Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2000, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2000, Blaðsíða 6
24 MÁNUDAGUR 15. MAÍ 2000 MÁNUDAGUR 15. MAÍ 2000 25 Sport Sport Gísli G. Jónsson ók til sigurs í fyrstu umferö DV-Sport torfærunnar sem fram fór viö Stapafell í gær. Hér er Gísli í einni þrautinni. DV-myndir JAK Gunnar Gunnarsson á Trúönum sigraöi í flokki götubíla eftir haröa baráttu viö Ragnar Róbertsson. - Jónsson sigraði í fyrstu umferð DV-Sport Islandsmeistara- mótsins í torfæru sem fram fór á Reykjanesi í gær „Innst inni var ég búinn að ákveða að vinna þessa keppni," sagði Gísli G. Jónsson torfærukappi eftir fyrstu umferð DV-Sport ís- landsmeistaramótsins sem fram fór við Stapafell á Reykjanesi í gær. Gísli ók mjög vel í keppninni í gær og sigur hans var nokkuð ör- uggur. Ljóst er að hann verður erf- iður við að eiga í sumar. „Þeir voru að reyna að pumpa mig fyrir keppnina tun hvað ég ætl- aði að gera en ég vildi ekkert segja, svona fyrirfram. Keppnin var mjög góð, fyrsta keppni sumarsins og mátulega erfíð. Engin mjög slæm stál, kannski svona eitt og eitt. Þess- ar brautir reyndu mjög á akstur- shæfileika manna,“ bætti Gísli við. Þessi keppni var haldin undir dá- litið óvanalegum aðstæðum því eft- ir viku verða allir torfærubílamir settir í gáma og sendir til Englands. Einungis 12 keppendur voru skráðir til leiks og var það vegna þess að allir keppendurnir hafa ver- ið að endursmíða bíla sína, meira og minna, núna í vor. Sumir vom hreinlega ekki klárir, höfðu ekki byrjað nógu snemma eða vantaði varahluti sem þeir ætla að nota i bílana. Þá voru brautirnar greinilega lagðar til að reyna á aksturshæfni ökumannanna en ekki eins á bíl- ana. Keppnin var engu að síður spenn- andi og skemmtileg þótt ekki væri mikið um veltur, sem hefðu getað komið keppendum í verulegan vanda gagnvart Englandsförinni. „Bíllinn er í fínu lagi,“ sagði Gísli G. eftir keppnina. „Hann er tilbúinn i næstu þraut, í Swindon. Reyndar rífum við allt í sundur í vikunni, vélina, drifin, og gírkassana, skiptum um olíur og kerti til að vera vissir um að allt sé í lagi, það er regla hjá okkur. Keppnisvélin bilaöi klukkan tvö um nótt „Eigum við ekki bara að parkera þessu og hætta," sagði ég við strák- ana þegar keppnisvélin í bílnum bilaði klukkan tvö í nótt, nóttina fyrir keppnina," sagði Gunnar Gunnarsson, sigurvegari í götubíla- flokki. „Við vorum að stilla undirlyftur og það gleymdist að herða rocker- armana sem brotnuðu og undir- lyftustangir bognuðu. Það kom sko ekki til mála og varavélin var kom- in ofan í bílinn eftir tvo og hálfan tíma og allt klárt. Við vorum að setja nýjar fjaðrir og aftimhásingu í Trúðinn og rétt náðum að klára hann í morgun. Þessi sigur í dag er því ekki síst sig- ur strákanna, aðstoðarmanna minna," bætti Gunnar við. Aðstoðarmenn hans sýndu hvers þeir eru megnugir og áttu stóran þátt í sigrinum. -JAK Urslitin við Stapafell Flokkur sérútbúinna bíla: 1. Gísli G. Jónsson....1.995 2. Haraldur Pétursson..1.890 3. Sigurður Þór Jónsson .1.775 4. Guðmundur Pálsson ....1.520 5. Bjöm Ingi Jóhannsson..1.345 6. Gunnar Ásgeirsson ....1.170 7. Páll Antonsson........740 8. Benedikt Ásgeirsson ....0 Flokkur götubíla 1. Gunnar Gunnarsson ..1,730 2. Ragnar Róbertsson.....1.700 3. Ásgeir Jamil Allanson.1.465 4. Daníel G. Ingimundarson .. . 1.120 Haraldur Pétursson á Musso hreppti annaö sætiö á eftir Gísla G. r Blcmd *■ i Ein velta var í þessari keppni og var hún hrikaleg. Það var Björn Ingi Jóhannsson sem velti Friðu Grace hrikalega í 5. braut. Braut hann drifskaft og sleit dempara. Birni Inga tókst þó að gera við bílinn fyrir 6. brautina og mætti þar galvaskur. Haraldur Pétursson kláraði að setja Mussoinn saman um morguninn fyrir keppni og hafði ekkert tækifæri til að prófa bílinn. Akstur hans var því varfærnislegur en greinilegt var að Mussoinn lét mun betur að stjórn en í fyrra svo að Haraldur er á réttri leið. Daníel G. Ingimundarson átti i erfiðleikum vegna gangtruflana i Grænu þrumunni. Grunaði hann að blöndungurinn væri að hrekkja sig. Ragnar Róbertsson stóð sig vel í keppninni og krækti í 2. sæti götubílaflokksins. Pizza 67 Willysinn var greinilega á mörkunum að vera nógu aflmikill í sumum brautunum. Árangur Ragnars verður því að skrifa á frábæra aksturshæfni Ragnars. Páll Antonsson mætti með nýjan bil í keppnina, sem hann hefur verið að smíða í vetur. Páll Antonsson átti í vandræðum með Reis- græjuna. Bíllinn vildi drepa á sér í byrjun brautanna og kviknaði þá trekk í trekk í blöndungnum. Gunnar Ásgeirsson á Erninum sýndi snilldartakta við aksturinn. 1 erfiðasta barði keppninnar gaf hann hraustlega inn í upphafi en sló af í lok barðsins þannig að framfjaðrimar tóku frákastið og örninn sveif að því er virtist fyrirhafnarlaust upp barðið. -JAK Siguröur Þór Jónsson á Toshiba tröllinu hafnaöi í þriöja sæti viö Stapafell í gær. Ragnar Róbertsson hafnaöi í ööru sæti í flokki götubíla, 30 stigum á eftir Gunnari Gunnarssyni. Ásgeir Jamil hafnaöi f þriöja sæti í flokki götubíla og sést hér í einni þrautinni á bíl sínum. Gfsli G. Jónsson baðaöur í kampavíni af keppinautum sínum eftir keppnina f gær. Texti og myndir: JóhannA. Kristjáns- son * f

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.