Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2000, Blaðsíða 11
Hliðarverk
sem Vci
bandi
í sveitinni er fólk sem á þaö sam-
eiginlegt að hafa fengist við tónlist
í langan tíma og kannski við hæfl
að segja að valinn maður sé í
hverju rúmi. Það nafn sem flestir
taka eflaust fyrst eftir er söngvar-
inn og textasmiðurinn Maynard
James Keenan, aðalsprauta hljóm-
sveitarinnar Tool. Aðalgítarleikari
og lagasmiður er Billy Howerdel
sem lengi var viðloðandi Tool sem
aðstoðarmaður og Troy Van
Leeuwen sér um hinn gítarinn en
hann var á sínum tíma í hljóm-
sveinni Failure og nú síðast
Enemy. Að sjálfsögðu er kvenkind
á bassanum en hún spilaði upphaf-
lega á fiðlu og grípur í hana annað
slagið, heitir Paz Lenchantin og
var í sveit sem kallaðist Argentina
ef það hjálpar einhverjum. Hvað
trommuleik varðar þá hefur gamli
Primus-refurinn Tim „Herb“ AI-
exander verið þeim innan handar
á tónleikum en platan er að mestu
leikin af John Freese sem er
session-maður og hefur meðal ann-
ars spilað fyrir Guns ‘n’ Roses.
í upphafi
Fór Billy að hitta kvendið Baz og
leyfa henni að heyra lög sem hann
heyrði fyrir sér sem „score“ í
mynd á borð við City of Lost
Children. Þau þróuðu efnið áfram,
styttu lögin og voru farin að sjá fyr-
ir sér að fá kvenmann til að ljá því
rödd sína. Það breyttist þó þegar
Billy notfærði sér sambönd sín til
að komast inn í Tool-stúdíóið að
taka upp. Maynard heyrði efnið og
bað um að fá að syngja yfir það og
það kom svo vel út að kvensöngur-
inn gleymdist fljótt. Fyrr en varði
var búið að hnoða saman bráða-
birgðabandi sem í voru þau þrjú,
Danny Lohner, bassaleikari Nine
Inch Nails, og fyrmefndur Tim
„Herb“. Troy bættist síðan við
skömmu eftir að þau ákváðu að
taka túr.
Eins gamalgróin og Maynard
plötudómar
Plata hljómsveitarinnar
A Perfect Circle Mer de gfcs
Noms, var að detta
í búðir og því við
^^ hæfi að gaum-
Kristján Már Ólafsson
Ferguson er í kreðsunni þá reynd-
ist ekki erfitt fyrir bandið að kom-
ast að með að spila og þau vöktu
fljótlega á sér athygli. Þau tóku
stuttan túr um vesturströndina og
Laundry, hljómsveit Tim „Herb“,
sá um upphitunina. Þvi næst duttu
þau inn i upphitun fyrir NIN og þá
fór Paz yflr á bassann þar sem
Danny hafði skyldum að gegna við
Trent Reznor.
A Perfect Circle og Tool
Margir aðdáendur Tool fengu
fyrir hjartað þegar Maynard hóf að
sinna þessu nýja verkefni af svo
mikilli kostgæfni og sáu fyrir sér
endalok Tool. Staðreyndin er þó sú
að allt er þetta gert í samráði við
félagana og reyndar ætlaði Tool
hvort eð er að taka sér gott frí.
Staðan er þannig í dag að þeir með-
limir Tool sem heima sitja eru
famir að forvinna efni fyrir næstu
plötu sveitarinnar og Maynard
hyggst hella sér í þann pakka þeg-
ar hann losnar frá APC.
Hann vill ekki lita á A Perfect
Circle sem hliðarverkefni heldirr
sjálfstætt band sem starfar á ólík-
um forsendum og er rekið alveg að-
skilið Tool. Þegar böndin eru borin
saman finnst honum efni APC vera
ögn melódískara og ekki eins
drungalegt. Þar af leiðandi varð
nálgun hans sem söngvara allt önn-
ur og textamir persónulegri en oft
áður.
Mer de Noms
Virgin bauð hljómsveitinni
samning, sem hún þáði, og smalaði
í stúdíó skömmu síðar. Billy
Howerdel stjórnaði upptökum og
hljóðblandaði síðan með aðstoð
Alan Moulder (Smashing Pump-
kins, U2, NIN). Útkoman varð Mer
de Noms, sem er franska og út-
leggst nafnasjór, eða eitthvað álika
á íslensku. Platan var að skríða í
búðir hérlendis en kom út í lok mai
vestanhafs og hefur verið að fá fm-
ar undirtektir. Skilgreiningin er
framsækið rokk, eins ófrumlega og
það hljómar, en í tilfelli A Perfect
Circle segja spekingamir að hug-
takið öðlist sanna merkingu.
Fyrsta smáskífan heitir Judith
og snillingurinn David Fincher
(Seven, Fight Club) tók að sér að
leikstýra myndbandi sem hlýtur að
vera peninganna virði... (er ég of
gegnsær?). Undirtektirnar hafa
allavega ekki látið á sér standa
hvað plötuna varðar og bandið ráð-
gerir nú tónleikaferð til frekari
stuðnings. Hvað mig varðar þá
vonast ég til að fá eintak til dóms
og vera með niðurstöður hér í
næstu viku.
Kombakk hjá WU
Stóru kallarnir í WU-TANG
CLAN hyggja á kombakk um þess-
ar mundir og von er á fyrstu smá-
af nýrri plötu síðar í þess-
mánuði. Smáskífan ku heita
Protect Ya Neck (The
Jump Off) ef marka má
frá Bandaríkjun-
um og bíða Kanarnir
víst spenntir, en stóra
platan mun heita The
W og á að koma út 21.
. Ekki hefur
fengist staðfest
um útgáfu í Evrópu en
WU-menn hafa löngum verið þekkt-
ir fyrir óáreiðanleika á þeim víg-
stöðvum. Búist er við að vídeó við
fyrstu smáskífuna verði tekið upp í
tveggja daga töm 12. og 14. septem-
ber þar sem einnig verður gert víd-
eó við singul númer tvö, Gravel
Pit. WU-liðar stefna á túr til að
fylgja skífunni eftir en sá verður að
vera eftir jól ef þeir vilja hafa
Ol’Dirty Bastard með í for, þar
sem hann situr fastur inni og af-
plánar dóm vegna eiturlyfjanotkun-
ar. ODB hefur þó þegar tekið upp
sinn þátt í fimm lögum plötunnar.
Nýir tím
hjá
Förin til íslands
virðist hafa gert
Elton John gott
því drögin að
næstu plötu lofa
vægast sagt betri tímum. Sir
Elton mun hefja upptökur á plöt-
unni í þessum mánuði i Los Angel-
es og hefur ákveðið að ganga frá
henni í febrúar. Á nýju plötunni
mun þessi gamli popphundur, sem
auðvitað er orðinn íslandsvinur,
þrátt fyrir deilur um frítt kaffl og
annað þegar hann kom, vinna meö
ekki ómerkari mönnum en Flea,
bassaleikara Red Hot Chili Pepp-
ers, Krist Novosellc, bassaleikara
Nirvana, og Kim Thayil, gítarleik-
ara Soundgarden. Verður án efa
spennandi að sjá hvemig útkoman
úr þessu verður, hvort þessir með-
limir nokkurra þekktustu
rokksveita sögunnar ná að skóla
gamla píanópopparann til. Elton er
annars ekki hættur þama því hann
hyggur á útgáfu tónleikaplötu sem
tekin verður upp í New York á
næstunni og hefur kappinn lofað
fullt af frægum rokkhundum sem
slást muni í lið með honum, en eina
nafnið sem nefnt hefur verið til
þessa er Mary J. Blige.
hvaö? fyrir hvernf ^s^fa^öVeVrfd9^^ niöurstaöa
★★★, Flytjandi: YmSÍr Platan: Loud Rocks Útgefandi: Loud/Skífan Lengd: 53:07 mín. Loud Rocks er enn eitt dæmið um sambland rokks og rapps. Platan inni- heldur lög meö rappstjörnum á borð við Wu-Tang Clan, Dead Prez, Big Pun og Mobb Deep sem hafa verið end- urunnin af rokkurum eins og Sugar Ray, Sevendust, Static-X, Butch Vig og Tom Morello og Chad Smith. Rokk/rapp hefur notið mikilla vin- sælda bæði í Bandarikjunum og á ís- landi undanfarin ár. Run DMC og Aer- osmith riöu á vaðið með „Walk This Way“ árið 1986, næst var það tónlist- in úr kvikmyndinni Judgement Night og I dag eru þaö Limp Bizkit og Cypress Hill sem eru að gera allt vitlaust með svona tónlist. Hugmyndin að Loud Rocks varö til þegar eigandi Loud Records, Steve Rifkind, fylgdist með sameiginlegum tónleikum Wu Tang Clan og Rage Aga- inst the Machine I Miami fyrir fimm árum. Þegar hann sá rokkarana tryll- ast undir Wu-Tang-settinu þá fékk hann vitrun (og dollaramerki I augun).
★★ Flytjandi: Looper piatan: The Geometrid Útgefandi: Japis/Jeepster Lengd: 35:10 Fyrrverandi hliðarverkefni og núver- andi aðalverkefni Stuart nokkurs Dav- ids. Hann er einn af stofnendum lista- poppsveitarinnar Belle & Sebastian en hætti þar þegar þau höfðu lokið við gerð Fold Your Hands... plötunnar. Þetta er önnur breiðskífa Looper. Nálgunin er talsvert önnur en I lista- poppi Bellu og Sebastíans, mikið not- ast við svokallaða hljóðsarpa og leit- ast við að hræra svolítið upp I form- inu. Útkoman veröur sú að lögin eru oftast einfaldar samsetningar sem eru skreyttar alls kyns rafrænum hljóö- formum. Virkar stundum en oftar ekki. Stuart samdi fýrstu lögin einsamall og kom fram en systir hans vann fýrir hann slides-sýningu svo fólk yrði ekki bijálað á aö sjá bara hann og hljóösarpinn á sviðinu. Málin þróuðust síðan á þann veg að I dag er hún full- gildur meðlimur.
★★★★ Flytjandi: BÍOSphere Platan: CÍrque Útgefandi: Touch/12 Tónar Lengd: 47:32 mín. Þetta er fjórða plata raftón 1 istarsniII- ingsins Geirs Jenssens frá Tromsö I Norður-Noregi. Hann var áður í hljóm- sveitinni Bel Canto en starfar nú einn sem Biosphere. Hann er væntanlegur til Islands 19. októberti! þess að spila á A.R.T. 2000, alþjóölegu raf- ogtölvu- tónlistarhátíðinni. Þetta er plata sem ætti að höfða til flestra áhugamanna um rólega og stemningarhlaöna raftónlist. Þessi tónlist er oft átakalítil á yfirborðinu og hentar þvl aðeins þeim sem nenna að hafa fyrir því að hlusta. Ef þú vilt fá kikkið beint I æð þá skaltu láta Biosphere eiga sig. Geir Jenssen á að baki helling af plöt- um, þ. á m. fjórar sem Biosphere. Þar áður bjó hann til teknó og kallaði sig þá Bleep. Norðmenn virðast annars nokkuö sterkir I ambient-raftónlist, eins og kraftmikil útgáfa fyrirtækisins Rune Grammofon sýnir.
★★★★ Fiytjandi: Jimi Tenor piatan: Out of Nowhere Útgefandi: Japis/Warp Lengd: 46:25 Finnskur frændi vor sem hefur fyrir löngu skapaö sér nafn sem eitt af undrabörnum rafræna geirans. Hann er líka alinn upp á Warp sem verður að teljast besta útungunarstöðin þegar kemur að framleiðslu slíkra manna. Hér er hann með sína fjórðu plötu, ef ég man rétt, og fer mikinn. Hér er verið að teygja formið svo um munar og til aðstoöar er eins og eitt stykki pólsk sinfónluhljómsveit. Hér skiptast á dómsdagssinfóníur og Motown fönk og soul (með hvítum blæ þó) og einhvern veginn gengur það allt upp, að mestu leyti. Jimi spilaði á Thomsen upp úr áramót- um og þá kom mönnum mest á óvart hvað hann er mikill grúvbolti og því næst hvað hann er svakalega litill. Giggið var frábært en ég missti að sjálfsögðu af þvl og vil hér með hvetja hann til að koma aftur (ég heyrði ein- hvers staðar að hann læsi DV eins og sannur Islandsvinur).
Lögin á þessari plötu eru mjög mis-
góö. Þau bestu, eins og t.d. „Make
Roorn", meö Sugar Ray &The Alka-
holiks, „Hip Hop“ meö Static-X &
Oead Prez og lagið með Everlast &
Mobb Deep eru þrusulög en sum
hinna eru ansi þreytt. Rokk/rapp-að-
dáendur ættu samt að fá nóg fyrir sinn
snúö. trausti Júlíusson
Platan fer vel af stað en heldur illa
dampi. Fellur dálítið um það að laga-
grunnarnir eru einfaldlega ekki nógu
góðir, hversu mikið sem þeir eru
skreyttir. Á heildina litið standa ein
3-4 lög áberandi upp úr og er restin
síðan eitthvað í áttina að rusli.
kristján már ólafsson
Þetta er flott plata. Tónlistin er oft ró-
leg og minimal en tekur svo spretti inn
á milli. Þetta er ambient tónlist sem
byggist mikið á blæbrigðum og stemn-
ingu en inn í blandast léttleikandi bít.
Þetta er mjög myndræn tónlist, platan
er eins og ferðalag um óbyggðir norö-
ursins.
trausti júlíusson
Þó hér sé farið um víðan völl þá tollir
það alltaf saman á einhverjum fínum
þráðum. Það sem ég get helst fundið
þessu til foráttu er að Jimi hættir til að
byggia upp flott grúv og liggja síðan í
þvl næstu 4-5 mínútur og slíta því út.
Aö ööru leyti er þetta frábært.
kristján már ólafsson
JJBÍ
I
, Jtm mmr j
8. september 2000 f ó k U S
11