Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2000, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 12. JÚLÍ 2000
Frettir
Nýjar tugmilljóna vélar Nesbús anna tvöfaldri eggjamassaeftirspurninni:
Höfum ekki beðið
um neina tollavernd
- en útilokum hana ekki, segir framkvæmdastjóri Nesbús
Stríð um eggjarauður
Islensk majónesframleiðsla byggir á innfluttum eggjarauöum.
Verður majónesið alíslenskt og miklu dýrara meö haustinu?
„Við höfum ekki beðið um neina
tollavernd þótt við útilokum ekkert í
þeim efnum. Allt sem við höfum gert
er að senda landbúnaðarráðuneytinu
fyrirspum um heildarinnflutning á
eggjum og eggjavöram og um það
hvernig tollum hafi verið háttað," seg-
ir Bjöm Jónsson, framkvæmdastjóri
Nesbús á Vatnsleysuströnd. Bjöm vís-
ar þar með á bug fréttum þess efnis að
Nesbú hafl óskað eftir því við land-
búnaðarráðuneytiö að innheimtur
verði tollur á erlendum eggjamassa til
að tryggja samkeppnishæfni væntan-
legrar framleiðslu Nesbús. Fyrirtækið
hefur fest kaup á nýrri tugmilljóna
króna vélasamstæðu til eggjamassa-
framleiðslu og hyggst gangsetja hana i
sumarlok. Vélarnar gerilsneyða eggja-
hvítur og eggjarauður og geta sett í
þær ýmis íblöndunarefni.
Þreföldun verðsins
Björn segir talsverða offramleiðslu
vera á eggjum hérlendis og því séu
menn nú að leita leiða til að framleiða
nýjar vörutegundir úr eggjunum.
Eggjamassinn sem um ræðir er úr
gerilsneyddum eggjarauðum en árlega
munu á bilinu 170 til 180 tonn af þess-
ari vöru vera flutt til landsins.
Eggjamassinn er notaður til ýmiss
konar majónes- og salatsósugerðar.
Samkvæmt upplýsingum frá H Ólafs-
syni & Bemhöft, sem flytur inn á bil-
inu 70 tfl 80 tonn tfl landsins á ári, er
útsöluverð heildsölunnar tO stórra
framleiðenda nú um 250 krónur. Ann-
ar stór innflytjandi er Gunnars
Majónes. Þessir framleiðendur njóta
nú undanþágu frá ákvæðum um
magntolla og vörugjald og samkvæmt
upplýsingum frá H Ólafssyni & Bem-
höft myndi útsöluverð á eggjamassa
hérlendis aOt að því þrefaldast væra
þessir toOar og gjöld lögð á af fuOum
þunga. Skúli segir augljóst hversu nei-
kvæð áhrif þess yrðu á majónes- og
salatsósuframleiðendur sem nú þegar
etji kappi við ódýra framleiðslu er-
lendis frá.
70 milljóna tollur
Vegna sumarfría hjá landbúnaðar-
ráðuneytinu reyndist ekki unnt að fá
nákvæmar upplýsingar um innflutt
magn og toOareglur. Samkvæmt því
sem næst verður komist myndi það
hafa í for með sér um 70 miOjóna
króna álögur miðað við 180 tonna inn-
flutning væra núverandi undanþágur
afnumdar og núverandi reglum um
magntoO og vöragjald fylgt út í æsar.
Framleiðslugeta hinnar nýju véla-
samstæðu Nesbús er að sögn Björns á
bOinu 300 tO 400 tonn. Bjöm Jónsson
segir fyrirtækið hafa gert lauslega
könnun á verði seldra, innfluttra
eggjavara og að samkvæmt henni
muni framleiðsla Nesbús verða sam-
keppnishæf í verði, jafnvel að óbreyttu
toOaumhverfi. „Okkur sýnist það - þó
með fyrirvara um það að okkur vant-
ar enn nánari upplýsingar frá land-
búnaðarráðuneytinu," segir hann.
Auk eggjarauðunnar feOur augljós-
lega til mikið magn eggjahvítu en
Bjöm segir ágætan markað vera fyrir
hana og að hún sé notuð við ýmiss
konar matvælagerð.
Samkvæmt heimfldum DV mun
eggjaframleiðslufyrirtækið VaOá hafa
í hyggju að hefja framleiöslu
eggjamassa verði vemdartoOamir
innheimtir og fari framleiðsla Nesbús
i gang. -GAR
Forseti í Strandasýslu:
Sterkir
Strandamenn
og lambakjöt
Opinber heimsókn Ólafs Ragn-
ars Grímssonar, forseta Íslands,
um Strandasýslu hófst í gær og
lýkur heimsókninni í kvöld.
För forsetans liggur vlða um
sýsluna og í gær fékk hann höfð-
inglegar móttökur hvar sem leið
hans lá. Forsetinn dásamaði and-
legan og líkamlegan styrk Stranda-
manna og ræddi við þá um nauð-
syn þess að viðhalda byggð á
Ströndum. Hann fór um Hrúta-
fjörð, kom í kaupfélagið á Óspaks-
eyri þar sem hann heimsótti
minnsta kaupfélag landsins og þar
var honum gefið lambakjöt sem
mun verða notað sem veislumatur
á Bessastöðum, m.a. þegar forseti
Finnlands sækir íslands heim síð-
ar á árinu. Þá lá leið forsetans til
Hólmavikur en í dag liggur leið
hans m.a. tO Djúpuvíkur og Tré-
kyllisvíkur. -gk
I Hrútafrröi
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, gengur um kirkjuhliö Prestbakkakirkju í Hrútafirði í heimsókn sinni þar í gær.
Reykblys og skothylki á gömlu svæði varnarliðsins:
Sprengjusérfræðingar stöðvuðu
landgræðslu í Krýsuvík
UngOngar sem unnu að landgræðslu
í Krýsuvík á vegum Landgræðslunnar
fundu tóm skothylki og hálfbrannið
reykblys á svæðinu í gærmorgun.
„Unglingamir vora að stinga upp
moldarbörð þarna og þá komu í ljós
tómar patrónur og eitt reykblys sem
þyrlur varpa út tO þess að sjá vindátt,"
sagði Sigurður Ásgrímsson, sprengju-
sérfræðingur Landhelgisgæslunnar.
„Þetta svæði, og meira eða minna aOt
Reykjanesið, er náttúrlega gamalt æf-
ingasvæði Bandaríkjahers."
Sigurður sagði að þar sem skothylk-
in vora tóm hafi engin hætta stafað af
þeim og hættan sem stafaði af reyk-
blysinu hafi verið mjög lítO, þar sem
það var hálfbrannið. Hann bætti því
við að skothylkin gætu verið frá seinni
heimsstyrjöldinni en reykblysið er
nýrra.
Talsvert er um að skothylki og
sprengjuefni finnist á Krýsuvikur-
svæðinu, en þó hefur það farið minnk-
andi á síðustu áram. Eftir fundinn
hættu unglingarnir störfum og hafa
sprengjusérfræðingar Landhelgisgæsl-
unnar lagt tO að svæðið verði ekki
grætt í bOi.
Leitaö vel
„Það er búið að leita mjög vel að
sprengiefrii á svæðinu. Bandaríski her-
inn er búinn að fara nokkra stóra leið-
angra i samvinnu við okkur. Sum þess-
ara svæða eru merkt tO þess að vara
við þessu. En það finnst aOtaf eitthvað
á hverju ári,“ sagði Sigurður. -SMK
Hlutl af sprengjunni sem fannst í
gær.
Húsbréfavexti á leigulán
Allt bendir til að vextir lána til
byggingar félagslegs leiguhús-
næðis hækki upp í húsbréfavexti
sem þýðir miklu hærri leigu
nema gripið verði til annarra að-
gerða. Dagur sagði frá.
Tjáir sig ekki um Guðna
Jón Kristjáns-
son, formaður
fjárlaganefndar
Alþingis og flokks-
bróðir Guðna
Ágústssonar land-
búnaðarráðherra,
segist ekki vilja
tjá sig um hug-
myndir Guðna um afnám matar-
skatts. Dagur sagði frá.
Skálmöld við Leifsstöð
Formaður Frama óttast að
verði ekki gripið í taumana geti
skálmöldin við Leifsstöð endað
með að farið verði að vara feröa-
menn við íslenskum leigubílstjór-
um. Dagur sagði frá.
Frítt í göngin 2012?
Frá því Hvalfjarðargöngin voru
opnuð fyrir tveimur árum hafa
tvær milljónir ökutækja ekið um
göngin eða tvöfalt fleiri en áætlað
var. Endurgreiðslu lána vegna
ganganna verður jafnvel lokið
árið 2012 en þá gæti orðið ókeyp-
is í göngin. Dagur sagði frá..
Mega losa í sjóinn
Umhverfisráðuneytið hefur
veitt Svínabúinu Brautarholti
ehf. á Kjalarnesi tímabundna
heimild til þess að losa úrgang
frá búinu í sjó. Leyfið, sem var
veitt þann 29. maí síðastliðinn,
gildir til nóvemberloka. Mbl.
sagði frá.
Áhugi á Bryggjuhverfi
Hugmyndum
tveggja fyrirtækja
um skipulagningu
og uppbyggingu
nýs 2500 íbúa
hverfis í Garðabæ,
svokallaðs
Bryggjuhverfis,
var vel tekið á
fundi bæjarráðs Garðabæjar í
gær, að sögn Ingimundar Sigur-
pálssonar bæjarstjóra. Mbl. sagði
frá.
Áfangasigur
Skipulagsstjóri vfll að Mývatn
verði kortlagt nánar með tilliti til
vistkerfis vatnsins og ýmsir
rannsóknarþættir dregnir saman
og auknir. Eigi að síður er þaö
mat framkvæmdastjóra Kísiliðj-
unnar að fyrirtækið hafi unnið
sögulegan áfangasigur með skil-
yrtu vinnsluleyfi Skipulagsstjóra.
Dagur sagði frá.
Náttúruperlur ekki seidar
„Vegna viðtals við mig í DV í
gær vil ég að það komi skýrt fram
að ég er þeirrar skoðunar að ein-
stakar náttúruperlur í ríkiseigu
séu áfram í sameign þjóðarinn-
ar,“ segir Guðni Ágústsson land-
búnaðarráðherra, sem viU koma
því á framfæri að það sé rangt
sem stendur á forsíðu DV í gær
að vilji hans standi til þess að
auðmenn geti eignast nátt-
úruperlur sem nú eru eign ríkis-
sjóðs.
Hærri húsaleigubætur
Nefnd, sem skip-
uð var af félags-
málaráðherra í
ágúst 1998 til þess
að rannsaka leigu-
markað og leigu-
húsnæði, leggur
til að ríki og sveit-
arfélög breyti fyr-
irkomulagi á aðstoð hins opin-
bera í húsnæðiskerfinu. Mbl.
sagði frá.
-GAR