Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2000, Qupperneq 10
m íifið
EFTIR VINNU
Föstudagur
14/07
Popp
■ götupartí jafningjafræðsluwnaw
Götupartý Jafningjafræðslunnar veröur haldiö á
Astró viö Austurstræti frá 15 til 18 og koma
þar fram plötusnúðarnir Dj Ýmir og Sweet
Chilly ásamt því sem fönkhljómsveitin Jagúar
heldur stuöinu gangandi. Svo verður Götuleik-
Jm
RCWELIS
W
Tíska* Gæði* Betra verð
Siáumst
hús með skemmtilega uppákomu. Mono grillar
ofan í lýöinn og mun vera meö útsendingu frá
staðnum og graffíti listamenn spreyja á staön-
um. Það er víst aö skemmta sér edrú.
Klúbbar
■ TECHHÚS Á THOMSEN Þaö verður svaka
stuð á Nætur-
klúbb íslands í
kvöld. Já,
Thomsen er
málið og í kvöld
er það Árni Eln-
ar sem stjórnar
dæminu á efri
hæðinni á meðan Margeir og Bjössi stjórna
Techhúsinu í kjallaranum. Skyldumæting ef þú
ræður viö að vaka frameftir.
■ DROOPY Á SPOTUGHT DJ Droopy verður í
góðum gír á Spotlight í kvöld og heldur uppi
stuðinu eins og gestir staðarins ættu að
þekkja. Þaö er því bókað stuð í kvöld og hver
veit nema eitthvað óvænt komi upp.
■ CHILLOUT Á KLAUSTRINU Súkkulaðið DJ
XQ mætir á Klaustriö hans Kidda Bigfoot í
kvöld og þeytir R&B skífum fram eftir morgni.
Það er hægt að finna viðtal við þennan gullfal-
lega dreng hér í Lífinu eftir vinnu og kynnast
honum nánar. Auk þess er að finna miða á her-
legheitin í Lífinu. Þú getur sem sagt komist fritt
inn á herlegheitin og hlustað á R&B og
salsasmelli frá Svala af FM 957. Já, og ekki
gleyma friu drykkjunum ef þú mætir nógu helvíti
snemma. Húsiö opnar þó ekki fyrr en kl. 22 og
það er 22 ára aldurstakmark.
■ STRIPP Á ASTRÓ Nú er Astró komið í rétta
gírinn. Einar Bárðason er þúinn aö lappa upp á
staðinn og hann er fullur allar helgar - sem
hann var alsekki fyrir skemmstu. í kvöld mæta
stæltir og sætir strákar frá Full Monty hópnum
(þeir eru að undirþúa sýningu I Tjarnabíói sem
frumsýnd verður á næstunni) og kenna gestum
og gangandi, konum og körlum, stelpum og
strákum og hvorukyns og öllum þar á milli að
strippa. Þannig að ef þú vilt gleöja konuna eða
karlinn ferðu á Astró og lærir réttu handtökin.
•Krár
■ FJÖRUKRÁIN Víkingarnir safnast saman á
Fjörukránni þar sem mjöður vellur út um eyru
hvers sem inn stígur. Það á einnig við um Borg-
nesingana í hljómsveitinni Bingó sem eru ný-
komnir á mölina, grænir þakvið eyrun. Þeir vita
varla út í hvað þeir eru að fara þarna í höfuðvígi
víkinganna í Hafnarfirðinum.
■ GAUKUR Á STÖNG Það er ekki vitlaust fyrir
hvern þann sem hefur áhuga á rafrænni tónlist
aö leggja leiö sína á Gaukinn í kvöld kl.21. Þar
halda félagarnir í Ampop upp á nýju breiöskíf-
una sína sem þeir hafa nýlokiö við. Ekki nóg
með þaö, heldur ætla þeir félagar einnig að
varpa myndbandinu, sem þeir eru nýbúnir að
skjóta við eitt af lögunum á plötunni, upp á risa-
tjaldið á Gauknum. Kl.l taka poppararnir i
Buttercup, með ektaparið írisi og Val I farar-
broddi, við funheitum salnum og poppa allt til
morguns.Sólarbjórinn er á tilboðsverði á
Gauknum þannig að þeir sem kunna ekki vel
við tónlist þessara listamanna geta allavega
mætt á svæðið og hellt sig til Heljar.
■ ÁRNI & HRÖNN Á SÓLON Systkinin Áml og
Hrönn Sveinsbörn hyggjast kveðja sér fönk-
hljóðs á Sóloni íslandus i kvöld þannig enginn
ætti að láta þann stað fram hjá sér fara. Þeir
Þú nærö alltaf
sambandi
við okkur!
550 5000
alla virka daga kl. 9-22
sunnudaga kl. 16-22
dvaugl@ff.is
hvenær sólarhringsins sem er
VISA
550 5000
Ylfcan..1 ft ... ÍJÚ.l. L ,.t L L,.. 2.SL,- i.ú.LL
Ifókus
eru farnir aö spyrja um skilríki aö nýju og þeg-
ar svona tónlist er i boði getur litið klikkað.
■ ÝMIR Á PRIKINU Það þarf engan að undra
að kaffihúsiö Prikiö verður fullt út úr dyrum i
kvöld sem aðrar helgar enda verður tónlistin
ekki af verri endanum. Snillingurinn Ýmir
hyggst mæta á svæðið og trylla lýðinn í ein-
stakri sveiflu. Þó þröngt verði á þingi sem
endranær má vist telja að enginn yfirgefi stað-
inn án þess að stíga nokkur vel valin dansspor.
■ m ái fiibii i uiii Hvernig einn maöur getur
titlað sig diskótek er ofar skilningi flestra.
SkuggaBaldur kærir sig hinsvegar kollóttan um
þaö og heldur ótrauður áfram að spila allar
helgar. í kvöld er hann staddur á staðnum sem
kallar sig karaokebar en er því miður ekki meö
nógu góöa aðstööu, Bláa englinum.
■ GAMMEL DANSK Á CATALINA Hljómsveitin
Gammel Dansk sér um fjörið á Catalina i Kópa-
vogi um helgina. Þar munu menn og konur
kneyfa ölið og taka sporin. Enginn staður fyrir
börn.
■ SKUGGABARINN Áki Pain verður T búrinu á
Skuggabarnum alla helgina og þar er hann
best geymdur. Drykkur helgarinnar er Gin &
Tonic meö miklum klaka og lime. Húsiö opnar
kl. 23 en eftir kl. 24 kostar 500 kall inn og eft-
ir kl. 2 kostar 1000 kall inn þannig að það
borgar sig að mæta snemma.22 ára aldurstak-
mark.
■ SVASIL Á ORANPROKK Hljómsveitin Svasli
spilar á Grandrokk, Smiðjustíg 6. Svasil er fjöl-
mennasta og fjörugasta hljómsveit landsins og
spilar á margt undarlegt hljóðfærið en er einnig
skipuð 3 söngkonum. Hljomsveitin spilar eins-
konar afró-fönk, með alla áherslu á skemmti-
lega sveiflu og stemmningu. Ókeypis aögang-
■ VEGAMÓT
Viökunnanlegi
staðurinn við
Vegamótatorg
kynnir: Alfred
Moore og Herb
Legowitz Gus
Gussar loksins
saman á nýl
Herb og Moore
eru eitt besta
D.j.-teymi sem
komið hefur
saman og er víst að þeir munu gera allt vit-
laust. Eins og vanalega er fritt inn á Vegamöt
og 22 ára aldurstakmark.
■ NJÁLSSTOFA Hvað er meira viö hæfi en að
maöurinn Njáll spili tónlist á Njálsstofu. Ætli
þetta sé eigandinn? Allavega ætlar hann að
spila tónlist af gamla skólanum. Já, gömul, létt
tónlist er það sem blívar á Njálsstofu, Smiöju-
vegi 6, T kvöld.
•B ö 11
■ HARMONIKUBALL í ÁSGARPI Það fer ekki
milli mála að þetta er da place 2 B! Nú um
helgina stendur menningarplássið fýrir harm-
onnikkuhátíð. í kvöld er hinsvegar svona boot-
leg útgáfa af henni, sem er ekki styrkt af
apparatinu. Þetta er almennilegt Harmoniku-
ball og verður T Ásgarði, Glæsibæ viö Álfheima
í kvöld kl.22. Þar leika félagar í Harmonikufé-
lagi Reykjavikur á móti vinafélagi stnu, Harm-
onikuspælarafélagi Færeyja. Ekki nóg með
það, Ragnheiður Hauksdóttir og fleiri ætla að
syngja. Allir velkomnir á alvöru dansiball.
■ STUP Á NÆTURGALANUM Það verður ein-
stök stemning á Næturgalanum í kvöld sem
aðrar helgar enda staðurinn annálaður ballstaö-
ur. Galabandiö mætir á svæðið og með þeim
leikur hin margfræga Anna Vilhjálmsdéttlr. Fritt
inn til 23:30 og frábær stemmning.
■ CAFÉ CATALÍNA „Hvar er Café Catalina aft-
ur?“ spyr rótarinn sem er allt of seinn meö
magnarana handa hljómsveitinni Gammel
Dansk sem spilar þar í kvöld.
•K1 a s s í k
■ HARMONIKUMÓT í REYKJAVÍK Opnunar
tónleikar alþjóðlegs harmonikumóts í Reykjavík
verða haldnir klukkan 16 í dag. Þetta er „harm-
onikumót af áður óþekktri stærðargráðu" hér á
landi og verður eflaust mikiö harmonikudjamm
í Grafarvogskirkju sem er stærsta kirkja lands-
ins aö flatarmáli, þótt sumir vilji ekki viður-
kenna það. 30 manna dönsk harmonikuhljóm-
sveit sem skipuð er börnum og unglingum spil-
ar, ásamt kvintett og einleikurum frá tónlistar-
skólum Borgundarhólms undir stjórn Gregors
Siegler. Meðal annarra T þessari margverðlaun-
uðu hljómsveit er Danmerkurmeistarinn í ein-
leik Þess ber að geta að hið geysivinsæla
Harmonikuspælarafélag Færeyja mun spila á
mótinu.
■ HARMONIKUSPÆLARAFÉLAG FÆREYJA
Harmonikufélag Reykjavíkur og Harmoniku-
spælarafélag Færeyja munu leiöa saman
hesta sína í Ásgarði í Glæsibæ við Álfheima
klukkan 22 á almennum dansleik. Færeyski
dansinn seiðmagnaði verður stiginn um miö-
nættiö við forsöng sögumanns og undirtektir
dansfólksins. Þá gefst íslendingum þá kostur á
að upplifa með frændum sínum þessa fornu
danshefð þjóðanna sem Færeyingar hafa hald-
ið svo vel við.
•S veitin
■ ECILSBÚÐ. NESKAUPSTAP Það er hætt viö
aö það eigi eftir aö hltna ansi mikið í kolunum
í Egilsbúð T Neskaupstað þegar skallarokkar-
arnir i Utangarðsmönnum stíga á sviöiö á sín-
um fýrstu tónleikum of da BIG kommbakk. Það
er á hreinu að það fara fáir út af tónleikunum
með ólaskaðar hljóðhimnur þar sem bandið býr
yflr „fítonskrafti á við Tyson" aö sögn Hr.
Morthens sjálfs. Pakkinn er það þjappaður að
Óli Palli hinn Ríkisstyrkti ætlar aö vera með
Rokkótek og svo er þarna líka einhver hljóm-
sveit sem heitir Vent. Aldurstakmark á tónleik-
ana, sem standa frá kl.22 til kl.3, eru 18 ár og
miðaverð 2500 kall (100% þess virði).
■ SKÍMÓ í KEFLAVÍK Stórsveitin Skítamórall
mætir í Bítlabæinn Keflavík í kvöld og leikur fyr-
ir alla þá stuðbolta sem náð hafa 18 ára aldri.
Vettvangur þessa hörkudjamms er Skothúsið
og ætti enginn heilvita maður á stór-Keflavíkur-
svæðinu að láta þetta fram hjá sér fara.
■ SKÍMÓ í KEFLAVÍK Það verður gleði gleöi
gleði í Keflavík í kvöld. Stórpoppararnir í Skita-
móral eru mættir T bæinn og hefur Addi Fannar
lofað að sýna kambinn gljáfægðan og Einar
Ágúst verður í hlýrabolnum svo tattúin sjáist
vel. Ekki hefur fengist staðfest hvort Einar
Ágúst verði í pilsinu en víst er að öll góðu lögin
fá að hljóma í Skothúsinu í kvöld. Stanslaust
stuð eins og sá hýri sagði einhvern tíma.
■ PENTA Á LUNPANUM Hljómsveitin Penta
mun skemmta Vestmanneyingum á Lundanum
í kvöld. Hljómsveitina skipa þeir Daníel V. Elías-
son, Ingi Valur Grétarsson og Kristinn J. Gallag-
her. Vestmannaeyingar kunna að sletta úr
klaufunum og það er seriously fucked up jam yf-
irvofandi.
■ SJALUNN AKUREYRI írafár veröur í Sjallan-
um, Akureyri í kvöld og tryllir Norðanmenn sem
aldrei fyrr. Norðlendingar eru landsþekktir fýrir
óheflaða danshæfileika og því er gild ástæða
fýrir alla að flykkjast norður og taka þátt í íra-
fári.
■ STBD í STÖP Konur rífa af sér fötin og karl-
ar naga eyru sTn þegar St0ð í Stöð hefst á ný
eftir árshlé. Dagskráin er sniðin fýrir alla fjöl-
skylduna. Jón Gnarr sýnir fram á að hann var
einu sinni nörd, Skriðjöklarnir spila fýrir tryllt-
um dansi ásamt Agli Ólafssyni, slegið veröur
upp harmönikkubaili, þrjár stöðfirskar unglinga-
hljómsveitir koma fram, haldin dvergveiði-
keppni, leiktæki sett upp fýrir börnin, grillað og
sungið á Græna bala, gönguferðir farnar um ná-
læg fjöll og dali, útimarkaður starfræktur, spil-
uð knattspyrna o.fl. Tryggt er að veðrið verður
gott þessa helgi enda er alltaf blíða á Stöðvar-
firði, líka þegar hann rignir.Stóð í Stöð var fýrst
haldin árið 1996 til að fagna hundrað áraversl-
unarafmæli staðarins og hefur hátíðin öðlast
fastan sess í lífi Stöðfirðinga. Nafnið er valið til
heiðurs og varnar þeim vanmetna framburði
Austfirðinga, flámælinu.
■ VH) POLUNN, AKUREYRI Við Pollinn á Ak-
ureyri stendur við Pollinn á Akureyri. Þar spilar
í kvöld hljómsveitin Einn og sjötíu sem er skip-
uð meðlimum yfir einn og sjötíu. Merkilegt það.
■ KIRKJUBÆJARKLAUSTUR Og þú sem hélst
aö þaö yrði ömurlegt á Kirkjubæjarklaustri um
helgina. Aldeilis ekki, gamli rokkarinn Rúnar
Þór heiðrar gesti á Hótelinu á Kirkjubæjar-
klaustri með gömlum slögurum og viskírödd
djöfulslns.
•Leikhús
■ HAMAR ÞÓRS j Hafnarfjarðarleikhúsinu
er sýnt verkið The Hammer of Thor en undir-
titill þess er A Mythological Action Comedy
(Goösagnakennt spennu-gamanleikrit). Hér
er um aö ræöa söguna Þrymskviðu sem
hvert mannsbarn á Isiandi þekkir þar sem
sagan sú hefur löngum þótt hin aðgengileg-
asta af Eddukvæöum. Kraftar Þórs eru mikl-
ir á kostnað vitsmunanna og það er undir-
strikað í sýningunni. Hommafóbían - hræðsl-
an við ergi, kemst þar líka á nýtt stig. Freyja
er tálkvendi sem þó er vönd aö viröingu
sinni, girnist Þór, en ekki Þrym. Heimdallurer
grobbinn Oxfordari og Þrymur ókennilegur
andskoti. Loki, sem þó var þekktur fyrir aö
bregöa sér T misskemmtilegra kvikinda líki er
þarna einna viökunnanlegastur af liðinu.
Leikritið er flutt á ensku og gefur það marga
möguleika á skemmtilegheitum sem allir eru
vel nýttir. Skemmtilegur þáttur í verkinu er
líka sá aö goöin eru meðvituö um að þau
veröa aö tala ensku þó að þeim sé þaö ekki
eiginlegt og t.d. gleymir Þór í geöshræring-
unni að tala annað en uþprunalegan texta
Eddukvæöanna. Leikhópurinn Æsir, sem hef-
ur sennilega verið myndaöur sérstaklega fýr-
ir þessa uppfærslu, er skipaður ungu fólki
sem stundar nám í Leiklistarskóla íslands.
Þetta eru þau Ólafur Egill Egilsson, ívar
Sverrisson, GTsli Pétur Hinriksson og Vigdís
Hrefna Pálsdóttir. Þau standa sig meö prýöi
og ekki hægt að segja annað en það veröi
gaman að fýlgjast meö þeim eftir aö námi lýk-
ur. Handritiö er samvinnuverkefni leikhóps og
leikstjórans Gunnars Helgasonar og geislar
af krafti og leikgleði. Leikmynd og búningar
er unnið af einum meölimi leikhópsins, Ólafi
Agli Egilssyni og er hugvitssamlega hannaö,
auk þess sem hrátt sviöiö í húsnæöi Hafnar-
fjaröarleikhússins gefur verkinu goðsagna-
kenndan og allt aö því ógnvekjandi blæ. i
kvöld er siðasta sýnlng á Da Hammer og þvf
ekki vitlaust að drífa sig upp í Hafnarfjörð.
Þaö eru nokkur sæti laus en síminn í miða-
sölunni er 555 2222.
■ thrilleb Á NÝ Verslingarnir knáu, sem
gerðu allt vitlaust í vetur með heimatilbúna
söngleiknum sínum Thriller, eru mættir aftur.
Já, stykkið sem Gunnar Helgason sauð saman
T kringum öll lögin hans Michael Jackson og
leikstýröi flýgur aftur í Loftkastalanum í kvöld.
Loftkastalinn, fýrirgefið, Leikfélag íslands var
svo ánægt með frammistöðu krakkanna að það
ákvaö að gefa þeim sem fengu ekki tækifæri til
að berja söngvarana, leikarana og síðast en
ekki síst alla hina föngulegu og íturvöxnu dans-
ara augum. Thriller hefst kl. 20.30 í kvöld, örfá
sæti eru laus og síminn hjá Leikfélagi íslands
er 552 3000.
■ BJÖRNINN Hádegisleikhúsiö ! Iðnó hefur nú
skapaö sér sess T borgarlffi ReykvTkinga. Verkið
sem nú prýðir
fjalirnar er eftir
Anton Tsjekhov
og nefnist
Björninn. Þetta
er fyndinn og
skemmtilegur
farsi og segir
leiklistargagnrýnandi DV þaö vera „fullkomiö í
forminu". í þvf leika Júlíus Brjánsson, Ólafur
Darri Ólafsson og Maria Pálsdóttir. Þetta er
fýrsta leikstjórnarverkefni Stefáns Jónssonar
og þykir vera vel heppnað. Hádegisverður hefst
kl. 12, sýningin kl. 12.15 og þú ert mætt(ur)
aftur í vinnuna kl. 13. Sfminn hjá Leikfélagi Is-
lands er 530 3030.
•K abarett
■ CIRKUS AGORA Athugiðl Athugiðl Austfirð-
ingar athugiö! í dag er enginn annar en Jan Ket-
il kominn til Egilsstaöa meö sinn frækna
Cirkus Agora. Því miöur höfum viö ekki hug-
mynd um hver Jan Ketil er, hvað þá sirkusinn
hans. Kannski lumar Jan á ijónum, dvergum,
skeggjuöum konum og töframönnum. Kannski
er hann bara bóndi af Vestfjöröum sem mætir
meö börnin sín fjögur og lætur þau standa á
hestbaki og fjárhundinn sinn Leppa rúlla sér
fyrir sykurmola. Kannski heldur hann aö Aust-
firöingar séu svo vitlausir aö þeir sjá ekki í
gegnum svindliö hans. Þetta er allt saman
æsispennandi. Hver svo sem útkoman er þá er
miöasalan opin frá kl.12 (hvar svo sem hún er).
•öpnanir
■ GALLERÍ FOLP í dag kl. 17 opnar Haraldur
(eða Harry) Bilson málverkasýningu í baksal
galleris Foldar, Rauöarárstíg 14. Sýninguna
nefnir listamaðurinn Kannski. En Harry er
fæddur í Reykjavík, sonur íslenskrar konu og
Breta og því flutti hann ungur til Bretlands.
Þetta er fjórða einkasýning Haraldar hér á landi
og leggur hann mikiö uþþ úrTslenskum upþruna
sínum hvar sem hann er staddur.
■ GALLERÍ NEMA HVAP Skólagalleriið Nema
hvað er í stuði í sumar. Krakkarnir hafa breytt
galleriinu T fiskabúr - eða svo segja þau - og
boði ferskustu klíku bæjarins að sýna listir sín-
ar í búrinu í allt sumar. Hver listamaður fær
eina viku út af fýrir sig og það er enginn annar
en tónlistarguðinn Músíkhvatur sem riður á
vaðið. Hann mun artífartast fram til 16. júli og
um að gera að hvetja þá sem eiga leið framhjá
gallerí Nema hvað að droppa við.
■ HELGI ÞORGILS Óskabarn Tslenska mál-
verksisn, Helgl Þorgils, hefur opnaö málverka-
sýningu T verslun Reynissonar og Blöndals,
Skipholti 25. Almenningur hefur enn ekki séð
verkin, segir í fréttatiIkynníngu, en búast má við
því að Silfur hafsins - sýningin heitir það - inni-
haldi fullt af myndum af alsberum strákum eins
og Helga er síður. En í fréttatilkynningunni seg-
ir: „Helgi tvinnar hér saman mannskepnunni og
sjávarfangi annars vegar, og mönnum og sjáv-
arfuglum hins vegar." Sýningin er opin á opnun-
artíma versluninnar, frá 11-18 á virkum dögum
og frá 11-14 á laugardögum.
■ NÝLISTASAFNIÐ Gústav Geir Bollason,
Peeter Maria Laurits og Herkki Erich Merila
opna sýningar sTnar í Nýlistasafninu T kvöld kl.
20. Um er að ræða einkasýningu Gústavs en
samsýningu Peeters og Herkki. Gústav sýnir
teikningar/ljósmyndir, teikningar og málverk.
Verkin sem hann velur saman (og eiga reyndar
saman) eiga það helst sameiginlegt að leitast
við að koma til skila tilfinningu um tímarás
skoðunar og eins eru þau tilraunir til að sýna
gangvirki myndar. Verkin eru frá árunum ‘96-
'00. Hin sýningin er frá þessum eistlensku Ijós-
myndum, Herkki Erich Merila (f.1964) og Peet-
er Maria Laurits (f.1962), en þeir hafa unnið
saman í meira en tTu ár. Árið 1992 hófu þeir
starfrækslu á myndveri sem þeir kalla
DeStudio. De er öfugt forskeyti úr latínu og
táknar til dæmis Af eins og í afbyggingu eða af-
vopnun. Þaö sem DeStudio leggur áherslu á er
að vinna með Tmyndir úr auglýsinga- og afþrey-
ingariðnaði samtímans, túlka þær og setja T
óvenjulegt samhengi. Á sýningu þeirra T Nýlista-
safninu er einnig sjálfstæð verk þeirra tveggja
sem ekki eru gerð í nafni myndversins þannig
að um er ræða sýningu þriggja mismunandi að-
ila þeirra Peeter, Herkki og DeStudio. Sýningin
er úrval síöastliöinna tiu ára. Báðum, eða öll-
um þrem, sýningunum ITkur 6. ágúst en eru
opnar á opnunartíma safnsins.