Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2000, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2000, Blaðsíða 14
+ A ) i [ I f ' [ > i ( i i t !■ I t t ( > ! i i ( ! i \ \ f \ *• i í f f \ » 1 Erlendur Eiriksson ieikiistarneml. E.ienciur hef j'- kom d vlð< viö. Hanu er med einka fíugmar.rs''ettir*áif hefuf Erlendur Eiríksson er leiJklist- arnemi I einum af virtustu leik- listarskólum Bretlands, Arts Ed. „Ég hóf nám í skólanum þegar ég var 28 ára og viö það að ljúka meistarnámi fyrir kokka.“ Er- lendur mun ljúka leiklistarnám- inu næsta vor eftir þriggja ára nám. Kokkur f Tívolí „Ég lærði kokkinn á Lækjar- brekku árin ‘92- 95. Svo fór ég að vinna á Hótel Esju. Eftir það skellti ég mér á sjóinn i mánuð. Pabbi minn, bræður hans, afi og amma voru öll á sjónum svo mér fannst ég verða að prófa það.“ En Erlendur lét sér mánuðinn á sjón- um duga. Næst fór hann til Kaup- mannahafnar og vann á veitinga- staðnum Herzegovinu í Tívolí um tíma. Þar á eftir kom hann heim og vann sem kokkur á ferjunni Norrænu og Café Óperu. Svo dreif hann sig í meistaranámið. „Ég hafði verið á leiklistamámskeiði í Kramhúsinu hjá önnu Borg og Áma Pétri. Eftir það sótti ég um úti í London. Þegar tvær annir voru liðnar af meistaranáminu var ég allt í einu kominn inn í leiklistarskólann úti.“ Erlendur þurfti ekki langan tíma tU að hugsa sig um, hætti við meistara- námið og dreif sig út tU London. Skapandi listamenn „Námið var rosalega strembiö. Við vorum að frá 9 á morgnana til 9 á kvöldin, og þá áttum við eftir að læra. Það var ekki einu sinni tími tU að hugsa," segir Er- lendur. Erlendur segir kennsluna á fyrstu önninni hafa verið mjög heföbundna. Kennt var eftir klassískri aðferð sem nefnd er eft- ir leikhúsmanninum Stanislav- skí. „Eftir hvert verkefni voru aU- ir nemendur kallaðir saman fyrir kennarana. Því næst var hver og einn látinn standa fyrir framan hina meðan kennararnir „hökk- uðu“ hann í sig. Margir brotnuðu niður við þetta.“ En um mitt fyrsta ár breyttist allt því þá tók viö leiklistardeUd- inni skoskur kennari frá Queen Margaret leiklistarskólanum í Edinborg. Áherslurnar breyttust til nútimalegri kennsluaðferða. „Markmiðið er ekki lengur bara að búa tU leikara heldur frekar skapandi listamenn sem eru fær- ir um að búa sér tU vinnu sjáif- ir.“ Upp og niður Aðspurður segir Erlendur að það hafi gengið mjög vel hjá hon- um til að byrja með, „En svo hef- ur þetta gengið svona upp og nið- ur eins og gengur og gerist þegar maður er að læra eitthvað nýtt.“ Erlendur segist hafa haft litla reynslu af leiklistinni áður en hann sótti um í skólanum, „Ég tók þó þátt í söngleikjauppfærsl- um í FB, skemmtiþættinum „Slett úr klaufunum", var í nokkrum rokkhljómsveitum (eins og tU dæmis Blautum drop- um) og svo kom ég nokkrum sinnum fram í Hemma Gunn. Ég liafði hins vegar enga reynslu af sviðsleik." Hann segir flesta sam- nemendur sína hafa haft meiri leiklistarreynslu en hann. Á hinn bóginn fannst Erlendi hann hafa lífsreynsluna fram yfir marga skólafélaga sína. Nú í haust hefst svo þriðja og síðasta námsár Erlendar við skólann. „Þaö verður lítil kennsla en þess i stað enn þá meira af uppsetningum verka, allt frá grískum harmleikjum til nútímaverka," segir Erlendur. í lok ársins verður settur upp söngleikur og loks munu nem- endumir æfa upp atriði til að sýna umboðsmönnum í vor. Erlendi finnst framtíðin björt. Hann gerir ráð fyrir að koma heim að námi loknu þó hann segi að erfitt sé að slá nokkru föstu um það. Erlendur segir þar að auki margt spennandi vera í gangi hér heima og mikil um- ræða og gróska í leikhúslífinu. Steitment-bolur er ekki bara venjulegur boiur. Hann segir manni eitthvað um það h\Jer þú ert, hvað þér finnst fyndið og hvernig viðhorf þín til lífsins eru, hvort þú ert svona eða hinsegin. Margrét Hugrún kom að máli /ið nokkra einstaklinga sem stojtir flagga stuttermabolunum sínum: ': ’ : BÍSJlinOJ} J£) JlUÍ Steinar Vaidimar Pálsson, Steini Sharq. Grafíker hjá GM og graffari með meiru. „Ég fékk þennan í Spúútnikk. Hann hefur oft startað samræðum sem hafa m.a. snúist um að það er hægt að vera í bol sem er sniðug- ur og dónó en ekki viðbjóðslegur. Svo hefur vera mín í þessum bol líka oft leitt til þess að kvenfólk leysir frá skjóðunni og segir mér puttunar-leyndarmálin sín. Gam- an, gaman. Ég á líka „Pm a pig“ boí“. „Keypti bolinn hjá hemum áður en viss um að bolurinn myndi færa mér ég fór á samkomu hjá Fíladelfíu þar vinninginn. En samkoman var fjórir sem var eitthvert happdrætti og vinn- tímar og ég meikaði ekki að sitja út ingurinn var ferðageislaspilari. Ég var hana álla. Guð veit hver vann.“ ► Snorn Sturluson, framkvæmdastjóri hjá músík . Aðalheiður Sveinsdóttir, Allý Amazing, pródúsent hjá Labrador „Ég fór á hjólaskauta-söngleikinn Starlight Express i London þegar ég var 9 ára. Ég stóð í þeirri meiningu að einn leikarinn væri Edltaf að blikka mig og ég blikkaði viðstöðulaust á móti. Fyrir mánuði fann ég þennan bol niðri í geymslu og hann minnti mig strax á þessa tilfinningu að vera lítil og ást- fangin af einhverjum leikara. Frekar korni en voða sætt. Mér finnast samt söngleikir ömurlegir í dag.“ „Ég keypti þennan í einhverri arty farty búð í NY. Veit ekki hvað varð til þess, líklegast eitthvað i undirmeðvit- undinni. Ég var þama að heimsækja fyrrverandi tengdaforeldra mína. Þeg- ar ég kem svo heim í bolnum og stend fyrir framan spegil og er að tannbursta mig þá sé ég að sinned er dennis aftur á bak og það fannst mér fyndið því fyrrverandi tengdapabbinn heitir Dennis. Sem sagt ekki bara „I too have sinned“ heldur líka „Ég á líka Dennis.“ Það var mikið hlegið að þessu.“ á Silverstone? GFiAINt Kynniseintak með Grand Prix 3 tölvuleiknum fylgir meö i hvert skipti sem þú kaupir Shell Formula eldsneyti. Þú keppir ó tölvunni þinni og skráir árangurinn á www.shell.is Verðlaun 1. Ferð fyrir tvo, gisting og boðsmiðar á Formúlu 1 í Silverstone á Englandi í maí 2001. 2. Compaq Presario ferðatölva frá BT tölvum. 3.-7. Tölvustýri frá BT tölvum. 8.-48. Ferraribolir Grand Prix 3 tölvuleikirnir eru til sölu á flestum Shellstöðvum meðan á keppninni stendur. f ÓkllS 15. september 2000 15. september 2000 f Ókus

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.