Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2000, Síða 4
4
FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2000
DV
Fréttir
Hörð samkeppni sláturhúsanna hafin:
Slegist um sláturlömbin
- bændur taka besta verðinu - sláturfé flutt landshornanna á milli
Mismunandi verð
Hluti þess fjár sem slátraö er í haust veröur sendur landshlutanna á milli því sláturhúsin bjóöa mjög
mismunandi verö fyrir kjötiö.
Hörð samkeppni er nú hafln milli
sláturhúsanna í landinu enda haust-
sláturtíð á næsta leiti. Sum þeirra
bjóða mun hærra verð en önnur fyrir
kílóið af lambakjöti. Þá er i boði mis-
munandi verð fyrir flutninga á slátur-
fé. Það sem vekur sérstaka athygli nú
er að fjárbændur í Eyjafirði eru ekki
samtaka um að senda til slátrunar í
sláturhús KEA og KÞ á Húsavík.
Margir þeirra senda til slátrunar á
Blönduósi og aðrir til Hvammstanga.
Þá senda Borgfirðingar og Dalamenn
í talsverðum mæli fé til slátrunar á
Hvammstanga þótt sláturhús sé í
Borgamesi. Nokkrir eyfirskir bænd-
ur senda einnig sláturfé sitt til
Hvammstanga. En niðurstaða sam-
keppni sláturhúsanna er í heildina sú
að verið er að senda fé landshlutanna
á milli. Bændur vilja að sjálfsögðu fá
sem mest fyrir afurðir sínar og því
kjósa margir að breyta til og versla
við þann sem býður best.
Landssamband sauðfjárbænda hef-
ur gefið úr sérstakt viðmiðunarverð
fyrir sláturafurðir. Nýja verðið nem-
ur um 260-271 krónu á kílóið af
iambakjöti í tveimur algengustu verð-
flokkunum. Meðaltalshækkun frá við-
miðunarverðinu, sem sambandið gaf
út á síðasta ári, er tæp 6 prósent.
Mlsjafnt verö
Gísli Garðarsson, sláturhússtjóri
sláturhúss Sölufélags Austur-Hún-
vetninga á Blönduósi, sagöi, að þar
væri slátrað fé af svæðinu allt frá
Vestfjörðum og norður í Eyjafjörð.
Hann sagði að þegar hefðu um 12
bændur úr Eyjafirði pantað slátnm.
„Við borgum viðmiðunarverð Lands-
sambands sauðfjárbænda á sjö flokka
lambakjöts," sagði Gísli. „Fullnaðar-
uppgjör fyrir innlenda markaðinn fer
fram 25. október. Þá bjóðum við upp á
hagstæðan flutning og erum með jafn-
aðarflutningsgjald á því svæði sem
við þjónum.“
Áætlað er aö slátra 48-49.000 fjár á
Blönduósi í haust. Það er aukning um
10.000 fjár frá því í fyrra. Þar af eru
um 4.000 fjár úr Eyjafirði. Einnig er
um að ræða aukningu á Vestíjörðum,
Skagafirði og heimavæðinu. Gísli
sagði að enn streymdu inn slát-
urpantanir frá bændum enda væri
mönnum frjálst að velja sláturleyfis-
hafa.
Hjalti Jósefsson, sláturhússtjóri
hjá Ferskum afurðum á Hvamms-
tanga, sagði að um 20.000 fjár yrði
slátrað hjá fyrirtækinu nú í haust.
Stærstur hluti fiárins kæmi úr Borg-
arfirði, Dalasýslu og af Hvamms-
tangasvæðinu. Þá hefðu sex eða sjö
bændur úr Eyjafirði pantað slátrun í
haust.
„Við borgum 4 prósent ofan á við-
miðunarverðiö sem gefið var út í
haust,“ sagði Hjalti. „Það munar 20
krónum á kíló sem gerir 200 þúsund á
500 lömb, að meðtöldu slátri og gær-
um sem við borgum einnig betur fyr-
ir. Við teljum okkur vera með ódýrt
sláturhús og geta boðið betur. Flutn-
ingskostnaður er lítillega niður-
greiddur á lengri leiðunum. Við
greiðum bændum 75 prósent af verð-
inu 25. október."
Eigandi Ferskra afurða er Hjalti í
félagi við Erik Jensen á Akureyri.
Fara milli svæða
Steinbjörn Tryggvason, sláturhús-
stjóri sláturhúss Goða á Hvamms-
tanga, sagðist áætla að siátrað yrði
um 40.000 fiár nú. Það kæmi víða að,
af Vestfiörðum, Snæfellsnesi, Strönd-
um og Dalasýslu.
Goði rekur sláturhús á Hvamms-
tanga, Egilsstöðum, Höfn, Selfossi, í
Borgarnesi, Búðardal og á Hólmavík,
„Menn bjóða auðvitað misjafnlega
en ég held að samkeppnin sé ekki
mikil," sagði Steinbjörn sem kvaðst
ekki hafa orðið var við að þeir væru
að missa viðskipti yfir til Ferskra af-
urða á Hvammstanga. Hins bæri að
geta að sláturtíð væri rétt um það bil
að hefiast þannig að dæmið lægi ekki
endanlega fyrir.
Forstjóri Goða, Valdimar Leifsson,
sagði viö DV að fyrirtækið treysti sér
ekki til að greiða samkvæmt viðmið-
unarverði Landssambands sauðfiár-
bænda. „Við erum með 4 prósent jafn-
aðarhækkun frá verðinu í fyrra. Svo
kemur inn 1-11/2 prósent skerðing á
geymslu- og vaxtagjöldum til okkar,
sem við þurfum einnig að mæta. Síð-
an ákváðum við að fara þá leið að
hækka greiðslur fyrir vistvænt kjöt
um 4 krónur á kíló. Þar er um viðbót-
arhækkun að ræða.“
Leitt aö missa viðskiptavini
Jón H. Björnsson, sláturhússtjóri
KEA og KÞ á Húsavík, sagðist gera
ráð fyrir að þar yrði slátrað 65-70.000
fiár. Það væri svipað og verið hefði
hjá Kaupfélagi Þingeyinga og KEA.
„En menn hafa val í þessu og það er
gott,“ sagði Jón og bætti við að tals-
vert væri um að menn færu milli
svæða enda væri það hluti af frjálsum
viðskiptum. Hann sagði eitthvað um
að nýir viðskiptavinir sneru sér til
Húsavíkur en vildi ekki tjá sig um
hvaðan þeir kæmu
Um verð sagði Jón að gert væri ráð
fyrir að hækkun á dilkakjöti frá því í
fyrra væri 4,7 prósent á stærstan
hluta afurða. „Við höfum ekki talið
skynsamlegt að hækka verðið á aðal-
söluílokkunum eins mikið og Lands-
samband sauðfiárbænda lagði til. Á
móti erum við að greiða mjög sam-
keppnishæft útflutningsverð, miðað
við það sem gerist annars staðar. Við
teljum að við séum að bjóða sam-
keppnishæf kjör og þjónustu. En auð-
vitað þykir okkur leitt að missa þessa
viðskiptavini sem leita til Blönduóss
og Hvammstanga.“
-JSS
Brotist inn á
Bifröst
DV, BIFRQST:______________
Brotist var inn í hús Viðskiptahá-
skólans á Bifröst aðfaranótt miðviku-
dags. Þjófamir höfðu, eftir því sem
best er vitað, lítið upp úr krafsinu
nema eitthvað af tóbaki og krydd úr
eldhúsi nemenda. Aðallega virðast
þeir hafa varið tíma sínum í að bijóta
upp ræstikompur og önnur slík rými
sem litil verðmæti hafa að geyma. Lík-
legt má telja að mikil umfiöllun um
Viðskiptaháskólann á Bifröst síðustu
daga hafi dregið umrædda „gesti“ að
enda munu fartölvur um þessar mund-
ir njóta mikilia vinsælda „á markaðn-
um“. -DVÓ
Brennuvargar
Lögreglan í Reykjavík rannsakar nú
tvö ikveikjumál sem komu upp með
stuttu millibili í fyrrinótt.
Hið fyrra kom upp rétt fyrir mið-
nætti, þegar slökkviliðið og lögreglan
voru kölluð að logandi ruslatunnu við
leikskólann Grandaborg við Boða-
granda. Greiðlega gekk að slökkva log-
ana og litlar skemmdir urðu vegna
eldsins. Skömmu eftir miðnættið var
kveikt í leiktækjum á leikvelli við Ála-
granda. Rólan sem kveikt var í er tals-
vert skemmd en engar aðrar skemmd-
ir voru unnar þar. Lögreglan hefúr
bæði málin til rannsóknar. -SMK
Á ofsahraða í Vest-
fjarðagöngunum
Á undanfómum dögum hefur mikið
borið á ökumönnum sem flýta sér ein-
um of mikið í gegnum Vestfiarðagöng-
in. I fyrradag var einn ökumaður tek-
inn á 101 km/klst. hraða þar en leyfi-
legur hraði í göngunum er 60 km/klst.
Lögreglan á ísafirði viil biðja ökumenn
um að virða hámarkshraðann og
hægja á sér. -SMK
70 ára sönnun
landrekskenningar
DV, GARPABÆ:
Bæjarráð Garðabæjar hefúr sam-
þykkt að varðveita stöpul eða merkja-
stein á Amarnesi og gera lítinn garð
umhverfis hann. Hér er um að ræða
stöpul er Þjóðveijinn Alfred Wegener
(1880-1930) reisti í aprílmánuði 1930
ásamt fleiri stöplum með það fyrir aug-
um að sanna landrekskenninguna sem
hann setti fram á árunum 1908-1912.
Á þessum ámm var landrekskenn-
ingunni tekið fálega af vísindamönn-
um enda var það ekki fyrr en um 1960
að mælitæki vora orðin nógu þróuð til
þess að sanna kenninguna með óyggj-
andi hætti. Nú nýtur landrekskenning
Wegeners almennrar viðurkenningar.
Alfred Wegener varð úti í rannsóknar-
leiðangri á Grænlandi árið 1930. -DVÓ
Veðriö í kvöld
r
Minnkandi noröaustanátt
Minnkandi NA-átt, 5 til 8 m/s veröa allra
austast en annars hæg síödegis. Léttskýjaö
vestan til en léttir til um landiö austanvert.
Léttskýjaö um allt land og sums staöar hætt
viö næturfrosti í nótt. .
Sólargangur o
Sólariag i kvöld
Sólarupprás á morgun
Síódegisflóó
Árdegisflóó á morgun
IJ
REYKJAVÍK AKUREYRI
20.46 20.40
06.08 04.53
19.51 00.24
08.16 12.49
Sk/ífLrigsií é veöurtáknum
^vindatt 10V.hiti
■io:
I nietrum á sekúndu
HEIOSKÍRT
O
LErrsKÝjAÐ HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ
w <Wi?> W ©
RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA
Cn w I »
ÉUAGANQUR ÞRUMU- VEOUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA
10°
3L©°
6°
:i’L° 14°
rs
ll°vj/
isr
Agætis færð
Allir helstu þjóövegir eru greiöfærir.
Hálendisvegir eru flestir færir stærri
bílum og jeppum. Vegurinn í
Hrafntinnusker er enn lokaöur. Þá er
vegur F88 í Heröubreiöarlindir lokaöur
vegna vatnavaxta viö Lindaá.
Hæg breytileg átt
Á morgun veröur hæg breytileg átt, léttskýjaö og hiti 9 til 16 stig, hlýjast
á Suöausturlandi.
Laugar
Vindur:
/S '
Sunnud Mánuda
5—8 nv's ■ •
Hiti 10° tii 17*
Vindur:
10-15 m/s ’
Hiti 11* til 18°
m
Vindun
5-8
Hiti 11° til 18°
SA 5 tll 8 m/s og skýjaó
allra vestast á landlnu en
annars hæg breytlleg átt
oc léttskvlaö.
SA 10 tll 15 m/s og
rignlng vcstan tll en hæg
suólæg átt og skýjaö
austan tll. Hltl 11 til 18
stig, hlýjast
noröaustanlands.
SA-átt og rigning sunnan
og vestan tll en skýjaö á
Noröausturtandl.
AKUREYRI léttskýjaö 6
BERGSTAÐIR skýjaö 5
BOLUNGARVÍK heiöskfrt 2
EGILSSTAÐIR 7
KIRKJUBÆJARKL. þokuruöningur 9
KEFLAVÍK léttskýjaö 8
RAUFARHÖFN alskýjað 7
REYKJAVÍK léttskýjaö 9
STÓRHÖFÐI skýjaö 9
BERGEN alskýjaö
HELSINKI skýjaö
KAUPMANNAHÖFN léttskýjaö
OSLÖ skýjaö
STOKKHÓLMUR súld
ÞÓRSHÖFN skúrir
ÞRÁNOHEIMUR skýjaö
ALGARVE heiöskírt
AMSTERDAM þoka
BARCELONA léttskýjaö
BERLÍN rigning
CHICAGO heiöskfrt
DUBLIN rigning
HAUFAX léttskýjaö
FRANKFURT skýjaö
HAMBORG léttskýjaö
JAN MAYEN léttskýjaö
LONDON skýjaö
LÚXEMBORG skýjaö
MALLORCA skýjaö
MONTREAL skýjaö
NARSSARSSUAQ heiöskírt
NEWYORK skýjaö
ORLANDO léttskýjaö
PARÍS léttskýjaö
VÍN alskýjaö
WASHINGTON rigning
WINNIPEG
11
15
13
12
11
10
9
17
9
19
15
24
15
15
15
10
5
11
13
24
22
6
23
23
13
16
23
10