Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2000, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2000, Síða 8
ra íifið,. V T M M II 2 6. maí tll l. Laugardagur 27/05 Popp ■ UFANDI LAUGARDAGUR í JAPIS 200.000 naglbitar spila á lifandi laugardegi i Japis, Laugavegi 13, og hefst spiliriiö kl. 14. Þeir eru nýbúnir gefa út disk, Vögguvísur fyrir skugga- prins, og munu þeir spila efni af honum og lík- lega gamalt i bland. Tékkið á þessu. •Klúbbar ■ PZ-KVÖLD Á THOMSEN Partyzone kvoldin lifa enn góðu lífi og er eitt slíkt haldið á Kaffi Thomsen. San Fransiscodúddinn Miquel Migs er mættur á klakann og pumpar upp liðið. Hann verður á barnum ásamt þeim PZ-bræðrum og Árna Einari. Niðri verða stálboltarnir Grétar og Frimann að blanda vafasaman reif-kokteil. ■ PZ-KVÖLD Á VEGAMÓTUM I tilefni af 10 ára afmæli útvarpsþáttarins Party-Zone verður veisla á Vegamótum. Þetta er annaö af- mælispartíið sem þeir félagar halda, á það fýrra kom Dimitri from Paris, plötusnúðarnir Leo Young (ítalskur íslandsvinur), Tommi og Andr- és. Allt verður fljótandi í vökva-veitingum og hver veit nema boðið verði upp á grill eða aðra fasta fæðu. Herlegheitunum verður útvarpað á Rás 2 frá 22-00 eða jafnlengi og partíið stend- ur opinberlega yfir. Eftir miðnætti byrjar síðan annað PZ-partý á Kaffi Thomsen án þess þó að því Ijúki á Vegamótum. T/AFFl REY\JAV1K R F S I A U II A N T II A K Breytlur staður T/AFFl , REYÍJAVIK ■ FLOTT Á SPOTLIGHT Það verður partí og gleðskapur á Spotlight. Hittið fólk, verið fólk, gleðjið fólk. ■ SALSASTEMMNING Á KLAUSTRINU Ávallt sjóðheit og suðræn sumarstemmning á Klaustrinu. Plötusnúðarnir Svali og Big Foot sjá um taktinn. Alltaf gleði. ■ SKUGGABARINN ALLTAF TRAUSTUR Þeir Nökkvi og Áki keyra áfram taktþyrsta líkama með látum á Skuggabarnum. 22 ár inn og eng- ar gallabuxur. 500 kall inn. ■ VERSLANAPARTÍ A ASTRÓ Verslanirnar Blues, Hanz, Herragarðurinn, HugoBoss og út- varpsstöðin Mono, ásamt fleirum, halda meiri háttar sumarveislu á Astró. Viðskiptavinir- verlslananna munu fá boðskort svo og hlust- endur Mono 87,7. Ofsastuð og skemmtileg- heit. • Krár ■ GRAND Á GRAND ROKK Húsbandiö Grand heldur uppi tjúllaöri stemningu á Grand Rokk. Rokk og ról af öllum gerðum. ■ TJÚTT Á GAUKNUM Stuðböndin Gelrfuglarn- ir og Kanada sjá um fjör og fiflalæti á Gauk á Stöng. Þeim til fulltingis verða öðlingarnir í Dægurlagapönksveitinni Húfunnl og aldrei að vita nema óvæntir gestir droppi við á sviðinu. Eintóm gleði, pípandi stuð og gargandi snilld. ■ SIXTIES Á AMSTERDAM Rokkboltarnir í Sixties sjá um mjaðmahnykkja-takt fýrir gesti öldurhússins Café Amsterdam. ■ ÞÓR BÆRING Á SPORTKAFFl Það er fjörguttinn Þór Bærlng sem lokar sig inni í búr- inu og sér um tónlistina á ísafold Sportkaffi. Snyrtilegur klæðnaður og skilriki skilyrði fýrir inngöngu. ■ FIÐRINGUR Á DUBUNER Það verður tjútt og taumlaus gleöi á Dubllner þegar stuðboltarnir í Fiðringnum stíga á stokk og stilla strengi á stuð. ■ FÖNKFÍLINGUR Á SÓLON Þeir Steinar og Daði sjá um að últrafönka fólk á efri hæð Sól- ons íslandusar. Jamm jamm. ■ MILUÓN Á KRINGLUKRÁNNI Það eru Millj- ónamæringarnir ásamt Bjarna Ara sem sjá um sjóðheita sumarsveiflu á Kringlukránni. ■ DISKÓ Á ÁLAFOSS-FÓT BEZT Diskótekið og plötusnúöurinn Skugga-Baldur sér um takt- fasta tónanæringu fýrir eyru gesta Álafoss-föt bezt. ■ SÆLA Á GULLÓLDINNI Hin landsþekkta Sælusveit mun skemmta gestum Gullaldarinn- ar. Ósvikin sveifla og tjútt fýrir alla. ■ UPPLYFTING Á NAUST-KRÁNNI Hin gamal kunna hljómsveit Upplyfting leikur fýrir dansi á Naust-kránni. Tjútt og tvist. ■ ÞOTUUÐIÐ Á CATAUNU Hljómsveitin Þotu- liðið spilar á Catalinu, Hamraborg. Tjútt tjútt. ■ FJÓR Á RAUÐA UÓNINU Þau Skarphéðinn Þór og Mjöll Hélm skemmta gestum Rauða Ljénsins. Tvist og tjútt. ■ RÚNAR Þ. Á PÉTURSPÓBB Gestir Pét- urspöbbs njóta tónlistar Rúnars Þórs. ■ TJÚn Á KAFFI STRÆTÓ Elnar Jóns mætir í fjörgírnum á Kaffi Strætó. ■ UÚFT Á CAFÉ ROMANCE Sænski pfanó- snillingurinn Raul Petterson leikur léttum fingr- um um píanóiö á Café Romance. ■ NÆS Á NAUSTINU Söngkonan og píanóleik- arinn Liz Gammon styttir gestum stundir í kon- íaksstofu Naustsins. ©Böl 1 ■ HAUSVERKUR í LEIKHÚSKJALLARANUM Það verður feitt flör og dónaskapur í Þjóðleik- húskjallaranum þar sem haldið veröur Haus- verks-ball. Siggi Hlö, Valli sport, Rúni Rössei og Handlagna heimilisfrúin taka á móti gest- um. Alls konar húllumhæ. NærbuxnaskiptF markaður, súpermann-dansinn og margt fleira. Grolsch á hlægilegu verði og dj Siggi Hlö sér um tónlistina. ■ NÆTURGALINN Eins og alltaf er taumlaus gleði hjá Önnu Vilhjálms og vinum hennar í Næturgalanum. í kvöld er það sjálft Stuð- bandalagið frá Borgarnesi sem treður upp á dúndurballi frá kl. 10 til kl. 3. Stuðbandalagið var upphaflega hljómsveit Önnu en kemur nú í heimsókn til hennar til að spila. ■ DANSLEIKUR Á BROADWAY Danssveit Gunnars Þórðarsonar leikur fýrir dansi í aöalsal Broadway. ■ HÁTÍÐ HARMONÍKUNNAR í Ásgarði, Glæsi- bæ, eru haldnir tónleikar og dansleikur I tilefni af Hátíð harmoníkunnar. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 og fram koma allir helstu nikkuspilar- ar landsins auk Léttsveitar H.R. Dansleikurinn hefst kl. 22.30. Harmoníkufélag Rangæinga og Harmóníkufélag Reykjavíkur spila fýrir dansi. •K1assik ■ TÓNLEIKAR í REYKHOLTSKIRKJU Karla- kórinn Stefnir hitar upp fýrir komandi atburði með tónleikum í Reykholtskirkju kl. 14.00. Ein- söngvarar meö kórnum verða Ásgeir Eiríksson, Birgir Hólm og Stefán Jónsson. Stjórnandi er Atll Guðlaugsson og undirleikari Sigurður Marteinsson. •Sveitin I TOPAZ í GRINDAVÍK Hljómsveitin Topaz mun spila á Hafurbirninum. Allir í fjöri yfir góðri byrjun í boltanum. Tjútt og teygjutvist. ■ PANORAMA. BORGARNESI Hestamannafé- lagið Skugginn stendur fyrir dansleik í Panorama. Diskótek á staðnum og fritt inn. ■ SÓLDÓGG Á NESKAUPSTAÐ Stuðboltarnir í Sóldögg trylla lýðinn á Egilsbúð. Eintóm sæla Hinn síysinsaBli krt&ttspyrnuleikur. Draumalið Takiö þátt í spenn& idi leik í sumar mu mönnum á íþróttavef DV á Visi.is og á iþróttasíðum DV á hverjum " Vinningar leiksins: DraumaferO 6 leik í ensku úrvalsdeildinni í boðl Samvinnuferöa-Landsýn og veglegir vinningar frá Reebok. SÍMINN-GSM visir.is og gleöi fýrir austan. Söngvakeppni Neista- fiugs verður haldin um leið. ■ VIÐ POLLINN. AKUREYRI Hljómsveitin Karma, með hinn góðkunna Ólaf „Labba“ Þór- arlnsson innanborðs, skemmtir á Við Pollinn. Tjútt og djamm. ■ ALLINN. SIGLUnRÐI Eilifðarpopparinn Pét- ur Kristjáns er mættur á ný í bandinu Pétur & Gargið ásamt nokkrum þungavigtarmönnum úr rokkinu. Þeir mæta ferskir á Allann og rokka líf- tóruna úr mönnum og húsdýrum. Jahúúúúúúú! ■ KAFFl KRÓKUR, SAUÐÁRKRÓKI KK og Magnús Eiríksson leika fyrir gesti Kaffi Kréks. Garanteruð skemmtun. ■ ODO-VITINN. AKUREYRI Danshljómsveit Frið- jóns Jóhannssonar sér um mjaðmadilli-takta fýr- ir gesti Odd-Vitans. ■ HOPH). TÁLKNAFIRÐI Helðursmenn og KoF brún sjá um fjörið á Hopinu. Hoppandi stuð og gripandi gleði. ■ RÉTT1N. ÚTHLÍÐ Hljómsveit Geirmundar Val- týssonar sér um sveifluna og grenjandi stuð í Réttinni, Úthlíð. ©Leikhús ■ EINHVER í DYRUNUM Nýtt leikrit eftir Sigurð Pálsson er sýnt í Borgarleikhúsinu I kvöld, kl. 19. Þaö nefnist Einhver í dyrunum. Miðaverð er kr. 2000 en síminn hjá liðinu uppi í Borgarleik- húsi sem vill redda því fýrir þig er 568 8000. ■ STJÖRNURNAR SKÍNA SKÆRT Hin marg- rómaöa sýning, Stjörnur á morgunhimni, rúllar enn þá fýrir fullu húsi í Iðnó. Það er ekki skrýtið þar sem hér er gæðasjóv á ferð. I kvöld eru örfá sæti laus. Síminn í Iðnó er 530 3030. ■ HINN FULLKOMNI JAFNINGI Sýning Leik hópsins Á senunni (www.on-the-scene.net), Hinn fullkomni jafningi, hefur farið víða og sló m.a. í gegn í Drill Hall leikhúsinu í London. Nú er sýn- ingin komin aftur í íslensku Óperuna þar sem þurfti að hætta sýningum fýrir fullu húsi í fýrra. Sýningin hefst kl. 20. Síminn í miðasölunni er 5511475. ■ PRAUMUR Á JÓNSMESSUNÓTT Þjóðleikhús- ið sýnir Shakespeare-leikritið Draum á Jóns- messunótt á stóra sviðinu. í stórum dráttum fjall- ar verkið um elskendur sem flýja út í skóg á Jóns- messunótt og stunda galdra og töfra. Leikstjóri er Baltasar Kormákur og meöal fjölda leikenda eru Atli Rafn Sigurðarson, Bergur Þór Ingólfs- son, Brynhildur Guðjónsdóttir, Björn Jörundur, Hilmir Snær og Steinunn Ólína Þorstelnsdóttir. Miðapantanir eru í síma 551 1200. Örfá sæti laus. ■ HELGI OG SVANAVATNH) Þá er komið að sjálfum Helga Tómassyni að stjórna sokka- buxnadönsurunum í San Francisco-ballettinum á stóra sviði Borgarlelkhússins. Þeim datt ekk- ert frumlegra i hug en að sýna Svanavatnið. Að vísu er það marglofuð sýning hjá þeim þannig að það er kannski ekki alslæmt. Það varð strax uppselt á sýningarnar þannig að það næsta sem þú kemst því að sjá verkið er þessi texti hér. Það er allt í lagi þar sem salurinn á eftir að vera pakk- aður af snobbliði sem getur varla dregið nefið niður til að horfa á sviðið. Leigðu þér bara Flas- hdance í staðinn. ■ VÖLUSPÁ Möguleikhúsið sýnir Völuspá klukkan 17. Miðapantanir í sfma 551 2525. ■ ÉG VAR EINU SINNI NÓRD Jón Gnarr, the only one, gnarrast ! gleðistykkinu Ég var elnu sinni nörd. Nú eru allra síöustu forvöð að sjá húmormeistarann nördast því þetta er aukasýn- ing og ein af allra síðustu sýningum. Miðasalan í Loftkastalanum er opin allan sólarhringinn og síminn er 552 3000. Einnig er hægt að spek- úlera í miöum á netslóðinni loftkast- ali@islandia.is. Sýningin hefst kl. 21. ■ LADDI TWO-GEE Hinn eini sanni Þórhallur Sigurðsson, Laddi, ástsælasti grinari íslensku þjóðarinnar, heldur uppi stanslausu stuði á sýningunni Laddi 2000. Þarfer hann yfir ferilinn og allar litriku persónurnar sem hafa litið dagsins Ijós, þökk sé honum. Steinn Ármann Magnússon aðstoðar meistarann í Bíéborginni kl.20. ■ TOBACCO ROAD Lelkfélag Akureyrar sýnir leikritið Tobacco Road eftir Erskine Caldwell klukkan 20. Þetta er sígildur gamanleikur og saga um skrautlegar persónur sem kljást við kreppu ! Suöurríkjunum. Leikstjóri er Viðar Eggertsson og meðal leikenda eru Þráinn Karlsson, Hanna María Karlsdóttir, Agnar Jón Egilsson og Sunna Borg. Miðapantanir eru ! síma 462 1400. •Kabarett ■ BEE GEES Á BROADWAY Hin slvinsæla Bee Gees-sýning er enn á sviði Broadways. Söng- stjörnur staðarins sjá um sönginn og hljómsveit Gunnars Þórðarsonar leikur undir. ■ LADDI 2000 LADDI 2000 er samantekt á persónum sem Laddi hefur skapað í gegnum tlðina og er sett upp í skemmtilegt kabarettform jjlill ifókus með hjálparkokkunum Halia bróður og Steini Ár- manni. Einnig spilar fimm manna hljómsveit Laddalög undir styrkri stjórn Hjartar Howser. Sýningin Laddi 2000 er í Bióborginni og hefst kl 20. Miðapantanir eru í síma 5511384. •Fyrir börnin ■ LOKAHNYKKUR Fjöldi barna kemur saman á Arnarhóli í fýlgd leikskólakennara og flytja tón- verkið Þúsaldarijóð eftir TryggvaM. Baldvinsson við texta Sveinbjörns I. Baldvinssonar. Dans við verkið samdi Ólöf Ingólfsdóttir. Uppákoman er lokahnykkur í verkefninu 2000börn í Reykjavik 2000. ■ VÓLUSPÁ Nýtt verk fýrir börn eftir Þórarin Eld- járn verður sýnt í Möguleikhúsinu kl. 17 ! dag. Það nefnist Völuspá. Síminn í miðasölu Listahá- tíöar er 552 8588. •Siðustu forvöö ■ VATNSUTAMYNDIR f USTHÚSINU Svava Sigríður Gestsdóttir hefur opnað sýningu á vatns- litamyndum í Listhúsinu í Laugardal, Veislugaller- íi. Sýningin ber heitiö Hraun og vatn og er þetta 12. einkasýning Svövu. Opið er 9-19 virka daga og 10-17 laugardaga. ■ USTHÚS ÓFEIGS Sýning Daníels Hjartar á tréskúlptúrum lýkur! Listhúsi Ófeigs að Skóla- vörðustlg 5. Sýning ber yfirskriftina Konur og menn. •Sport ■ FRÓNSK KÚLUKEPPNI Kl. 17 verður sanrv kölluð suður-frönsk stemmning hjá Alliance francaise, Austurstræti 3 þegar keppt verður í pétanque sem er franskur kúluleikur. ■ LANDSLEIKUR Á SPORTKAFFI ísafold Sport- kaffi sýnir beint frá vináttulandsleik Englands og Brasilíu á stóra skjánum. Kaldur öl á barnum. ■ SKÁK OG MÁT Á HÚSAVÍK Skákþing Norð- lendinga 2000 er haldið á Húsavík þessa helg- ina. Mótið byrjaði! gær og heldur áfram í dag frá kl. 14. ■ ORMURINN. EGILSSTÓÐUM Ormurinn er með breiðtjald þar sem sýnt verður frá vináttu- landsleik Englands og Brasilíu í fótbolta. Útsend- ingin hefst kl. 13.45. Ljúfur bolti, kalt öl. •Opnanir ■ EINN NÚLL EINN Plötusnúðurinn Fos kemur frá Kaupmannahöfn og opnar sýningu onoone gallerí kl 17 , Laugavegi 48b. Sýningin stendur til 27. júní. ■ DYR AÐ SKUGGA VATNS í GALLERÍ HLEMMI Bjarni Sigurbjörnsson opnar sýningu s!na Dyr að skugga vatns í Galleri@hlemmur.is, Þverholti 5, kl. 17 í dag. Sýningin stendur til 18. júní og er opin frá fimmtudegi til sunnudags frá 14-18. ■ GARÐHÚSABÆRINN Á KJARVALSSTÓÐUM Sýningin Garðhúsabærinn (Kolonihaven) verður opnuö á Kjarvalsstöðum ! dag. Alþjóðlegt verk- efni í byggingarlist þar sem sautján heimsþekkt- ir arkitektar, þeirra á meðal Frank 0. Gehry, hafa verið fengnir til að teikna smáhús, sem gjarnan eru reist í garðlöndum, og verða teikningar og lík- ön þeirra sýnd. Hús íslensku arkltektanna sem unnu til verðlauna verður reist í fullri stærð við Kjarvalsstaði. Garðhúsabærinn er samvinnuverk- efni Arkitektafélags íslands og Listasafns Reykja- víkur og er einnig á dagskrá Listahátíðar. Sýning- unni lýkur 23. júlí. ■ GALLERÍ ÁHALDAHÚSH) í EYJUM Sigurdís Arnarsdóttir opnar í dag kl. 17 sýningu á mynd- verkum sínum ! Galleri Áhaldahúsinu í Vest- mannaeyjum. Sýningin, sem ber yfirskriftina Ást í maí, er siðasta sýningin af fjórum í sýningaröð- inni Myndlistarvor íslandsbanka í Eyjum 2000. Sigurdís vinnur stórar myndir af sjónvarpsskjá með aðstoð tölvu- og Ijósmyndatækninnar og fjalla þær allar um ástina á einhverju stigi. Sýn- ingin er opin þessa helgi og næstu og er aðgang- ur ókeypis. ■ SÓGUBROT ÚR SJÁVARÞORPI Á AKRANESI I tengslum viö sýninguna Sjávarlist á Akranesi verður opnuð sögusýningin Sögubrot úr sjávar- þorpi á bókasafninu í dag. Dagskráin er hluti af samstarfsverkefni Menningarborgarinnar og sveitafélaga og stendur sýningin til 9. júní. ■ ■ SUMARSÝNING NORRÆNA HÚSSINS Rakk eða sú sérstaka tilfinning að vera bæði heima og heiman er ætlað að kynna myndlist eftir unga norræna og alþjóðlega listamenn ííslensku menningarsamfélagi. Listamennirnir sem taka þátt í sýningunni koma viðs vegar að og eru verk þeirra allt frá málverkum, skúlptúr, Ijósmyndum, myndböndum, innísetningum til gjörninga. ■ SÓGUVEISLA í SÓGUSETRINU Á HVOLS- wl 11 Sögusetrið á Hvolsvelli hefur veriö dug- legt við að tengja saman sögu og atvinnulíf og hefur byggt upp menningarlega ferðaþjónustu með Njáls sögu í öndvegi. I dag opnar sérstök sýning um menningarsögu þjóðarinnar! 1000 ár i máli og myndum. Sýningunni er m.a. ætlað að varpa Ijósi á það hvers vegna Island hefur stundum verið nefnd Sögueyjan. Söguveislan hefst í Söguskálanum kl. 20 og verður í gangi út ágúst.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.