Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2000, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2000, Qupperneq 2
18 FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000 Konsertmeistarinn Sif Staðið hefiir yfir víðtæk leit að öðr- um konsertmeist- ara Sinfóníuhljóm- sveitar lslands, þar sem sá ástsæli Szymon Kuran lét af störfum í fyrra. Nú hefur nýiega verið tilkynnt að Sif Tulinius muni taka hans stað og gegna þessu eftirsótta starfí við hlið Sigrúnar Eðvaldsdóttur. Verslað og ... í Nýló er forsýnt á sunnudagskvöld leikritið Shopping and Fucking, sem unnið er í samslarfí við Egg-leikhús Viðars Eggertsson- ar. Verkið, sem er fjögurra ára, hefúr farið sem eldur í sinu um heiminn - í leikhúsum sem þora að sýna það - og jafnvel hefúr það verið talið upphaf nýrrar kynslóðar leikverka. Það er líka ný hugmynd að fá unga myndlistarmenn til þess að gera myndlistarverk sem eru eins konar samtal við sýninguna. Myndlistin cr í hinum sölum Nýlistasafnsins sem þýð- ir að allt safnið er lagt undir þemað Shopping & Fucking. Þverfaglegt sam- starf er bráðnauðsynlegt í samtímalist og vitað er að myndlistarmennimir sem allir eru víst í yngri kantinum hafa fylgst með æfíngum Shopping & Fuck- ing og á verkið að innblása þá í að vinna sjálfstætt. Enginn veit hvað kem- ur út úr þessu en það er einmitt alveg eftir forskrift Nýlistasafnsins og voða- lega spennandi. Breytt vegna bíómynda Sinfóníuhljómsveit íslands er ber- sýnilega ekki sjálfráð að öllu leyti með- an starfsemi hennar er í Háskólabiói og verður hún víst að beygja sig undir það. í veútr hefjast tónleikar hljómsveitar- innar á öðrunt tíma en hina fyrri vetur, kl. 19.30 þar sem kvikmyndahúsin hafa verið að breyta sýnmgatímum sínum. Til þess að koma í veg fyrir allsherjar kaos bíó- og Sinfóníugesta í anddyrinu var þessi póll tekinn í hæðina. Sinfóní- an klukkan hálfátta, bíó klukkan átta. Sjónþing Kokks Kyrjans Kvæsis Bjami H. Þórar- insson myndlistar- maður, einnig þekktur sem Kokk- ur Kytjan Kvæsir og Dr. Vísi, hefúr haldið sjónþing sin um allt land hin síðari ár og hvar- vetna vakið mikla athygli. Nú er svo komið að enginn veit hvetju Bjami tekur upp á næst og það hlýtur að fylla alla aðdáendur hans spennuþrunginni kæti. í Nýlistasafninu verður Bjami með sjónþing 25. nóvem- ber og stendur það alveg fram að 17. des þegar salhið heldur jólin hátíðleg. Myndir frá Hótel Borg Hinn geysivinsæli listamaður, Kar- ólína Lámsdóttir, opnar sýningu á nýj- um olíumálverkum í Gerðarsafhi í Kópavogi 23. september. Á málverkun- um rifjar hún upp tíma ömmu sinnar og afa, Karólínu og Jóhannesar glímu- kappa, á Hótel Borg. Menn skyldu minnast æsingsins þegar hún opnaði sýningu á málverkum sínum af gamla Gullfossi í Galleri Borg fyrir fjórum ámm: Þau seldust öll á opnunardegi! Og fengu mun færri en vildu Gullfoss með sér heim. Ekki verða þær síður rómantískar og nostalgískar myndimar frá Borginni ef að líkum lætur. Af öðrum listamönnum sem sýna í Gerðarsafni í vetur má nefna Þórð Hall, Jennýju Guðmundsdóttur og Tryggva Ólafsson en 5. nóvember verður opnuð yfírlitssýning á verkum hans í tilefni af því að kappinn varð sextugur i ár. Skúli Helgason Fram undan eru tónlistarhátíöir, kvikmyndahátíö og Ljósin í noröri - fyrir utan óvænta Óvænta bólfélaga! Ár Reykjavíkur - menningarborgar Evrópu árið 2000 - er langt komið: Brei&fylking þjóðar DV-MYND E.ÓL. MENNINGARBORG EVRÓPII ÁRIÐ 2000 Menningarárið er ekki liðið þó að stœrstu viðburðirnir séu kannski að baki - Batdur, Raddir Evrópu og Codex Calixtinus. Svo margt á eftir að gerast að Skúli Helgason, fram- kvœmdastjóri innlendra viðburða hjá Menningarborginni, átti í nokkrum erfiðleikum með að velja stœrstu við- burðina fram undan. Bókmenntahátíð- in er langt komin; margmiðlunarveisl- an Café 9 í algleymingi; leiklistarhá- tíðin Á mörkunum er nýhafin, fyrsta sýningin var frumsýnd fyrir tœpri viku ogjimm bíða frumsýningar. „Þetta er eitt af okkar allra stœrstu verkefnum, “ segir Skúli, „við styrkjum Bandalag sjálfstceðra atvinnuleikhópa um 10 milljónir og erum stolt af að stuðla að fyrstu leiklistarhátíð atvinnuleikhópa í landinu. “ íslendingasögur og vestrar Kvikmyndahátíð hefst í lok mánað- arins og í nóvember verður dagskrá í tengslum við hana sem er sérstakt samstarfsverkefhi við M-2000. Það fjallar um sambandið milli íslendinga- sagna og vestra. „Á bak við þetta verkefni liggur skemmtileg hugmynd sem Friðrik Þór Friðriksson og fleiri komu með til okk- ar,“ segir Skúli. „Þá langaði til að leggjast í frumrannsóknir á því hve sterk þessi tengsl hefðu verið og höfðu þá fyrir sér frásagnir manna eins og vestrakonungsins Johns Fords sem mun hafa verið mikill aðdáandi íslend- ingasagna. Innlendir og erlendir fræði- menn munu flytja fyrirlestra um efnið, sýndar verða kvikmyndir og kvik- myndaleikstjórar koma og vitna!“ Meðal annars sem fram undan er má nefna stóra sýningu á Kjarvalsstöðum, Mót, sem Form Island stendur fyrir. Þar verður íslensk hönnun á þröskuldi nýrrar aldar í brennidepli með vísan til fortíðar en sýn til framtiðar. Einnig verða nokkrar stórar tónlistarhátíðir. „Fyrsta alþjóðlega raf- og tölvutón- listarhátíðin verður haldin í Kópavogi í október með tónleikum, fyrirlestrum og sýningum," segir Skúli. „Hátíðin Airwaves í sama mánuði hyllir poppið, rokkið og danstónlistina út um allan bæ auk þess sem stórir tónleikar verða í Laugardalshöll með erlendum gest- um og innlendum hljómsveitum. Markmiðið er að kynna rjómann af ís- lenskri tónlist í þessum geira fyrir er- lendum blaðamönnum og „hausaveið- urum“ og öðrum gestum sem hingað koma í hundraða tali. Síðast en ekki síst er lokahrina Tónskáldafélagsins sem mun taka heilan mánuð. Félagið hefur unnið þrekvirki á árinu við að kynna íslenska tónlist á 20. öld.“ Börnin skapa „Barnaóperan Stúlkan í vitanum verður líka frumsýnd í október og hún minnir á önnur verk- efni þar sem börn hafa komið sterkt fram. Þau eru raunar eitt af því sem er manni efst í huga eftir árið,“ heldur Skúli áfram, „verkefnin sem börn hafa borið hita og þunga af - eins og 2000 böm sem sungu á Arnarhóli, listsmiðjurnar í grunnskól- unum, Fantasi Design og fleiri. í haust munu grunnskólanemendur og eldri borgarar úr fjórtán skólum og félags- miðstöðvum aldraðra mætast og vinna saman að verkefnum úti um alla borg. Uppskeruhátíð þeirra verður 25. nóv- ember. Það er gaman þegar þessir aðil- ar, sem eru hvor sínum megin við hina stressuðu í þjóðfélaginu, sameinast!" Eitt stórt samnorrænt verkefni fram undan nefnist Ljósin í norðri, „heil- mikil ljósahátíð í byrjun nóvember," segir Skúli. „Það er eitt þeirra verk- efha sem við sjáum að muni eiga sér framhaldslíf. Við höfum alltaf reynt að hugsa fyrir því að viðburðir ársins verði ekki einnota heldur auðgi menn- ingarlífið áfram." Á þessari ljósahátíð, sem er hlið- stæð Vindhátíðinni, verður náttúrufyr- irbrigðið Ijós skoðað og ýmsar birting- armyndir þess sýndar - í dansi, tónlist og annarri list. Orkuveiturnar munu taka við henni þegar menningarborgar- árið er liðið. Óvæntar kanónur „Svo langar mig til að nefna seríuna Óvæntir bólfélagar," segir Skúli. „Þar höfúm við verkefni þar sem ólíkir að- ilar leggja í púkk og niðurstaðan er ófyrirsjáanleg. Okkur langaði til að gera eitthvað nýtt og spennandi, kalla til fólk sem hafði aldrei unnið saman áður og ráða það til að semja nýja dag- skrá. Þetta hefur lukkast mjög vel - til dæmis var gaman að upplifa Megas og Gjörningahópinn á Hótel Borg og kammeróperu Sjóns, Múm og Ásgerð- ar Júníusdóttur í Kaffileikhúsinu. Nokkrar kanónur eru eftir, Guðbergur Bergsson og dr. Gunni eru að semja óperu saman sem verður flutt í októ- ber, Þórarinn Eldjárn er að semja leikrit fyrir hljómsveit Möggu Stínu og svo endar serían á því að Friðrik Þór Friðriksson og skáldið Didda gera saman stuttmynd. Það er alltaf spenna í loft- inu þessi kvöld því enginn veit hvað gerist og engin leið að vita nema út úr þessum skyndikynn- um komi eitthvað varan- legt!“ Áætlanir hafa haldist Árið hefúr gengið prýðilega fram að þessu, að mati Skúla, vegna þess - þótt undarlegt sé - hve ótrúlega margir að- ilar koma að verkefninu. „Dagskráin hefði aldrei orðið svona spennandi ef hún væri unnin af litlum hópi. Sam- starfið við hinar menningarborgimar gerir okkar dagskrá fjölbreyttari og sveitarfélögin hafa verið verulega virk. Þau hafa haft sína eigin viðburði sem hafa yfirleitt gengið mjög vel. Til dæmis má nefna að á Hólmavik þar sem búa 450 manns var sett upp galdrasýning sem um 6000 manns eru búin að sjá!“ - Stærstu viðburðir ársins eru þegar afstaðnir, Baldur og Raddir Evrópu. Hvernig tókst til með þá? „Afar vel. Uppfærslan á Baldi var mikilfengleg og söguleg og sýningin hefur fengið frábæra dóma í erlendum fjölmiðlum. Raddir Evrópu er verkefni sem hefur blómstrað og náð þeim hæð- um að menn eru agndofa. Kórinn hef- ur fengið frábærar umsagnir alis stað- ar, áhorfendur tryllast hreinlega eftir hverja tónleika!" - Hefúr þá ekki neitt farið úrskeiðis það sem af er árinu? „Ekkert sem orð er á gerandi og það er að mörgu leyti stórmerkilegt af því hvað þetta verkefni var unnið langt fram i tímann. Dagskráin lá fyrir nær- fellt tveimur árum áður en árið 2000 gekk í garð og það er sjaldgæft hjá okkur. Áætlanir hafa haldist ótrúlega vel.“ Útrásin Menningarborgin er ekki aðeins inn á við, hún hefúr líka staðið fyrir um- talsverðum útflutningi á íslenskri list. Fyrir utan hin risavöxnu fjölþjóðlegu verkefni Baldur og Raddir Evrópu er nærtækt að minna á heimssýninguna í Hannover þar sem Futurice, Örsögur úr Reykjavík, Guitar Islancio og fleiri atriði voru á vegum M-2000. Caput er á forum til Bologna og Prag með ís- lenska dagskrá. Einar Kárason, Guð- bergur Bergsson og Vigdís Grímsdótt- ir koma fram á Islandshátíð í Berlín þar sem Anna Líndal myndlistarmaður sýnir líka innsetningu, Böðvar Guð- mundsson, Einar Már Guðmundsson og Steinunn Sigurðardóttir fara á bók- menntahátíð t Kanada, tónlistar- prógrammið Heimsreisa Höllu ferðast víða um heim í haust og margt fleira mætti telja upp.“ - Þá er það lokaspurningin, Skúli: Er líf eftir menningarborg? „Að sjálfsögðu! Ég held að galdur- inn hafi verið að ná að mynda þessa breiðfylkingu allrar þjóðarinnar um þetta verkefni. Ég skaut tölu á það ein- hvern tíma í sumar að það væru milli 40 og 50 þúsund manns sem hefðu tek- ið beinan þátt í að koma þessum verk- efnum á legg og þá eru ótaldir allir sem koma og njóta þeirra. Ég efast um að hægt sé að finna margar fjölskyldur í landinu sem ekki hafa tengst þessu menningarborgarverkefni og það segir okkur að reynslan verður eftir á mörg- um stöðum. Það er búið að kveikja eld í svo mörgum að hann hlýtur að lifa áfram í því sem þetta fólk skapar í framtíðinni." -SA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.