Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.2000, Blaðsíða 4
I
Tvíeykið atSngere er skipað þeim Halldórí
Björnssyni og Magnúsi Haraldssyni
en þeir munu koma fram opinberlega í
fyrsta skiptið á lcelandic Airwaves-
hátíðinni. Heiðar Sumariiðason hitti
þá að máli í fylgsni þeirra sem þeir
kenna við plánetuna Neptúnus og
forvitnaðist um hagi þeirra.
„Ég og Halldór hittumst fyrst í
gleðskap á Hverfisgötunni vorið
‘95,“ segir Magnús góðlátlega. „Það
var verið að drekka landa en ekk-
ert bland var til í húsinu, því var
hellt rúsínum út í hann til bragð-
bætis. Það var viðurstyggð. Það
var einmitt þá sem ég sá að ógur-
legan reyk lagði úr betri stofu
hússins og ákvað að kanna hvað
lægi að baki. Sat þar maður annar-
legur ásýndum með agalegan vind-
il-drjóla milli vara og tottaði hann
öllum til ama. Ég bað hann vin-
samlegast að drepa í garminum.
Hann svaraði mér fullum hálsi
með súrrealískri markleysu og
ótrúlegu bulli. Ég sá að hann var
ægilega bólugrafinn og fannst mér
hann ljótur. Ég spurði hann því
hvort hann hefði orðið þess var að
hann liti út eins og hor, þá var
engu líkara en að honum væri
skemmt því hann rak upp skað-
ræðis híenuvæl og spurði hvort ég
kynni músik, ég játti því og fór þvl
sem fór.“
Djönkað 80’s kókaín
Mikið vatn hefur runnið til sjáv-
ar síðan. Halldór er í dag blessun-
arlega bólulaus en í stað þess að
gráta bóluár Halldórs búa þeir fé-
lagar til tónlist undir nafninu atin-
gere. „Þegar við ætlum að búa til
tónlist setjiunst við niður og horf-
um djúpt í augu hvor annars, svo
gerist eitthvað. Við erum í raun
eins og tveir óþekkir strákar að
ýta á takka og æpa í míkrófóna.
Svo verður eitthvað til úr þessu
sem öðlast sjálfstætt líf,“ segir
Magnús og bætir við, „nema það sé
skíthæll því þá lógum við honum
vegna þess að við brennum kær-
leika, hjá atingere, ekki viðbjóð."
Þegar strákamir eru beðnir um
að lýsa tónlistinni kemur á þá smá-
fát og hefja þeir því mikil fundar-
höld um hvernig eigi að skilgreina
tónlistina. Ýmsar hugmyndir
koma fram en að lokum sættast
þeir á að þeir hafi þróast úr
„urban goth“ í „djönkað altemati-
ve 80’s electro kókaín", hvað sem
það nú þýðir.
„Það er heill hellingur af lista-
mönnum sem hefur haft áhrif á
okkur,“ segir Halldór og hefja
strákamir því næst heljarinnar
upptalningu á áhrifavöldum sem
inniheldur ólíka listamenn á borð
við Beethoven, Michael Jackson,
Underworld, Radiohead, Elvis,
Depeche Mode, Jeff Buckley,
Beach Boys og Bubba Morthens,
því er ekki um að villast að tónlist-
arsmekkur þeirra er breiður.
Villingurinn og nördið
Strákamir eiga það sameiginlegt
að vera báðir aldir upp í Garðabæ
en þar sem fimm ár eru á milli
þeirra lágu leiðir þeirra ekki sam-
an fyrr en þeir voru orðnir stálpað-
ir. Þeir hafa hins vegar gerólíkar
sögur af sjálfum sér að segja frá
æskutíð sinni. Magnús segist hafa
verið villingur á meðan Halldór
segist hafa verið nörd með bólur.
Sem bam segist Magnús hafa
verið rólyndur „rebel“ og neitaði
t.a.m að ganga í sokkum í heil
fimm ár. Halldór segist hins vegar
ekki hafa tekið þátt í neinni upp-
reisn heldur hafi hann spilað borð-
tennis af kappi og ávallt orðið ís-
landsmeistari í sínum aldursflokki
en hann hefur nú hins vegar í dag
lagt spaðann á hilluna.
Þeir drengir áttu sér stóra fram-
tíðardrauma sem börn. „Mig lang-
aði rosalega til að verða einn af
svörtu öpunum í Apaplánetxuini,
því ég dáðist af einfaldri fegurð
þeirra og hálfvitaskap," segir
Magnús og hlær í bamslegri ein-
lægni. Halldór átti sér ekki síður
háleit markmið því hann minnist
þess að þegar hann hafi verið lítill
hafi það verið draumur hans að
verða sjálfkynhneigður tvítóla
arabi sem gæti verið í sleik við
sjálfan sig alla sina ævi.
„Mér hefur alltaf þótt ég alltof
dekraður," segir Halldór en Magn-
ús vill ekki kannast við að slíkt hið
sama eigi við um hann sjálfan en
hann segist hins vegar vera týpísk-
ur islenskur mömmustrákur, án
þess þó að útskýra það nánar.
Handlegqsbrotinn í
Grindavík
Eftir að hafa verið að gutla sam-
an i tónlist um tíma urðu þáttaskil
í samstarfi þeirra þegar þeir settust
að í tómri verbúð í Grindavík og
hófu að semja af krafti.
Ekki hófst Grindarvíkurævintýr-
ið sem best því heimamenn voru
eitthvað ósáttir við aðkomumenn-
ina, hentu steinum í verbúðina,
blikkuðu bílljósum sínum inn um
eldhúsgluggann og smelltu í hagla-
byssunum til að hræða líftóruna úr
aumingja strákunum með svona sd-
mennum smábæjar-terrorisma.
„Þetta var einhver lenska í Grind-
víkingunum, því þetta voru bestu
skinn þegar við kynntumst þeim og
í dag filum við Grindavík í botn,“
útskýrir Magnús.
Sjálfsagt var það vegna hinnar
yfirvofandi hættu frá heimamönn-
um að jafn vel gekk að semja og
raun bar vitni, því mikið af lögum
strákanna varð til í Grindavík.
Einnig hjálpaði það til að Halldór
varð fyrir því láni að handleggs-
brotna á meðan hann var að vinna
í frystihúsi bæjarins og gat því
ekkert unnið um hrið. Þrátt fyrir
brotið gat hann nú samt spilað á pí-
anó.
„Að atvinnu erum við þunga-
vinnumenn sem skúrum og tæm-
um gáma á milli þess sem við semj-
um tónlist," segir Halldór og bætir
því við að öðru hverju semji þeir
einnig stef í augýsingar.
Airwaves og ungbarna-
handjárn
Á föstudaginn i næstu viku mun
atingere koma fram opinberlega í
fyrsta skiptið. Það mun verða á
Kafii Gróf ásamt hljómsveitunum
Nano, Headplugg og Stjömubliki
undir hatti Icelandic Airwaves-
tónlistarhátíðarinnar.
„Okkur finnst ekkert eins við-
bjóðslegt og ungbarnahandjárn.
Við sáum einu sinni svoleiðis og
okkur varð illt. Úr ryðfríu stáli,
með þungum hlekkjum, oj bara, al-
gjör viðbjóður, skyrp! Og þegar við
spilum þá erum við að mótmæla
notkun þeirra," segir Magnús.
Halldór bætir svo við, „og við
erum líka á móti hvolpabrennun-
um á Álftanesi, þær stríöa gegn
öllu velsæmi,“ segir hann með æð-
isglampa í augum.
„Frans í Ensíma og Krummi í
Mínus voru sammála okkur í
þessu og gengu þess vegna til liðs
við okkur fyrir þessa tónleika.
Frans ætlar að spila á gítar en
Krummi mun berja húðir. Við
erum allir sammála um að ekkert
sé jafn viðbjóðslegt og ungbarna-
handjárn og höfum því sameinað
krafta okkar í baráttunni gegn
þeim,“ segir Magnús af mikilli
sannfæringu hins réttláta.
Þegar talið berst svo að útgáfu-
málum segja strákamir að þeir séu
með plötu tilbúna en eigi hins veg-
ar ekki símaskrá og viti því ekki í
hvem þeir eigi að hringja.
Því er óljóst hvort geislaplata
með atingere verður komin í búðir
á næstu mánuðum. En hvort ágóð-
inn af sölu hennar rennur óskiptur
til baráttunnar gegn ungbarna-
handjámum og hvolpabrennum á
Álftanesi þegar þar að kemur mun
aðeins tíminn leiða í ljós.
[ Leikjaáskrift
SÍMINN-internet
-tengir þig við lifandi fólk