Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2000, Side 4
4
Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 10. MAÍ 2000
r>v
Mál prófessors Gísla Guðjónssonar vekur mikla athygli ytra:
Gísli endurvekur frægt
Belfastmorö frá 1952
Miklar líkur eru á að skýrsla Gísla
Guðjónssonar, prófessors og réttarsál-
fræðings í London, leiöi til þess að
þekkt morðmál á Norður-írlandi frá
árinu 1952 verði endurupptekið.
„Þetta er spennandi mál og mjög
óvenjulegt vegna þess að þekktur
dómari og frægur lögreglumaður hjá
Scotland Yard komu þama við sögu.
Þetta mál hefur vafist fyrir yfirvöld-
um á Norður-írlandi á síðustu árum.
Nú virðast línur vera að skýrast með
skýrslu minni,“ sagði Gísli í samtali
við DV.
Málið varðar Skota, Iain Hay Gor-
don, sem átti yfir höfði sér dauðadóm
fyrir morð á 19 ára dóttur hæstarétt-
ardómara á Norður-írlandi árið 1952.
Gordon, sem þá var tvítugur og starf-
aði á vegum breska flughersins I
Belfast, var hins vegar úrskurðaður
ósakhæfur vegna geöveiki og var
dæmdur til vistar á hæli fyrir geð-
sjúka. Þar kom á hinn bóginn ekkert
fram um að hann væri andlega van-
heill.
Gordon var
sleppt árið 1960 og
hefir í mörg ár
barist fyrir því að
fá mannorð sitt
hreinsaö. Gísli
segir að lögreglan
hafi haldið því
fram að Gordon
hafl framið morð-
ið og var honum
talin trú um að
hann myndi ekki
eftir því. Ástæðan
fyrir því að Gordon var sakfelldur var
játning án nokkurs stuðnings við önn-
ur sönnunargögn.
Um játninguna sagði Gordon ný-
lega í viðtali við breska blaðið The
Independent:
„Ég var í litlu herbergi með fimm
eða sex lögreglumönnum sem öskr-
uðu á mig. Ég var undir miklu and-
legu álagi. í lok yfirheyrslnanna hefði
ég skrifað undir hvað sem var.“
VIII mannorð sitt hreinsað
„Ég var í meira en 7 ár á hæli fyr-
ir geðsjúka fyrir morð sem ég framdi
ekki. í dag hef ég trú á að loksins
verði nafn mitt hreinsað," sagði Gor-
don við The Independent um mála-
rekstur Gisla og lögmanns síns sem
breskur blaðamaður hefur stutt á síð-
ustu árum.
13. nóvember 1952 fann Desmond
Curran lík systur sinnar með 37
stungusárum við stíg sem lá aö heim-
ili þeirra norðan Belfast. Faðirinn,
Prófessor Gísli
Guðjónsson rétt-
arsálfræóingur.
Eg var í 7 ár á geðveikrahæli fyrir morð sem ég framdi ekki
lain Gordon, 68 ára, var tvítugur áriö 1952 þegar hann var sakfelldur fyrir að
hafa myrt 19 ára stúlku á heimili kunningja síns. Það bjargaði lífi hans að
hann var úrskuröaöur geðsjúkur sem hann hefur reyndar aldrei verið. Nú er
sakamálið á hendur honum greinilega talið byggt á falskri játningu.
hæstaréttardómarinn Lancelot,
hringdi um kvöldið í lögreglu og
spurðist fyrir um hvort einhver slys
hefðu orðið. Lögreglan bauðst til að
koma á heimilið en maðurinn afþakk-
aði. Móðirin hringdi 5 mínútum síðar
og bað þá lögreglu um að koma á stað-
inn. Klukkustund síðar kom fyrsti
lögreglumaðurinn á vettvang. Hann
gerði engar athugasemdir við að faðir-
inn, sonurinn og lögmaður fjölskyld-
unnar voru að bera „nýfundið" lík
dótturinnar út í bíl sem átti að aka til
læknis. Á staðn-
um, sem líkið
fannst, var lítið
blóð þrátt fyrir 37
stungur. Líkið
virtist hafa verið
hreyft. Lögreglan
hefur verið gagn-
rýnd fyrir að
rannsaka ekki
húsið eftir morðið
- húsráðandinn,
dómarinn, bann-
aði lögreglunni að
rannsaka heimili
sitt í heila viku
eftir morðið! Lögreglumaður skrifaði
hjá sér á sínum tíma að svo kynni að
vera að Curran-fjölskyldan hefði
spunnið upp lygavef - en það væri
ótrúlegt - fjölskyldan var ein sú mik-
ilsvirtasta á Norður-írlandi. 40 þús-
und vitnisburðir voru teknir - loks
féll grunur á hr. Gordon, taugatrekkt-
an einfara, sem var kunningi bróður
hinnar látnu. Hinn þekkti rannsókn-
arlögreglumaður, John Capstick, yfir-
lögregluþjónn frá Scotland Yard, og
aðstoðarmenn hans yfirheyrðu Gor-
37 stungusár
Dóttir hæstarétt-
ardómarans, Pat-
ricia Curran,
19 ára.
don í 3 daga án þess að hinn grunaði
fengi lögmann. Hr. Gordon skrifaði
undir skýrslu þar sem hann lýsir því
hvemig hann stakk hina látnu. Cap-
stick viðurkenndi síðar í bók að
ruddalegar aðferðir hefðu verið notað-
ar „til að ná fram sannleikanum".
Var forðað frá dauðadómi
í réttarhöldunum úrskurðaði dóm-
arinn, sem var vinur Curran-fjöl-
skyldunnar, að játningar Gordons
væru gildar þó svo að þær væru ekki
studdar öðrum sönnunum. Dauða-
dómur var fram undan. En til að
bjarga lífi Gordons dró verjandi hans
fram gögn sem áttu að sýna fram á
geðveilu Gordons. Kviðdómur úr-
skurðaði síðan manninn sekan en
taldi hann ósakhæfan. Dómarinn
dæmdi hann þvi til vistunar á geð-
veikrahæli. Þar var hann til ársins
1960 þangað til honum var sleppt.
Gísli Guðjónsson segir ekkert fram
komið um geðveilu Gordons. Á hæl-
inu hefði hann heldur aldrei fengið lyf
eða hlotið meðferð við slíku.
Desmond Curran, bróðir hinnar
látnu, er sá eini sem er á lifi úr fjöl-
skyldunni. Hann hætti lögfræðistörf-
um strax á 6. áratugnum, snerist til
kaþólskrar trúar, varð prestur og
flutti til Suður-Afríku þar sem hann
býr enn þá.
Á vegum bresku ríkisstjórnarinnar
starfar endurupptökunefnd í sakamál-
um. Samkvæmt frétt The Independent
er haft eftir talsmanni nefndarinnar
að líkur séu yfírgnæfandi á að mál
Gordons verði tekið upp. Þá verður
Gisli Guðjónsson aðalvitnið í endur-
upptökumálinu. -Ótt
Einfarinn lain dæmdur árið 1952
5 til 6 öskrandi lögreglumenn yfirheyrðu hann - hann gafst upp.
Vtíðrið i kvold
Suðlægar áttir
Síödegis og í kvöld er gert ráð fýrir fremur
hægri sunnanátt vestan til en suövestlægari
austan til. Á vestanveröu landinu má búast við
súld eöa dálítilli rigningu meö köflum en
bjartviöri veröur á Austurlandi.
22.24
03.57
16.04
04.34
Solargíin^ur og sjiivarfoll
Sólarlag í kvöld
Sólarupprás á morgun
Síódogisflóð
Árdegisflóö á morgun
Skýringar á veöurtákmmi
_HfTI
HtTKJAVIK
22.22
04.25
00.01
00.01
Í^vindátt 10®
-10°
'^SVINDSTYRKUR ’ Vpro<;t
I metrum á sckímdu 'vrnuai
4í> 43
tÉTOKÝiAD HÁLF-
SKÝJAÐ
RIGNING SKÚRIR
ÉUAGANGUR PRUMU-
VEDUR
43 O
SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ
SIYDDA SNJÓKOMA
=
SKAF ÞOKA
RENNINGUR
Aurbleyta víða
Allir helstu þjóövegir landsins eru færir.
Þó er krap og hálka á Holtavöröuheiði
og á Dynjandisheiöi á Vestfjöröum.
Aöeins er jeppafært um
Hrafnseyrarheiði og vegna aurbleytu
eru öxulþungatakmarkanir víöast á
Vestfjöröum og á útvegum á
Noröurlandi, Austurlandi og Suöurlandi.
. GREIÐFÆRT MÞUNGFÆRT
HÁLT ; ÓFÆRT
•vreaym j j irawraii 1 í -.ivrw, a-iti-i i w c-rre
Vt'ðrið .i mqrgVin
Bjartviðri víðast hvar
Gert er ráö fyrir suölægri átt og súld með köflum sunnan- og vestanlands
á fimmtudag og föstudag en björtu veöri annars staöar. Hiti veröur á
bilinu 15 til 20 stig, hlýjast norðan- og austanlands.
Á föstudag veröur
suöaustlæg átt og súld
meö köftum fyrir sunnan
og vestan en bjart veöur
annars staöar. Hltl 8 tll 18
stlg, hlýjast noröanlands.
Vindur fcr
5-10 m/s
Hiti 8° tii 18°
Sunnan og suöaustan 5-10
m/s. Viöa bjart veöur en
skýjaö sunnanlands og
Jiokuloft meö ströndlnnl.
HttJ 8 tll 18 stig, hlýjast
norðaustanlands.
Siiiiiuut.-isiií,
Vindur: > cO O
Hiti 10° til HlL
Búlst er viö fremur hægrl
suölægri átt. Súld eöa
rignlngu sunnan- og
vestanlands en björtu
veðri og áfram hlýju
noröaustan tll.
BmSEBSm-r
AKUREYRI skýjaö
BERGSSTAÐIR úrkoma
BOLUNGARVÍK
EGILSSTAÐIR
KIRKJUBÆJARKL. skýjað
KEFLAVÍK skúrir
RAUFARHÖFN alskýjaö
REYKJAVÍK rigning
STÓRHÖFÐI þokumóöa
BERGEN þokumóöa
HELSINKi léttskýjaö
KAUPMANNAHÖFN léttskýjað
ÓSLÓ léttskýjaö
STOKKHÓLMUR
ÞÓRSHÖFN skýjaö
ÞRÁNDHEIMUR rigning
ALGARVE skýjaö
AMSTERDAM þokumóöa
BARCELONA þokumóöa
BERLÍN skýjaö
CHICAGO alskýjaö
DUBUN þokumóöa
HALIFAX alskýjað
FRANKFURT skýjaö
HAMBORG léttskýjaö
JAN MAYEN skýjaö
LONDON mistur
LÚXEMBORG skýjaö
MALLORCA þokumóöa
MONTREAL
NARSSARSSUAQ alskýjaö
NEW YORK léttskýjaö
ORLANDO heiöskírt
PARÍS skýjaö
VÍN léttskýjaö
WASHINGTON hálfskýjaö
WINNIPEG þoka
M P P M fO R R M I M P p p p P ja p. p. p.
01U1N>0)0)00 0)00