Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2000, Side 1
15
Wf&át;
rfci/ch WSfJi
Eiður Smari Guðjohnáen, til vtnstri, og
Helgí Sígurðsson fagna her sigri á Svium
i gær a Norðurlan^amótinu Peir feiagar
sau‘ um sigurroaf^i^liðuí Smart ftskaðí
vttsó sem Helgi skcsráot ur. -
OV-myrtö' HqL
íslensku landsliðin, undir 21
árs liðið og A-landsliðið, unnu
tvöfaldan sigur á Svíum i gær og
er þetta aðeins í annað sinn sem
elstu landslið þjóðarinnar vinna
sömu þjóð, tvisvar, sama daginn.
ísland vann áður tvöfaldan sigur
á Armenum 5. júní 1999.
Þetta voru fyrstu sigrar ís-
lands á Svíum í 49 ár eða síðan
Ríkharður Jónsson skoraði
fernu í 4-3 á Melavellinum 29.
júní 1951. ísland hafði síðan þá
leikið tólf landsleiki i röð gegn
Svíum, í þessum tveimur
landsliðum, án sigurs og þar af
tapað níu af þeim.
Árni fékk á sig
fyrsta mark sitt
Ámi Gautur Arason lék sjö-
unda landsleik sinn gegn Svíum
í gær og þurfti í fyrsta sinn að
sækja boltann í netið. Þegar Jo-
han Mjállby skaliaði i netið á 23.
mínútu hafði Árni Gautur hald-
ið hreinu fyrstu 272 mínútur sín-
ar í íslenska landsliðsmarkinu.
Þetta er að sjálfsögðu metbyrjun
hjá íslenskum landsliðsmark-
verði.
Ríkharður
næstyngstur
Ríkharður Daðson varð í gær
fimmti landsliðsmaðurinn í sög-
unni til að skora tíu landsliðs-
mörk og enn fremur sá næst-
yngsti. Það er aðeins afi Rík-
harðs og nafni, Ríkharður Jóns-
son, sem var yngri en hann skor-
aði tíunda landsliðsmark sitt
gegn Englendingum 7. ágúst
1956, þá 26 ára og tæplega níu
mánaða að auki. Ríkharður er 28
ára og fjórum mánuðum betur.
Ríkharður Jónsson er marka-
hæsti landsliðsmaðurinn með 17
mörk, Arnór Guðjohnsen hefur
skorað 14 og þeir Pétur Péturs-
son og Matthías Hallgrímsson
hafa skorað 11 hvor. -ÓÓJ
Tveir sigrar
sama dag eftir
49 ára bið
Fimmtudagur 17. agust 2000
Landsleikjamet
m
Sagt eftir leikinn
Atli Eðvaldsson
„Fyrsti háiftíminn var mjög erf-
iður fyrir varnarmennina í liðinu.
Það sem fór úrskeiðis var að bilið
milli miðju og vamar var of mikið
og Svíarnir nýttu sér það með því
að spila inn á það svæði. í seinni
hálfleik fórum við að loka þessu
svæði og þá byrjuðu miðju-
mennimir okkar að vinna miklu
betur, meira til baka, til að hjálpa
miðvörðunum og þá fórum við í
gang.
En fyrir utan markið gáfu vam-
armennimir okkar ekkert færi á
sér og það skapaðist í raun aldei
almennileg hætta við markið. Við
höfðum hins vegar átt nokkur skot
á mark Svíanna.
Þótt þeir skiptu öllum þessum
mönnum út af vom fyrstu 5 minút-
umar í síðari háifleik mjög erfið-
ar. Svo fundum við taktinn og náð-
um að loka þessum svæðum sem
við áttum í erfiðleikum með í fyrri
hálfleik. Okkur tókst að vinna bet-
ur úr leik okkar og fengum einnig
aukið sjálfstraust og það er það
sem skiptir máli.
Liðsheildin skiptir öllu í svona
leikjum. Einstök atriði geta gengið
vel upp en ljóst er að allir þurfa að
leggja sitt af mörkum og einbeita
sér að sínu hlutverki svo árangur
náist.“
Tommy Söderberg, þjálfari Svía
„Við spiluðum mjög vel framan af
leik og fengum t.d. strax á tíundu
mínútu gott færi sem íslenski mark-
maðurinn varði vel. íslendingar eru
með gott lið, þeir spiluðu t.d. feiki-
vel á móti heims- og Evrópumeistur-
um Frakka. I kvöld spiluðu íslend-
ingamir mjög vel, léku mjög hratt
og spiiuðu mikið inn fyrir vömina
hjá okkur. Vegna þess að við skipt-
um út af svo mörgum leikmönnum í
hálfleik þá virtist kannski sem við
hefðum skipt í frekar vamarsinn-
aðri uppstillingu í seinni hálfleik.
Ástæðan var hins vegar að miðlína
okkar fór einfaldlega að bakka of
mikið. Við komum okkur ekki í
réttar stöður og af því leiddi að við
misstum íslendingana svo oft fram
hjá okkur upp í homin. Við skipt-
um sex leikmönnum inn á í hálfleik
því við þurftum að skoða leikmenn-
ina, hvemig þeir stæðu í dag. Leik-
mennimir þurfa að æfa og spila
mikið þessa dagana og krafa sumra
þjálfara félagsliðanna, s.s. Arsenal
og Bayem Múnchen, var að við
tækjum leikmennina út af eftir 45
minútur." -esá/ÓK
- Qórði sigurleikurinn í röð í gær
íslenska knattspyrnulandsliðið setti glæsilegt met í gær með því að vinna
fjórða landsleik sinn í röð en það hefur aldrei gerst áður. Landsleikurinn
gegn Svíum var 290. landsleikurinn frá upphafi en fimm sinnum áður hafði
íslandi tekist að vinna þrjá leiki í röð,
1984, 1987, 1990, 1994 og 1999.
Næsta met á dagskrá eru flestir leikir
í röð án taps (11 undir stjórn Guðjóns
Þórðarsonar) en þetta var fimmti
landsleikurinn undir stjóm Atla og
hann er enn taplaus sem
landsliðsþjálfari sem er besta byrjun
landsliðsþjálfara frá upphafi. Fjórir af
fimm fyrstu leikjunum hafa unnist en
sá fyrsti endaði með jafntefli. -ÓÓJ