ir =
ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA
mmsssm,
Hálka á heiöum
Allir helstu þjóövegir landsins eru færir.
Þó er krap og hálka á Holtavörðuheiöi
og á Dynjandisheiöi á Vestfjörðum.
Vegna aurbleytu eru
öxulþungatakmarkanir vlöast á
Vestfjörðum og á útvegum á
Norðurlandi, Austurlandi og
Suöurlandi.
wm QRQÐFÆRT mm ÞUNGFÆRT
HÁLT m ■■QFÆRT
sroBHBaiigMtaHaanaHBa
Hægur sunnanvindur
SV 8-13 m/s og víöa skúrir en léttskýjað austanlands. Fremur hæg S- og
SV-átt á morgun en SA 8-10 m/s vestanlands slödegis. Bjart veöur
austan til en súld eöa dálítil rigning annars staðar. Hiti veröur 4-12 stig.
Fininitiidá
igjj1
Vindur:
8-13 in/a
Hiti 8° til 18° v
SA 8-13 m/s og súld meö
köflum sunnan- og
vestanlands en hæg S-átt
og bjart veöur á Nor&ur- og
Austurlandl. Hltl 8-18
stlg, hlýjast nor&anlands.
SA 8-13 m/s og súld me&
köflum sunnan- og
vestanlands en hæg S-átt
og bjart ve&ur á Nor&ur- og
Austurlandl. Hltl 8-18
stlg, hlýjast nor&anlands.
imi
Vindun
5-10 m/s
Hiti 8° til 15°
Spá& er austlægri átt.
Skýja& meö köflum en súld
e&a rlgnlng su&austan til
og þokuloft vi&
nor&austurströndlna.
Áfram hlýtt I ve&rl.
mv'mm
AKUREYRI skýjaö 7
BERGSSTAÐIR rigning 4
BOLUNGARVÍK skúrir 3
EGILSSTAÐIR 5
KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö 2
KEFLAVÍK skúrir 4
RAUFARHÖFN skýjaö 4
REYKJAVÍK skúrir 4
STÓRHÖFÐI úrkoma 5
BERGEN léttskýjaö 11
HELSINKI léttskýjaö 12
KAUPMANNAHÖFN léttskýjaö 12
ÓSLÓ heiöskírt 13
STOKKHÓLMUR 13
ÞÓRSHÖFN súld 8
ÞRÁNDHEIMUR hálfskýjaö 11
ALGARVE skúrir 16
AMSTERDAM þokumóða 19
BARCELONA þokumóöa 18
BERLÍN skýjaö 15
CHICAGO alskýjaö 19
DUBLIN þokumóöa 10
HAUFAX alskýjaö 7
FRANKFURT léttskýjaö 14
HAMBORG léttskýjað 13
JAN MAYEN skafrenningur -3
LONDON þoka 13
LÚXEMBORG léttskýjað 15
MALLORCA þokumóða 19
MONTREAL þoka
NARSSARSSUAQ skýjaö -1
NEW YORK skýjaö 27
ORLANDO heiöskírt 20
PARÍS skýjaö 15
VÍN alskýjaö 15
WASHINGTON heiöskírt 22
WINNIPEG 2