Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.2000, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.2000, Qupperneq 7
I tilefni af komu Islendings til New York í síðustu viku skelltu íslensku hljómsveit irnar Ensími, Jagúar og Páll Óskar sér til hins stóra eplis til að leyfa nú Könunum að heyra hvers vænta má á Airwaves- tónleikunum. Höskuldur Daði Magnús- son skellti sér með í för ásamt öðrum blaðamönnum og sjónvarpsstjörnum og komst að því að það er hægt að lenda í ýmsu í Vesturheimi. í víking í Vesturheimi Það var hress hópur sem var sam- an kominn í Leifsstöð á miövikudag- inn og tóku reyndar sumir daginn snemma við barinn og voru mættir þar þrem tímum fyrir brottfór. Þegar gengið hafði verið frá formsatriðum, eins og að versla í fríhöfninni og fylla út eyðublöðin fyrir inngöngu í Banda- ríkin, var hoppað út i vél og haldið af stað. Flugferð til Bandaríkjanna er náttúrlega eitt það leiðinlegasta fyrir- brigði sem getur hugsast þannig að það var sáttur hópur sem steig út úr vélinni á JFK. Reyndar tókst Franz, gítarleikara Ensími, að tapa einum af gíturum sínum en það skrifast auðvit- að á misvitra Kana á flugvellinum. Mandy sveik ísland Eftir að hafa komið sér fyrir á hinu sviksama Hotel Marcell voru það fimmtán karlmenn sem stormuðu nið- ur 2. Avenue i leit að mat og sumir áð meiri veigum. Nú höfðu flestir verið á fótum í um 20 tíma og því hélt meiri- hlutinn heim á leið eftir matinn en þeir allra hörðustu harðneituðu að gefast upp og tóku pöbbaröltið niður í Soho. Æstir aðdáendur hljómsveitarinnar Backstreet Boys höfðu safnast saman fyrir utan upptökustúdíó MTV í New York til að reyna að berja goðin augum. Á spjaldinu stendur að þau hafi farið á yfir 40 hótel til að reyna að hitta á þá og biðja vinsamlegast um að vera valin til að fá að sjá þá. Ensími voru að sjálfsögðu í stuði og léku öll sín bestu lög. Það var einmitt Guðni bassaleikari sem löggan í New York lét taka fimm armbeygjur. Páll Óskar var samur viö sig og hreif New York búa sannarlega meö sér. Lét hann þá strax vita að New York væri uppáhalds borgin hans. Föstudagurinn rann upp með 20 gráða hita og iðandi mannlífi. Um kvöldið voru fram undan stóru tón- leikarnir á Manhattanhöfn og auðvit- að var hugur tónlistarmannanna bundinn við verkefnið. Koma þurfti græjunum niður eftir, gera sándtjékk og alit þar fram eftir götunum. Þeir semekki þurftu að standa í þessu nýttu auðvitaö daginn til að kynna sér aðstæður á Manhattan. Sá er þetta ritar fékk sér langan göngutúr um helstu götur Manhattan með útsendara Radíó-X, Kristjáni Frosta. Þégáf komið var á Times Squ- are var augljóst að eitthvað gekk á fyrir framan upþtökustúdíó MTV. Við nánari athugun kom í Ijós að þar biðu æstir aðdáendur Backstreet Boys fyrir utan í von um að fá að berja goð- in augum. Hinum megin við götuna tók ekki síöra við því þar var ofurgell- an Mandy Moore að taka upp kynn- ingu fyrir MTV inni í miðjum mann- grúanum. Mandy þessi er talin sú þriðja stærsta í heiminum í smá- stelpnapoppinu, rétt á eftir Britney sjálfri Spears og Christinu Aguilera. Þegar blaðamaður Fókuss freistaði þess að fá að smella mynd af stúlkunni með Kristjáni Frosta tók umboðsmaður hennar í fyrstu illa í það. í annarri tilraun sannfærði blaðamannapassinn hann þó endan- lega og biðu litlu islendingarnir því spenntir eftir að Mandy lyki upptök- unum. Þegar þeim var lokið tilkynnti umboðsmaðurinn Mandy hvað til stæði en þá setti stúlkan bara nefið upp i loftið og strunsaði á braut - hún ætlaði sko ekki að splæsa tveimur aumum minútum í einhverja íslend- inga. Voru menn að sjálfsögðu ekki ánægðir með þessi viðbrögð og stutt- ur eltingaleikur endaði með illu augnaráði frá lífvörðum Mandy Moore, stúlkunnar sem sveik ísland. tóku sér stöðu fremst og flluðu þá greinilega vel. Endaði það reyndar svo að eftir að Jagúar hafði lokið sér af var setið fyrir þeim félögum af þessum sömu svertingjum sem áttu vart orð yfir frammistöðuna. Voru þeir svo leystir út með geisladisk Jagúar að gjöf og fóru sáttir heim í hoodið. Tveir aðdáenda Jagúars eftir tónleika þeirra. Þeir voru leystir út með geisladiskum. Næstur á svið var sjálfur Páll Ósk- ar og byrjaði hann á því að tilkynna viðstöddum að þetta væri í fyrsta skipti sem hann spilaði í uppáhalds- borg sinni i veröldinni. Páll Óskar stóð sig að vonum vel og geislaði hreinlega af honum á sviðinu. Voru áhorfendur greinilega mjög sáttir og voni ekkert á því að yfirgefa svæðið þó nokkur rigning væri farin að koma úr lofti. Það voru svo þeir Ensími-félagar sem kláruöu kvöldið og þurfti enginn að kvarta yfir þeirra frammistöðu. Öll lögiri sem fengið hafa að hljóma í útvarpi undanfarin ár voru spiluð og virtist engan bilbug vera á piltunum að finna. Áhorfendur dilluðu sér hressilega í rigningunni og meira segja títtnefndir svertingjar tóku kipp þegar hljómborð bættist í lögin. Ágætir tónleikar voru að baki og eft- ir að hafa komið hljóðfærunum á ör- uggan stað í gæslu vopnaðs manns var kominn tími til að fara að skemmta sér. Teknir af löggunni Thievery Corporation var með tón- leika á Manhattan þetta kvöld og höíðu Flugleiðamenn gengið frá aðgangi á þá fyrir allan hópinn. Þegar þangað var komið höfðu misvitrir Bandaríkja- menn hins vegar tekið upp á því að hleypa allt of mörgum inn þannig að lögreglan var komin í spilið og ekki var séns að komast inn. Stefnan var þá að sjálfsögðu tekin á pöbbarölt og end- uðu menn í misgóðu ástandi eftir það. Á fóstudaginn var mönnum frjálst að gera það sem þeir vildu og dreifðist hópurinn því um alla borg. Það var því ekki fyrr en um kvöldið að flestir hitt- ust og var þá safnast saman i herbergi Ensíma sem einhverra hluta vegna fékk stærsta herbergið. Upphófst þar ekta islensk kojudrykkja og skemmtu menn sér hið besta. Að sjálfsögðu var skundað í bæinn þegar leið á nóttina og þar fengu íslendingarnir að kynnast Kananum í hnotskum. Að sjálfsögðu þurftu menn að létta af sér á pöbbarölt- inu og að íslenskum sið tóku nokkrir upp á því að pissa einfaldlega utan í nærliggjandi vegg. Tveir úr hópnum vom bara ekki heppnari en svo að ómerktur lögreglubill átti leið hjá og ruku út úr honum nokkrir fílefldir karlmenn með mikilmennskubrjálæði yfir skjöldunum sínum að amerískum sið. Þeir Kristján Frosti af Radíó-X og Guðni úr Ensíma urðu því að gjöra svo vel að sitja undir einræðu lögreglu- mannanna í nokkrar mínútur, bíðandi örlaga sinna. Sem betur fer sluppu þeir við fangelsisvist og greiðslu sektar en löggumar vildu nú ekki sleppa þeim al- veg þannig að niðurstaðan varð sú að þeir urðu að fleygja sér í götuna og taka fimm armbeygjur fyrir meistar- ana. Svona em Bandaríkin í dag. Eftir þetta var nú mesta púðrið úr mönnum og heimfórin nálgaðist óðum. Á laugardag gafst smátími til að leika sér og varð Kínahverfið fyrir valinu hjá mörgum. Hópurinn hittist svo sátt- ur í lobbíinu um kvöldið og gerði sig kláran fyrir JFK. Þessi frægðarfór var á enda og allir vom sáttir, nema hvað leiðindaílugferð var fyrir stafni. Fönkararnir í Jagúar voru ekki lengi aö næla sér í aðdáendur í New York því hópur svertingja sat fyrir þeim eftir tónleikana yfir sig numinn. Svertingjarnir fíluðu Jagúar Þetta fimmtudagskvöld hófst með móttökuathöfn um borð í víkingaskip- inu Islendingi sem var að ljúka fræk- inni fór sinni. Að loknum ræðuhöld- um helstu fyrir- manna var boðið upp á mat og drykk og auðvitað var það sjálfur Siggi Hall sem sá um að upp- varta liðið. Upphaf- lega planið hafði ver- ið að Ensími byrjaði tónleikana en fljót- lega var horfið frá því þegar í ljós kom hver meðalaldurinn var á skipinu. Jagú- armenn stigu þvi fyrstir á svið og hófu að framreiða fónkið ofan í liðið. Eftir stutta stund höfðu þeir komið fólkinu í girinn og leið ekki á löngu áður en fjöl- Táningastjarnan Mandy Moore var upptekin viö að taka upp kynningu fyrir MTV og harðneitaði að margir svertingjar stilla sér upp í myndatöku fyrir Fókus. 13. október 2000 f Ó k U S 7

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.