Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2000, Side 10
Það var ekki við öðru aö búast en að ofurgellan
Madonna héldi toppsætinu. Þessi kona er ein-
faldlega holdgervingur poppgyðjunnar. Hún syn-
gur eins og engill, og þó að hún sé nálgist fimm-
tugsaldurinn óðfluga, dreymir ófáa stráklinga um
að eyða með henni nótt. Coldplay eru einmitt
bara stráklingar, en þeir eru komnir i annað sætið
með tregðablandna rokktónlist sína. Þeir slógu í
gegn með laginu Yellow og ótrúlegt að platan
sem lagið er af, Parachutes, sé frumraun þeirra.
Topp 20 t/Ils. .r ll
(01) Music Madonna vikur á listal n 5
02) Yellow Coldplay t 4
C03) Lady Modjo t 4
(04) Lucky Britney Spears 4' 6
05 Could 1 have this kiss Houston/lglesias 4r 7
06] Groovejet Spiller t 4
(07) Let’s get loud Jennifer Lopez + 7
08 Rock Dj Robbie Williams 4- 9
(09) Wasting Time Kid Rock * 4
10) Með þér Skítamórall t 6
(77) It’smylife Bon Jovi 5
(12) Wonderful Everclear <&/ o
(J3) Out of your mind Stepper & Victoria t 6
14) Porcelain Moby t 2
( 75) Ég hef ekki augun af þér Sóldögg t 3
(16 Life is a ... Ronan Keating 4- 9
(77) Beautiful Day U2 t 2
{18) Mostgirls Pink 4* 6
(19) Where do I begin Shirley Bassey t 3
(20) Absolutely Nine Days n e
Sætin 21 til 40
0 topplag vikunnar Fiesta (House Party) Dj Mendes t2 X 1
Ekkert mál A móti sól
J hástökkvari 9 vikunnar Jumpin’ Jumpin’ Destiny’s Child t 7
r nýtt á listanum Tom’s Diner Kenny Blake U 5 |
Woman Trouble Artful D & Robbie ^ 3
stendurístað Spinning around Kylie Minogue ^ 9 í Q
a hækkarsiglrá Seven Days Craig David ?: 4' “ o
■ síðustu viku Öll sem eitt Sálin hans Jóns... 4, ö
lækkarsigfrá We will rock you Five & Queen í 4 8
siðustu viku Come on over Christina Aquilera K 1 :
fall vikunnar Natural Blues Moby i 4, íu -4
Generator Foo Fighters 4" ;
J| turn to you Melanie C i K 2
Why didn’t... Macy Gray 4<r 8
Calrfornication Red Hot Chilli... M12
Try Again Aaliyah
Stopp nr. 7 200.000 naglbítar &11
Doesn’t really... JanetJackson ' »:10
Sky £ Sonique X 1
Good Stuff Kelis feat. Terrar 4,12
Ifókus
íslenski listinn er
samstarfsverkefni DV og
FM 957 og birtist vikulega i
Fókus. Listinn er fluttur á
FM í umsjá Einars Ágústs
Viðissonar.
f Ó k U S 6. október 2000
Mánudaginn síðast-
liðínn kom langþráð
fjórða plata hljóm-
sveitarinnar Radi-
ohead, Kid A, í búð-
ir. Eftir þriggja ára
bið hafa þyrstir að-
dáendur loksins
komið höndum yfir
arftaka plötunnar OK
Computer sem á
sínum tíma hóf pilt-
ana upp á einhvern
Everest-tind sem
við höfum mænt á æ
síðan. Kríst|áii Már
Ólafsson skoðaði
hvað hefur verið að
gerast hjá piltunum.
Hvert svo sem innihald nýju plöt-
unnar er má ábyrgjast að hún mun
seljast í milljónum eintaka. Hvflík við-
brigði síðan frumburðurinn, EP plat-
an The Drill, kom í verslanir á sínum
tíma. Glaðbeittir aðstandendurnir
trölluðu niður í næstu hljómplötu-
verslun og hugðust fjárfesta í
nokkrum eintökum, svona tfl að sýna
gott fordæmi. Undrunin og vonbrigðin
urðu mikil þegar starfsfólk verslunar-
innar hreinlega bauðst tfl að gefa
þeim nokkur stykki þar sem enginn
reiknaði með mikilli sölu. Margt hef-
ur svo sannarlega breyst.
Forsaga málsins
Án þess ég ætli að rekja sólarsög-
una í þúsundasta skipti þá er sveitin
stofnuð í Oxford á Englandi og hana
skipa Thom Yorke, sem syngur og
spilar á gítar og hljómborð, Ed
O'Brien, gítar, Phil Selway, tromm-
ur, og bræðurnir Colin og Jonny
Greenwood, sá fyrmefndi á bassa en
sá síðamefndi á gítar, og ýmislegt
fleira. Sveitin náði að starfa þó
nokkurn tíma án þess að vekja telj-
andi athygli, í kjölfar EP-plötunnar
fyrmefndu sigldi breiðskífan Pablo
Honey og virtist ætla að hljóta sömu
örlög. Um ári eftir útkomu hennar dró
þó heldur betur til tíðinda. Amerískar
háskólaútvarpsstöðvar tóku lagið
Creep upp á arma sína og fyrr en
varði var Radiohead komin á kortið.
Mér segir svo hugur um að i dag
renni þeir félagar síður en svo hýru
auga tfl fyrstu plötunnar. Á henni er
jú að fmna nokkur góð lög en heildin
er ekki merkileg. Þeir staðfestu þó til-
verurétt sinn svo um munaði með
næstu breiðskífu sem þeir nefndu
Bends. Mig rámar þó í að hafa yppt
öxlum yfir undanfaranum að þeirri
plötu, laginu My Iron Lung, vegna
þess hve mér þótti viðlagið lykta
óþyrmilega af Nirvana. Nú á dögum
lykta Radiohead ekki eins og neinn en
margir lykta eins og þeir (eða hvað?).
Hvað um það, Bends reyndist frá-
bær plata, svo frábær að ég geri ekki
upp á milli hennar og OK Computer.
Einnig má deila um hvor þeirra
„gerði“ þá það sem þeir eru í dag. í
kjölfar Bends spiluðu þeir um allar
trissur og reyttu út smáskífurnar sem
virtist endalaust til af á plötunni.
Strax þá virtist ljóst að þarna væri
komið fram einstakt band. Alla vega
hummaði útgáfufyrirtækið þeirra
ekki við að láta þá hafa væna fyrir-
framgreiðslu til að kaupa upptöku-
búnað i eigið stúdíó og lét sig hafa það
að biða næstum tvö ár á meðan þeir
tóku upp lagasafnið sem hlaut nafnið
OK Computer.
Safinn
Heimurinn fór hamförum árið 1997
þegar OK Computer kom á markað,
platan fékk hvarvetna skínandi dóma
og enginn velktist í vafa um að þarna
færi tímamótaverk. Enda var hún val-
in plata ársins og hefur síðan birst of-
arlega á alls kyns listaskrípum, eins
og til dæmis lista yfir 100 bestu plötur
allra tíma. Heimsfrægð var staðreynd,
Radiohead var komin á lista með
stærstu nöfnunum.
Það þykir kannski fráleitt að vera
að tíunda hér frægð drengjanna en
hún spilar svo stóra rullu þessi þrjú
ár sem liðin eru frá síðustu plötu að
hjá því verður ekki komist. í aðalhlut-
verki hvað allt slikt varðar er að sjálf-
sögðu söngvarinn Thom Yorke. Hann
semur lungann af tónlist sveitarinnar,
alla texta og er ótvírætt andlit hennar
út á við, hvort sem honum líkar það
eður ei. En staðreyndin er einmitt sú
að honum líkar það ekkert voðalega
vel eða líkar sem sagt ekki vissir þætt-
ir frægðarinnar. Það var fyrst og
fremst það sem skein í gegn í heimild-
armynd Grant Gee, Meeting People
Is Easy, en hana skaut hann á ferðum
sem hljómsveitin fór um heiminn til
stuðnings OK Computer.
Vandamál Thoms er þó fyrst og
fremst það að hann hefur verið að
taka afstöðu gagnvart ýmsum málum
og gagnrýna vestræna neysluþjóðfé-
lagið harðlega en um leið flækist hann
(eða hljómsveit hans) æ meira í mark-
aðsmaskínuna. Þessu hefur hann
reynt að spoma gegn á ýmsan hátt, til
dæmis er vefsíða sveitarinnar dæmi
um eitthvað það óaðgengilegasta
markaðstæki sem til er, enda inni-
heldur hún nær eingöngu eitthvert
rugl. Það versta er að hönd í hönd fara
markaðsöflin og aðdáendurnir þannig
að það bitnar jafnt á báðum.
Að fjarlægjast gítarrokkið
Kid A snýst um að fjarlægjast gitar-
rokkformið sem drengirnir segjast
hafa farið með eins langt og þeir gátu.
Hún snýst um að leita nýrra leiða,
reyna að búa til eitthvað nýtt. En leið-
in var löng og erfið. Það eru tvö ár síð-
an drengirnir holuðu sér inn í stúdíó
í Frakklandi til að hefjast handa. Það-
an fóru þeir til Danmerkur en sneru
síðan aftur heim með hrúgur af efni
sem ekkert varð úr.
Þama höfðu þeir áunnið sér þann
status gagnvart útgáfufyrirtækinu að
þeir gátu gert það sem þeim sýndist og
verið nánast eins lengi að því og þeir
vfldu. Draumastaða fyrir slikt band, á
því leikur enginn vafi. Þó var það svo
að þegar maður las dagbók sem Ed
O'Brien hélt um upptökumar og birti
á Netinu var allt í upplausn. Hann
velti vöngum yfir hvort þeir væm
hreinlega að klúðra þessu og svo virt-
ist sem hann væri ekki einn um það.
Þeir virtust ekki geta orðið ásáttir um
hvert þeir væru að fara og tókst ekki
að klára neitt sem þeir byrjuðu á.
Á endanum náðist þó að mynda ein-
hvern ramma til að vinna út frá en
margar drastískar ákvarðanir voru
teknar svo að þannig mætti verða.
Meðlimum var skipt í hópa sem
grömsuðu í hvaða græjum sem þeim
sýndist með því einu skilyrði að það
væri rafrænt. Thom Yorke var nefni-
lega ekki á því að fara að semja meló-
díur, hann vfldi helst bara takta en
millivegur var þó farinn. Form lag-
anna var brotið upp á ýmsan hátt en
þó held ég að ekkert hafi verið eins
áhrifaríkt og að takmarka fjölda með-
lima sem spilaði í hverju lagi. Snill-
ingurinn Nigel Goodrich tók síðan að
sér að segja stopp og púsla saman því
sem birtist okkur sem Kid A.
Útkoman er plata sem hentar full-
komlega sem hjól undir þann vagn
sem Thom Yorke ekur þessa dagana.
Hún er dimm, hún er skrýtin og hún
er krydduð textum sem flestir snúast
um einmanakennd og volæði. Það
koma engar smáskífur út af henni og
það verða engin myndbönd gerð við
lög af henni. Eftir að hafa hlustað á
hana um skeið fullyrði ég að hún er
góð en hlakka til að heyra hvað öðrum
finnst.