Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2000, Side 6
fókus
»
llf Í&E FT I
V T M M 11
Vikan 29. september til 5. október
*
Sunnudagur
01/10
•Krár
■ FJÖLÞJÓÐI-EOUR HÓPUR TÓNU3TAR-
FÓLKS Á Dubliners í kvöld kemur fram fjölþjóö-
legur hópur tónlistarfólks sem búsettur er f
Reykjavík. Hópurinn kallar sig Alba og spilar
þjóðlagatónlist frá trlandi og Skotlandi. Dag-
skráin hefst kl. 21.
>■ UZ GAMMON Á NAUST1NU Uz Gammon
leikur fyrir matargesti Naustslns öll kvöld.
■ MILES POWLEY OG RÓMANTÍKIN Enski pí-
anósnillingurinn Miles Dowley slær vart feil-
nótu á Café Romance. Ef þú ert f rómantískum
hugleiðingum þá er þetta eitthvað fyrir þig.
I Böll
■ BALL í ÁSGARÐI Hljómsveitin CaprHríó
heldur dansleik I Ásgarði Glæsibæ í kvöld. Ball-
ið stendur yfir frá kl. 20 til 23.30.
Klassik
■ KAMMERMÚSIKKLÚBURINN Kamm-
ermúsikklúburinn heldur tónleika f kvöld kl.
20:00 f Bústaðakirkju. Á efnisskránni verða
verk eftir Shostakovich, Stravinsky og Messi-
aen. Flytjendur: Einar Jóhannesson klarinett,
» Sigrún Eðvaldsdóttir fiðla, Richard Talkowsky
knéfiðla, Folke Grásbeck pfanó.
■ TÓNLEIKAR í RÁÐHÚSI REYKJAVÍKUR
Lúörasveitin Thorsov Skoles Musikkorps
heldur ásamt hljómsveitinni Plútó tónleika f
Ráöhúsi Reykjavíkur kl. 15:00-17:00. Lúðra-
sveitin er skipuö 70 þroskaheftum hljóðfæra-
leikurum á aldrinum 1040 ára. Fyrst flytur
Thorsov Skoles Musikkorps fjölbreytta dag-
skrá en sfðan leikur hljómsveitin Plútó lyrir
dansi.
OL e i k h ú s
■ EINHVER í DYRUNUM Einhver í dyrunum,
Reykjavík: Austurstræti 3, Suðurlandsbr. 46,
Esso-stöðin Ártúnshöfða & Kringlunni.
Hafnarfjörður: Esso-stöðin, Lækjargötu 46,
Esso-stöðin, Reykjavíkurvegi 54.
Keflavík: Hafnargötu 32. Akureyri: Kaupvangsstr. 1.
iSUBUJRY*
Ferskleiki er okkar bragð.
nýtt fslenskt leikrit eftir Sigurð Pálsson, verður
sýnt f Borgarleikhúsinu f kvöld kl. 19.
■ HAROLD PINTER SJÓTUGUR í tilefni af sjö-
tugsafmæli Harold Pinter verður verk hans Af-
mælisveislan leiklesiö í beinni útsendingu i dag
kl. 14:00. Leiklesið verður á Stóra sviði Borg-
arteikhússlns. Verður flutningurinn sendur út
beint á b>Rás 1. Það er Lárus Ýmir Óskarsson
sem leikstýrir, en leikarar eru Gísll Alfreðsson,
Gfsli Rúnar Jónsson, Hjalti Rögnvaldsson,
Katla Margrét Þorgeirsdéttir, Kristbjörg Kjeld
og Ólafur Darrl Ólafsson. Aögangseyrir að leik-
lestrinum er 1000 krónur.
■ SNUÐRA OG TUPRA Möguleikhúsið (við
Hlemm) sýnir Snuðru og Tuðru eftir Iðunnl
Steinsdóttur f dag kl. 14:00.
■ SHOPPING AND FUCKING EGG-leikhúsið
sýnir I samvinnu við Leikfélag íslands f Nýlista-
safninu verkið Shopping and Fucking ! kvöld,
kl. 20. Það eru G-kortin sem blfva f kvöld.
■ EPPA.RIS Á VERKSTÆÐINU Leikfiokkurinn
Bandamenn, í samstarfi við Þjóðleikhúsið, sýn-
ir! kvöld leikritið edda.ris eftir Svein Einársson.
Sýningin hefst kl. 20:30 og er á Smíðaverk-
stæðinu. Síðasta sýning.
■ SJEIKSPÍR EINS OG HANN LEGGUR SIG i
kvöld ! Loftkastalanum er hið sprenghlægilega
stykki, Sjeikspír eins og hann leggur sig. Leik-
ritið hefst kl.20.
■ FÁAR GLANNASÝNINGAR Glanniglæpur f
Latabæ er sýndur f sextugasta sinn Þjóðleik-
húsinu f dag. Verkið er eftir þá Magnús Schev-
ing og Sigurð Sigurjónsson og hefst sýningin
klukkan 14. Aukasýning f dag er kl.17.
•Siöustu forvðö
■ ABSTRAKTVERK í LÍ í dag lýkur sýningu á
abstraktverkum f eigu Listasafns íslands f sal
4.
■ DREGIP í DILKA I dag lýkur sýningu á verk-
um Bryndísar Jónsdóttur f Ásmundarsal Lista-
safns ASf við Freyjugötu. Sýningin nefnist Dreg-
ið í dilka. Sýningin er opin frá kl. 14 -18.
■ HROSSHÁR í dag lýkur sýningu Guðrúnar
Marinósdóttur f Gryfjunni, Ustasafni ASÍ við
Freyjugötu. Þar hafa verið til sýnis verk Guðrún-
ar úr hrosshári. Sýningin er opin frá kl. 14-18.
■ IRENA í GALLERÍ í USTHÚSINU Nú fer hver
að verða sfðastur að sjá myndlistarsýningu
Irena Zvirblis ! Gallerí í Usthúsinu Laugardal.
Sýningin ber heitið „LIJEPI PEJSAZI". Irena
Zvirblis er fædd og uppalin f fyrrum Júgóslavíu.
Hún kom til íslands sem flóttamaður I boði fs-
lensku rfkisstjórnarinnar árið 1997 og bjó fyrst
um sinn á Höfn f Hornafirði. Hún býr nú f
Reykjavík ásamt fjölskyldu sinni og starfar sem
dagmóðir ásamt þvf að sinna áhugamáli sfnu,
málaralistinni. Irena hlaut viöurkenningu fyrir
list sína frá náttúruverndarráði f Serbíu og var
um árabil meðlimur f félagi áhugalistmálara í
Júgóslavfu. Hún hafði tekið þátt f fimmtán sam-
sýningum og haldið sjö einkasýningar áður en
hún kom til islands. Hér á iandi hefur hún hald-
ið fimm einkasýnjngar á Höfn f Hornafirði og f
Reykjavík. Sýningunni lýkur f dag. Gallerí f List-
húsinu f Laugardalnum er opið alla daga frá 9-
22 en lokað á sunnudögum.
■ KÍNVERSK MYNDUST Á 20. ÓLD í dag lýk
ur merkilegri sýningu f Listasafni íslands sem
nefnist Kínversk myndllst á 20. öld.
■ MAGNÚS PÁLSON í dag lýkur sýningu á
verkum Magnúsar Pálsonar f eigu Listasafns
islands. Sýningin er opin frá kl. 11.00 -17.00.
Sýningin fer fram f sölum 3 og 5.
■ MINJASAFN AKUREYRAR Minjasafn Akur-
eyrar er opið f dag frá kl. 14 til 16. Enn er hægt
að sjá sýningu um leiðangur til björgunar
bresks flugvélarflaks úr stríðinu, sem farin var
fyrir skemmstu. i dag verður Hörður Gelrsson í
Minjasafni Akureyrar og greiðir úr spurningum
gesta varðandi leitina að breska flugvélarflak-
inu úr stríðinu. Aðgangseyrir að safninu er kr.
300 fýrir fullorðna. Ókeypis er fyrir yngri en 16
ára og ellilífeyrisþega.
■ PAC-MAN i dag lýkur sýningu þriggja ungra
manna (Baldurs, Bibba og Hara) f húsnæði
Gallerís Geysis að Vesturgötu 2. Sýningin nefrv
ist Pac-Man. Boöið hefur verið upp á eftirfar-
andi kræsingar: „Þú skalt gefa tíma“ sem er
netlistaverk úr smiöju baldur.com. Bibbi sýnir
verkið „Rock ‘n Roll“ sem er hljóðinnsetning
fyrir rokkara. Framlag Hara til þessarar glæsi-
legu sýningar eru málverk sem unnin eru sér-
staklega fyrir rými Gallerfs Geysis. Sýningin
Pac-Man stendur til 1. október næstkomandi
og er opin á sama tfma og Hitt Húsið.
■ SKÚLPTÚRAR í GALLERÍ FOLD I dag lýkur
sýningu Krlstínar Guðjónsdóttur á skúlptúrum
úr keramiki og steyptu gleri í Baksalnum f Gall-
eríi Fold, Rauðarárstfg 14-16. Opið er f Gallerf
Fold daglega, frá kl. 14 til 17.
■ TEIKNINGAR OG GRAFIKVERK Á KAMBI
Sýningu á verkum bandarfska listamannsins
Williams Anastasi lýkur f Gallerf Kambi þann 1.
októþer. Á sýningunni eru aðallega tvær
myndaraðir: Blind, teikningar sem listamaður-
inn vann f neðanjarðarlestum New York-borgar,
og grafikverk sem unnin eru á sfðari árum.
Sýningin er opin daglega frá 10 til 22.
•Fundir
■ RÁÐSTEFNA UM ÁGÚSTÍNUSARREGLUNA
Norski munkurinn og kórherrann Aloisius Am-
stein Brodersen, af Ágústínusarreglu, flytur er-
indi að lokinni kaþólskri biskupamessu f Viöeyj-
arkirkju f dag. Eftir erindið verða opnar umræð-
ur og mun Brodersen leitast við að svara spurn-
ingum gesta. Messan hefst kl. 14.
Bíó
■ JÓRÐ í BÍÓINU MÍR Myndin Semlja eða
Jörö, klassískt verk eftir Alexander Dovzhenko,
verður sýnd f MÍR á Vatnsstfg f dag, kl. 15.
Myndin er talin besta verk hans, Ijóðrænt
drama um samband manns og náttúru. Myndin
gerist í Úkraínu og lýsir átökum smábænda og
kúlakka, þ.e. landeigenda og stórbænda. Þetta
er óstytt frumútgáfa myndarinnar og þvf er hér
að finna myndskeiö sem ritskoðunin hafði fyrr-
um fellt út. Enskur texti er á myndinni.
•Feröir
■ FERÐ AÐ GÁSUM i tilefni að menning-
arminjadegi Evrópu stendur Minjasafnið á Ak-
ureyri fyrir skoðunarferð á gamla verslunar-
staðinn á Gásum. Ferðin hefst við Minjasafniö,
Aðalstræti 58, klukkan 14, með þvf að skoðuð
verður sýningin Eyjafjörður frá öndverðu, en þar
er greint frá verslunarstaðnum á Gásum. Síöan
er ekið að Gásum og fornleifar skoðaðar með
leiðsögn. Áætlaö er að koma til baka um kl. 16.
Þátttaka er ókeypis og öllum heimil.
Mánudagur <
02/10
•Krár
■ UZ GAMMON Á NAUSTINU Liz Gammon
leikur fyrir matargesti Naustsins öll kvöld.
■ MILES DOWLEY OG RÓMANTÍKIN Enski pf-
anósnillingurinn Miles Dowley slær vart feil-
nótu á Café Romance. Ef þú ert í rómantískum
hugleiðingum þá er þetta eitthvað fyrir þig.
■ SÓÐAKJAFTUR
Á_____GAUKNUM
Sóðakjafturinn og
hinn magnaði trú-
bador, Bjarni
Tryggva, snýr aftur
á Gaukinn i kvöld
eftir nokkurt hlé.
•Kabarett
■ ÓÐUR TIL HAUSTSINS Listaklúbbur Leik-
húskjallarans verður með dagskrána „Óður tii
haustsins" í kvöld kl. 20:30. íslenskar listakon-
ur fagna haustinu í litum, tónum og tali. Haust-
ið f öllum sínum margbreytileika er tema
kvöldsins. Leikkonur flytja uppáhaldsljóðin sfn
og hönnuðir sýna nýjustu tískuna undir haust-
tónum. Húsið opnaö kl. 19:30. Allir velkomnir.
•Fundir
■ KJARABÆTUR ELDRI BORGARA Félag
eldri borgara ætlar að heimta bætt kjör og með
því á Austurvelli, viö Alþingishúsið, f dag, kl.
15. Hvatt er til að sem flestir láti sjá sig. Að-
gerðirnar verða friðsamlegar en lögregla von-
andi f viðbragösstöðu þvf eldri borgarar f bar-
áttuhug eru mestu ólíkindatól og margir gamlir
óeirðaseggir úr Gúttó-slagnum f þeirra rööum.
Þriðjudagur
03/10
•Krár
■ UZ GAMMON Á NAUSTINU Uz Gammon
leikur fyrir matargesti Naustsins öll kvöld.
■ MILES DOWLEY OG RÓMANTÍKIN Enski pí
anósnillingurinn Miles Dowley slær vart feil-
nótu á Café Romance. Ef þú ert f rómantískum
hugleiðingum þá er þetta eitthvað fyrir þig.
■ PALLI Á PRIKI Palli, alias Sweet Chilli, var
ábyggilega skfrður Páll en það er ekki kúl þegar
maður á að troða upp á Prikinu a.k.a Da Stick,
í kvöld. En það er verst, að það viröist þjóna
duttlungum dyravarðarins ófrfða, aiias Da ugly
doorman hvort menn eiga inngöngu vfsa eður
ei. En hann átti góða spretti sfðasta laugardag.
■ STEFNUMÓT UNDIRTÓNA Eftir smásumarfrf
hefur göngu sfna á ný Stefnumót Undirtóna.
Pottþétt dagskrá á Gauknum í kvöld.
K1 a s s i k
■ TVÍLEIKUR í SALNUM í Salnum f Kópavogi
munu Peter Tompkins, óbó, og Guðriöur Sig-
urðardóttir, pfanó, flytja verk eftir Poulenc,
Bozza, Saint-Sáens, Britten, Vaughan-Williams
og Oliver Kentish. Tónleikarnir hefjast kl.
20.Miðsala er opin virka daga frá kl. 13:00-
18:00 tónleikadaga til kl. 20:00 og um helgar
klukkustund fyrir tónleika.
•Fundir
■ BÚDDAMUNKUR MEÐ FYRIRLESTUR Hinn
heiðviröi Kelsang Lodrö er enskur búddamunk-
ur og einn af reyndustu kennurum Kadampa-
búddisma. Hann mun halda kynningarfyrirlestur
í dag um Eight Steps to Happiness, nýjustu
bók Geshe Kelsang Gyatso, sem útskýrir
hvernig nota má búddíska heimspeki til að þróa
og viðhalda djúpri innri ró og ánægju. Fyrirlest-
urinn verður kl. 20:00-21:30 f stofu 101 í
Odda, Háskóla íslands. Aðgangseyrir er kr
1.000 en kr. 500 fyrir námsmenn og öryrkja.
■ HÁDEGISFUNDUR Hádegisfundur verður
haldinn f Norræna húsinu á vegum Sagnfræð-
ingafélags íslands í dag. Jón Ólafsson, heim-
spekingur og framkvæmdastjóri Hugvfsinda-
stofnunar, mun velta fyrir sér hvað stjórnmála-
saga sé ! erindi slnu, „Hvernig stýra ríkjandi
stjórnmálahugmyndir sagnaritun?“ Fundurinn
hefst kl. 12.05 og lýkur kl. 13. Hann er opinn
ölluáhugafólki um sögu og menningu.
Miðvikudagur
04/10
•Krár
■ JANIS JOPLIN SPILUÐ í KVÓLD í dag eru
liðin 30 ár sfðan söngkonan hrjúfraddaða, Jan-
is Joplin, lést. Til að heiðra minningu hennar
verður sérstök dagskrá á Næstabar f kvöld.
Andrea Jóns-
dóttir poppsér-
fræðingur verð-
ur með fróð-
leiksmola um
„perluna", Andr-
ea Gylfadóttir
og félagar spila
og syngja útvalin Joplin-lög. Herlegheitin hefjast
kl. 22 og það er frítt inn.
■ UZ GAMMON Á NAUSTINU Uz Gammon
leikur fyrir matargesti Naustsins öll kvöld.
■ MILES DOWLEY OG RÓMANTÍKIN Enski pí-
anósnillingurinn Miles Dowley slær vart feil-
nótu á Café Romance. Ef þú ert i rómantískum
hugleiðingum þá er þetta eitthvað fyrir þig.
■ SOUL Á PRIKINU Soul-bræöur, ætla að vera
með almennt glens og spott og spila nokkrar
melódfur á Prikinu fyrir dansþyrsta Reykvík-
inga.
■ TÓNLEIK-
AR MEÐ
FUNKMAST-
ER____2000
Strákarnir í
Funkmaster
2000 halda
tónleika á
Gauknum í kvöld. Á tónleikunum ætla þeir m.a.
að kynna efni af væntalegri breiðskifu sinni.
•Leikhús
■ HORFÐU REIÐUR UM ÓXL Fyrsta frumsýn-
ing leikársins á Lrtla sviði Þjóðleikhússins verö-
ur á hinu þekkta leikriti þ>Horfðu reiður um öxl
eftir breska ieikritahöfundinn John Osborne.
Leikendur: Hilmir Snær Guðnason, Elva Ósk
Ólafsdóttir, Rúnar Freyr Gíslason, Halldóra
Björnsdóttir og Gunnar Eyjólfsson. Leikstjóri:
Stefán Baldursson. Sýningin hefst kl. 20:00.
■ HÁALOFTI kvöld kl. 21:00 verður frumsýnd-
ur einleikur Völu Þórsdóttur, Háaloft, f Kaffi-
leikhúsinu. Geðhvarfasýki er viðfangsefni ein-
leiksins. Leikari: Vala Þórsdóttir, leikstjóri:
Ágústa Skúladóttir. Sýningin er hluti leiklistar-
hátíðar sjálfstæðu leikhúsanna, Á mörkunum.
Geðhjálp hefur veitt verkinu sérstakan stuðn-
ing.
•Opnanir
■ FB 25 ÁRA í tilefni 25 ára afmælis FjöF
brautarskólans í Breiðholti veröur haldin
menningarhátið í Geröubergi 4. - 7. október. í
dag verður opnuö sýning á verkum myndlistar-
manna sem stigu sín fyrstu spor á myndlistar-
brautinni f FB. Á meðal sýnenda eru Sigrún
Hrólfsdóttir og Georg Guöni. Sýningin stendur
til 22. október.
•Fundir
■ BÚDDI MEÐ FYRIRLESTUR Hinn helðvlrðl
Kelsang Lodrö er enskur búddamunkur og einn
af reyndustu kennurum Kadampa búddisma.
Hann mun halda kynningarfyrirlestur I dag um
Eight Steps to Happlness, nýjustu bók Geshe
Kelsang Gyatso, sem útskýrir hvernig nota má
búddfska heimspeki til að þróa og viðhalda
djúpri innri ró og ánægju. Fyrirlesturinn er ann-
ars konar en sá í gærkvöldi. Fyrirlesturinn verð-
ur kl. 20:00-21:30 f stofu 101 í Odda, Háskóla
íslands. Aðgangseyrir er kr 1.000 en kr. 500
fyrir námsmenn og öryrkja.
■ FRÆÐSLUFERÐ FEB Fræöslunefnd Félags
eldri borgara efnir til skoðunarferðar um Þjóð-
menningarhúsið í dag kl. 14. Mæting er í and-
dyri hússins kl. 13.50 og aðgangseyrir er 200
krónur.
Fimmtudagui)
05/10
• Krár
■ GRASRÓTARBLÚS POLLOCK-BRÆÐRA
Pollock-bræöur verða með grasrótarblús á
Næstabar í kvöld og hefst þetta allta saman kl.
22. Sérstakur gestur kvöldsins er hún Ellisa-
beth Belile frá Texas.
■ UZ GAMMON Á NAUSTINU Liz Gammon
leikur fyrir matargesti Naustsins öll kvöld.
■ MILES DOWLEY OG RÓMANTÍKIN Enski pí-
anósnillingurinn Miles Dowley slær vart feil-
nótu á Café Romance. Ef þú ert f rómantiskum
hugleiðingum þá er þetta eitthvað fyrir þig.
■ STÓRTÓNLEIKAR Á GAUKNUM ( kvöld eru
á Gauknum þvflíkir stórtónleikar f samvinnu við
lágmenningarborgina Reykjavfk. Þeir sem koma
fram f kvöld eru Trans Am, sem koma alla leið
frá hinni stóru Ameriku, Stjörnukisi, Úlpa og
Súrí gæinn.
■ SÓLEY Á PRIKINU Skvísan Sóley ætlar
að putta plöturnar á Príkinu í kvöld og von-
andi verður dyravörðurinn Ijósi ekki á svæö-
inu.
D jass
■ BLÚSKVÓLD í GERÐUBERGI Blúskvöld f
Gerðubergi í tilefni að 25 ára afmæli FB. Tón-
elskir fyrrum nemendur skólans munu spila,
þar á meðal Guðmundur Pétursson. Byrjað kl.
20:30. ■
'Le i kh ú s
■ HORFÐU REIÐUR UM ÓXL Fyrsta frumsýrv
ing leikársins á Litla sviði Þjóöleikhússins
verður á hinu þekkta leikriti b>Horfðu reiður
um öxl eftir breska leikritahöfundinn John Os-
borne. Leikendur: Hllmir Snær Guðnason,
Elva Ósk Ólafsdóttir, Rúnar Freyr Gfslason,
Halldóra Björnsdóttir og Gunnar Eyjólfsson
Leikstjóri: Stefán Baldursson. Sýningin hefst
kl. 20:00.
■ MEÐ FULLRIREISN Leikritið Meö fullri reisn
er sýnt í Tjarnarbíói kl. 20:30 f kvöld. Uppselt.
Miðapantanir í sfma 561 0280.
■ EINSTÖK VÓLUSPÁ Möguleikhúsið við
Hlemm. sýnir Völuspá eftir Þórarin Eldjárn f
kvöld, kl. 21. Gagnrýnendur eru á einu máli um
ágæti sýningarinnar. Traustur höfundur og
skemmtilegt leihús.
•Fundir
■ RANNSÓKNASTOFA í KVENNAFRÆÐUM
í dag verður Guðrún Árnadóttir, MA f sálar-
fræði, meö rabbá vegum Rannsóknastofu í
kvennafræðum ! Odda, stofu 201, kl. 12-13.
Rabbið ber yfirskriftina „Hvað hindrar konur í
að mæta f brjóstamyndatöku?". Allir vel-
komnir.