Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2000, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2000, Blaðsíða 6
Þau eru öll landsþekkt andlit í íslensku þjóðlífi í dag en voru líka einu sinni nýgræðingar í sínu fagi. Einhverjn tímann stigu þau sín fyrstu skref á senunni eða komu í fyrsta sinn fram í sjónvarpi og þá gekk kannski ekkert allt of vel. Sigmundur Ernir hefur ekkert alltaf sett svona vel og rækilega í brýrnar og þekktir leikarar hafa vissulega stigið sín feilspor eins og aðrir. Mistökin eru til að læra af þeim, þess vegna eru sjömenningarnir á síðunni svona góðir í dag. Fókus gróf upp myndir og filmubúta frá því í gamla daga og lét einvalalið framméjmanna segja sér frá fyrstu skrefunum í bransanum. jj Halidórá Bjömsdóttir jf ! „Þaö fyrsta sem ég lék i á sviði var í Kæra Jelena á Litla sviöinu og eftir þ^ö var ég í Rómeó og Júlíu á Stóra s* iöinu. Ég man eftir einni skemmti- lf gri sögu úr Kæru Jelenu. Hilmar Jbnsson átti að slá mig utan undir í e jiu atriðinu nema hvað að einu sinni f(ir höggið svo neðarlega að kjálkinn b rákaöist og ég fór aðeins úr kjálkalið. Kjálkinn skekktist svolítið og ég talaði út á hlið. Það var svolítið óþægilegt að f4ra með allan textann með neðri kjálkann svona en þó merkilegt hvað é|> gat komið textanum til skila. Ég var aj-Itaf ofsalega fegin þegar ég var búin tala og á meðan hinir töluðu. Þfennig varð ég að leika alla sýninguna áii hlés og við erum öll á sviðinu allan tímann. Ekkert hægt að gera. Nema hvað að undir lok verksins, þá ej: nauðgunarsena og Baltasar Kor- niákur er að ráðast til atlögu. Hann r*kur öxlina í kjálkann hinum megin Þ jnnig að hann hrökk aftur í lið. Það g'irist sem sagt á einni og sömu sýning- Unni að ég fer úr og í kjálkalið. Það v issi þetta enginn fyrr en eftir að við kjmum út af sviðinu og þá var líka mikið hlegið. Svo i Rómeo og Júlíu þá var ég að fara með mjög dramatískan mónólóg, hljóp um sviðið á náttkjól og kallaði á Rómeó. Þá fór eldvarnaloftræstikerfi frammi hjá áhorfendum í gang og eng- inn heyrði í mér. Ef þetta mundi gerast í dag mundi ég kannski stopppa en ég hljóp bara áfram um sviðið og hrópaði. Sýningarstjórinn kom svo fram á senu og stöðvaði sýninguna.“ Edda Andrésdóttir fréttamaður. |j=dda Andrésdóttiir | Brosti of Halldóra Björnsdóttir lelkkona. Vilhelm Anton Jónsson „Fyrsta verkefnið mitt I sjón- varpi var i lok október árið 1975, viku eftir kvennafrídaginn. Ólafur Ragnarsson, núverandi stjómar- formaður bókaforlagsins Eddu, sem þá var fréttamaður á sjónvarp- inu, bað mig að taka eitt viðtal í Kastljósþátt. Þátturinn var þá blandaður fréttaþáttur í umsjá fréttamanna sem kölluðu til sín ut- anaðkomandi aðila í hverjum þætti. Ég var bara ungur blaöa- maður á Vísi þá og Ólafur ákvað að gefa þessum unglingi séns sem mér þótti mjög skemmtilegt. Hann bað um fréttaviðtal við Guðrúnu Erlends hæstaréttardómara sem mér fannst mjög spennandi. Þetta átti að gerast á kvennafrídegin- um sjálfum en ég vildi frí eins og aðrar konur og því var þessu frestað um viku. Þetta var mín fyrsta upptaka í sjónvarpssal og ég var óskaplega nervus eins og gefur að skilja. Upptakan var stöðvuð tvisvar; í fyrsta lagi þótti ég brosa of mikið í alvarlegu fréttaviðtali og í öðru lagi þá varð mér á einhver beyg- ingarvilla. Ég hef aldrei gert sömu villuna aftur. Stuttu síðar gerði ég nokkra viðtalsþætti, spurninga- þætti og Skonrokk og síðan er ég búin aö vera í þessu með einhverj- um hléum. Á Vísi var ég í átta ár og til að byrja með var ég bara freelance í sjónvarpi. Ég man ekki eftir neinum stórkostlegum mis- tökum nema þessum, manni vaxa þau mjög í augum þegar þau verða þó hugsanlega taki enginn annar eftir þeim. Ætli maður reyni ekki bara að gleyma þeim sem fyrst. Ég get hins vegar sagt frá einu atviki þar sem ég skammaðist min veru- lega. Eitt af mínum fyrstu verkefn- um sem blaðamaður á Vísi var að fara á blaðamannafund þar sem fjallað var um eitthvert málefni sem ég er búin að gleyma hvað var en man hins vegar að ég skildi ekki baun í. Ég átti að skila frétt um þetta þann sama dag náttúr- lega. Mér tókst að klambra henni saman og hélt ég væri sloppin fyr- ir hom en einhvem veginn barst fréttin í hendumar á Jónasi Krist- jánssyni ritstjóra. Hann las hana yfir, kom til mín þungur á brún og spurði hvað þetta þýddi. Ég þagði þunnu hljóði lengi vel þar til mér tókst að stama: „Ég hreinlega veit það ekki.“ Þá sagði Jónas og breytti ekki um svip; „Skrifaðu hana þá aftur.“ Þar með kenndi hann mér þá dýrmætu lexíu að spyrja þegar maöur skilur ekki og skrifa mannamál.“ Valgerður Matthíasdóttir „Minn tónlistarferill byrjaði þeg- ar ég lærði á blokkflautu og þá var ég sex ára. Svo lærði ég á hljómborð og ákvað loks að spila á gitar. Tíu ára byrjaði ég í hljóm- sveit og við vomm mest með fmm- samin lög. Við spiluðum einu sinni opinberlega þó ég muni lítið eftir því. Ég var í rauðum netbol með blátt bindi og hatt. Þetta var allt svolítið Duran. Ég hefði blásið hárið hefði ég haft það. Á jólatónleikum á Laugum í Reykjadal spilaði ég á hljómborð lagið Mary’s Boy Child. Venju- lega spiluðu menn og settust svo aftur fram í sal nema mér varð svo mikið um að eftir að ég var búinn hljóp ég út og inn á kennarastofu. Þar var fullt af hænuungum sem verið var að unga út og þar dvaldi ég það sem eftir var dagsins. Seinna um daginn fannst ég þarna. Líklega hef ég skammast mín því frammistaðan var eflaust ömurleg. Ég spilaði líka á djasssamspili á rafmagnsgítar á Akureyri, þar tók ég ógurleg gitarsóló á þessum virðulegu djasstónleikum. Ég kunni aldrei neitt á gitar og þandi hann því bara og tók I sveifina. Bæði ég og gítarinn vorum ekki í takt við aðra á svæðinu á þessum annars mjög skemmtilegu tónleik- um. í dag kann ég reyndar heldur ekkert á gítar né að syngja. Stress- ið hefur elst af manni í gegnum árin við það að koma fram. Ég fer oft inn á klósett til að fá að vera í friði í smátíma, slaka á og hugsa minn gang áður en við stígum á svið. Klósettiö er svo friðhelgur staöur." iið. Það var líka miki3” stress á öllum fjölmiðl- um á þessum tíma Ivegna leiðtogafundar- lins. | Þegar ég sjálf fór í Ibeinar útsendingar Igekk það allt saman Smjög vel. Það var auð- Svitað rosalegt stress og Kvið unnum þama allan asólarhringinn. Verst ■var alltaf að fá hlát- lurskast í beinni út- Bsendingu þegar maður jlvar að tala um hlut Bsem ekki var fyndinn. ■Ég missti mig einu Hsinni í 19.19 með *Helga Péturssyni og „Mér dettur strax í hug fyrsti útsendingar- dagur Stöðvar 2 en þá var sent út hljóðlaust ávarp Jóns Óttars eins og frægt var. Fall er far- arheill, sögðum við. Það var mikill æsingur eins , og alltaf er, ég var í því aö ! búa til allt sjónrænt í kringum útsendinguna og var listráðunautur stöðv- arinnar á þessum tíma, það er mér mjög minnis- stætt. Á þessari mynd frá 10. október 1986 var ég búin að setja blóm í vasa, velja jakkafot og bindi á Jón Óttar, en það var mik- ið hugsað um heildarútlit- iPáli Magnússyni og varð að gefa íboltann yfir tO Helga því ég gat ekki ; klárað. Við Helgi vorum f klukku- stundarlangri útsendingu fimm daga vikunnar og það er auðvitað ofur- mannlegt. Þetta var partur af þess- um byrjunarárum uppi á Stöð 2 þar sem fólk var ekki vant að heyra mik- inn hlátur í sjónvarpi. Þetta var allt miklu formfastara hjá ríkissjónvarp- inu áður og því var ég gagnrýnd fyr- ir að hlæja of mikið. Okkur finnst þaö eðilegt í dag en það þótti ekki árið 1986.“ Vilhelm Anton Jónsson, meðlimur í 200.000 Naglbítum. Valgerður Matthíasdóttir dagskrárgeróarkona. í~Sigmundiir Emi'r Rúnairsson „Sagan af sameiningu Vísis og Dagblaðsins finnst mér alltaf jafnfá- ránleg. Þetta var haustið 1981 og ég var búinn að vera blaðamaður á Vísi í hálft ár. Það var morgunn og ég var að þýða Reuterinn eins og nýliðar voru látnir gera ásamt því að þýða Gissur gullrass og stjömuspána. Þá vindur sér að mér fimlegur EUert B. Schram ritstjóri og biður mig að hætta að skrifa, það sé búið að skrifa blaðið. Klukkan var ekki nema hálf- átta að morgni og við báðir tuskuleg- ir í framan. Því hélt ég að hann væri að grínast og hélt áfram að skrifa og leysa heilu heimsgáturnar næsta hálfhnann. Þá kemur Ellert aftur og spyr hvort ég geti ekki hlýtt skipun- um. Ég sá að manninum var alvara og stóð því upp frá ritvélinni og fékk mér sígarettu og kaffi. Þá sá ég að all- ir kollegar mínir voru líka komnir í kaffipásu og jafnfurðulegir á svipinn og ég. Stuttu seinna komu iðnaðarmenn á staðinn og bomðu gat á vegginn milli Vísis og Dagblaðsins og þar með hóf ég störf á DV. Útsíðunum hafði þá öllum verið lokið fyrr um morgiminn. Árið 1985 byrjaði ég í sjónvarpi og var þá á Lista- og skemmtideild RÚV, LSD svokallaðri. Seinna fer ég upp á Stöð 2. Ég hef blessunarlega ekki gert nein alvarleg mistök og þau hafa aldrei bitnað á neinum öðrum en sjálfum mér, oftast augnabliksmis- tök. Maður hefur oft þurft að fylla upp í tómarúm og þá er hver mínúta í sjónvarpi eins og heil eilifð. Þá leit- ar fréttamaðurinn bara á náðir skáldsins. Einu sinni var ég með 19.19, for- vera 19.20, og von var á Júliusi Sól- nes sem þá var nýbúið að skipa um- hverfisráðherra. Það var miður vet- ur og það gerði byl. Ég fékk að vita einni mínútu áður en útsending „Ég fékk rautt spjald i fyrsta al- vöruleiknum mínum í efstu deild. Það var 1996 á móti KR. Ég var bara 17 ára kjúklingur og átti aö taka Gumma Ben og gerði það ágætlega. Ég fékk fyrst eitt gult spjald fyrir brot og svo fiskaði Gummi mig út af með því seinna. Eyjólfur Ólason var dómari í leiknum og ég var ekkert ógurlega sáttur við dóminn þá, Gummi kryddaði þetta aðeins og hann vissi að dómarinn mundi frekar hlífa honum heldur en kjúklingn- um. Þetta er það eftirminnilegasta og í fyrsta og eina skiptið á ferlin- um sem ég hef fengið rauða spjald- hófst að Júlíus væri fastur í jeppanum sínum í Ártúns- brekkimni og að helstu jeppakallar stöðvarinnar væru lagðir af stað til að ná í hann. Það var ekkert annað efni til og ekki kom til greina að senda hléskiltið út. Ég birtist því lúalegur í mynd og þegar upp var staðið hafði ég malað í á sjöttu mínútu áður en karlskrattinn loks- ins kom. Enn þann dag í dag veit enginn um hvað ég tal- aði.“ I^EIva^Ósk^ÓlafsdóttirJ Ólafsdóttir leikkona, Skar sig oft á spegli „Til að byrja með er maður eins og valt barn sem er að byrja að læra að ganga. Fyrstu sporin eru mjög óstöðug. Ég byrjaði í Sjón- varpi í leikritinu Nóttin, já nóttin eftir Sigurð Pálsson. Svo fór ég norður til Akureyrar og var þar í Húsi Bernörðu Alba eftir Federico Garcia Lorca. Við sáum draug í sýningu og töldum strax að það væri Federico sjálfur. Við vorum 5 konur í atriðinu og allt í einu var kominn karlmaður inn á sviðið. Nokkrir áhorfenda sáu hann líka. Ég var í útvarpi líka í nokkra mán- uði þar sem einn góður útvarps- maðurinn mismælti sig allsvaka- lega og sagði að músíkin mundi riða rækjum þann daginn. Það hefur auðvitað ofsalega margt gerst í gegnum árin. Ég fór t.a.m. úr axlarlið í Gauragangi á móti Ingvari Sigurðssyni. Það var ógurleg kvöl og pína. Ég náði mér þegar ég var komin út af sviðinu og komst aftur í liðinn. Þegar ég svo lék í Meistaranum var ég látin skera mig á spegilbroti svo að blóð- ið spratt fram. Það var svo vel fiff- að að algengt var að liði yfir fólk úti í sal.“ Gylfi Einarsson, fótboltamaöur í Fylki, Sigmundur Ernir Rúnarsson fréttamaöur. f Ó k II S 15. september 2000 15. september 2000 f Ó k U S 6 7

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.