Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2000, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2000, Blaðsíða 25
45„ MIDVIKUDAGUR 10. MAÍ 2000 DV Tilvera Telma laus við gubbupestina og komin til Svíþjóðar: Vissi að ég þyrfti að harka þetta af mér - 8 mánaða sonur hennar í Telma Ágústsdóttir hélt utan á mánudagsmorgun eftir að hafa fengið gubbupestina á síðustu stundu og þurft að horfa á eftir hópnum sem fór til Svíþjóðar á sunnudag. DV sló á þráðinn til Telmu til að grennslast fyrir um heilsu hennar. „Ég er stál- slegin núna. Ég vissi að þar sem þetta væri gubbupest myndi hún ganga fljótt yfir.“ Telma segist hafa ætlað með hópnum út á sunnudaginn þrátt fyrir pestina en hafi einfaldlega ekki komist fram úr rúminu. „En hvað hefði gerst ef Telma hefði ekki getað sungið - hefði einhver get- að fyllt hennar skarð?“ „Það er engin slik áætlun til. Það var bara að duga eða drepast. Ég vissi að ég þyrfti að harka þetta af mér.“ Telma dvelur ásamt íslenska hópn- um á Globen-hótelinu en þar dvelja öll lið keppninnar. Hótel Globen er stein- snar frá sjálfri Globen-tónleikahöll- inni, þar sem keppnin mun fara fram, og á hótelherbergjunum geta keppend- ur fylgst með æfingum hinna liðanna í gegnum sjónvarpstækin. Fyrsta æf- ing íslenska liðsins var í fyrradag en pössun hjá ömmu og afa önnur æfing verður i dag. Sjálf gener- alprufan verður á fóstudaginn og að henni lokinni er ekki annað að gera fyrir hópinn en að bíða eftir stóru stundinni á laugardaginn. „Þetta hefur gengið rosalega vel. Við renndum þrisvar sinnum yflr lag- ið á fyrstu æflngunni og það gekk vonum framar. Ég hef ekki heyrt mik- ið af hinum lögunum en sá æflngar hjá Noregi, Þýskalandi og Sviss," seg- ir Telma. Eiginmaður Telmu dvelur hjá henni, Telmu til halds og tausts, en heima fyrir bíður átta mánaða sonur þeirra, Daníel Atli, sem er í pössun hjá ömmu og afa. Telma segir mjög erfitt að vera án drengsins sins og hlakkar mikið til að hitta hann að nýju. „En verður ekki skrýtið fyrir Daní- el Atla að sjá móður sina á sjónvarps- skjánum á laugardaginn?" „Ábyggilega. Hann þekkir allavega lagið mjög vel og í hvert skipti sem hann heyrir það hættir hann því sem hann er að gera og leggur við hlustir." -KGP Hanks létti sig um 27 kíló Síðasta hlutverk Toms Hanks hefur gengið nærri honum. Hann varð nefnilega að létta sig um 27 kíló til þess að verða nógu horaður. í kvikmyndinni leikur Hanks nefnilega mann sem verður strandaglópur á eyðieyju í flögur ár. „Maður verður brjálaður,“ segir leikarinn í nýlegu viðtali og bætti við að það væri erfitt að fá enginn viðbrögð. Þetta væri næstum þvi eins og að leika í þöglu myndunum. Kvikmyndin Cast away verður frumsýnd í Bandaríkjunum um næstu jól. Sendiherrahjónin í Washington fara sínar eigin leiðir: í gíslingu í garði Hvíta hússins - erfiðara að komast út en inn, segir Bryndís Schram Jón Baldvin Hannibals- son, sendiherra í Was- hington, og Bryndís Schram, eiginkona hans, urðu viðskila við fylgdar- sveit forseta íslands eftir hádegisverðarboð Clintons Bandaríkjaforseta í borð- stofu Hvíta hússins á dög- unum og þurftu að neyta allra bragða til að komast út. Koss á kinn „Það er haft á orði að erfitt sé að komast inn i Hvíta húsið en reynsla okk- ar hjóna er sú að erfiðara sé að komast út úr því,“ sagði Bryndis Schram í símaviðtali úr sendiherra- bústaðnum i Washington. „Við Jón fengum skilaboð um að Clinton og Hillary vildu kasta kveðju á nokkra gesti úr hádegis- verðarboðinu áður en hald- ið yrði heim og stilltum við okkur upp til að kveðja samkvæmt reglum. Við vorum fremst í röðinni og kvöddum bandarísku for- setahjónin með handabandi en ég gat ekki stillt mig um að kyssa Hillary á kinnina og óska henni velfamaðar 1 baráttunni um öldungadeildarþing- sætið fyrir New York. Að svo búnu kom hvítklæddur kadett og vísaði okkur út í miklum flýti eins og venja er á svona stöðum. Við fórum inn gang, niður tröppur og beygðum til hægri og vinstri samkvæmt leið- beiningum kadettsins og stóðum allt í einu úti í garði Hvíta hússins en vorum þá á allt öðrum stað en við höfðum komið inn á,“ sagði Bryndís sem var þama komin i hóp fólks sem hún þekkti hvorki haus né sporð á og var í flestu ólíkur því og þarna stóðum við á röng- um stað á röngum tíma og fundum ekki bílinn okkar og hvað þá Fransesco bílstjór- ann okkar. Öryggisverðir Bandaríkaforseta, sem sner- ust þarna í kringum okkur, spurðu hvort við gætum ekki hringt í bílasíma sendi- herrabílsins en þar sem ný- búið er að skipta um síma í bílnum mundum við Jón ekki númerið. Það var því ekki um annað að ræða en að vappa um garð Hvíta hússins þvi ekki komumst við út úr honum né aftur inn í húsið. Við vorum eig- inlega í gíslingu þarna í garðinum," sagði Bryndís Schram sem lét sér ekki leiðast í garðinum því þarna *" var hún komin í hóp ýmissa auðmanna, skemmtikrafta og kvikmyndleikara sem til- heyrir stuðningsmannaliði Clintons. Að sögn Bryndisar var Jón Baldvin einnig hinn rólegasti og fékk sér sígar- ettu. Fransesco er tryggur „Reyndar féllum við ekk- ert illa inn í þennan hóp, þó svo við lítum ekki út fyrir að vera bandarískir auðkýf- ^ ingar. Frekar held ég að öryggis- verðir Bandaríkjaforseta hafi haldið að við værum kvikmyndastjörnur," sagði Bryndís Schram og hló svo undir tók á símalínunni frá Washington. „Loks grilltum við í glufu á girðingunni við Hvíta húsið og komumst út á götu þaðan sem við gátum gengið að vesturhlið hússins þar sem Fransesco beið með bílinn. Hann er tryggur og hefði aldrei fariö án okkar enda bú- inn að aka fyrir sendiráðið i 15 ár.“ -EIR Sendiherrahjónin í Hvíta húsinu Fóru inn gang, niöur tröppur og beygöu til hægri og vinstri samkvæmt leiöbeiningum hvítklædds kadetts bandaríkja- forseta. liði sem hún hafði fylgt inn í Hvita húsið við upphaf hádegisverðar Clintons. íslensku sendiherrahjónin höföu einhverra hluta vegna yflrgef- ið Hvíta húsið um norðurdyr þess í stað þess að fara út um vesturdyr eins og forseti íslands, Dorrit Moussaieff og allir hinir höfðu gert - og áttu að gera: Hvítklæddur kadett „Það var hvítklæddur kadett Bandarikjaforseta sem hafði vísað okkur veginn með þessum árangri Ma bjúða þér S ÆXI ? omtno HORNSÓFI SVARTU R•LJÓSBRÚNN DÖKKBRÚNN•DÖKKBLÁR 200x245 CM ÖAH B6 CM Leður á slitflötum TM - HÚSGÖGN Síðumúla 30 - Sími 568 6822 - ævintýri líkust ,w

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.