Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2000, Side 4
ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2000
20
Stærsta
Gríðarlegur gangur á netferðaskrifstofunni MrJet:
netverslun N(
- íslendingurinn Hörður Bender stýrir og hyggur á frekari landvi
Hér í DV-Heimi
var í haust við-
tal við íslending-
inn Hörð Bend-
er, sem hafði þá
verið ráðinn til
sænsku netmið-
stöðvarinnar Spray til að stjórna
nýrri netferðaskrifstofu í eigu
Spray, MrJet, og gera hana að
stærstu ferðaskrifstofu sinnar teg-
undar í Evrópu. Síðan þá hefur ver-
ið rífandi gangur á MrJet og frá því
að þjónusta fyrirtækisins hófst á
Netinu þann 15. nóvember í fyrra
hefur það orðið tekjuhæsta netversl-
un í Skandinavíu. Og þá er ekki ver-
ið að tala bara um ferðaskrifstofur,
heldur allar tegundir netverslunar.
Jafnframt hefur fyrirtækið haslað
sér völl við þróun hugbúnaðar til að
selja ferðir á Netinu.
DV-Heimi fannst því tilvalið að
hafa samband við Hörð á nýjan leik
og spyrja hann nánar út í það
hvernig á þessari velgengni standi
hjá sænskri netferðaskrifstofu.
„Þetta byrjaði strax að ganga mjög
vel hjá okkur. í desember hófum við
mikla auglýsingaherferð, í kjölfarið
varð mikil sprenging og það var
eins og fólk hafi þama í fyrsta skipt-
ið áttað sig á því að hægt væri að
panta ferðir á Netinu," segir Hörð-
ur.
Salan margfaldast
Starfsmannafjöldinn hefur síöan
aukist frá þremur upp í 70 starfs-
menn og fyrirtækið hefur opnað úti-
bú í Noregi, Danmörku og Finn-
landi. Sala hefur nánast tvöfaldast
frá mánuði til mánaðar og í dag sel-
ur fyrirtækið ferðir fyrir 500.000 til
800.000 sænskar krónur (um 4,2 til
6,7 milljónir íslenskra króna) á dag.
í dag er MrJet því orðin söluhæsta
netverslunin í Skandinavíu og jafn-
framt stærsta einstaka ferðaskrif-
stofan í Svíþjóð.
En fyrirtækið selur ekki bara
ferðir, heldur hefur einnig haslað
sér völl í hugbúnaði sem miðar að
sölu ferða á Netinu. Það hefur keypt
stærsta hugbúnaðarfyrirtæki innan
ferðageirans í Evrópu, Travelware,
sem hefur þróað skrifstofuhugbún-
aðinn „Transfer" fyrir ferðaþjón-
ustufyrirtæki. íslensk fyrirtæki
hafa áttaði sig á notagildi Transfer,
þvi Icelandair Holidays, Samvinnu-
ferðir-Landsýn og Úrval-Útsýn nota
öll þennan hugbúnað.
Netlausn fyrir feröaskrifstofur
JetEngine er annað verkefni sem
MrJet kynnti fyrir skömmu. Það
gengur út á að auðvelda ferðaskrif-
stofum að koma þjónustu sinni út á
Netið án þess að þurfa að borga
gríðarlegan stofn- og rekstrarkostn-
að fyrir slíkt. JetEngine-lausnina fá
ferðaskrifstofurnar ókeypis frá
MrJet og þurfa ekki að kosta neitt
til reksturs hennar utan að greiða
andvirði um 400 íslenskra króna
fyrir hverja bókun gegnum hugbún-
aðinn. Slíkar bókanir geta farið
fram á heimasíðu viðkomandi ferða-
skrifstofu.
„Við treystum því hins
vegar að við getum
haslað okkur völl í öll-
um þessum löndum,
enda höfum við aflað
okkur mikillar reynslu
ásíðustu mánuðum.
Ég hef fulla trú á að
okkur takist ætlunar-
verk okkar og verðum
stærsta netferðaskrif-
stofa í Evrópu á næstu
misserum.“
Þegar eru yfir 100 ferðaskrifstofur
byrjaðar að nýta sér þessa þjónustu
án þess að markaðssetning sé hafrn
fyrir alvöru að sögn Harðar. „Okkar
hugmynd með þessu er að taka
verslunina frá hinum venjulegu að-
ferðum og færa hana yfir á Netið.
Við gefum þennan hugbúnað til
þess að kerfí frá okkur verði hinn
ríkjandi staðall varðandi það hvern-
ig fólk bókar á Netinu. í dag erum
við með 60% markaðshlutdeild í
Skandinavíu með Transfer-hugbún-
aðinn. JetEngine er hægt að sam-
hæfa algjörlega við þann hugbúnað
og því er sóknarfærið fyrir Jet-
Engine verulega mikið,“ segir Hörð-
ur.
Á næstunni er svo væntanleg við-
Tölvuglæpir alvarlegt vandamál:
Unnið að alþjóðlegum reglum
- um meöferö slíkra mála
Alþjóðlegar að-
gerðir í barátt-
unni gegn tölvu-
glæpum eru
ræddar nú í vik-
unni og taka
fulltrúar frá öll-
um stærstu þjóðum heims þátt í
þeim. Umræðumar eiga sér stað í
París og munu fulltrúar frá G8-hópi
þróaðra landa leita þar leiða til að
stemma stigu við hinum vaxandi
vanda sem af tölvuglæpum stafar
um þessar mundir.
Rannsökuð verða tilvik sem ný-
Þar verður sérstaklega
litið á hvernig samstarf
milli landa megi bæta
þegar reynt er að hafa
hendur í hári net-
glæpamanna og farið í
saumana á lagaflækj-
um sem gera yfirvöld-
um stundum erfitt fyrir
í málum sem þessum.
lega hafa komið upp, eins og t.d. ást-
arveiran sem olli verulegum usla
um allan heim fyrir skömmu. Þar
verður sérstaklega litið á hvemig
samstarf milli landa megi bæta þeg-
ar reynt er aö hafa hendur í hári
netglæpamanna og farið í saumana
á lagaflækjum sem gera yfirvöldum
stundum erfitt fyrir í málum sem
þessum.
Sú varð t.d. raunin með ástar-
veiruna en lögregla á Filippseyjum
þurfti að fresta húsleit og handtöku
á meðan leitað var að lögum sem
gætu átt við í máiinu.
Ný Qarskiptatækni ryður sér til rúms:
Tetra sameinar talstöðvar og farsíma
Nú er að hefja
innreið sína á ís-
landi ný tækni í
fjarskiptum sem
nefnist Tetra.
Með Tetra-tækn-
inni eru í raun
sameinaðir kostir talstöðva og far-
síma í einu tæki og telja margir að
tæknin muni hafa umtalsverða bylt-
ingu í fór með sér. Fyrirtækið
Stikla, sem er í jafnri eigu Lands-
simans, Landsvirkjunar og Tölvu-
Mynda, hefur fengiö úthlutað
rekstrarleyfi fyrir TETRA-þjónustu
frá Póst- og fjarskiptastofnun og
mun á næstunni hefja kynningu á
þessari fjarskiptanýjung.
Liður í þeirri kynningu er opnun
heimasiðunnar Tetra.is
(http://www.tetra.is) sem fyrst
kemur fyrir almennings sjónir í
dag. Þar getur fólk fræðst um allt
það sem tengist þessari fjarskipta-
tækni og einnig það sem snýr að út-
breiðslu hennar hér á landi.
En jafnframt er hægt að fá upplýs-
ingar um málið á fjarskiptaráðstefn-
unni „Fjarskipti til framtíðar" sem
haldin verður í Smáranum 19. tii 20.
maí og verður auglýst nánar í fjöl-
miðlum næstu daga, auk nánari
upplýsinga á tetra.is. Á ráðstefnunni
mun Simo Ruoko frá Finnlandi,
sölustjóri TETRA fyrir
norðvesturhluta Evrópu og Mið-
Austurlönd, halda fyrirlestur sem
ber yfirskriftina „TETRA, ný tækni í
fjarskiptum“. í sýningarbás Stiklu
geta menn síðan komið og fengið
nánari upplýsingar um TETRA-þjón-
ustu Stiklu og jafnframt því skoðað
TETRA-farstöðvar frá Nokia.
Nánar verður svo fjallað um Tetra-
tæknina í DV-Heimi eftir viku.
Við minnum enn lesendur DV-Heims á að vilji þeir koma
einhverju á framfæri við umsjónarmenn blaðsins eru allar
hugmyndir, athugasemdir, ábendingar og annað vel þegið.
Hægt er að senda okkur línu á netfangið dvheimur@ff.is
En það eru ekki bara G8-ríkin
sem eru að skoða þessi mál nú um
stundir því Evrópuráðið vinnur nú
með yfirvöldum í Bandaríkjunum,
Kanada, Japan og Suður-Afríku að
þvf að búa til samning um staðlaða
löggjöf um tölvuglæpi. Samningur-
inn myndi skylda þessi lönd til að
setja lög gegn tölvuhakki, tölvu-
svindli og barnaklámi á Netinu.
Hann myndi jafnframt kveða á um
refsingar fyrir slíka glæpi og verða
grunnur fyrir alþjóölegt samstarf
um rannsóknir tölvuglæpa.
Sakborningur fluttur til yfirheyrslu á Filippseyjum vegna ástarveirunnar.
Yfirvöld þar f landi áttu í vandræðum með að rannsaka máiið vegna þess aö
ekki var Ijóst hvaöa lög ættu viö um tölvuglæpi.