Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2000, Blaðsíða 12
ES 1—
■L-B.
-N— N
Yikan 14. ihIí til a..9.„«.
•Klúbbar
■ GAUKUR Á STONG Þaö er á hreinu að þeir
sem vilja fá það besta út úr kvöldinu í kvöld fara
beinustu leið á Gaukinn þar sem Undirtónar
halda sérstök Stefnumót til heiðurs Warp-plötu
fyrirtækinu. Þangað mæta snillingarnir f Phoen-
icia og sýruhausinn Richard Devine. Stefnumót-
in halda áfram á morgun en þá verður nú allró-
legra yfir liðinu. í kvöld er nefninlega stefnt á
megadjamm. Auk Warparanna mæta islensku
tónlistarmennirnir Plastik, Delphi, RAF, Head-
Plug, Von Mir, Árni Valur, Þórhallur Skúlason og
Steindór, sem á heiðurinn af komu Warparanna.
1000 kall inn.
■ GEÐVEIKIÁ THOMSEN Það verður sama geð-
veikin á Thomsen i kvöld og önnur laugardags-
kvöld og hver veit nema strippgellurnar láti sjá
sig eftir erfiöa vakt? Foringinn Róbert Aron, aka.
Rampage, Ramdog, Chronic. Robbi rapp og
Robbi mjúki, stjórnar efri hæðinni ásamt Tommy
White. Niðri í kjallara eru Grétar E og Árni Einar
sem halda öllu gangandi þannig að þetta getur
ekki klikkað. Heyriöi þaö, danskfiklar?
■ 80VS ÞEMA Á SPOTUCHT Það verður sko
nóg um aö vera á Spotlight sem endranær og i
kvöld er það 80¥s þema sem skekur mannskap-
inn. Allir mæta i viöeigandi klæðnaði og stuð
verður á mannskapnum.
■ HÁR Á ASTRÓ Toni & Guy er nýjasta hársnyrti-
stofa bæjarins. Þetta er innfiutt stofa, eins
McDonalds og KFC, sem þykir svoldið kúl í dag.
Og liöið sem vinnur þarna er í hressari kantinum.
Allavega mæta þau á Stróið í kvöld og verða með
eitthvað sem þau kalla Massive Attack hár
hönnun. Mikil orð það.
• Krár
■ INGVI & ATLI Á SÓLON Ingvi & Atll hyggjast
gera einhvern óskunda með hljómplötur þetta
kvöldiö á kombakkstaðnum Sóloni íslandus. Þeir
bræður eru gestum staðarins að góðu einu kunn-
ir þannig að enginn ætti að fara meö fýlusvip
heim á leið.
■ MARGEIR Á PRIKINU DJ Margeir þekkja
djammglaðir Reykvíkingar vel enda hefur drengur-
inn skemmt borgarbúum á skemmtistöðum í
Reykjavlk: Austurstræti 3, Suðurlandsbr. 46,
Esso-stöðin Ártúnshöfða & Kringlunni.
Hafnarfjörður: Esso-stöðin, Lækjargötu 46,
Esso-stöðin, Reykjavíkurvegi 54.
Keflavík: Hafnargötu 32. Akureyri: Kaupvangsstr. 1.
rSUBLURV'
Ferskltriki i-r okkar bragö.
nýtt í bíó
v....
Heather Graham fær hjálp frá ólíklegasta fólki til aö ná í kallinn sinn aftur.
Bönnum skilnaði
Skilnaðir eru ekki séríslenskt
fyrirbæri. í dag frumsýnir
Stjörnubíó myndina Committed
en hún fjallar um Joline (leikin
af Heather Graham - foxí, foxí,
foxí - sem hefur leikið guðdómleg
beib í myndum á borð við Bowf-
inger, Austin Powers: The Spy
Who Shagged Me, Lost in Space,
Scream 2, Boogie Nights, Two
Girls and a Guy, Swingers, Drug-
store Cowboy og License to Dri-
ve) sem er ekki alveg aö kaupa
þetta skilnaðarkjaftæði sem koll-
ríður samfélaginu. Alla vega eltir
hún manninn sinn (leikinn af
Luke Wilson) þegar hann fer frá
henni, þvert yfir Bandaríkin með
hjálp bróður síns, Jay (það er
bróðir Ben Aftleck, hann Casey,
sem leikur kauða), og kærustu
hans (Patricia Velasquez). Þetta
er sem sagt mynd sem tilheyrir
„Road Movie“-flokknum og leik-
urinn æsist þegar brjálaða eigin-
konan Joline finnur kallinn í E1
Paso í Texas. Þar gerast hlutirnir
og óþarfi að upplýsa forvitna bíó-
gesti um restina £if plottinu. En
þetta er mynd sem hjónin ættu
að fara á saman og spyrja sig
hvort það sé þess virði að skilja
þegar þau fá leið hvort á öðru.
Kannski eigum við bara að hanga
saman á viljanum eins og amma
okkar og afi.
fjölda ára. Hann lætur þó engan bílbug á sér
finna og skemmtir gestum Priksins í kvöld þar
sem fólk má búast viö hörkustuði.
■ BLÁI ENGILUNN Þö aö Blái engillinn sé
staddur viö hliðina á arftaka Keisarans, al-
ræmdasta bar bæjarins, Kaffi Austurstræti,
mætir Viðar Jónsson samt óhræddur með gítar-
inn sinn og söng á vörum. Hann ætlar að byrja
að spila kl.22 og beyglr slg bara niöur þegar ein-
hver hendir bjórflöskum í hann. Seinna um kvöld-
ið kemur allt blindfulla fólkiö af stöðunum í kring
og vill syngja í karaoke. Verst að Blái engillinn
skuli ekki hafa metnað til að hafa græjurnar aF
mennilegar og (nota bene) myndbönd við kara-
oketextana.
■ GAUKUR Á STÖNG I kvöld er Atómkvöld á
Gauk á Stöng. Þar verður eflaust rafmögnuð
dansstemmning enda feit dagskrá í gangi og
alltaf gríðarlegt stuð á Gauknum. Dagskráin
hefst kl. 22 og því veröur fólk að vera orðiö fullt
ekki síðar en hálftíu.
■ SVASIL Á GRANPROKK Hljómsveitin Svasil
spilar á Grandrokk, Smiðjustíg 6. Svasil er fjöl-
mennasta og fjörugasta hljómsveit landsins,
samkvæmt fréttatilkynningu, og spilar á margt
undarlegt hljóðfærið en er einnig skipuð 3 söng-
konum. Hljomsveitin spilar einskonar afró-fönk,
með alla áhersluá skemmtilega sveiflu og
stemmningu. Ókeypis aðgangur. Fylleriííí.
■ VEGAMÓT í fyrsta sinn á Vegamótum, Dj. Ein-
ar en hann hefur verið að spila svolítið á Kaffi-
barnum undanfarið. Hann ætlar að spila fullt af
skemmtilegu funki og kannski smá diskó ef
þannig liggur á honum. Fritt inn og 22 ára aldurs-
takmark fyrir þá sem eru yngri. Hugsanlega er
mögulegt að múta dyravörðum vegna fjársveltis-
ins.
■ FJÓRUKRÁIN Víkingarnir safnast saman á
Fjörukránni þar sem mjöður vellur út um eyru
hvers sem inn stígur. Það á einnig við um Borg-
nesingana í hljómsveitinni Bingó sem spila í
kvöld í höfuðvígi víkinganna í Hafnarfirðinum.
■ NJÁLSSTOFA Hvað er meira við hæfi en aö
maðurinn Njáll spili tónlist á Njálsstofu. Ætli
þetta sé eigandinn? Allavega ætlar hann að spila
tónlist af gamla skólanum. Já, gömul, létt tónlist
er það sem blívar á Njálsstofu, Smiðjuvegi 6, í
kvöld.
iBöll
■ STUÐ Á NÆTURGALANUM Það veröur ein-
stök stemning á Næturgalanum i kvöld sem aðr-
ar helgar enda staöurinn annálaður ballstaður.
Galabandið mætir á svæðið og með því leikur
hin margfræga Anna Vilhjálmsdóttir.
■ 8 VILLT í ÞJÓÐLEIKHÚSKJALLARANUM 8
VILLT spilar í Þjóðleikhúskjallaranum en hljóm-
sveitin er nýbúin aö senda frá sér nýtt lag sem er
þegar fariö að hljóma á öldum Ijósvakans. Þetta
er gríðarlega lostafullt lag sem heitir einmitt
Lostlnn og það er Ijóst að salernin verða full-
dekkuð á meöan lagið hljómar.
■ CAFÉ CATALÍNA Já, auövitað. Café Catalína
í Kópavogi,” segir rótarinn sem er allt of seinn
meö magnarana handa hljómsveitinni Gammel
Dansk sem spilar þar í kvöld.
■ GAMMEL DANSK Á CATALINA Hljómsveitin
Gammel Dansk sér um fjöriö á Catalina í Kópa-
vogi í annað skiptið á tveimur dögum. Heyrst hef-
ur að fólk ferðist um landið þvert og endilangt til
aö fremja tryllta sveiflu, eins og bátar i æðis-
gengnum tónöldum Gammel Dansk.
■ ODP-VITINN Á AKUREYRI Á Odd-Vitanum á
Akureyri tryllir hljómsveit Ara Jónssonar lýðinn
alla helgina. Allir norður!
■ UTANQARPSMENN Á SJALLANUM AKUR-
EYRI „Besta rokkhljómssveit íslandssögunnar*
verður á Sjallanum Akureyri I kvöld og án efa úr-
valaliö trylltra tónleikagesta. Miðaverðið er 2500
kr. sem er ekkert miðað við glanshommann
Eiton John. Við köllum á réttar áherslur í peninga-
málum, farið á Utangarðsmenn og ærist undir
kombakkinu. Ath. ekki fyrir glanshomma.
■ ÚTGÁFUTÓNLEIKAR TÚPÍLAKA Spútnikhljóm-
sveitin Túpilakar halda útgáfutönleika í Kaffileik-
húsinu en Túpílakar senda um þessar mundir frá
sér sinn fyrsta geisladisk, Grinlögin illu. Hljóm-
sveitina skipa þeir Oddur Bjarni Þorkelsson
söngvari og Siguröur lllugason gitarleikari en
þeim til fulltingis veröa Eirikur Stephensen á
kontrabassa- og trompet, Lára Sóley Jóhanns-
dóttir á fiölu, Gunnar lllugi Sigurðsson á tromm-
um og Margrét Sverrisdóttir söngkona. Tónleik-
arnir hefjast klukkan 21 og aðsgangseyrir er ein-
ungis 800 kr. Nuddið saman höndunum og nag-
ið hárið því þegar það er gaman þá er gaman.
Þjóðina á Kaffileikhúsið!
Djass
■ TRÍÓ SNORRA SIGURÐARSONAR Á JÓM-
FRÚNNI Sjöundu sumartónleikar veitingahúss-
ins Jómfrúrinnar við Lækjargötu fara fram laug-
ardaginn kl. 16-18. Að þessu sinni kemur fram
tríó trompetleikarans Snorra Sigurðarsonar.
Aðgangur er ókeypis en mætið samt með pen-
ing fyrir bjór, því þetta er villt partý.
• K1ass í k
■ HARMONIKUKONSERT Á BROADWAY í kvöld
veröur hátíðarkonsert og dansleikur á Broadway
og gefst nú tækifæri á að heyra öll tónlistaratriði
alþjóðlegu harmonikuhátíðarinnar sem haldin er
í Reykjavík þessa dagana. Meöal þeirra sem
spila veröa Hljómsveit Hjördísar Geirs, Stormur-
inn og Léttsveit Harmonikufélags Reykjavlkur.
■ SUMARTÓNLEIKAR VH) MÝVATN. Nú flytja
Þorstelnn Gauti Sigurðsson, píanó, og Margrét
Kristjánsdóttir, fiöla, einsleiks- og samleiksverk
í Reykjahliðarkirkju við Mývatn. Á efnisskrá
þeirra eru m.a. verk eftir Mozart, Brahms, Ravel,
Þórarin Jónsson og Atla Heimi Sveinsson.Tón-
leikarnir hefiast kl. 21.00 og standa í eina
klukkustund.Aðgangseyrir er kr. 500.
■ TÓNAFÓRN BACHS í SKÁLHOLTSSKÓLA
Laugardaginn 15. júlí flytur Breski gómbuleikar-
inn Mark Levy flytur erindi um Tónafórn Bachs
kl. 14 í Skálholtsskóla. Kl. 15 flytur Sigurður
Halldórsson sellóleikari svltur nr. I, II og IV á
barokkselló eftir J.S. Bach. Kl. 17 á laugardag
flytur breskur hópur valinkunna barokkhljóðfæra-
leikara Tónafórnina eftir J.S. Bach.
•Sveitin
■ BREIÐiN. AKRANESl Það verður blússandi
fyllerí á Akranesi I kvöld. Ekki bætir það úr skák
aö Papamlr ætla að spila fyrir fullum dansi á
Breiðinni. Þangað mæta allar lólrturnar í þröng-
um, hvítum buxum og Buffaloskóm og slefa upp
í sundkappanna. Sódóma Akranes á Breiðinni í
kvöld.
■ EGILSBÚÐ. NESKAUPSTAÐ Ætli það sé búið
að þurrka upp allt blóðið og
sópa saman öllum gler- f'
brotunum eftir Utangarös-
mannatónleikana í Egils-
búð í gær? Það er vonandi
þvf Stebbi Hilmars og félag-
ar hans í Sálinni hans Jóns
míns eru ekki minni stjörn-
ur en gúanórokkararnir.
Þeir ætla að stíga á sviöið í
Egilsbúðinni upp úr kl.23
og poppa til kl.3. Það er
sama sýstem með aldurinn
og I gær, einungis 18 ára og yfir inn (fyrir utan
glmllegar lólítur sem eru til í að slefa upp í dyra-
verðina). Það er hinsvegar ódýrara á Sálina,
2000 kall.
■ SKÍMÓ OG FM í EYJUM Þá eru þeir farnir.
Farnir til Vestmannaeyja. FM957 hraðlestin mun
mæta til Eyja I dag og skemmta eyjarskeggjum
sem ættu aö vera orðnir langeygir eftir almenni-
legu djammi. Sumardjammiö mun fara fram frá
1816 I sundlaug bæjarins og um kvöldið á balli
meö hljómsveitinni Skítamóral. í sundlauginni
veröur mikiö um að vera og mætir Skimó með
smástirnunum Einari Ágúst og Adda Fannari í far-
arbroddi og spilar órafmagnað fyrir gesti auk
þess sem þjóðarrétturinn pulsa og kók verður
seldur til styrktar langveikum börnum. Um kvöld-
iö verður ball í Kaffi Tímor meö Skítamóral þar
sem FM957 upphitun hefst klukkan 23. Voöa
gaman.
■ SVÖRTU FÓTIN Á SIGLÓ Hljómsveitin í svört-
um fötum hefur veriö aö gera góða hluti að und-
anförnu og er skemmst að minnast frækinnar
framgöngu hennar á Laugaveginum um siðustu
helgi. Nú hafa þeir piltar lagt land undir fót og eru
mættir á Slglufjörð þar sem þeir spila á balli i
Nýja bíói í kvöld. Ball með þessum drengjum er
eitthvað sem aldrei klikkar þannig að Siglfirðing-
ar eru hvattir til aö rifa sig upp af rassgatinu og
koma sér í gírinn, það er öruggt að hljómsveitin
er í rétta gírnum.
■ INGHÓLL Hann Hreimur er svo sætur að þaö
á án efa eftir að vera fullt hús af gellum í Inghóli
á Selfossi I kvöld. Land og synir ætla nefninlega
að heiðra suðurlandsláglendiö með nærveru
sinni og taka alla sumarslagarana sína. Þetta
gerist ekki á hverjum degi.
■ BYLGJULESTIN Á NESKAUPSTAÐ írafár held
ur áfram ferð sinni um landið og hefur nú slegist
í för með Bylgjulestinni sem kemur á Neskaup-
stað. Djamm og stuð fýrir austan.
■ DJAMM Á LUNPANUM Hljómsveitin Penta
mun skemmta Vestmanneyingum á Lundanum í
kvöld. Hljómsveitina skipa þeir Daníel V. Elías-
son, Ingi Valur Grétarsson og Kristinn J. Gallag-
her. Vestmannaeyingar kunna að sletta úr klauf-
unum og það er seriously fucked up jam yfirvof-
andi.
■ ST0Ð í STÓD Konur rífa af sér fötin og karlar
naga eyru sin þegar St0ð í Stöð hefst á ný eftir
árshlé. Dagskráin er snibin fyrir alla fjölskylduna.
Jón Gnarr sýnir fram á að hann var einu sinni
nörd, Skriðjöklarnir spila fýrir trylltum dansi
ásamt Agli Ólafssyni, slegið verður upp harm-
ónikkuballi, þrjár stööfirskar unglingahljómsveit-
ir koma fram, haldin dvergveiöikeppni, leiktæki
sett upp fyrir börnin, grillað og sungið á Græna
bala, gönguferðir farnar um nálæg fjöll og dali,
útimarkaður starfræktur, spiluð knattspyrna
o.fl.Tryggt er aö veðrið veröur gott þessa helgi
enda er alltaf blíöa á Stöðvarfirði, líka þegar
hann rignir.St0ð í Stöð var fýrst haldin árið 1996
til að fagna hundrað áraverslunarafmæli staðar-
ins og hefur hátíðin öölast fastan sess í lífi Stöö-
firöinga. Nafniö er valiö til heiðurs og varnar þeim
vanmetna framburði Austfirðinga, flámælinu.
■ SÓLDÓGG í ÚTHLÍÐ Sóldögg grúvar í Úthlíð,
Biskupstungum, I kvöld og má búast viö að sum-
arbústaðarfólk djammi og djúsi fram úr hófi. Svo
er hægt að fara og æla I Geysi.
■ HREÐAVATNSSKÁLI Hljómsveitin Buttercup
hendir græjunum upp I rútu, brunar norður eftir
Þjóðvegi 1 og mætir fílefld í Hreðavatnsskála í
kvöld. Voða gaman.
■ ORMURINN, EGILSSTÓÐUM Það er tvennt
sem þarf aö tékka á þegar fariö er til Egllsstaða.
Annarsvegar er það báturinn sem flýtur á Lagar-
fljóti og hinsvegar eöalkráin Ormurinn. Það er
kjöriö að gera þaö I kvöld því DJ Crizo ætlar að
þeyta skifum fram eftir bjartri sumarnóttu.
■ PANORAMA BORGARNESI Diskótek verður I
kvöld í Panorama í Borgarnesi eins og reyndar
aðra laugardaga. Allir sveitalubbarnir rifa fram
lakksköna, pússa þá og setja jafnvel upp lakk-
rísblndi ef því ber að skipta. Enginn ætti að verða
ULU Ifókus
svikinn í Panorama í kvöld. Gleðin stendur frá 28
3 og að sjálfsögðu er ókeypis inn enda færi vart
neinn heiNita maður að borga sig inn, nema
kannski ef hann væri úr Borgarnesi!
■ VIÐ POLUNN. AKUREYRI Við Pollinn á Akur-
eyri stendur vlð Pollinn á Akureyri. Þar spilar í
kvöld hljómsveitin Einn og sjötíu sem er skipuö
meðlimum yfir elnn og sjötíu. Merkilegt það.
■ VÍKIN. HÓFN Og þú sem héist aö það yrði öm-
urlegt á Höfn í Hornafirði um helgina. Aldeilis
ekki, gamli rokkarinn Rúnar Þór heiörar gesti á
Víkinni á Höfn með gömlum siögurum og
viskírödd djöfulsins.
Leikhús
■ THRILLER Á NÝ Verslingarnir knáu, sem
gerðu allt vitlaust i vetur með heimatilbuna
söngleiknum sínum Thriller, eru mættir aftur.
Já, stykkið sem Gunnar Helgason sauð saman
í kringum öll lögin hans Michael Jackson og
leikstýrði flýgur aftur í Loftkastalanum í kvöld.
Loftkastalinn, fyrirgefið, Leikfélag íslands var
svo ánægt með frammistöðu krakkanna að það
ákvað að gefa þeim sem fengu ekki tækifæri til
að berja söngvarana, leikarana og siðast en
ekki síst alla hina föngulegu og íturvöxnu dans-
ara augum. Thriller hefst kl.20.30 í kvöld, örfá
sæti eru laus og síminn hjá Leikfélagi íslands
er 552 3000.
•Kabarett
■ CIRKUS AGORA Athugið! Athugiö! Austfirð-
ingar athugið! í dag er enginn annar en Jan Ket-
il kominn til Egilsstaða með sinn frækna
Cirkus Agora. Því miður höfum við ekki hug-
mynd um hver Jan Ketil er, hvað þá sirkusinn
hans. Kannski laumar Jan á Ijónum, dvergum,
skeggjuðum konum og töframönnum. Kannski
er hann bara bóndi af Vestfjörðum sem mætir
með börnln sín fjögur og lætur þau standa á
hestbaki og fjárhundinn sinn Leppa rúlla sér
fyrir sykurmola. Kannski heldur hann að Aust-
firðingar séu svo vitlausir að þeir sjá ekki I
gegnum svindlið hans. Þetta er allt saman
æsispennandi. Hver svo sem útkoman er þá er
miðasalan opin frá kl.12 (hvar svo sem hún er).
•F yrir börnin
■ REYNISVATN Harmonikudagsrá veröur fýrir
börn og fjölskyldufólk við Reynlsvatn frá klukk-
an 1616. Þetta er angi af stórmerkilegu alþjóð-
legu harmonikumóti sem haldiö er I Reykjavík
þessa dagana. Meðal þess sem er á þessari
ótrúlegu dagskrá er silungaveiði, grill og svo
verður riðið hestum. Tóti trúður lætur eins og
fífl og börnin fá tækifæri til aö kynnast harmon-
ikunni úti í náttúrunni.
•Opnanir
■ GALLERÍ UST1 dag kl. 11, fýrir hádegi, opn-
ar Vagna Sólveig Vagnsdóttir, sýninu I Gallerí
List, Skipholti 50d. Síðast hélt Vagna sýningu I
Galleri Fold og þá seldist allt upp. Hún er sjálf-
menntuð og þykir algjör snillingur I bransanum.
Er ferskari en þetta vanalega artl-fartí-gengi sem
fýllir lista sem þennan. Þessi sýning er frábrugð-
in síðustu sýningu því nú er Vagna komin með
stærri verk en síöast ásamt nokkrum öðruvlsi
hlutum sem hægt er að hengja upp á vegg, sum
hverja.
■ GALLERÍQHLEMMUR.IS Ásta Þórlsdóttlr
opnar myndlistarsýninguna „Milll vlta“ í
Garðskagavita í dag kl 14. Ásta sýnir á öllum
hæðum vitans innsetningu með Ijósmyndum,
skúlptúrum og málverkum. Sýningin er unnin út
frá hughrifum úr fjölda vita vítt og breitt um
landið. Vitinn er gerður að trúarlegri byggingu,
kirkju sem hýsir vangaveltur um leitina að
hamingjunni út frá jónabandinu, bæöi hinu
veraldlega og sem trúarlegri táknmynd.Einnig
sýnir Ásta verk tengt þessu á veggnum í
galleri@hlemmur.is. Ásta útskrifaðist frá MHÍ
1990 og er þetta hennar fýrsta einkasýning.
Sýningín stendur til 27. ágúst og er opin alla
daga frá kl. 1817 á sama tíma og Byggöasafnið
á Garöskaga. (Garöskagaviti er I Garði á
Reykjanesi, u.þ.b. 45. mín. aksturfrá Reykjavík).
Nánari upplýsingar á: http://gallerl.hlemmur.ls.
■ ÍSLENSK GRAFÍK Ljósmyndasamsýning Evu
Jiménez Cerdanya og Alexöndru Litaker opnar í
dag kl. 16 í húsi íslenskrar Grafíkar, Tryggva-
götu 17 (hafnarmegin). Eva er myndlistarmaöur
frá Spáni en í dag er hún búsett í New Ýork. Hún
stundaði nám í bókmenntum viö Universitat
Autonoma de Barcelona og svo Ijósmyndun í
International Center of Photography I NY. Alex-
andra líka myndlistarmaður en hún er kani sem
býr hér á íslandi. Hún stundaði nám í bókmennt-
um við Columbia University í NY og kvikmyndun I
Rlm Video Arts. Og það eru allir velkomnir á opn-
unina en sýningunni lýkur 6. ágúst.
•Síöustu forvöð
■ TOLU í LÓNKOTI Sýningu myndlistarmanns-
ins Tolla lýkur nú í dag en sýningin hefur stað-
ið yfir í Gallerí! Sölva Helgasonar aö Lónkotl I
Skagafirðl. Á sýningunni eru 15 landslagsolíu-
málverk sem öll eru til sölu.
■ VEQGFÓÐURSMÁLVERK Breski málarinn
Alan James stendur um þessar mundir fýrir
„veggfóðursmálverkasýningu" í Strauml sunn-
an við álveriö í Straumsvík. Þetta verður þriðja
sýningin sem James stendur einn fyrir á fs-
landi. Það fer hver að verða sföastur að sjá sýrv
inguna sem lýkur í dag.