Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2000, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2000, Blaðsíða 4
EFTIR VINNU Vikan 29. seotember til 5. október il lífift Ifókus Shadows-sý n i n g i n er frábær „Ég fór á Shadows-sýninguna á Broadway á fostudaginn, þetta er frábær sýning. Eyjólfur Krist- jánsson fer á f kostum í hlut- verki Cliff Ric- hards og svo eru náttúrlega I allir gítarsnill- , ingarnir ótrú- lega skemmtilegir. Ef maður lygndi aftur augunum þá fékk maður það á tilfmninguna að mað- ur væri kominn aftur á tíma spagghettívestra-tónlistarinnar. Eftir sýninguna kíkti ég aðeins á Café Viktor , þar er alltaf góð stemning." Ásgeir Páll Ágústsson, umsjón- armaöur Dýragarösins á Gulli 909 Ráðstefna um mátt sjónvarps- augiýsinga „Á föstudaginn fór ég á ráðstefnu um mátt sjónvarpsauglýsinga sem haldin var í Borgarleikhúsinu, það var ágætt en það kom ekkert nýtt fram á ráðstefn- 4 unni og olli það mér j i nokkrum vonbrigðum. Eftir ráðstefnuna fór- um n°kkrir félag- ar frá Saga film á k : Borgina og fengum Æjgj okkur að borða. Sið- an kiktum við á Kaffibarinn. Ég slappaði af á laugardeginum og uppfærði heimasíðu þáttarins Sýrðs rjóma. Ég var að vinna á sunnudaginn en skellti mér um kvöldið í bió og sá íslenska draum- inn sem mér finnst vera ein besta íslenska kvikmynd síðustu ára.“ Zúri, umsjónarmaöur Sýrðs rjóma á Rás 2 og leikstjóri hjá Saga film Uppskeruhátíð Kjá FC Puma „Á laugardagskvöldið var upp- skeruhátíð hjá gamla liðinu minu FC Puma sem spilar í utandeild í knattspyrnu, gömlu félagamir I buðu mér að í vera með þó ég I spili með Barða- f strönd í 3.deild-1 inni. Við fórum fyrst út að borða á Hard Rock og sátum þar í góðu yfirlæti. Eftir mat- inn fórum við á Skuggabar þar sem biðu okkar góðar veigar, þar tók við verðlaunaafhending og við vorum þarna í góðri stemningu fram eftir kvöldi. Síðan kikti ég að- eins á Klaustrið, bara svona aðeins til að sýna mig og sjá aðra. Á Klaustrinu er alltaf æðisleg stemn- ing og þar sat ég og spjallaði við vini og kunningja og tók nokkur spor á dansgólfinu.“ Heiöar Austmann, dagskrár- geröarmaöur á FM 957 Lá yfir nokkrum költ-klassikemm „Ég leigði mér nokkra költ- klassikera (kult-bíómyndir) og lá yfir þeim alla helgina. Ég tók m.a. Texas chainsaw masacre, My I bloody val- I entine og [ Bleeder, svo | einhverjar I séu nefndar. I Einnig hlust- aði ég á nýja plötu sem ég var að kaupa mér með Sea and Cake sem er mjög góð. Ég var líka að vinna um helg- ina og ég stjanaði svolítið við kött- inn minn hann Nikka Sixx sem ég eignaðist fyrir nokkrum vikum.“ Andri Freyr Viöarsson, dagskrárgerðarmaóur á Radíó-X Föstudagur 29/09 •K1úbbar ■ ELECTRONICA Á THQMSEN Já, helgin er komin og þá vita allir hvert straumurinn liggur. Á Thomsen í kvöld er þaö Ozy (Early Groovers) sem mallar saman girnilega elect- ro-technoþlöndu eins og honum er einum lagið. Ljóst má vera að þeir sem skella sér í kjallarann munu svitna undan þessari tónlist og ekki skemmir fyrir að Bjössi er með i för. Uppi verða þau skötuhjú Sóley og Tommi White og ætti stemmninguna ekki að vanta þar heldur. ■ ASTRÓ OPNAÐ AÐ NÝJU Astró verður opn að að nýju í kvöld eftir að nýir eigendur hafa tekið við. Gerðar hafa verið nokkrar breytingar og eru það jaxlarnir Kiddi Bigfoot og Jón Páll sem sjá um staðinn um þessar mundir. Dj. Svali verður í búrinu með vistvæna danstónlist og seyðandi R&B tónlist. ■ KANÍNUR Á SKUGGA Til að fagna útkomu októberheftis Playboy hafa Fókus, Vísir.is, FM957 og dreifingaraðil-1 ar Playboy á Islandi I ákveðið að efna til alvöru | Playboy-partís Skuggabarnum í kvöld I þar sem haldinn verður | alvöru-gleðskapur að hætti meistara Hugh Hefners. Sjáið kynþokka- fullar kanfnur í fullum skrúða. Grrrr.....hoba hoba I •Krár ■ MARGEIR Á PRIKINU Hjartaknúsarinn Mar- geir er mættur f miðborgina og heldur uppi endalausu stuði á Prikinu f kvöld. Staðurinn hefur farið vaxandi undanfarið og með Margeir við stjórnvölinn f kvöld gætum við verið að tala um endalausar nætur. ■ BERGMENN Á NJALLANUM Hljómsveitin Bergmenn spilar á Njallanum f kvöld. Þess má geta að Njallinn er í Dalshrauni 13 f Hafnar- firði. ■ DERRICK Á VITANUM Hljómsveitin Derrick spilar stuörokk og gleöitónlist á Vitanum, Sandgerði, f kvöld. ■ FÖNKTÓNLIST EINS OG HÚN GERIST BEST Besta fönkhljómsveit landsins, Jagúar, spilar á Gauknum f kvöld, Hvar er betra að eyða svona kvöldi en í góðum fönk fíling með Jagúar en á Gauknum? ■ GAMUR PÓNIK-MENN SPILA Gömlu „bftl- arnir" í Pónik, þeir Ari Jónsson og Úlfar Sig- marsson, spila I kvöld á Kringlukránni. Gamalt er gott. ■ HINN HUGLIÚFl GtlNNAR PÁLL Gunnar Páll er alltaf á Ijúfu og rómantfsku nótunum á Grand Hótel um helgar. Gunnar Páll spilar frá kl. 20 til 23. ■ HÁTTVIRTUR FORSETI Á UÓNINU Dúett inn Jón forseti er án efa einn skemmtilegasti dúettinn á íslandi f dag. Enda ekki annað hægt þegar gftarsni11ingurinn Þröstur Harðarson er innanborðs. Háttvirtur Jón forseti spilar á Rauöa Ljóninu í kvöld. ■ LIZ GAMMON Á NAUSTINU Liz Gammon leikur fyrir matargesti Naustsins öll kvöld. ■ MEÐ FTORING í TÁNUM Það verður sann- kölluð dansveisla á frsku kránni á Dubliner ! kvöld. Hljómsveitin Fiöringurinn mun vekja al- menna kátfnu og skapa grfðarlega stemningu. Hljómsveitina skipa þeir Eðvarð Lárusson, Jón Björgvinsson og Jón Kjartan. ■ MILES DOWLEY OG RÓMANTÍKIN Enski pfanósnillingurinn Miles Dowley slær vart feil- nótu á Café Romance. Ef þú ert f rómantfsk- um hugleiðingum þá er þetta eitthvað fýrir þig. ■ SIMON & GARFUNKEL. NEI. EG MEINA ... Hinn ástsæli og ótrúlegi dúett Svensen & Hall- funkel skemmtir á Gullöldinni I kvöld. Svo er náttúrlega boltinn alltaf í beinni og tilboð á öli. ■ SJÖUNDI ÁRATUGURINN í AMSTERDAM ! Sjöundi áratugurinn í Amsterdam var engu Ifkur! En það er hins vegar allt annað mál þvf hljómsveitin Sixties spilar á Café Amsterdam f kvöld. Gamlir smellir f j bland við nýja og ferska. Þetta getur ekki klikkað. ■ SOLON JARÐSUNCINN Þetta er síðasta helgi Sólons íslandusar. Steinar og Daði ætla að sjá um tónlistina og það verður engin kistu- lagningarstemma á þeim f kvöld. Um aö gera að kveðja þennan stað með virktum áður en hann syngur sitt síðasta. ■ TOMMI Á VEGAMÓTUM Déjoð Tommi kem- ur sterkur inn frá London og skundar beint á Vegamót, þar sem hann spilar hressa sprelli- gosatónlist fyrir dansuglur og bargíraffa. B ö 11 ■ SIN. COS OG TAN Danssveitin Sín leikur fyr- ir dansi f kvöld á Næturgalanum. •Sveitin ■ STEMNING Á ORMINUM Dj Onzo, Dj Hús og Dj Klobbi halda uppi stemningunni á Orm- inum Egilsstöðum f kvöld. Þeir félagar eru alls ekki ónýtir. ■ ENGIN RÓLEGHEIT HÉR Við Pollinn á Akur- eyri er gríðarlega huggulegur og skemmtilegur staður. I kvöld spilar hljómsveitin PPK+ og er hún fræg fyrir allt annað en rólegheit. ■ FÁR KENNT VH> ÍRA Eigum við að dansa? Koddað dansa? Hljómsveitin írafár spilar á Sjallanum ísafirði f kvöld. Það verður sko grúvf kænd of luv á Isafirði f kvöld. ■ SKEMMTILEGASTA TÓNLIST SÍÐUSTU 50 ÁRA Diskðrokktekið Skugga-Baldur spilar á Kristjáni X á Hellu í kvöld. Skugga-Baldur er skífuþeytir af bestu gerö. Reykur, þoka, Ijósa- dýrð og skemmtilegasta tónlist sfðustu 50 ára verður leikin. ■ UNPUR OG STÓRMERKI Hljómsveitin Undryö spilar á brjáluðu balli á Inghóli, Sel- fossi, í kvöld. Sveitaballastemningin er engu lík á þessum stað. ©Leikhús ■ BÍBÍ OG BLAKAN Bibí og Blakan, óperu- þykkni Hugleiks í einum þætti, verður sýnt f kvöld í Kaffileikhúsinu kl. 21. Allra sfðasta sýning. ■ DÓTTIR SKÁLDSINS Leikritið Dóttir skálds- ins eftir Svein Einarsson er sýnt f Tjarnarbíói kl. 20:30 f kvöld. Miðapantanir f síma 530 3030. Þetta verður sfðasta sýning fyrir leik- ferð. ■ HORFÐU REIÐUR UM ÓXL Fyrsta frumsýn ing leikársins á Litla sviði Þjóðleikhússins verður á hinu þekkta leikriti b>Horfðu reiður um öxl eftir breska leikritahöfundinn John Os- borne. Leikendur: HilmirSnærGuðnason, Elva Ósk Ólafsdóttir, Rúnar Freyr Gíslason, Hall- déra Björnsdóttir og Gunnar Eyjólfsson. Leik- stjóri: Stefán Baldursson. Sýningin hefst kl. 20:00. ■ KYSSTU MIG KATA Söngleikurinn Kysstu mig Kata verður sýndur f Borgarleikhúsinu kl. 19 f kvöld. ■ TRÚÐLEIKUR í IÐNÓ Trúðleikur eftir Hall- grím H. Helgason verður frumsýndur í Iðnó i kvöld. Trúðleikur er grátbroslegur gleðileikur um streðið að vera trúöur. Leikritið fjallar um trúðana Skúla og Spæla sem starfa saman. Skúli er bjartsýnn og glaður og veröur allt að leik en fýlupúkanum Spæla er f nöp við trúðs- starfið og langar til að verða eitthvað merki- legra eins og „allir hinir". Leikarar eru Friðrik Friöriksson og Halidór Gylfason. Leikstjóri er Örn Árnason. ■ EDDA.RIS Á VERKSTÆÐINU Leikflokkurinn Bandamenn f samstarfi viö Þjóðleikhúsið sýn- ir í kvöld leikritið edda.ris eftir Svein Einars- son. Sýningin hefst kl. 20:30 og er á Smíða- verkstæðinu. ■ SJEIKSPÍR EINS OG HANN LEGGUR SIG I kvöld f Loftkastalanum er hið sprenghlægilega stykki, Sjeikspír eins og hann leggur sig. Leik- ritið hefst kl.20. ■ STJÖRNUR í IÐNÓ Stjörnur á morgunhimni sýndar f kvöld í Iðnó, kl. 20. Sigrún Edda er stórkostlega f hlutverki sfnu. •Kabarett ■ BINGÓ Á CATALÍNU Nú er um að gera að finna gamla Ijósgræna Don Cano gallann sinn, ffnu lakkskóna og bingóspjöldin sfn. Það verð- ur nefnilega hljómsveitin Bingó sem heldur uppi flörinu á Catalfnu f kvöld. ■ PANSKVÖLD í KRAMHÚSINU Danskvöld Tangófélagsins verður haldið í Kramhúsinu f kvöld og hefst það kl. 21. I kvöld er það dansæfing fýrir byrjendur og lengra komna í argentískum tangó. ■ EKKERT SUMARFRÍ HJÁ CLIFF ÞETTA ÁRH) Cliff & the Shadows-sýningin heldur áfram á Broadway og I hefur sýningin fengið góð- ar undirtektir. Eyjólfur Kristjánsson syngur Cliffarann og flölmargir góðir gítarsnillingar spila *• Shadows-smellina góðu. É Hver man ekki eftir lög- um eins og „The Young Ones" og „Bachelor; Boy"? •Opnanir ■ KATHLEEN SCHULTZ Á MOKKA Kathleen Schultz opnaði sýningu á vatnslitaseríum sín- um á Mokka Kaffi 26. september. Sýningunni lýkur 22. október. •Fundir ■ RÁÐSTEFNA UM VATNAJÖKULSÞJÓÐ- GARPI dag, kl. 13.00, veröur haldin ráðstefna um Vatnajökulsþjóðgarð á Kirkjubæjar- klaustri. Tilgangur ráðstefnunnar er að varpa skýrara Ijósi á verndargildi Vatnajökuls og aðliggjandi svæða, fá fram upplýsingar um þá ólfku hagsmundi sem taka þarf tillit til við stofnun þjóðgarðs á þessu svæði og meta þetta landsvæði i alþjóðlegu samhengi. Siv Friöleifsdóttir umhverfisráðherra mun taka þátt f ráðstefnunni og gera grein fyrir framtíðar- sýn fyrir þetta svæði. Á heimasíðu Landvernd- ar, www.landvernd.is, er að flnna upplýsingar um dagskrá, gistingu, ferðir og annað sem við- kemur ráðstefnunni. Þar er einnig hægt að skrá þátttöku. ■ FYRIRLESTUR UM BRJÓSTAKRABBA- MEIN Líffræðistofnun kynnir meistaraprófsfýr- irlestra f dag kl. 16:15 f stofu G-6, Grensásvegi 12. Þá mun Katrín Guðmundsdóttir, Rann- sóknastofu f sameinda- og frumulíffræði, Krabbameinsfélagi Islands, flytja fyrirlesturinn: Erfðabreytileiki sem áhættuþáttur fyrir brjóstakrabbamein. Leit að breytingum f eftir- listgenum mftósu í brjóstakrabbameinsæxlum. ■ FYRIRLESTUR Á LÍFFRÆOISTOFNUN I dag mun Anna Guðný Hermannsdóttir halda erind- ið Hitaþolinn amylasi úr fornbakteríunni Thermococcus stetteri. Fýrirlesturinn verður fluttur á ensku. Hann verður haldinn á Líffræði- stofnun, Grensásvegi 12, í stofu G-6 kl. 13:15. Öllum er heimill aðgangur. Laugardagur \ 30/09 •K lúbbar ■ AFMÆLI HUGARÁSTANDS Á THOMSEN Hver hefði trúað því aö það séu komin tvö ár sfðan Hugarástandið fór f gang. Það er nú samt raunin og konungar dans- gólfsins til margra ára, Arnar og Frí- mann, halda upp á tveggja ára afmæli sitt f kvöld á Thomsen. Piltarnir eru nýkomnir úr tveggja mánaða frfi og af þvf tilefni opnar kjall- arinn sérstaklega snemma. Nýtt Ijósakerfi verður tekið í notkun af þessu tilefni og munu þeir félagar nýta sér það til hins ýtrasta. Á dansgólfinu uppi verða svo ekki ómerkari menn en Margeir og Alfred More. Skilaboðin eru einföld, þetta verður ógleymanlegt kvöld. •K r á r ■ ÁRNI EINAR Á PRIKINU Það er komið laug- ardagskvöld og þá fýrst er kominn almennileg- ur djammfflingur í fólkið. Það er hann Árni Ein- ar sem heldur uppi músíkinni á Prikinu f kvöld af alkunnri snilld. Fólk ætti að nótera að síðast þegar pilturinn var á Prikinu var röð upp á Ara f Ögri. Góðar stundir. ■ BERGMENN Á NJALLANUM Hljómsveitin Bergmenn spilar á Njallanum í kvöld. Þess má geta að Njallinn er f Dalshrauni 13 í Hafnar- firði. ■ BINGÓ Á CATALÍNU Nú er um að gera að finna gamla Ijósgræna Don Cano-gallann sinn, ffnu lakkskóna og bingóspjöldin sfn. Það verð- ur nefnilega hljómsveitin Bingó sem heldur uppi fjörinu á Catalínu I kvöld. ■ DERRICK Á VITANUM Hljómsveitin Derrick spilar stuðrokk og gleðitónlist á Vitanum Sandgerði í kvöld. ■ GAMAN ER AP KOMA í KEFLAVÍK Sóldögg spilar á einum heitasta stað Reykjanesbæjar f kvöld, N 1. Brjálað stuð og kvöldin þar þau eru engu lík. ■ HERBALWITZ A VEGAMOTUM er á vinsældum megrun- arkúra á tslandi, flestir kannast við New skin og Nature's Own, svo ekki sé minnst á Herbalife. Nýjasti kúrinn er jurta- meðferðin Herb Legowitz, en sá verður kynntur á Vegamótum í kvöld. Magnús Legó ætl- ar að þeyta skffum við það tækifæri. Ekkert lát i ■ HINN HUGUUn GUNNAR PÁLL Gunnar Páll er alltaf á Ijúfu og rómantfsku nótunum á Grand Hótel um helgar. Gunnar Páll spilar frá kl. 20 til 23. ■ HÁTTVIRTUR FORSETI Á UÓNINU Dúett inn Jón forseti er án efa einn skemmtilegasti dúettinn á Islandi í dag. Enda ekki annað hægt þegar gítarsnillingurinn Þröstur Harðarson er innanborðs. Háttvirtur Jón forseti spilar á Rauða Ljóninu f kvöld. ■ LIZ GAMMON Á NAUSTINU Liz Gammon leikur fýrir matargesti Naustsins öll kvöld. ■ MEÐ FTORING í TÁNUM Það verður sann- kölluð dansveisla á frsku kránni á Dubliner í kvöld. Hljómsveitin Fiðringurinn mun vekja al- menna kátinu og skapa grfðarlega stemningu. Hljómsveitina skipa þeir Eðvarð Lárusson, Jón Björgvinsson og Jón Kjartan. ■ MILES POWLEY OG RÓMANTÍKIN Enski pfanósnillingurinn Miles Dowley slær vart feil- nótu á Café Romance. Ef þú ert í rómantfsk- um hugleiðingum þá er þetta eitthvað fýrir þig. ■ SIMON & GARFUNKEL ■ NEI, ÉG MEINA ... Hinn ástsæli og ótrúlegi dúett Svensen & Hall- funkel skemmtir á Gullöldinni f kvöld. Svo er náttúrlega boltinn alltaf f beinni og tilboð á öli. ■ SJÖUNDI ÁRATUGURINN í AMSTERPAM ! Sjöundi áratugurinn f Amsterdam var engu lík- ur! En það er hins vegar allt annað mál þvf hljómsveitin Sixties spilar á Café Amsterdam f kvöld. Gamlir smellir f bland við nýja og ferska. Þetta getur ekki klikkað. ■ STJÖRNUKVÓLD I kvöld verður sko á Kringlukránni mikið um dýröir. Hinar óviðjafn- anlegu Borgardætur verða með söngskemmt- un, Kristján Eidjárn leikur Ijúfa tóna fýrir mat- argesti og Rósa Ingólfs tekur á móti gestum og kynnir skemmtidagskrá. Síðan verður dans- leikur á eftir sýningu. ■ SVANASÓNGUR SÓLONS Séra Daði og Steinar ætla að jarðsyngja Sólon íslandus f nótt. Þetta er sfðasta kvöld staðarins, sem hefur verið f húsi málarans undanfarin ár. Það verður stuð á strákunum, þó að ábyggilegt sé að glitta muni f tár á hvörmum gesta. ■ TRÍPÓLÍ. TRÍPÓLÍ. TRÍPÓLÍ-LÍ-LÍ ... Dans leikur f kvöld á Grand Rokk með hinni dúndur- góðu hljómsveit Tripólí. Og svo syngjum við: „Trfpólí, trfpólí, trípó-lí-lí-lí..." ■ ÓRVÆNTING Á GAUKNUM Dj. Panik þeytir skffur á Gauknum f kvöld. Dj. Reynir mun ylja upp fýrir kappann en einnig koma fram MC Blazroca, Sesar A og Dj. Tommi. Þeytingurinn hefst kl. 23 og verður skratzað fram undir morgun. fBöll ■ SIN. COS OG TAN Danssveitin Sín leikur fyr- ir dansi í kvöld á Næturgalanum. •K 1ass í k ■ SINFÓNÍUHUÓMSVEIT ÁHUGAMANNA I dag kl. 17:00 heldur Sinfónfuhljómsveit áhugamanna tónleika f Neskirkju. Stjórnandi á tónleikunum verður Ingvar Jónsson, einleikar- ar á fiðlu Hildur Ársælsdóttir og María Huld Markan Sigfúsdóttir og einleikari á flautu Ás- hildur Haraldsdóttir. Á efnisskránni eru verk eftir J.S. Bach. Aðgangseyrir 1000 kr., afslátt- arverð 500 kr. fyrir nemendur og eldri borgara, fritt fýrir börn. ■ SINFÓNÍUHUÓMSVEIT ÍSLANDS Á SEL- FOSSII dag kl. 15:00 verða tónleikar með Sin- fóníuhljómsveit íslands í íþróttahúsinu á Sel- fossi. Eru þetta sfðustu tó.nleikarnir sem haldnir eru áður en hljómsveitin heldur í langa tónleikaferð til Ameríku f október. Á efnis- skránni verða verk eftir Khachaturian og Si- belius. Hljómsveitarstjóri er Rico Saccani og einleikari engin önnur en Judith Ingolfsson. ■ TVÍLEIKUR Á SELLÓ OG PÍANÓ í SALNUM I Salnum í Kópavogi munu Sigurður Halldórs- son, selló, og Daníel Þorsteinsson, pfanó, flytja allar sónötur Beethovens fýrir selló og pf- anó. Tónleikarnir hefjast kl. 15.Miðsala er opin virka daga frá kl,13:00-18:00tónleikadaga til kl. 20:00 og um helgar klukkustund fýrir tón- leika. ■ TÓNLEIKAR í RÁÐHÚSI REYKJAVÍKUR Lúðrasveitin Thorsov Skoles Musikkorps held- ur ásamt hljómsveitinni Plútó tónleika f Ráð- húsi Reykjavíkur kl.l5:00-17:00. Lúðrasveitin er skipuð 70 þroskaheftum hljóðfæraleikurum á aldrinum 10-40 ára. Fyrst flytur Thorsov Skoles Musikkorps fjölbreytta dagskrá en síð- an leikur hljómsveitin Plútó fyrir dansi. •Sveitin ■ STEMNING Á ORMINUM Dj Onzo, Dj Hús og Dj Klobbi halda uppi stemningunni á Orm- inum Egilsstöðum í kvöld. Þeir félagar eru alls ekki ónýtir. ■ ENGIN RÓLEGHEIT HÉR Við Pollinn á Akur- eyri er griðarlega huggulegur og skemmtilegur staður. I kvöld spilar hljómsveitin PPK+ og er hún fræg fýrir allt annað en rólegheit. ■ FÁR KENNT VIÐ ÍRA Eigum við að dansa? Koddað dansa? Hljómsveitin írafár spilar á

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.