Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2000, Page 35
FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 2000
I>v
_____43
Tilvera
Fimmlembd ær í Fljótum
- stór og frísk lömb frjósamrar kindar, Sunnu í Fljótum
DV-MYND ORN ÞÖRARINSSON.
Ánægöur bóndi
Jóhannes Ríkharðsson, bóndi og ráðunautur, ánægður með fimmlembingana — móðirin fylgist með.
DV. SKAGAFIRÐI:________
Ærin Sunna á
Brúnastöðum í Fljótum
bar fimm lifandi lömb-
um nú í vikunni. Mið-
að við ijölda voru lömb-
in furðu stór og frísk
og komust hjálparlaust
á spena. Þetta er í ann-
að skiptið sem Sunna
ber flmm lömbum en í
fyrra skiptið fæddust
fjögur dauð en eitt lifði.
Sunna er í eigu Hjör-
dísar Leifsdóttur og Jó-
hannesar Ríkharðsson-
ar bænda á Brúnastöð-
um.
Jóhannes sagði í
samtali að Sunna væri
sérlega frjósöm. Hún er
nú sex vetra gömul og
hefur borið 18 lömbum.
Auk þess að eiga
tvisvar fimm hefur hún
tvisvar verið tvílembd
einu sinni þrílembd en
í fyrra átti hún aðeins
eitt lamb en þá var hún
sædd.
Jóhannes segir að
ærin sé heimaalin á
Brúnastöðum og af
frjósömu kyni sem oft
var þrílembt. Hann
segir slíka ofurfrjósemi
afar sjaldgæfa. Þannig
er þetta eina kindin á
hans búi sem hefur átt
fimm afkvæmi og
raunar heyrir til und-
antekninga að ær séu
fjórlembdar.
Jóhannes lét vel af
sauðburðinum í ár
sagði frjósemi með
mesta móti og vonaðist
til að eiga 1,9 lamb á
hverja á en á Brúna-
stöðum voru 310 ær
bornar þegar frétta-
mann bar að garði og
sauðburður langt kom-
inn.
-ÖÞ
<;
Hrein mey í
brúðkaupið
Britney Spear gerir sér far um að
vera kynþokkafull á tónlistarmynd-
böndunum sínum. En þó hún reyni
að vera heillandi ætlar hún að vera
hrein mey þar til hún gengur í það
heilaga. Söngkonan kveðst vera
venjulega stúlka og bendir á að
venjulegum stúlkum þyki gaman að
vera kynþokkafullar. Það sé hægt
að vera góð stúlka þrátt fyrir það.
Hún kveðst bara vera að leika þeg-
ar hún er á sviði. Britney ætlar
heldur ekkert að flýta sér í hjóna-
band. Hún ætlar að bíða eftir þeim
rétta.
Við erum f okkar árlegu ferð um landið með nokkra af okkar bestu og vinsælustu bílum.
Við verðum á Norðurlandi vestra um helgina. Nýttu tækifærið. Komdu og prófaðu bíla af bestu gerð.
Norðurland vestra
Laugardaginn 3. júní
Bensfnstöðin, Siglufirði kl. 12-14
Bifreiðaverkstæðið Áki
Sæmundargötu íB, Sauðárkróki kl. 15:30-18
Sunnudaginn 4. júnf
Esso skálinn, Blönduósi kl. 13-15
Bensínstöðin, Skagaströnd kl. 15:30-17
Allar nánari upplýsingar: Bifreiðaverkstæðið Áki, sími 453 5141
RENAULT HYunoni
Land Rover Discovery
Land Rover Defender
Land Rover Freelander
BMW Compact
Renault Scénic
Renault Laguna
Renault Mégane Break
Renault Mégane Classic
Hyundai Starex
Hyundai Accent
Hyundai Sonata
-tr