Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2000, Page 1
15
Anelka seldur
Nicolas Anelka hefur verið seldur
frá Real Madrid til síns gamla félags,
Paris St. Germaine, sem er í eigu sjón-
varpsstöðvarinnar Canal+, fyrir 30
milljónir punda (tæpa 3,5 milljarða).
Kaupin verða ekki kláruð fyrr en að
loknum forsetakosningum hjá
spænska liðinu.
Nú er búist við að Real Madrid
leggi í kaup á Júgóslavanum Savo
Milosevic en félagið mun þar vera í
keppni við erkifjendurna Barcelona.
Florentino Perez, einn frambjóð-
enda til forsetaembættis hjá Real, hef-
ur einnig heitið því að félagið muni
kaupa upp samning Portúgalans Luis
Figo (verðið mun vera um 4,5 millj-
arður) við Barcelona.
Coca-Cola bikarinn:
Stærsti
leikurinn
í Grindavík
1 gær var dregið í 8-liða úrslit
Coca-Cola bikarkeppni karla og
undanúrslit Coca-Cola bikar-
keppni kvenna í knattspymu.
Stórleikur umferðarinnar hjá
körlunum verður að teljast leik-
ur Grindavíkur og ÍA í Grinda-
vík en Skagamenn töpuðu
einmitt leik liðanna þar fyrr i
sumar, 1-0. Hjá konunum mun
spennan að öllum líkindum
verða í Eyjum þar sem Blika-
stúlkur verða í heimsókn.
8-liöa úrslit karla:
Keflavik-FH, ÍBV-Valur,
Grindavík-ÍA og Breiðablik-Fylkir.
Leikirnir fara fram helgina 12.-13.
ágúst
Undanúrslit kvenna:
KR-Valur og ÍBV-Breiðablik
Leikimir fara fram fostu-
daginn 21. júli.
Mörkere farinn
Færeyski sóknarmaðurinn
Allan Mörkere hefur verið
seldur frá ÍBV til sín gamla
félags HB í Færeyjum.
Leikmaöurinn mun sjálfur hafa
farið fram á sölu vegna þess hve
lítið hann hefur fengið að spila
að undanfórnu. Liklega hefur
það fyllt mælinn þegar Tómas
Ingi Tómasson kom til
Eyjaliðsins i liðinni viku og að
Mörkere var ekki valinn í
hópinn gegn Grindavík fyrir
leikinn í gærkvöldi.
Þrettán látnir
Tala látinna eftir óeirðimar á
og eftir leik Zimbabwe og S-Afr-
íku hefur hækkað í 13 að því er
ríkissjónvarpið í Zimbabwe seg-
ir. Fjórir munu enn vera í lífs-
hættu.
Robert Mugabe, forseti lands-
ins, hefur kennt stjómarand-
stöðuflokknum MDC um óeirð-
imar þar sem þær hafi brotist út
meðal hóps manna sem héldu
uppi áróðursspjöldum flokksins.
Hann hefur beðið s-afrisku þjóð-
ina afsökunar á atburðinum, sem
hann segir hafa verið ósæmandi,
íþróttir ættu aldrei að snúast
upp í ófrið. -ÓK
Þær systur Serena og Venus
Williams settu endapunktinn á
glæsilegt Wimbledon-mót i tennis
aðf hálfu Bandaríkjamanna þegar
þær urðu í gær meistarar í tvíliða-
leik kvenna. Vann Venus allt sem
hún tók þátt í á mótinu því á laug-
ardag vann hún í einliðaleik
kvenna.
Williams-systur unnu Julie
Halrd Decugis frá Frakklandi og
Ai Sugiyama frá Japan í úrslita-
leiknum, 6-3 og 6-2. Þær byrjuðu
þó brösulega og lentu undir í
fyrsta setti, 3-2. Venus og Serena
höfðu tapað fyrstu tveimur lotun-
um þar sem Venus átti uppgjöf, en
eftir það unnu þær átta lotur í röð.
Þetta er þriðji „Grand-Slam“-tit-
ill þeirra í tvUiðaleik, en áður
hafa þær unniö Opna bandaríska
meistaramótið og Opna franska
mótið. -esá
Serena Williams, 18 ára, og systir
hennar Venus, 20 ára, yfir sig
sælar meö sigurinn. Reuter