Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2000, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2000, Qupperneq 4
haf pylsuend- anum? Þeir sem hafa hugsað sér aö skreppa á hina ágætu tónlistarveislu sem Airwaves-hátíðin mun verða í október eru svo sannarlega að fá nóg fyrir peninginn sinn. Einhverjir hafa ef- laust velt fyrir sér hvort eitthvað vantaði en nú mun svo komið að snillingarnir í Sigur rós hafa ákveðið að bætast í hópinn. Þetta hefur ekki enn verið staðfest en af verður rpun Sig- ur rós víst opna tónleikana og ef eitthvaö er , að marka undanfarna tónleika þeirra erlendis mun það verða stórgóð opnun. Við bíöum spennt eftir endanlegu svari. Af tónleikunum er það annars að frétta að.miðasalan fer ein- göngu fram á Vfsi.is og hefur gengið vonum framar. Er víst svo komið að hver fer að verða síöastur þannig að lesendur eru hvattir til að drifa i þessu ætli þeir ekki að sitja heima. Skífan úfi? Eftir Tónlistarhátíð Reykjavíkur hafa fjöl- margar greinar birst um Islenska tónlistar- menn í stórblöðum I Evrópu. Hátíðin er lofuð í hástert og tónlistin einnig en sérstaklega hafa blaðamenn verið hrifnir af íslenska fyller- iinu. í nýjasta Dazed & Confused eru viðtöl viö hljómsveitirnar Botnleðju, Maus og Emel- íönu Torrinl sem blaðið var mjög hrifið af. Er gengið út frá Botnleðju sem þekktu fyrirbrigði I Bretlandi en Maus er meira óskrifað blað. Segja þeir Mausarar að þeir séu um það bil að segja skilið við útgáfufyrirtæki sitt, Skíf- una, og ætli jafnvel að semja viö eitthvaö breskt fyrirtæki. Segjast þeir alls ekki vera nógu sáttir við Skífuna og tími sé kominn á breytlngar. Botnleðja hefur þegar ákveðið að gefa næstu plötu út sjálfir þannig að nokkuð rót viröist vera á útgáfumálunum um þessar mundir. Arnar ívarsson á sér afbrigðilegt áhugamál - hann eltir ýmsa kynlega kvisti á rönd- um um götur Reykjavíkur, fylgist með lífsmynstri þeirra og tekur af þeim Ijósmyndir og myndbandsupptökur. Við rannsóknirnar hefur Arnar meðal annars lagt það á sig að hanga á stöðum eins og Lille Put og mæta í FM-partí og þó hann hafi að mestu látið af þessari iðju á hann enn stórt safn til minja. „Þetta byrjaði allt á þessum manni,“ segir Arnar og bendir á mynd af persónunni Búbba úr mynd Friðriks Þórs, Skyttunum. „Ég var 12 ára þegar ég sá hann og fór að fá húmor fyrir svona furðu- legum persónum. Svo þegar ég var 14-15 ára fattaði ég að mig langaði til að skrifa bók um furðulegt fólk í Reykjavík og þá hófst þessi vinna, að taka myndir af rónum og alls konar skrýtnu fólki.“ Haddaway og keisaralið Síðan þá hefur Amar fengist við athuganir sínar af kappi en þegar hann skráði sig í félagsfræðikúrs i Menntaskólanum við Sund tóku þær aðra stefnu. „Ég fór að gera al- vörurannsóknir, fylgdist með alls kyns fólki, jafnt í megapartíi hjá FM957 og í Öskjuhlíð, og sá hvað þar fór fram. Maður þarf að vera samviskulaus til að meika þetta,“ viðurkennir Amar. Ásamt félögum sínum eyddi hann þremur mánuð- um í að hanga á knæpunni Lille Put. „Við stúderuðum þetta „keis- aralið" sem stundaði staðinn. Keis- arinn hefði verið draumastaðurinn til að skoða en við vorum of ungir þegar hann var opinn og gátum ekki hætt okkur þangað inn,“ segir njósnarinn. í myndaalbúminu hjá Arnari má finna alls kyns fólk, allt frá gömlum kærustum, skólafélög: um og kennurum, að útigangsmönn- um og öðrum furðufuglum sem hann hefur rekist á. „Þetta er bara fólk sem mér hefur fundist ég verða að eiga mynd af. Ég hef alltaf getað hlegið að venjulegu fólki, fólk er bara það fyndnasta sem ég veit um,“ Arnar Ivarsson með rónaalbúmlð góða. bætir hann við. Dæmi um menn sem Amar hefur velt fyrir sér eru Guðmundur jaki, látinn neftóbaks- foringi, og Ragnar Bjarnason, dæg- urlagakóngurinn skjálfhenti. Hann bjó meira að segja til danstónlistar- lag fyrir mörgum árum með brotum úr útvarpsviðtölum Guðmundar jaka, saumuðum saman við harða takta. Amar rakst á júrópoppgoðið Haddaway fyrir nokkrum árum þegar hann var i London og brá sér í gervi eldheits aðdáanda og uppsk- ar áritaða mynd. Söngvarinn var svo ánægður með þennan nýja aðdá- anda að hann var þegar farinn að huga að íslandsfór. Líflátshótanir og barsmíðar En hvemig fer rannsóknin fram? „Við sitjum hreinlega fyrir fólki - það er alls konar njósnastarfsemi í gangi til þess að kortleggja íslend- inga eins og þeir eru. Ég reyni að átta mig á persónuleikanum, átta mig á því hvað fólk er að gera og mynda mér skoðanir á því.“ Arnar segist forðast frekara samband við fólkið, enda geti það verið stór- hættulegt. Hann hefur misstigið sig illa og verið hótað lífláti og lögsókn- um og einhverjir hafa reynt að kýla hann eða hrifsa af honum mynda- vélina. En er þessi starfsemi ekki ólögleg? „Jú, jú, þetta er allt saman kolólöglegt." segir hann, en lögregl- an hefur áðeins einu sinni haft af honum" afskipti. Arnar og félagar voru að stúdera karakter sem hélt til í Öskjuhlíðinni og vöktu athygli laganna varða. „Við lentum í rosa- legri leit. Þeir fundu á okkur alls konar , njósnagræjur, talstöðvar, víra og fleira. Við vorum með fullt af videokamerum og sögðumst bara vera að taka upp stuttmynd. Þetta er sú áhætta sem er tekin þegar maður bregður sér í dulargervi og safnar efni í bók eða aflar þér þekk- ingar á fólki,“ segir Arnar og lætur engan bilbug á sér finna. Amar kveðst að mestu hafa látið af njósnaiðju sinni og ætlar að reyna að halda sig frá henni eigin hollustu vegna. Hann segist núna reyna að fmna sjálfan sig sem lista- mann en hefur enn áhuga á furðu- legu fólki og er farinn að beina sjón- um sínum að vefsíðum á Intemet- inu. Eftir þessa sjálfstæðu mann- fræðirannsókn segist Amar vera búinn að komast að því að mann- kynið sé ömurlegt en játar að sú hugsun hafi skotið upp kollinum hjá sér að ef til vill væri hann sjálf- ur klikkaðri en viðfangsefnin. W’' 'Æ Hann hefur upp raustina á ritstjórnarskrifstofu Fókuss og alla setur hljóða. Hljóð- unum sem berast úr barka Nýsjálendingsins , Hayden Chisholm er erfitt að lýsa... Hljóð að handan Það er svo einfalt að maður verður að heyra manninn kyrja. Það er einmitt hægt í HaU- grímskirkju á morgun kl. 12 en þar er hann með tónleika. Hayden mun blása í saxófóninn sinn og söngla það sem hann kallar Overtoning. Útkoman er engu öðru lík og við hljóðhimn- una leika himneskir tónar. Org- anistinn i kirkjunni mun jafn- vel leggja sitt til málanna. Nýsjálendingurinn ungi er einn þeirra tíu sem skipa hljóð- sveitina Subultra. Hinir eru Grikkir, Þjóðverjar og Suður- Afríkubúar og hafa þau komið víða við að undanförnu, hafa m.a. verið við upptökur hjá þýska sjónvarpinu og BBC í Bretlandi. Sveitin sérhæfir sig i þessari einkennilegu beitingu mannsraddarinnar ásamt raf- mögnuðu hljóðfærastroki oftast nær. Hópurinn vonast til að geta komið allur til íslands fyrir jól en enn er á huldu hvað verður. Næsti viðkomustaður Haydens og Subultra er ítalia. Missið ekki af þessu eins og Kastlýs- ingar mundu segja. Kíkið á subultra.com. f ÓktlS 8. september 2000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.