Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2000, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2000, Síða 6
22 FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000 Sagnalist samtímans Meðal margra spennandi nám- skeiða sem End- urmenntunar- stofnun Háskól- ans býður upp á núna í haust er „Sagnalist sam- tímans" sem Ást- ráður Eysteins- son, bókmenntafræðingur og pró- fessor, sér um. Þar verður fjallað um helstu einkenni þeirrar sagnagerðar, frumsaminnar jafnt sem þýddrar, sem birst hefur á íslensku á undan- förnum árum, megináhersia lögð á skáldsögur en einnig hugað að smá- sögum, ævisögum og öðrum prósa- - verkum. Reynt verður að benda á tímanna tákn í bókmenntasköpun- inni og spurt hvernig samtíminn birtist í sögum, hvernig höfundar bregðist við menningarástandinu og taki þátt í að móta það. Þetta námskeið verður öðrum þræði leshringur þar sem þátttak- endur og umsjónarmaður ræða sam- an um nokkur nýleg verk, þar á meða! tvær bækur sem koma út á bókavertíðinni í haust. Námskeiðið hefst 31. október. Skráning í síma 5254444. Kom með bakpoka Það fór kliður um salinn í Iðnó þegar ungi Norð- maðurinn Erlend Loe sté upp á svið til Gunters Grass og Thors, langur og mjór með bak- poka. „Týpískur Norðmaður," hvíslaði salurinn, „hreyfir sig ekki án bakpoka! Ætli hann sé að koma beint af skíðum?" En hvískrið hljóðnaði þegar hann fór að lesa úr skáldsögu sinni, Ofur- næfur. Textinn var svo fallegur og áhrifamikill að hann greip salinn þegar í stað. Nú er bókin komin út í íslenskri þýðingu Þórarins Eldjárns og verður efalaust tekið fagnandi hér eins og í þeim Ijölmörgu lönd- um þar sem hún hefur verið gefin út. Sagan fjallar um ungan mann sem finnst veröldin allt í einu hrynja í kringum sig og ákveður að byrja alveg á byrjuninni, halda sig við einföldustu staðreyndir og reyna að raða lífi sínu upp á ný. Vaka- Helgafell gefur bókina út. • / vetur Ólafur Haukur Hallgrímur Siguröur Kristján Þóröur Símonarson Helgason Pálsson Hrafnsson Ekki veit ég hvort nokkur hefúr giskað af viti á hve stór hluti þjóðarinnar sækir leikhús og/eða tekur þátt í leiksýningum atvinnumanna og áhugamanna á ári hveiju, en hann er áreiðanlega talsverður. Eigum við að giska á tvo af hverjum þremur fúllorðnum íslendingum? Áhugi landsmanna er líka mikill á leikhúsum og fréttir af leikhúslífi þykja spennandi lestr- arefni í dagblöðum og tímaritum - stund- um svo að minnir á amerísku leikarablöð- in sem undirrituð las af áfergju í æsku. Á yfirlitsmyndinni hér fyrir neðan sést hve geysilega fjölbreytt leikhúslífið verð- ur í vetur. Leikhús og atvinnuleikhópar eru þar með yfir fimmtíu nýjar sýningar og eiga eflaust nokkrar eftir að bætast við. Fjöldi nýrra íslenskra leikrita verður frumsýndur, einkum eru sjálfstæðu at- vinnuleikhópamir duglegir við að panta eða semja sjálfir ný verk og munar þar um leiklistarhátíðina Á mörkunum. Fimm leikrit verða sýnd á henni eftir jafnmarga höfúnda: Svein Einarsson, Völu Þórsdótt- ur, Hallgrím H. Helgason, Auði Haralds og Ólaf Hauk Símonarson. Auk þess sýn- ir Dansleikhús með ekka verkið Tilvist en sá hópur vakti athygli sl. vetur með sýn- ingunni Ber. Reynd og óreynd leikskáld Fyrsta frumsýning leikársins hjá stóru leikhúsunum er annað kvöld á verki Sig- urðar Pálssonar, Einhver í dyrunum, hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Hann er gamal- reyndur höfúndur en önnur íslensk verk sem stóru leikhúsin setja upp í vetur eru eftir yngri og óreyndari leikskáld. Hall- grímur Helgason, sem yrkir sína Skálda- nótt fýrir L.R. utan um stjómiausan áhuga sinn á Jónasi Hallgrímssyni, hefúr áður samið tvö leikrit og staðfært hinn ótrúlega vinsæla Hellisbúa. Kristján Þórður Hrafnsson Ijóðskáld á einn einþáttung að baki en fær í vetur sett upp heils kvölds verk, Já, hamingjan, í Þjóðleikhúsinu. Svo fáum við að sjá Bláa hnöttinn hans Andra Snæs lifna á Stóra sviði Þjóðleikhússins. Klassíkin er eðlilega nokkuð bundin við stóm leikhúsin. Hinir gömlu Grikkir, Shakespeare, Tsjekhov, Ibsen og Beckett verða sýndir þar en í Iðnó setur leikfélag- ið Fljúgandi fiskar upp Medeu eftir Evripídes í samvinnu við Leikfélag ís- lands og fleiri aðila. Leikhópurinn Banda- menn setur upp í samvinnu við Þjóðleik- húsið nýstárlega sýningu upp úr eddu- kvæðinu Skímismálum sem segir frá hinni sögulegu bónorðsför Skímis fyrir hönd Freys til Gerðar jötnameyjar og í Möguleikhúsinu taka menn upp sýningar á Völuspá sem frumsýnd var á Listahátíð í vor við geysigóðar undirtektir. Gaman verður að sjá hvort Horfðu reiður um öxl eftir John Osbome hefúr komist í tölu klassiskra verka eða hvort það reynist bara vera bam síns tíma. Það var nýstárlegt á sjötta áratugnum fyrir að sýna leikhúsgestum úr millistétt vel talandi en býsna grófan karlmann úr verkalýðsstétt, hugarheim hans og um- hverfi. Núna er manni minnisstæðust kvenfýrirlitningin í verkinu og spuming hvemig unnið verður með hana í uppsetn- ingunni. Á yfirlitinu er þess freistað að skipta verkum á milli drama og gamans eflir lýs- ingum frá leikhúsunum en eins og við vit- um era mörkin þama á milli afar óljós. Hádramatísk og jafnvel átakanleg verk eru nú oftar en ekki með gamansömu ívafi, jafnvel sprenghlægileg - en gaman- leikritin geta auðvitað reynst hundleiðin- leg. Samkeppnin harðnar Samkeppnin hefur harðnað bæði um áhorfendur og listamenn eftir að Leikfélag Islands bættist í hóp „alvöruleikhúsa“ með svið í Iðnó og Loftkastalanum. Þetta er gleðileg viðbót en þó þykir áhugamanni um leiklist leitt að nýja leikhúsið skuli ekki hafa komið sér upp sjálfstæðum leikhópi eins og Hafharfjarðarieikhúsið Hermóður og Háðvör gerði strax. Olíku er að vísu saman að jafna þar sem LÍ stendur að mun fleiri sýningum en Hafhfirðingamir, en vissulega hefði verið gaman ef þetta yngsta leikhús hefði haft orku til að leggja upp með eigin leikflokk í stað þess að sanka að sér fólki úr öðrum leikhúsum. Við verðum að horfast í augu við að það era eins og er ekki nógu margir stjömu- leikarar/leikstjórar til að þjóna þremur stóram leikhúsum, fjórum með Leikfélagi Akureyrar. Hins vegar era margir vel menntaðir og ágætir leikhúsmenn úti í samfélaginu sem lítið hafa fengið að gera í leikhúsunum. Leikfélag Islands ætti auð- vitað að búa til sitt eigið stjömuregn. En auðvitað er yndislegt að sjá þar leikara í öðruvísi hlutverkum en þeir hafa kannski fengið um hríð, til dæmis var eftirminni- lega gaman að sjá Guðrúnu Ásmundsdótt- ur og Eriing Gíslason í Rommí og í vetur fáum við að sjá Sigurð Siguijónsson og Tinnu Gunnlaugsdóttur í framhaldinu af Á sama tíma að ári: Á sama tíma síðar. Stefán Baldursson hefúr gert lítið úr því að leikarar væra á föram frá Þjóðleikhús- inu og auðvitað er rétt að flestir leikarar vilja bæði eiga kökuna og éta hana, eins og Bretinn segir, vilja hafa sína kauptrygg- ingu og einhver verkefhi í Þjóðleikhúsinu og lifa og leika utan þess líka. En landslag- ið er að breytast. Vinsælir leikarar vilja ekki binda sig á klafa, þeir vilja geta tekið freistandi verkefnum hvaðan sem þau koma. Vonandi skarast verkefnin ekki svo illilega að þeir vinsælustu vinni yfir sig; þá væri verr af stað farið en heima setið. En útkoman úr þessum breytingum verður lík- lega sú, eins og Baltasar Kormákur spáði í viðtali við DV 2. febrúar sl., að leikhúsin ákveði fýrirfram sýningartíma hvers verk- efnis þannig að leikarar viti nákvæmlega hvenær þeir era fastir og geti skipulagt tíma sinn af skynsemi. -SA Ný íslensk verk Sígild verk Þjóðleikhúsið Blái hnötturinn, Já hamingjan Kirsuberjagarðurinn, Antígóna Leikfélag Reyjkjavikur Einhver í dyrunum, Skáldanótt Lér konungur, Þjóðníðingur, Beðið eftir Godot, Móglí Drama Gamanleikrit ! Söngleikir Laufin í Toscana, Horfðu reiður um öxl, Maðurinn sem vildi vera fugl, Ástkonur Picassos, Vilji Emmu Öndvegiskonur, Blúndur og blásýra Með fulla vasa af grjóti Abigail heldur partý, Kontrabassinn Syngjandi f rigningunni Leikfélag Akureyrar Tveir misjafnlega vitlausir, Sniglaveislan (með L.í.) Saga um pandabirni (með L.í.) Gleðigjafamir Ball í Gúttó Leikfélag íslands Möguleikhúsið Hvaða jól? Trúðleikur (Á mörkunum) Sniglaveislan (með L.A.) Tilvist (Dansleikhús með ekka) Völuspá, Lóma, Nafnlaust e. Guðrúnu Helgadóttur Medea (Fljúgandi fiskar) Shopping & Fucking (með Eggleikhúsinu) Saga um pandabirni (með L.A.) Á sama tíma síðar, Sýnd veiði, Kvartett, Eldað með Elvis Hedwig Sjálfstœðir leikhópar Hafnarfjarðarleikhúsið Hermóður og Háðvör, Kaffileikhúsið, Bandamenn, Á senunni, Draumasmiðjan, Einleikhúsið, Stoppieikhópurinn, Strengjaleikhúsið Dóttir skáldsins, Háaloft, Vitleysingamir, Englaböm, Stóri bróðir, Góðar hægðir, Ósýnilegi vinurinn o. fl. edda.ris (Bandamenn í samvinnu við Þlh.), Fröken Júlía (Einleikh.) Stormur og Ormur Skuggaleikhús Ófelíu Úr mörgu að velja á fjölunum í vetur. " Þeir sem eru að velta fyrir sér hvar þeir eiga að kaupa sér áskriftarkort geta mátaö langanir sínar og smekk við framboö stóru leikhúsanna. En ekki má gleyma allri fjölskrúöugu flórunni á jaðrinum - þar er til dæmis mikill meirihluti frumsaminna leikverka vetrarins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.