Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2000, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2000, Blaðsíða 6
 Hann er svaöalegur, þessi síöhæröi kappi, sem arkar um götur borgarinnar, uppstrílaður í allri múnderingu atvinnurokkara. „Var þetta Jon Bon Jovi?“ hvíslar lín frú að vinkonu sinni og snýr sig næstum úr hálsliönum til aö píra augun og ná góöum fókus á leöraöa rassvasa hetjunnar." Nei, þetta er bara Egill Sæbjörnsson aö viöra poppgoöið Eagle. Egill er listamaðurinn knái sem runkaði sér á Kjarvalsstöðum viö mikinn fögnuó Frónbúa. Hann hefur alið manninn í Þýskalandi undanfarið og snýr nú aftur meö breiöskífuna Tonkof the Lawn undir arminn. Eitt lag af henni hefur þegar snúið upp á eyru erlendra útgáfufyrirtækja og er þaö ekki síst gestasöngvaranum Eagle aö þakka. Oft má lesa um frægt fólk sem notast við tvifara. Slíkur getur verið hentugt þegar sá frægi þarf nauðsynlega að ávarpa heimsþing kvensjúk- dómalækna á sama tíma og sigurvegari Elite-keppninnar bíður refsingar hans á Ritzhóteli. Svei mér þá ef nýjasta poppafurð íslands, Selma Bjömsdóttir, er ekki farin að feta í fótspor Borís Jeltsíns og Mikjáls Jakksonar hvað þetta varðar. Því ekki verður betur séð en að stækkun- argler þyrfti í skrefið á poppgyðjunni, og dragdívunni Mio (a.k.a. Skjöld- ur Eyfjörð), til að skera úr um hvort er hvað. Svo lík eru þau. Það er nú ekki sennúegt að Skjöldur gæti haidið út á háa c-inu í „All out of luck“. En ekki væri óráð að láta kappann þá bara taka einn Milli Vanilli á dæmið og mæma bara í mækinn ef Selma ætti einhveiju sinni eftir að forfallast þegar síst skyldi og þyrfti á bráðri aðstoð tvifara síns að halda. Þetta era bara lög sem ég hef samið. Ég spila allt sjálfur en fékk aðstoð hjá Valgeiri Sigurðssyni í Gróðurhúsinu við upptökurnar. Hann fór í gegnum allt, skerpti á sándinu og svoleiðis. Þetta hefur bara verið eins og með fólk sem sit- ur heima hjá sér og saumar út á kvöldin, bara hobbí. Ef ég væri al- vöru tónlistarmaður þá væri þetta öðruvísi. Textar án meiningar En textarnir eru sérstakir. Um hvaö eru þeir? Málið er það að þegar þú ert lít- ill og skilur ekki útlensku þá þarftu að semja textann sjáifur upp á nýtt og finna honum þína eigin þýðingu. Þú skilur ekkert það sem verið er að syngja um og bullar bara í eyðumar. Þegar ég var bú- inn með tónlistina kom þetta bara út úr mér. Ég reyndi að skrifa text- ann niður og hugsa mér þrjá mögu- leika fyrir meiningu hans. Mér flnnst gaman að leyfa fólki að búa sjálft til textann og nota hann fyrir sig. Og er þetta þá bara einhver sam- hengislaus rökleysa? Nei, það er ábyggilega eitthvert samhengi í textuniun. Þetta er sam- setning úr íslensku, ensku og þýsku og þeir sem kunna þessi tungumál geta bara skilið þetta eins og þeir vOja. Og hinir líka. Ég læt það fyrsta sem mér dettur í hug standa. Fyrstu tökuna, jafnvel þó að hún sé ekkert góð. Þegar þér líð- ur einhvem veginn og þér dettur eitthvað í hug þá viltu halda þeirri tilfinningu í listinni, flýtir þér heim til að koma því á blað. Þetta er eins og ljósmynd, þetta snýst bara um augnablikið. Sagt er aö lag þitt á kynningar- skífunni fyrir Airwaves, tónlistar- hátiöina, hafi fallið í góöan jaröveg hjá erlendum útgáfufyrirtœkjum, hvaöfinnst þér um þaö? Skjöldur Eyfjörð Ertu héöan? Já, ... það fer eiginlega eftir því hvort þú ert að tala við mig eða Eagle. Sem er eitthvert aukasjálf þitt? Nei, nei. Hann hefur verið að mæta í viðtöl. Hann var svona með mér á plötunni, svona aukanúmer, eins og er oft á rappplötum „feaut- uring“ hinir og þessir. Hann þykist vera aðalsöngvarinn í hljómsveit sem heitir Eurotrash og er einhver ógurleg stjarna. En ég er ég sko. Ég er bara alinn upp í Reykjavík, hlaut mjög eðlilegt uppeldi, að ég held. Listhneigður geðklofi Hvenœr byrjaöiröu aö fikta viö tónlist? Ég byrjaði að búa til eigin tónlist 12 ára og var svo í bílskúrshljóm- sveit sem hét ýmsum nöfnum. Svo fordæmdi ég tónlistina í sjálfum mér og ætlaði ekkert að fást við hana. Þetta var eitthvert unglinga- ástand. Ég ætlaöi að finna sjálfan mig eða eitthvað. En svo var bara eins og ég væri geðklofi, ósjálfrátt gerði ég tónlist á kvöldin. Spilaði inn á tvöfalt kasettutæki, bút og bút, og tók yfir aftur og aftur. Fyrst gítarinn, svo sönginn og svo annaö sem ég vildi hafa. Ég á heilmikið safn af þessum spólum. Fyrir fjór- um árum keypti ég mér fjögurra rása tæki og gaf út plötu fyrir rúmu ári, The International Rock Summer of Egill Sæbjörnsson. Hún fékk einhverja athygli, eöa hvaö? Jú, einhverja. Hún var bara gef- in út í 50 eintökum. Það var aðal- lega bara frumraun mín í því að búa til tónlist á tölvu og svo varð til verkefni í kringum það. Ég nennti ekki aö standa í því að æfa og vera í hljómsveit þannig að mér datt i hug að búa tii karakter sem gæti lifað sjálfstæðu lífl í fjölmiðl- um, til dæmis sjónvarpi, útvarpi og blöðum. Byggi bara þar en væri ekki alltaf að troða upp. Ég vildi búa til myndband en ég átti enga videokameru þannig að ég tók bara fullt af ljósmyndum af teiknuðum körlrnn, setti þær saman og notaði teiknimyndir fyrir hljómsveit. En þessi nýja plata, hvernig er hún? 6 f Ó k U S 6. október 2000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.