Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2000, Blaðsíða 10
J.
E3 ljljfLl ö F E T L K Y L M M U.
V i k a n 2 6, maí t i I 1, i ú n L
Ifókus
* SunnudagurJ
28/05
•Krár
■ UÚFT Á CAFÉ ROMANCE Sænski píanó-
snillingurinn Raul Petterson leikur léttum fingr-
um á píanóiö á Café Romance.
■ NÆS Á NAUSTINU Söngkonan og píanóleik-
arinn Llz Gammon styttir gestum stundir í kon-
íaksstofu Naustslns.
D jass
■ PJftSSKLÚBBURINN MÚUNN Nu féraðlfða
aö lokum vetrarvertíöar Múlans og eru þetta
næstsíöustu tón-
leikarnir sem
haldnir eru að
þessum vetri. Það
er Árni Heiöar
Karlsson píanóleik-
ari ásamt hljóm-
sveit sem spilar á
þessum tónleikum.
i henni eru Matthí-
as Hemstock
trommari, Valdimar
Kolbeinn Sigurjónsson kontrabassaleikari, og
Jóel Pálsson tenórsaxófónleikari. Að þessu
sinni hefjast tónleikarnir kl. 21.30 og er mióa-
verð 1000 kr., 500 kr. fyrir nema og eldri borg-
ara.
•K lassík
■ ORGELTÓNLEIKAR í HftLLGRÍMSKIRKJU
Fjórðu tónleikarnir I tónleikaröð Listvinafélags
Hallgrímskirkju í tilefni af 250. dánarári J. S.
Bach verða haldnir í Hallgrímskirkju kl. 17.00.
Kári Þormar, organisti Fríkirkjunnar í Reykjavík,
flytur orgelverk eftir þrjú tónskáld frá þremur
löndum, Johann Sebastian Bach, Maurice
Duruflé og Pál ísólfsson.
■ TÓNLISTftRMENN FRftMTÍÐftRINNAR í
kvöld, kl. 20.30, stendur Listahátíö í Reykjavík
fyrir tónleikum í Salnum, skrýtna græna húsinu
á hæðinni, sem bera nafnið Tónlistarmenn 21.
aldarinnar. Miðaverð er 1500 kall. Síminn í
miðasölu Listahátíðar er 552 8588.
Leikhús
■ SJEIKSPÍR Það verður maraþonsýning á
verkinu Sjeikspír eins og hann leggur sig í Iðnó
- klukkan 20. Þetta er ærslafullt stykki þar sem
öllum Shakespeare-leikritunum er skellt saman
í einn graut. Halldóra Geirharðsdóttir, Friðrik
Friðriksson og Halldór Gylfason fara á kostum í
leikstjórn Benedikts Erlingssonar. Miðapantan-
ir eru í síma 530 3030. Garanteruð skemmtun.
■ HINN FULLKOMNI JAFNINGI Sýning Leik
hópsins Á senunni (www.on-the-scene.net),
Hinn fullkomni jafningi, hefur farið víða og sló
m.a. í gegn í leikhúsinu Drill Hall I London. Felix
Bergsson kallar ekki allt ömmu sína og vakti
það mikla athygli hjá Englendingunum að
stjórnandi barnaþáttar skyldi leika í eigin
hommaleikriti. En nú er sýningin komin aftur í
íslensku óperuna þar sem þurfti að hætta sýn-
ingum fyrir fullu húsi í fyrra. Sýningin hefst kl.
20 og er á ensku. Síminn í miðasölunni er 551
1475.
■ HELGI OG SVANAVATNH) Þá er komið að
sjálfum Helga Tómassyni að stjórna sokka-
buxnadönsurunum í San Francisco-ballettinum
á stóra sviöi Borgarleikhússins. Þeim datt ekk-
ert frumlegra í hug en að sýna Svanavatniö. Að
vísu er það marglofuð sýning hjá þeim þannig
að það er kannski ekki alslæmt. Það varð strax
uppselt á sýningarnar þannig að það næsta
sem þú kemst því að sjá verkið er þessi texti
hér. Það er allt í lagi þar sem salurinn á eftir að
vera pakkaður af snobbliði sem getur varla
dregið nefið niður til að horfa á sviðið. Leigðu
þér bara Flashdance i staðinn.
•Fyrir börnin
■ VÖLUSPft Nýtt verk fyrir börn eftir Þórarin
Eldjárn verður sýnt i Möguleikhúsinu kl. 17 i
dag. Það nefnist Völuspá. Síminn i miðasölu
Listahátíðar er 552 8588.
•Siöustu forvöö
■ GALLERÍ GEYSIR Fyrsta árs nemar i
Grafiskri hónnun viö Listaháskóla íslands Ijúka
sýningu í Gallerí Geysi Hinu Húsinu v/lngólfs-
torg i dag. Nemendurnir fengu það verkefni í
vetur að hanna plakat „Unglistar 2000" og er
afrakstur joeirra vinnu nú til sýnis i Galleríinu.
Margar skemmtilegar hugmyndir bárust og
verður sýningin opin alla virka daga frá kl. 9-17.
■ CAFÉ ÓSK Sýningu Antonios Hervás
Amezcuaa á olíuverkum og grafíkmyndum á
Café Ósk, Drafnarfelli 18, Breiðholti, fer að
Ijúka. Opnunartimi er: mánudaga og miðviku-
daga kl. 10-18,fimmtudaga og föstudaga kl.
10-23, laugardaga kl. 12-18 og sunnudaga
kl.14-18.
>
ctrlsbcri
(arbLerg
gott í myndlist
Ég verð alveg eindregið að mæla með
Bláu sýningunni í Nýlistasafninu. Það
er hópur Breta sem sýnir þar og þetta
er voða skemmtileg sýning, hressandi
vítamínsprauta í listmenninguna hér á
íslandi. Þetta er dálítið skrýtin sýning
sem snertir á ýmsu og byggist upp á
video, innsetningum og alls konar list-
formum. Sérstaklega fctnnst mér verk
Gillian Wearing vera áhugaverð.
Síðan vil ég endilega benda á vor-
sýningu útskriftarnema Myndíista- Bjargey ólafsdóttir, “kvTkmynda-
og handíðaskólans. Hún er alltaf jafn
skemmtileg og fjölbreytt.
gerðar- og myndlistarmaður
■ GJÓRNINGftKLÚBBURINN í 18 Gjörninga-
klúbburinn lýkur sýningu sinni Framgarö-
ur/Ongarden I Galleríi i8, Ingólfsstræti 8, í dag.
Gjörningarklúbburinn er skipaður fjórum mynd-
listarmönnum. Þeim Dóru ísleifsdóttur, Eirúnu
Sigurðardóttur, Jóní Jónsdóttur og Sigrúnu
Hrólfsdóttur f. 1973. Þær útskrifuðurst allar frá
Myndlista- og handíðaskóla íslands 1996 og
hafa stundað framhaldsnám í New York, Kap-
mannahöfn og Berlín. Gjörningaklúbburinn hef-
ur verið starfræktur frá því 1996 og haldið fjöl-
margar sýningar heima og erlendis. Á sýningar-
tímanum má almenningur eiga von á óvæntum
glaðningi heim að dyrum.Framgaröur er heilsu-
lind hugans. Ekkert er lokað, allt er opið.Til
hamingju með lífið. Viö erum núna. Opið
fimmtudaga til sunnudaga frá kl. 14-18.
■ ÚTSKRIFTARSÝNING LISTAHÁSKÓLftNS
Sýningu á lokaverkefnum nemenda í myndlist-
ardeild við Listaháskóla Islands lýkurí dag. Alls
sýna 47 nemendur á sýningunni sem er til húsa
að Laugarnesvegi 91. Útskriftarnemendur hafa
látiö gera póstkort og verða þau boðin sýning-
argestum ókeyþis. Sýningin verður opin dag-
lega frá 14-18.
Bíó
■ RAFEIND. EGILSSTÓÐUM Kvikmyndahúsið
Rafeind sýnir stórmyndina Reindeer Games kl.
20. Spennumynd meö Ben Affieck.
•Sport
■ SKÁK OG MÁT Á HÚSAVÍK Skákþingi Norö-
urlands 2000 lýkur á Húsavík í dag. Hraöskák-
mótiö hefst kl. 14.
•Feröir
■ LÍFK) VH> SJÓINN Árbæjarsafn stendur fyrir
sýningunni Lífið við sjóinn. Af því tilefni er al-
menningi boðið í siglingu á vegum Hafrann-
sóknastofnunar á rannsóknarskipinu Dröfn, ef
vel viörar. Um borð verður fræðsla um hafrann-
sóknir og lífríki sjávar. Lagt veróur upp frá Faxa-
garöi kl. 11.00,13.00 og 15.00.
Mánudagur J
29/05
strengjasveit Tónlistarskólans í Reykjavik, og
heldur magnaða tónleika. í Dramasveitinni eru
lengst komnu nemendur Tónlistarskólans
þannig að óhætt er að kalla hana bestu
strengjasveit á landinu. Tónleikarnir hefjast kl.
20 en þá mun sveitin annars vegar fiytja
Appollon Musageté eftir Shostakovits og hins
vegar Strengjakvartett nr. 8 í strengjasveitarút-
gáfu R. Barschai eftir Stravinsky. Á tónleikana
kostar 500 krónur en frítt er inn fýrir eldri borg-
ara, nemendur og börn.
•Opnanir
■ HAFNARBORG Sýning á verkum Elsu Stans-
field og Madelon Hooykaas i Hafnarborg,
menningar- og listastofnun Hafnarfjaróar lýkur í
dag. Elsa Stansfield og Madelon Hooykaas
hafa unnið saman í meira en tuttugu og fimm
ár og hafa á þeím tíma unnið fjölda verka í
ýmsa miðla - hljóðverk, myndbönd, geisladiska
og CD-rom. Verk þeirra eru innsetningar sem
nýta hljóö og myndbönd, en þeim hefur einnig
verið varpað út gegnum kapalkerfi og sjónvarp.
•Síöustu forvöö
■ BORG OG NÁTTÚRA Það er síðasti sjens að
kíkja á sýninguna Borg og náttúra í Ráðhúsinu
í dag. Sýningin endurspeglar á myndrænan hátt
samspil borgarinnar viö höfuðskepnurnar fjór-
ar: Vatnið, það er samspil borgar við strönd og
haf. Jörðina, sem er sá grunnur sem borgin er
byggð á og tengist borgarlífinu á opnum svæð-
um og við jaöar hennar. Eldinn í iðrum jaröar í
formi jaröhitans sem mótað hefur borgina. Loft-
ið sem er sjóndeildarhringurinn sem mótar ytri
umgjörö og ramma Reykjavíkur. Borgarskipulag
Reykjavíkur stendur að sýningunni í samvinnu
Háskóla íslands, Árbæjarsafn og byggingar-
listadeild Listasafns Reykjavíkur.
■ SÝNING Á DÚKRISTUM í Hafnarborg,
menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar lýkur
sýningu á verkum færeysku grafíklistakonunnar
Elínborgar Lutzen. Sýningin kemur frá Lista-
safni Færeyja, en að Elínborgu látinni gáfu erf-
ingjar hennar safninu öll myndmót sem hún lét
eftir sig.
ÞriðjudagurJ
30/05
•Krár
■ BLÚS Á GftUKNUM Þaö er blús-rokkað feitt
á Gauki á Stöng þegar þungavigtarliðið í Berg-
mönnum Blúsþórs stígur á stokk. Fullkomiö fyr-
ir mánudagsþunglyndið.
■ UÚFT Á CftFÉ ROMANCE Sænski píanó-
snillingurinn Raul Petterson leikur léttum fingr-
um á píanóið á Café Romance.
■ NÆS Á NftUSTINU Söngkonan og píanóleik-
arinn Liz Gammon styttir gestum stundir t kon-
íaksstofu Naustsins.
D jass
■ JftSSKVÓLD í LEIKHÚSKJALLARANUM
Jasskvöld verður t Listaklúbbnum t Leikhúskjall-
aranum i kvöld. Tónleikarnir verða að mestu til-
einkaðir trompetleikurunum Miles Davis og
Chet Baker en einnig munu verða leikin og
sungin lög eftir þekkt söngleikjatónskáld, svo
sem Cole Porter. Hljómsveitina skipa Þóra G.
Þórisdóttir, Andrés Gunnlaugsson, Valdimar K.
Sigurjónsson og Birgir Baldursson. Dagskráin
hefst kl. 20.30 en húsið verður opnað kl.
19.30.
•K1 a s s i k
■ BESTft STRENGJftSVEIT LANDSINS Það er
ekkert til að sjá eftir að mæta t Salinn t Kópa-
vogi í kvöld. Þar mætir nefnilega Dramasveitin,
•Krár
■ STEFNUMÓT 30 Hin vtðfrægu Stefnumóta-
kvöld Undirtóna halda áfram öllum til ómældr-
ar gleði. Nú er það Stefnumót 30 og munu þeir
Undirtónamenn sjálfsagt massa upþ feitt
prógram sem áður.
■ SÓLEY Á THOMSEN Sóley, einn sætasti
dídjei veraldar, spilar feitt r¥n¥b og fönkt hip-
hop á Kaffi Thomsen. Úber-tjill og næsheit.
■ UÚFT Á CAFÉ ROMANCE Sænski ptanó-
snillingurinn Raul Petterson leikur léttum fingr-
um á píanóið á Café Romance.
■ NÆS Á NAUSTINU Söngkonan og ptanóleik-
arinn Liz Gammon styttir gestum stundir í kon-
taksstofu Naustsins.
D jass
■ CESARIA EVORA Miðar á tónleika söngkon-
unnar Cesaria Evora seldust upp á rúmum
tveimur ttmum strax við upphaf miðasölu Lista-
háttðar og varð strax mikil eftirspurn eftir
aukatónleikum. Nú halda Cesaria Evora og
hljómsveit hennar aukatónleika t Broadway,
klukkan 19. Sími miðasölunnar er 552 8588.
Miðasala Listahátíðar er opin alla virka daga kl.
9-17 og laugardaga, kl. 10-14.
Leikhús
■ SÍÐASTI SNORKO Þaö þarf varla að kynna