Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2000, Side 12
... kvikmyndaleikstjóri
þó að ég hafl kannski ekki bein-
línis leikstýrt neinni kvikmynd
ennþá, a.m.k. ekki í fullri lengd og
ekki leikinni. Ég gerði heimildar-
mynd um það þegar afi minn dó, í
erfldrykkjunni og svona. Ég get
hins vegar montað mig af því að ég
hef fengið margar hugmyndir að
bíómyndum og auglýsingum. Ég
fékk einmitt hugmyndina að því
að gera auglýsingu með rosalega
leiðinlegum náunga sem er að
drepa alla úr leiðindum og aug-
lýsa þjónustu fyrir þá sem eru
með farsíma. Þetta er brilljant
hugmynd þó að ég segi sjálfur frá
og segir svo margt um þessa ...
Mig langar hins vegar að koma
hérna á framfæri hugmynd að rosa-
lega vinsælli bíómynd sem ég hef
verið að þróa með mér í hausnum.
Þetta er svona saga um mann sem
* er sunnudagapabbi og hann á mjög
fyndinn vin en hann er ekki mjög
góður í viðskiptum. Hann er algjör
partíanimal og hangir alltaf á
KafHbarnum og fer í öll partíin í
101 hverfinu og nágrenni. En
hann er líka geðveikur og rosa-
lega þjakaður þó svo að í raun og
veru sé hann alger engill...
... þjónustu.
... í samskiptum.
Það sem er aðalatriðið í sögunni
er samt að hann er að verða blind-
ur (eins og Helgi Hjörvar borgar-
fulltrúi) og hann dreymir um að
verða stjama í söngleik eins og t.d.
Guys and Dolls. Hann fer að vinna
í niðursuðuverksmiðjunni Ora og
er þá ranglega ásakaður um glæp
sem hann hefur ekki framið af þvf
að hann er of saklaus til þess (fyr-
ir utan að hann hefur aldrei tíma
til þess að fremja glæpi af því að
hann er alltaf í partíum og svo er
hann svo rosalega ...
... geðveikur).
Hann syngur um hvað það er
erfltt að vera blindur, geðveikur og
partíanimal, lélegur sunnu-
> dagapabbi og hvað hann er með lít-
ið kaup hjá Ora (af því að hann er
að safna sér fyrir linsum) en þá
kemur löggan og tekur hann niður
á lögreglustöð þar sem hann er
hengdur. Þetta er ofboðslega sorg-
legt en samt mjög menningarlegt
og alls ekkert rusl eins og manni
er endalaust boðið upp á f þessum
sjónvarpsstöðvum sem eru allar
ferlega lélegar (nema Skjár einn
af því að hann er svo ýkt kúl). En
þetta er auðvitað bara gróft...
... uppkast.
Það sem væri gaman er að fá einhvem saklausan poppsöngvara
til að leika strákinn, t.d. Ragnar Kjartansson í Kanada, hann er svo
sakleysislegur að hann er eins og hvolpur, eða Selmu Bjömsdóttir,
hei, það hljómar vel að hafa Selmu! Svo myndi ég aldrei láta leikar-
ana hafa neitt handrit heldur bara vera þeir sjálflr og vera svo ýkt
leiðinlegur við þá og láta þá alltaf fara að gráta og taka það svo upp
á video og nota í myndina. Þá er alveg eins og þeir séu ýkt góðir
leikarar. Og það væri líka gott ef það væri hægt að setja kvikmynd-
ina á kvikmyndahátíðir til þess að hún fengi mjög mörg ...
... verðlaun.
Ef einhver íslenskur athafna-
maður hefur áhuga á því að styrkja
þessa bíómynd þá er hann vinsam-
legast beðinn að borga inn á reikn-
inginn minn í íslandsbanka eða
hafa samband við Friðrik Þór og
koma peningunum til mín i gegn-
um hann. Hann getur alveg verið
framleiðandi að myndinni mín
vegna (er hann ekki framleiðandi
að öllinn bíómyndum hvort sem
er?) og það væri ýkt kúl ef ég gæti
fengið Jonna Sigmars til þess að
leika Baltasar í myndinni.
Annað kvöld verður haldin samkoma í Islensku óperunni
undir yfirskriftinni orðið tónlist - hátíð talaðrar tónlistar. Þar
mun koma fram fjölbreyttur hópur erlendra og íslenskra
skálda, rithöfunda og tónlistarmanna.
Útgáfufyrirtækið Smekkleysa
ætlar að standa fyrir samkomu í
íslensku óperunni annað kvöld,
undir yfirskriftinni orðið tónlist -
hátíð talaðrar tónlistar. Þar verð-
ur hvers kyns samslætti orða og
tónlistar fagnað og verður meginá-
herslan lögð á sjálft orðið en tón-
listin verður líka í stóru hlut-
verki.
Á hátíðinni mun koma fram
fjölbreyttur hópur erlendra og ís-
lenskra listamanna og er þar á
meðal að finna skáld og rithöf-
unda sem unnið hafa með tónlist-
armönnum og/eða tónlist. Einnig
munu koma fram tónlistarmenn
sem byggja verk sin á beinan eða
óbeinan hátt á bókmenntatextiun
eða tengja þau við orð og skáld-
skap með margs konar hætti. Með-
al erlendra listamanna sem fram
koma má nefna sópransöngkon-
una og tónskáldið Joan La Bar-
bara en hún hefur imnið með tón-
skáldum á borð við John Cage og
Morton Feldman, tónlistarmann-
inn og ljóðskáldið Elisabeth Belile
sem vakið hefur athygli í Banda-
ríkjunum fyrir ögrandi og djarfa
ljóðlist, jafnt í bókum sínum sem
hljóðupptökum.
íslenskir listamenn verða
einnig áberandi á sýningunni og
meðal þeirra eru Andri Snær
Magnason, Ásgerður Júníusdóttir,
Didda, Hallgrímur Helgason, Sig-
urrós og Steindór Andersen,
Sverrir Guðjónsson og Einar Örn
Benediktsson. Kynnir verður síð-
an söngkona Magga Stína. Fyrr
um um daginn munu Smekkleysa
og Reykjavíkur Akademían vera
með pallborðsumræður um tónlist
og textagerð sem fram fara á
ensku. Meðal þátttakenda í um-
ræðunum eru David Fricke, sem
er bandarískur tónlistargagnrýn-
andi, en hann hefur starfað fyrir
Femínistinn Elisabeth Belile hefur vakið mikla athygli fyrir djarfa og ögrandi
Ijóðatónlist en hún flytur líka svokallað slampoetry
tónlistartímaritið Rolling Stone,
og nafni hans, David Toop frá
Bretlandi, sem er blaðamaður á
tónlistartímaritinu Wire, en hann
mun einnig koma fram á hátíðinni
um kvöldið.
Hlutverk hátíðarinnar er líka að
vera einhvers konar markaðstorg
tónlistar og texta þar sem þátttak-
endur gætu haft útgefin verk til
sölu í anddyri hússins og/eða
dreift sínu efhi á annan hátt.
heimasíöa vikunnar
http://www.sosialurin.fo
3
*, 05 C
1
Sosdurin
Heimasíða vikunnar
er að þessu sinni
heimasíða færeyska
dagblaðsins Sosialur-
in. Það er alveg nauð-
synlegt að fylgjast með
því hvað frændur okk-
ar Færeyingar eru að
bralla, auk þess sem
skemmtanagildi síð-
unnar er í hámarki.
Það er algjör snilld að
lesa sumar fréttirnar á
síðunni, þær líta oft
ansi klúðurslega út.
Síðan sjálf er einfold í
notkun og mjög skýr.
Aðalsíðurnar skiptast
í: forsíðu, tíðindi, við-
merkingar, ítróttur og
veður. Ef við kíkjum á
helstu tíðindi úr Fær-
eyjum þá er „listin hjá
Miðflokkinum til
býráðsvalið í Havn um
at vera klarur , w
,ferðsluóhapp í Klaksvík tegar
tveir bilar fóru í knús“, „Birgir
Poulsen stóö fyrir vörumessuni
2000 um vikuskiftiö“ og loks „nú
er hún farin heim til Jesusar og
sloppin undan sjúku og pínu". í
___________________g*
-áis
íþróttunum er það helst að frétta
að „handboltspœlarin Inga F.
Danberg fer til royndarvenjingar
hjá ÍBV“ og svo er það mesta
snilldin að lokum; veðurspáin.
„Hann veksur vindin upp í hvass-
an vind millum landnyrðing og út-
nyrðing og œlingur, men eisini sól-
glottar. Hitin millum 6 og 10 stig. “
Kollegar okkar á Sosialnum fá
hæstu einkunn, ekki spurning.
12
f Ó k U S 6. október 2000