Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2000, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2000, Side 7
mmmrn—~—-----------------------------------: wr 'mmmmsr "'iwipipr ^biíp 'ímsmmmsp 'mmmm ''iiwwiii Hljómsveitina Kanada skipa fimm bráðefnilegir ungir tónlistarmenn og fyrsta plata þeirra, sem ber heiti sveitarinnar, kemur einmitt út næsta fimmtudag. Þá verða haldnir útgáfutónleikar kl. 21 í Þjóðleikhúskjall- aranum þar sem einnig koma fram Músíkvati, Óttar Þroppé, sem DJ Sex Bomb, og Ásmundur Ásmunds- son myndlistarmaður. Héðinn Halldórsson kom að máli við piltana yfir ölglasi fyrir utan Kaffi Reykjavík eitt faqurt síðsumarkvöid í vikunni. Spjallað var um heima og geima. Kanada er ópólitísk sveit. Þeir rífast samt eins og alvörusveitir en því haróari sem deilurnar eru því ijúfari veröa sættirnar. Gleöibandið Kanada er fjögurra ára um þessar mundir og von er á fyrstu plötu bandsins. Liðsmenn eru fimm, þeir Úlfur Eldjám á saxófón og hljómborð, Ólafur Björn Ólafsson á trommur, Haukur Þórðarson á gítar, Þor- valdur Gröndal á bassa og Ragn- ar Kjartansson kynnir og slag- verksleikari. Strákamir hafa kom- ið víða við í tónlistinni. Þannig kemur Þorvaldur úr Kvartett Ó. Jónsson og Grjóna Óli og Hauk- ur voru m.a. annars í hljóm- sveitinni Hundraðköllunum og Ragnar og Úlfur koma úr Kósý. Enn í dag eru þeir líka að vinna í mörgum öðrum verkefnum. Allir eru Kanadamenn úr Reykjavík og fæddir á bilinu ‘72 til ‘78. Tónlist Kanada er undir áhrif- um úr ýmsum áttum. Þannig má á væntanlegri plötu heyra allt frá hljóðbútum úr hryllingsmyndum og hörputónlist, tO dýrahljóða úr sveitinni og harðs metcd-rokks. Eitt er vist að áheyrendur eiga óhefðbundna útgáfutónleika í vændrnn með nýrri öðruvísi tón- list og myndlist. „Útgáfutónleik- amir verða í Þjóðleikhúskjallaran- um á fimmtudaginn í næstu viku. Við viljum að þeir verði meira en bara hefðbundnir tónleikar. Við höfum fengið nokkra landsþekkta ruglustampa til að mgla í fólkinu áður en við byrjum að spila og þess vegna verður þetta meira eins og góð tívolíferð. Einhverjum verður örugglega flökurt þegar þeir koma út. Það er gaman þegar fólk veit ekki alveg að hverju það gengur,“ segja hljómsveitarmeð- limir. Hlutur Ólafs Ragnars Hvað verður svo eftir útgáfutón- leikana? „Við verðum að spila í minitón- leikaferð með Mínus sem heitir „Gubbaöu ástin mín“ en fyrstu tón- leikar í þeirri seríu vora á Grand Rokk um verslunarmannahelgina. Svo spilum við í FB og MH í lok þessa mánaðar með Mínus, Mús- íkvati og Klink. Þeir sem hins vegar vilja fá forskot á sæluna geta séð okkur á menningamótt núna 19. ágúst á þaki Músíkur og mynda kl. 21. Þeir tónleikar verða stór- kostlegir og era tileinkaðir góðu samstarfi íslands og Kanada og væntanlegmn sendiráðum í báðum löndum. Framlag okkar er tileink- að samborgurum og vinum okkar í Kanada. Forsetinn er líka alltaf í þvi að bæta samskipti Kanada og íslendinga. Hann greiðir veg hljóm- sveitarinnar svo við getum spilað fyrir frændur okkar. Við viljum þakka honum fyrir að hafa komið okkur á framfæri og bent fólki á arfleifð íslendinga í Kanada.“ í haust tekur svo við þetta venju- lega hjá Kanada þegar liðsmenn munu halda til í fjórum mismun- andi löndum, Hollandi, Danmörku, Svíþjóð og íslandi; við nám, leik og störf. Skorum á ríkisstjórnina Þið cetlið ykkur ekki neina stóra hluti eftir útgáfuna, einhverja land- vinninga? „Við reyndum það einu sinni, spiluðum i Óðinsvéum á þorra- blóti og það gekk ekkert ailt of vel. Tónlistin var ekkert að hitta í mark. Þó við höfum æft 10 til 15 ís- lensk balilög þá fór þetta einhvem veginn fyrir ofan garð og neðan. En við skemmtmn okkur vel og tókum svo morgunlestina til Kaupmanna- hafnar daginn eftir. Það eru nú einu landvinningar okkar að hafa verið reknir með skömm frá Óðins- véum. En það er ekkert ailt búið, enn eigum við alveg séns í Óðins- vé, jafnvel eitthvað annað. Svo eig- um við 10 manna aðdáendahóp í Rússlandi sem komst yfir eldgaml- an demo-disk með okkur. Sú klíka hlustar á Kanada í öllum partíum. Þá eru planaðir tónleikar í Finn- landi, Sankti Pétursborg og Paris. Tónleikamir í París era hvað ör- uggastir, hitt er meira svona í höfð- inu á okkur. Það er reyndar gamall draumur að taka svona Nord Atlantic-túr, fara til Grænlands, Færeyja, Stavanger, á veðurfræð- ingaskemmtun á Jan Mayen, til Alaska og Rússlands. Svo skorum við á ríkisstjómina að borga undir okkur til Kanada fyrst þeir eru að reyna að bæta samskiptin. Hún ætti að líta á tónlistarflóra lands- ins og þá ætti mikilvægi Kanada að hrópa á hana.“ Þið eruð allir í annarri vinnu í sumar? „Svona bæði og, samt mest bara að spila. Það heldur okkur gang- andi andlega en ekki fjárhagslega.“ Þorvaldur var í garðyrkjustörfum en er nýhættur, Haukur er í bygg- ingarvinnu, Óli vinnur á Geðdeild Landspítalans og Úlfur og Ragnar vinna báðir á auglýsingastofum. Á vetuma er Ragnar í Myndlista- og handíðaskólanum og í haust hefur Óli nám í tónsmíðum og Haukur byrjar að læra arkitektúr. Þar sem sveitin er svo dreifð í vetur er það stefnan að hittast í Mið-Evrópu og halda tónleika, að sögn strákanna. T.d. í Lúxemborg. Fræg andlit Kanada Hefur Kanada einhverja ákveðna meðvitaða ímynd? „ímynd okkar er nú engan veg- inn. Hún er í svo miklu ragli auk þess sem það er hallærislegt að vera með einhverja ímynd. Við erum bara flmm yndislegir einstak- lingar en höfum allir okkar við- bjóðslegu þarflr eins og annað fólk. Úlfur vildi að ímyndin yrði skylm- ingaþrælar en það var ekki hægt að sameinast um það. Það var líka svolítið erfitt að redda sverðum. Fyrst og fremst erum við vinahóp- ur og hljómsveit sem er að leika sér og spila og bara að vera saman.“ Stelpur keyra hjá og flauta og þeir segjast veröa fyrir því œ oftar, einnig aö gamlar konur horfi á þá í strœtó. Þeir segjast þó ekki vera frœgir. Taliö berst að Kristnihátið einhverra hluta vegna, sem allir Kanadamenn sóttu nema Óli. Ein- hverjir þeirra fóru líka á Hinsegin daga. „Maður á alltaf að fara á allar svona hátíðir,“ segir Ragnar sem skilur ekkert í að fólk skuli ekki mæta þegar það er verið bjóða upp á skemmtiatriði fyrir mörg hundr- uð milljónir. Úlfur stingur upp á Hommahátíð á Þingvöllum. „En það verður nú varla fyrr en 2978.“ Ragnar: „Ég hef reyndar verið handtekinn fyrir hommaskap. Kærastan mín fór úr landi til Vestamannaeyja og ég endaði í steininum. Ég lagði mig með vini mínum fyrir utan Seðlabankann og löggan hélt við værum að gamna okkur. Við vorum reyndar með Seölabankamerki með okkur sem við höfðum tekið niður og notuðum fyrir kodda.“ Drifkraftur Kanada Hvað finnst ykkur um strípibúll- ur? „Við erum mjög hlynntir klámi og förum allir við og við á strípi- búllur. Þetta er einn af grunnþátt- um í eðli mannskepnimnar og drif- krafturinn á bak við Kanada. Gall- inn við íslenskar búllur er stuð- leysi. Þarna eru bara rauðir, stjarf- ir karlar sem klappa ekki einu sinni fyrir dönsurunum en það er mesta vanvirðing sem er hægt að sýna þessum stúlkum. Þessir menn kunna ekki að meta góða list, þeim er alveg sama hvort þeir eru að horfa á glæsikvendið Jennifer eða hina dularfullu Sabrinu.“ Á Kanada eftir aö lifa lengi? „Já, tvímælalaust. Það sér ekki fyrir endann á Kanada. Við erum stórhuga, hugsum stórt en látum smátt. Þetta eru einkunnarorð Kanada. Hyggðu hátt en láttu smátt. Svona grínlaust þá er þetta fallegt samstarf og á eftir að halda áfram lengi. Aldrei að vita nema næsta plata verði sinfónía eða jafn- vel rokkópera. Við látum samt smátt engu að síður.“ Einhver skilaboð að lokum til áhangenda sveitarinnar? „Bara koma á tónleikana. Og muna að Kanada er stærsta land í heimi og þið eruð hluti af því. 18. ágúst 2000 f Ó k U S 7

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.