Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2000, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2000, Blaðsíða 7
23 FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000 Loks ns aftur Námskeið um Antígónu Hið árlega nám- skeið Endurmennt- unarstofhunar í sam- vinnu við Þjóðleik- húsið verður í ár um hið klassíska leik- verk Antígónu eftir Sófókles sem Kjart- an Ragnarsson leik- stýrir þar í vetur. Melkorka Tekla Ólafsdóttir leikhúsfræð- ingur hefúr umsjón með námskeiðinu. Kreon konungur í Þebu hcfur bannað að útfðr Pólíneikesar verði gerð. Hin unga Antígóna freistar þess að jarða lík bróður síns, vitandi að það getur kostað hana lífið. Hugrekki Antígónu hefúr heillað áhorfendur i gegnum aldimar, allt frá því að verkið var skrifað fyrir nær 2500 árum og ekki síst á okkar öld. Á námskeiðinu verður fjallað um Antígónu og gullöld griskra leikbókmennta. Þátt- takendur fara í heimsókn á æfingu í Þjóð- leikhúsinu og sjá svo sýninguna fullbúna rétt fyrir frumsýningu. Námskeiðinu lýk- ur á umræðum með aðstandendum sýn- ingarinnar. Námskeiðið hefst 7. nóv. Skráning í sima 5254444. Þröstur Ólafsson, framkvæmda- stjóri Sinfóníuhljómsveitar íslands, sagði á blaðamannafúndi sem haldinn var fyrir skemmstu að hann væri ákaf- lega stoltur af því að tilkynna að aðal- hljómsveitarstjórinn Rico Saccani yrði hjá Sinfóníunni annað tímabil. Hann hefði breytt stíl hljómsveitarinn- ar og unnið marga listræna sigra sem væri fagnaðarefni fyrir alla sem nytu. Fjölgað hefur í Sinfóníuhljómsveit- inni og nú eru í henni áttatíu stöðu- gildi - hljómsveitarstærð sem er vel í meðallagi ef miðað er við Norður- löndin. Hljómsveitin hyggur líka á Ameríkuferð í október og á hún að standa yfir í þrjár vikur. Leikið verður á fjórtán tónleikum og meðal annars í tveimur stærstu tónleikahúsum Amer- iku. Alvöru Carmen Þröstur sagði ennfremur að Sinfón- íuhljómsveitin ætlaði að festa í sessi eina stóra óperutónleika á vetri. I fyrra var það Aida, sællar minningar, en nú á að setja stórvirkið Carmen á svið undir stjóm Ricos Saccani. Þeir sem koma nálægt þeirri uppsetningu fuli- yrða að hún sé á heimsmælikvarða. Þar er í einu aðalhlutverkinu söngkon- an Hulda B. Garðarsdóttir en auk hennar syngja í verkinu Ingveldur Ýr Jónsdóttir, Sylvie Brunet, Mario Malagnini o.fl. Að sögn er uppsetn- ingin á Carmen, sem lýður fær að berja augum í Laugardalshöllinni í mars á næsta ári, alltaf að verða viða- meiri og viðameiri og verður senni- lega ekki einungis óperutónleikar heldur beinlínis heil alvöruópera. Á Vínartónleikunum í janúar verður flutt tónlist eftir Strauss, Zeller, Lehar. Stolz o.fl. Vínartónleikarnir voru í fyrra vinsælustu tónleikar hljómsveit- arinnar og verða aftur fluttir í Laugar- dalshöll þetta árið, hlustendum til þæginda. Uppsetningin á Baldri greiddi götuna hvað varðaði sviðsbún- að og aðstöðu í Höllinni. Ástsælir píanókonsertar 1 gulu röðinni eru píanóverk áber- andi og má segja bylgja í píanóleik frá Ashkenazy Kirsuberjagarðurinn Opni Lista- háskólinn býður nú bæði upp á námskeið fyrir almenning í myndlist og leiklist - enda búið að stofna leiklistardeild við Listaháskóla ís- lands. Meðal leiklistamámskeiða er eitt sem mun fjalla um uppsetningu Þjóðleikhússins á Kirsubeijagarðinum eftir Anton Tsjekhov sem frumsýnd verður í nóvember. Leikstjóri er Rimas Tuminas fra Litháen en umsjónarmaður námskeiðsins er Ámi Bergmann rithöfundur. Hann heldur erindi um verkið 21. nóvember og viku seinna verða umræður um verkið og sýninguna ásamt aðstandendum hennar. Námskeiðið ings á ný og að hans sögn glæsileg verk eftir Jón Nor- dal og Hjálmar H. Ragnars. Rúsínan í pylsu- enda sveitarinnar er að sá heimsfrægi píanóleikari og hljómsveitarstjóri Vladimir Ashken- azy kemur hingað til lands í fyrsta sinn síðan 1978 til að stjórna Sinfóní- unni. Hann mun stjórna tveimur stórverkum eftir Mahler og Shosta- kovich og segir Þröstur að allir séu gríðarlega stoltir af því að fá þennan mikla meistara aft- ur til liðs við hljómsveitina. Einnig koma til landsins stjómend- urnir Dimitri Kita- jenko og H.K.Gru- ber sem er hvorki meira né minna en hljómsveitarstjóri, tónskáld, bassaleik- ari og söngvari. -þhs Hulda Björk Garöarsdóttir söngkona Hún mun syngja eitt aöalhlutverkanna í stórvirkinu Carmen sem sett veröur á sviö í mars á næsta ári. Vladimir Ashkenazy Hljómsveitarstjórinn sem viö áttum einu sinni er aö koma aftur til okkar. Um þessar mundir starfar Ashkenazy sem hljómsveitarstjóri tékknesku fílharmóníunnar en kemur hingaö til lands í janúar til þess aö stjórna Sinfóníunni í tveimur verkum. Ítalíu. Jónas Sen gagnrýnandi hefúr sagt píanókonsert- ana, sem fluttir verða, þá ástsæl- ustu í tónbók- menntunum. Þar má nefna þriðja pí- aníkonsert Rakh- maninovs (þann sem gerði David Helfgott brjálaðan í myndinni Shine), hinn svokallaða Elviru Madigan konsert eftir Moz- art og fyrsta píanó- konsert Chopins, svo nokkrir séu nefndir. í annað skipti er blá tónleikaröð á dagskrá og er yfir- skrift hennar nú- tímatónlist en Þröstur segir að þá einbeiti hljóm- sveitin sér að seinni hluta síðustu aldar og íslenskum verkum. Jónas Sen hefur skammað hljómsveitina fyrir að vera ekki nógu nútímaleg í vetur og sagt að þar skorti á listrænan metnað en Þröstur Ólafsson er honum hjartan- lega ósammála og bendir því til stuðn- us :0 '03 ASKRIFTARKORT eða OPIÐ KORT 6 sýningar með 25% afslætti. STÓRA SVIÐIÐ KIRSUBERJAGARÐURINN - Tsjekhov BLÁI HNÖTTURINN eftir Andra Snæ Magnason ANTÍGÓNA - Sófókles LAUFIN í TOSCANA - Lars Norén SYNGJANDI í RIGNINGUNNI Singin' in the Rain - Söngleikur leikársins LITLA SVIÐIÐ • HORFÐU REIÐUR UM OXL - J. Osborne JÁ, HAMINGJAN eftir Kristján Þórð Hrafnsson MAÐURINN SEM VILDI VERA FUGL (Birdy) N. Wallace, byggt á sögu Wharton SMÍÐAVERKSTÆÐIÐ ASTKONUR PICASSOS - Brian McAvera MEÐ FULLA VASA AF GRJÓTI - M. Jones VIUI EMMU - David Hare FRÁ FYRRA LEIKÁRI GLANNI GLÆPUR I LATABÆ SJÁLFSTÆTT FÓLK DRAUMUR Á JÓNSMESSUNÓTT • Sýningar í áskrift. Allar sýningar leikársins geta verið valsýningar. Siini: 551 12 00 - www.leikhusid.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.