Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2000, Blaðsíða 4
Fréttir
FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 2000
I>V
Rífandi eftirspurn eftir að komast í Stjörnueyjaklasann:
Kári og Sigurjón ná-
grannar á Breiðafirði
- milljónatugir í boði fyrir allt sem falt er
Hrappsey
Kári Stefanst
bútn að gera
tilboð sem e'
erhcegtaðhafni
Elll&aey
Björkmissti
áhugann þá svo
forsœtisraðherra
byði hermi
Arney
Sigurjón
Sighvatsson
retddifram
15 miUjónir
krána.A
Efri-Langey
Kaupmarmshjón
i Reykjavtk
keyptu húslausa
eyjuna á rúmar
10 miBjónir króna.
Hvítbjarnarey
Fyrsti vinningur
i happdrœtti
enkamá
óseldan miða.
Gjar&eyjar
Bóndinn viB 35
miBjónirfyrir
eyjamarog
á fastaland
„Menn eru orðnir svo rlkir. Þetta
var ekki svona hér áður fyrr,“ segir
Gissur Tryggvason, eyjaeigandi í
Stykkishólmi, um þann gríðarlega
áhuga fólks að eignast eyju á Breiða-
firði. „Þegar fleiri en einn sýna eyju
áhuga þá rýkur verðið upp en þarna
gilda að sjálfsögðu lögmál framboðs
og eftirspurnar eins og annars staðar.
Annars held ég að lítið sé um það nú
að eyjar losni og séu boðnar til sölu,“
segir Gissur en þessi áður óþekkti
áhugi á eyjunum í Breiðafirði hefur
orðið til þess að nú gengur íjörðurinn
undir nafninu Stjörnueyjaklasinn,
með tilvisun til þeirra sem þar hafa
fjárfest að undanförnu. Ef svo fer sem
horfir verða Kári Stefánsson, forstjóri
íslenskrar erfðagreiningar, og Sigur-
jón Sighvatsson kvikmyndaframleið-
emdi nágrannar á Breiðafirði, Kári í
Hrappsey en Sigurjón í Amey. Kári
hefur gert kauptilboð í Hrappsey en
Sigurjón hefúr þegar fest sér Amey
fyrir 15 milljónir króna.
Engar snekkjur enn
„Ef Sigurjón greiddi 15 milljónir
fyrir Amey ætti Hrappsey að kosta 50
milljónir því hún er miklu stærri og
merkilegri," sagði einn þeirra sem
stundað hafa viðskipti með eyjar á
Breiðafirði en vill ekki láta nafn síns
getið, enda farið með þessi viðskipti
eins og mannsmorð:
„Ég er þó ekki enn farinn að sjá
snekkjur þessara kappa hér í höfn-
inni enda býst ég ekki við að þeir
fari út í slíkt. Þessir menn eru að
kaupa sér frið og vilja vera einir sér.
Þetta er allt annað en að eiga sumar-
bústað í Grímsnesinu þó það sé ódýr-
ara,“ segir Gissur Tryggvason sem
sjálfur á hlut í tveimur eyjum á
Breiðafirði, Svefneyjum og Bjameyj-
um. „Hjá mér er ekkert til sölu,“ seg-
ir Tryggvi aöspurður en það em aðr-
ir sem vilja selja:
Bóndi vill 35 milljónir
„Ég vil fá 35 milljónir fyrir Gjarð-
eyjamar og jörð mína,“ segir Daníel
Jónsson, bóndi á Dröngum við
Breiðaijörð, sem er að bregða búi
vegna lasleika og vill burt. „Eyjamar
era fallegar og þar væri hægt að gera
ýmislegt, svo ekki sé minnst á jörðina
sjálfa sem er einstaklega falleg," seg-
ir Daníel sem enn hefur ekki fengið
tilboð í eyjarnar sínar sem era
Kári Sigurjón
Stefánsson Sighvatsson
Ætlar að kaupa. Búinn að kaupa.
skammt undan, séð út um eldhús-
glugganum á Dröngum.
Minnstu munaði að Björk Guð-
mundsdóttir bættist í hóp þeirra Kára
og Sigurjóns á síðasta ári þegar hún
sýndi EUiðaey á Breiðafirði áhuga.
Eyjan er í eigu ríkisins og lýsti for-
sætisráðherra því yfir að Björk skyldi
búa þar án endurgjalds ef hún kærði
sig um. Fjölmiðlaumræða sem varð í
framhaldi þessa olli því að Björk
missti áhugann og hyggur nú á eyja-
kaup annars staðar á hnettinum.
Kaupmaður borgar 10 milljónir
Þá er að nefna Efri-Langey, sem ný-
verið var seld Helga Axelssyni, kaup-
manni í Virku, og eiginkonu hans
fyrir rúmar 10
milljónir króna.
Engin hús era í
Efri-Langey og
nytjar litlar sem
engar. Öðru máli
gegnir um
Hrappsey Kára
Stefánssonar sem
er sögufræg eyja
með góðum húsa-
kosti, beitilandi
og æðarvarpi.
Þar er einnig hægt að slá þang og þar
era merkilegar bergmyndcmir, stuðla-
berg og hrafntinna. í Hrappsey var
einmitt sótt hrafntinna sú sem notuð
var í svörtu reitina á skákborði
Fischers og Spasskys þegar þeir
tefldu í Laugardalshöllinni í Reykja-
vík fyrir nokkram árum. Þá var þar
reist fyrsta prentsmiðja á Islandi sem
ekki var í eigu kirkjunnar snemma á
18. öld og einnig er eyjunnar getið í
Sturlungu í tengslum við liflát Snorra
Sturlusonar.
Kári hefur vinninginn
Hjá Sigurjóni Sighvatssyni i Arn-
ey era landkostir ekki jafn góðir og
hjá Kára í Hrappsey og hús í eynni
síðra. Engar bryggjur eru í eyjunum
en aðgengi samt gott. Það er Berg-
sveinn Gestsson í Stykkishólmi sem
ætlar að selja Kára Stefánssyni
Hrappsey:
„Ég hef aldrei talað við Kára og
tjái mig ekkert um það hvort hann
hefur gert mér tilboð eða ekki,“ seg-
ir Bergsveinn sem átt hefur Hrapps-
ey svo lengi sem elstu menn muna í
Stykkishólmi. Fleiri en Kári sýndu
eyjunni áhuga og því má gera ráð
fyrir að Bergsveinn fái margfalt
betra verð fyrir Hrappsey en hann
gat látið sig dreyma um áður en
Breiðafjörðurinn varð að Stjörnu-
eyjaklasanum.
Eyja á óseldan miða
Ráðagerðir eru uppi um það innan
bæjarstjómar Stykkishólms að setja
eyjar í eigu sveitarfélagsins í sölu til
að kanna verðgildi þeirra í ljósi auk-
innar eftirspumar. Meðal eyja sem
þar um ræðir er Hvítbjarnarey sem
var fyrsti vinningur í happdrætti
sem efnt var til í fjáröflunarskyni
vegna byggingar nýs hótels í Stykk-
ishólmi. Hvítabjamarey kom þá á
óseldan miða og er því enn í eigu
sveitarstjórnarinnar. -EIR
Björk
Guðmundsdóttir
Hætti við að kaupa.
DV-MYND ÞORSTEINN G. KRISTJÁNSSON
Hæsta mannvirki bæjarins
Verið er að leggia iokahönd á bygg-
ingu mikils mannvirkis í Grindavík
sem efiaust mun fá nafnið Effell-
turninn í höfuðið á eiganda sínum,
F og L, sem stendur fyrir
Fiskimjöi og iýsi.
Ef fellturninn
í Grindavík
DV, GRINDAVÍK:________________
Fiskimjöl og lýsi í Grindavík hef-
ur endumýjað reykháfinn við fiski-
mjölsverksmiðjuna en gamli reyk-
háfurinn var ekki lengur nógu hár
til að standast settar kröfur. Nýjar
reglur um slíkar verksmiðjur gera
kröfur um hærri reykháfa en sá nýi
er 32 metra hár.
Að sögn Óskars Ævarssonar,
rekstrarstjóra FogL, er hann þannig
hannaður að reyknum er blásið út
með þrýstingi svo að hann á að ná
um 50 metra hæð og kemur því ekki
til með að leggjast yfir byggðina.
Er þetta hæsta mannvirkið í
Grindavík og sést því víða að. Áður
voru mjöltankar FogL hæstir. Börn
sem sáu reykháfinn tilsýndar höfðu
á orði að þarna væri Effelltuminn í
Grindavík enda er hann merktur
eigandanum, FogL, sem borið er
fram effell. -ÞGK
Akureyri:
Egypskir sölu-
menn teknir
DV. AKUR5YRI:________________
Lögreglan á Akureyri handtók á
þriðjudag fjóra menn frá Egypta-
landi en þeir munu hafa gert víðreist
um landið að undanfornu og verið að
selja málverkaeftirprentanir.
Mennimir voru teknir að beiðni
Útlendingaeftirlitsins en þeir munu
ekki hafa haft nein leyfi til að
stunda sölustarfsemi af þessu tagi.
Rannsóknarlögreglan yfirheyrði
mennina sem voru látnir lausir að
því loknu. -gk
Veðrið í kvöld | Sólargangur og sjávarföli
Mildast sunnanlands
Gert er ráö fyrir aö læga muni víöa síðdegis
og létta til norðanlands síödegis og í kvöld.
Við vesturströndina veröur sunnanátt 3-5 m/s
og þokuloft í kvöld og nótt. Hiti 3 til 11 stig
þegar kemur fram á daginn, mildast
sunnanlands.
REYKJAVIK
Sólariag i kvöld 23.34
Sólarupprás á morgun 03.17
Siódeglsfló& 18.20
Árdegisflóó á morgun 06.43
AKUREYRI
23.57
02.25
23.03
11.16
Skýringaf é veburtáknjiim
^VINDATT 10V-HIT. vV
^3> .io° 'T'
“^NviNDSTYRKUR V HHOSKÍR
3D ö
lÉTÍSKÝJAÐ HÁLF- SKVJAÐ SKÝJAÐ ALSKYJAÐ
. W' 'W ö Q
RIGNING SKÚRIR SIYDDA SNJÓKOMA
=
ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA
m.---------------------
Snjóél á Heliisheiði eystri
A Hellisheiöi eystri eru snjóél og
skafrenningur, en hálkublettir á
Möörudalsöræfum og
Vopnafjaröarheiöi. Annars eru allir
helstu þjóðvegir landsins greiöfærir, en
hálendisvegir lokaöir. Þó er orðiö
jeppafært um Tröllatunguheiöi.
Vagir á skyggóum svaóum
•ru lokaölr þsr tll annsA
vsrAur auglýst
aWGREIOFÆRT ■■ ÞUNGFÆRT
HÁLT H.ÓFÆRT
11J kVH I H i,.f á7TlyJ7?FT;TTT)T:7 f!(l3 L’lr
Blæs úr suðri
Gert er ráö fyrir suölægri átt, 5-8 m/s á morgun. Skýjaö veröur og sums
staðar þokuloft sunnan- og vestanlands en bjart veður á Norður- og
Austurlandi.
Sunnuda
Vindur:
5-8 m/*
í
Mánuda
Hiti 6° tii 14°
vm
Vindur:
3-8 IIV'*
Hiti 8° til 16°
i
S-átt veróur, 5-8 m/s,
skýjab og sums stabar
þokuloft sunnan- og
vestanlands, en bjart
vebur á Norbur- og
Austuriandl. Hltl 6 tll 14
Spáb er hægrl sunnanátt
og bjartvlbri, en þykknar
upp meb vaxandl
subaustanátt. Hltl 8 til 16
stig, hlýjast norbaustan tll.
Búlst er vib subaustlægri
átt, 5-10 m/s. Vætusamt
verbur, elnkum
sunnanlands og fremur
hlýtt.
mmmm ■ hm mm
AKUREYRI léttskýjaö 3
BERGSTAÐIR skýjaö
BOLUNGARVÍK skýjað 1
EGILSSTAÐIR 3
KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö 3
KEFLAVÍK léttskýjaö 3
RAUFARHÖFN alskýjaö 2
REYKJAVÍK hálfskýjaö 3
STÓRHÖFÐI léttskýjaö 3
BERGEN súld 10
HELSINKI skýjaö 12
KAUPMANNAHÖFN alskýjaö 14
OSLÓ rigning 10
STOKKHÓLMUR rigning 9
ÞÓRSHÖFN skýjað 5
ÞRÁNDHEIMUR hálfskýjað 12
ALGARVE þokumóöa 20
AMSTERDAM léttskýjaö 14
BARCELONA þokumóöa 19
BERLÍN léttskýjaö 18
CHICAGO skýjaö 20
DUBLIN skýjaö 12
HALIFAX heiöskírt 11
FRANKFURT skýjaö 16
HAMBORG skýjaö 16
JAN MAYEN snjóél -3
LONDON skýjaö 13
LÚXEMBORG hálfskýjaö 15
MALLORCA heiöskírt 20
MONTREAL heiöskírt 16
NARSSARSSUAQ rigning 7
NEW YORK léttskýjaö 23
ORLANDO þokumóöa 21
PARÍS léttskýjaö 16
VÍN hálfskýjaö 14
WASHINGTON þokumóöa 19
WINNIPEG alskýjaö 7