Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2000, Síða 10
10
Útlönd
ÞRIDJUDAGUR 9. MAÍ 2000
DV
Bóndi syrgður
Sherie Dunn, ekkja hvíta bóndans
Alans Dunns sem var
myrtur í Simbabve.
Mugabe afhendir
landtökumönnum
sjálfvirk vopn
Kreppan í Simbabve kúventi í
gær þegar hvítir bændur böröu tvo
blökkumenn í hefndarskyni fyrir
morðið á Alan Dunn síðastliðinn
sunnudag. Dunn var barinn til
óbóta á sunnudaginn og lést hann af
sárum sínum i gær. Dunn var þriðji
hvíti bóndinn sem landtökumenn
myrða.
Sunday Times greindi frá því að
Robert Mugabe, forseti Simbabve,
hefði keypt vopn handa landtöku-
mönnunum. Hefðu 21 þúsund sjáif-
virkir riíHar komið með ómerktri
fyrrverandi sovéskri flutningavél til
Harare fyrir 10 dögum. Vélin kom
frá Angola en ekki er vitað hvaðan
vopnin eru.
í sumarfríi
Bretar hafa mikinn áhuga á að fá
sól á kroppinn í sumarieyfínu og
svefninn er þeim ofarlega í huga.
Vinnulúnir Bretar
setja svefninn
ofar kynlífinu
Vinnulúnir Bretar vilja miklu
frekar nota sumarfríið sitt til að
bæta upp fyrir lítinn svefn en lítið
kynlíf. Þetta kemur fram í skoðana-
könnun sem kynnt var í morgun.
Þriðjungur aðspurðra í skoðana-
könnun á vegum ferðatímaritsins
Escape Routes nefndi svefn sem for-
gangsatriði í sumarfríinu en aðeins
tíu prósent settu kynlíf efst á blað.
„Bretar vinna mest allra Evrópu-
þjóða og þegar við komumst á
áfangastað kallar rúmið á okkur,“
segir Sharon Ring, ritstjóri Escape
Routes.
Tvö þúsund Bretar tóku þátt í
könnun tímaritsins. í ljós kom að
þeir þola ekki bleikan hörundslit
sinn og niðurvíðan belginn. Það
kemur þó ekki í veg fyrir að þeir
flýki honum á sólarströndum.
Reynsla og þekking,
vönduö og
persónuleg þjónusta.
Fákafeni 9 • S. 553 1300
Bretar hefja brottflutning þegna sinna frá Sierra Leone:
Uppreisnarleið-
toginn horfinn
Breskar hersveitir hófu í morgun
að flytja breska þegna á brott úr
skálmöldinni í Freetown, höfuðborg
Afríkuríkisins Sierra Leone. Tals-
maður vamarmálaráðuneytisins í
London sagði að búið væri að fljúga
með 170 Breta, þegna landa Evrópu-
sambandsins og Samveldisins, til
Senegal.
Breskir fallhlífarhermenn, sem
komu til Sierra Leone í gær, höfðu
tryggt öryggið á flugvelli höfuðborg-
arinnar og farið á hótelið þar sem
Bretunum var sagt að safnast sam-
an.
„Þetta hefur allt gengið mjög vel
til þessa,“ sagði talsmaðurinn í
morgun.
Leiðtogi uppreisnarmannanna í
Sierra Leone, sem sakaðir era um
að halda 500 friðargæsluliðum Sam-
einuðu þjóðanna í gíslingu, var
ófinnanlegur snemma í morgun eft-
ir árás andstæðinga á heimili hans.
Til átaka kom í gær utan við
heimili Fodays Sankohs þegar
nokkur þúsund manns reyndu að
ryðja sér leið inn í húsið. Margir
hentu steinum í látunum. Sjónar-
vottar sögðu að stuðningsmenn San-
kohs hefðu skotið að minnsta kosti
fimm manns til bana.
„Á þessari stundu er ekki vitað
nákvæmlega hvar Foday Sankoh er
niður kominn,“ sagði Ahmad Tejan
Kabbah forseti í útvarpsávarpi til
þjóðar sinnar seint í gærkvöld.
Bemard Miyet, yfirmaður friðar-
gæslusveita S.Þ., er á leið til
Freetown til að sjá ástandið þar með
eigin augum.
Talsmaður friðargæslusveitanna
sagði að enn vantaði þrjú þúsund
menn í liðið í Sierra Leone.
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
S.Þ., þrýsti í gær á að hersveitir
yrðu sendar með hraði til Sierra Le-
one til að koma friðargæslunni þar
aftur í eðlilegt horf. Hann bað bæði
Vesturlönd og Rússland um að
senda menn.
Bandarísk stjómvöld hafa beðið
Nígeríu um að gera tvö herfylki
klár til að fara til Sierra Leone á
næstu tveimur vikum, að því til-
skyldu að erlend ríki aðstoði við að
koma hermönnunum á áfangastað
og útvegi þeim nauðsynlegan bún-
að. Bandaríkjamenn eru sjálfir treg-
ir til að senda hermenn til
friðargæslu.
Sameinuðu þjóðirnar saka sveitir
Sankohs um að halda allt að 500
gæsluliðum og aðstoðarmönnum
þeirra í gíslingu. í odda skarst 1.
maí í kjölfar deilu gæsluliða og
uppreisnarmanna um afvopnun.
Sankoh þrætir fyrir að hafa nokkra
menn í gíslingu.
Beöið brottfarar frá Sierra Leone
Breskur þegn heldur á dóttur sinni á meðan þau bíöa eftir að verða fíutt burt frá Freetown, höfuöborg Sierra Leone.
Breskir hermenn hófu brottflutning breskra þegna og þegna annarra landa Evrópusambandsins í morgun.
Verkfallinu í Noregi
frestað í morgun
VerkfaUinu í Noregi lauk í morg-
un eftir að samningar náðust milli
norska alþýðusambandsins og öflug-
ustu samtaka vinnuveitenda, NHO.
Tímakaup hækkar að jafnaði um
1,50 norskar krónur. Láglaunafólk
fær 2 norskar krónur til viðbótar á
tímann. Samið er til tveggja ára.
Fimmtu sumarleyfisvikunni verður
smátt og smátt bætt við. Verður
tveimur sumarleyfisdögum bætt við
á næsta ári og tveimur til viðbótar
árið 2002.
Samkvæmt norska alþýðusam-
bandinu hafa vinnuveitendur sam-
þykkt að styðja endurmenntun
launþega með því skilyrði að um-
bætumar gildi bæði um einka- og
opinbera geirann. Norsk stjórnvöld
hafa einnig samþykkt að styðja end-
urmenntun launþega.
86 þúsund manns vora í verkfalli
sem lamað hafði atvinnulíf í Noregi.
Forsætisráöherra Noregs
Stjórn Jens Stoltenbergs hefur
samþykkt aö styðja endurmenntun
launþega.
Dregið hafði úr olíuútflutningi og
röskun varð á starfsemi hótela og
kvikmyndahúsa, ferjuflutningar
röskuðust og byggingavinna lagðist
víða niður. Erlendir bilaframleið-
endur fengu ekki vöru afhenta.
Hefðu samningar ekki náðst í nótt
áttu 10 þúsund manns til viðbótar
að leggja niður vinnu i dag.
Stefnt er að því að atkvæða-
greiðsla um samkomulagið fari
fram fyrir 25. maí næstkomandi.
Leiðtogi norska alþýðusambands-
ins, Yngve Hágensen, kvaðst í morg-
un ánægöur með samningana.
Lausn vinnudeilunnar kann að
vera upphafið að nýju verkfalli i lok
mai, að því er norska blaðið
Nationen skrifar. Þegar félagar í
norska alþýðusambandinu hafa
fengið launahækkun vilja einnig
kennarar og hjúkrunarfræðingar fá
hærri laun.
Hátíð á Rauða torginu
E kS forseti Rússlands,
j.S verður viðstaddur
- M hátið á Rauða torg-
« inu í Moskvu í dag í
, jBj tilefni þess að 55 ár
H eru liðin frá lokum
B seinni heimsstyrj-
aldarinnar. Mikil
hersýning verður á torginu í tilefni
dagsins sem er frídagur í Rússlandi.
Glæpum fækkar
Glæpum í Bandaríkjunum fækk-
aði í fyrra, áttunda árið í röð. Fækk-
aði grófum afbrotum um 7 prósent
miðað við árið 1998.
86 ára vill skilja
86 ára gamall Indverji, sem skildi
við eiginkonu sína að borði og sæng
fyrir 34 árum, hefur nú sótt um lög-
skilnað frá áttræðri konu sinni.
Hann segir hana enn eiga ástmann.
Eiginkona sakaði mann sinn um að
hafa haldið fram hjá með tónlistar-
nemum sínum.
Veikir gíslar fái frelsi
Stjóm Filippseyja biður nú upp-
reisnarmenn að láta veikustu gísla
sína lausa. Samtímis halda her-
menn áfram sókn sinni gegn mann-
ræningjunum og er því óttast að
blóðbað standi fyrir dyrum. Upp-
reisnarmenn eru sagðir hafa brotist
í gegnum raðir hermanna með þrjá
gísla á sunnudaginn. lyfirlýsingu
hersins sagði að hermennirnir
hefðu ekki reynt að stöðva upp-
reisnarmennina.
Breytir ekki um stefnu
fl sætisráðherra Bret-
I. "* ræðu í dag munu
’tfl stefnu í kjölfar ósig-
jH urs Verkamanna-
H ^ I flokksins í sveitar-
^—■ stjórnarkosningun-
um síðastliðinn fimmtudag. Missti
flokkurinn um 600 sæti í Englandi
samtímis því sem óháði frambjóð-
andinni Ken Livingstone var kjör-
inn borgarstjóri Lundúna.
Saka Mossad um árásina
Palestínsku samtökin PSF og
PFLP saka í viðtali viö norska blað-
ið Aftenposten ísraelsku leyniþjón-
ustuna Mossad um árásina gegn far-
þegaþotu Pan American flugfélags-
ins yfir Lockerbie í Skotlandi. ísra-
elar segja Palestínumenn hafa átt
aðild að árásinni.
Tefur friðarviðræður
Palestínumenn
segja að tillaga
Ehuds Baraks, for-
sætisráðherra Isra-
els, um að láta ekki
af hendi þrjú þorp
nálægt Jerúsalem
fyrr en eftir nokkr-
ar vikur eða mán-
uði tefji viðræðumar um frið í Mið-
austurlöndum.
Blaðamaður myrtur
Tugir þúsunda Spánverja, þar á
meðal konungsfjölskyldan, mót-
mæltu í gær morðinu á blaðamann-
inum José Luis Lopez de Lacalle
sem gagnrýnt hafði ETA samtökin.
Var blaðamaðurinn skotinn fyrir
utan heimili sitt á sunnudaginn.