Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.2000, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.2000, Side 9
„Chloe þýöir upphaf lifsins, og er úr griskri goðafræði og Ophelia held ég að sé úr Hamlet. Svo er það auðvit- að rússneska eftimafnið. Afi minn er rússneskur og fLutti til Bandaríkjanna og amma min var þýsk-irsk. Þannig að ég er bara svona góður kokkteill," segir Chloe þegar hún er spurð um uppruna hins sérstæða nafns sem hún ber. Hún hefur engan sérstakan áhuga á að láta bendla sig við Árbæ- inn, en segist vera alin upp í Ártúns- holtinu. „Pabbi minn er Bandaríkja- maður, og á heima í New York. Ég flutti hingað 4-5 ára, en ég bý ailtaf hjá honum á sumrin. Þeim feðginun- um semur vel og raunar svo vel að Chloe segir hann hiklaust besta pabba í heimi. Móðir Chloe kynntist honum þegar hún starfaði í New York en þær Chloe fluttust síðar heim til íslands. „Mamma fór út til að taka þátt í Miss World eftir að hafa verið með í feg- urðarsamkeppni á íslandi," segir Chloe og það er greinilegt að fegurðin er ættgeng í þessari fjölskyldu. Djammað með Puff Daddy Pabbi Chloe heitir Mark Gorbulew og er frægur plötusnúður. „Hann vinnur á klúbbi og er að gera það gott. Hann ætlar að gefa út geisladisk á ár- inu,“ segir hún. „Hann átti að fá samning hjá fyrirtækinu sem Móa var hjá, en nú er þetta meira eitthvað underground (undir grund).“ Sjálf segist Chloe ekki halda að skifuþeyt- ingamar eigi við sig. „Pabbi hefur oft reynt að kveikja áhuga hjá mér og svo er Guðný vinkona mín alltaf að bjóð- ast til að kenna mér, hún er teknóplötusnúður." Síðasta sumar vann Chloe fyrir sér á japanska veit- ingastaðnum Hamptons, á Long Is- land, í stóra eplinu New York. „Þessi veitingastaður er frábær og með þeim vinsælustu. Ég vann við móttöku gesta," segir hún. En ef þetta er vinsæll staður, kem- ur ekki þangað vinsælt fólk? „Jú, jú, það er nú eitthvað um það að frægt fólk snæði þarna,“ svarar Chloe, en er hógværðin uppmáluð. Eftir miklar fortölur fæst hún þó til þess að tjá sig um þessi mál. „Ég hitti Robert De Niro þarna og Sarah Jessica Parker kom einu sinni með kærastanum sínum Matthew Broderick. Þau voru alveg rosédega „næs“, ég talaði svolítið við þau. Hún hafði reyndar eitthvað meitt sig í öðru auganu og var með lepp fyrir því. Ég sá svo líka eitthvað af stjöm- um í partíi hjá Puff Daddy. Ég fór þangað með pabba mínum og kon- unni hans og svo fóra þau og ég varð bara eftir með vinkonu minni. Puff heldur alltaf þrjú partí á sumri og við fórum í „4th of July party“ hjá hon- um, það var ógeðslega kúl. Ég spjail- aði ekkert við Puff sjálfan en vinkona min þekkir hann eitthvað. Reyndar hef ég alveg mjög lítið álit á þessum manni og mér var alveg sama um að hann væri þarna. En daginn eftir fór- um við í partíið til rapparans Jay-Z og þar var fólk eins og Sandra Bull- ock og Ivana Trump. Busta Rhymes var í báðum partíunum, en hann var útúrþunnur seinna kvöldið. Hann var með einhverjum fleiri röpp- urum fyrra kvöldið, og við höföum öll farið á einhvem klúbb. Þar voru þeir allir að reyna að príla upp á sviðið til að rappa en gátu það eiginlega ekki af því að þeir voru svo fullir," segir hún og fullyrðir að fleiri krassandi sögur kunni hún ekki af kynnum sínum við stórstimi vestanhafs. Byrjaði sem bondstúlka Chloe hefur vakið á sér athygli sem fyrirsæta og prýtt forsíður nokkurra blaða, svo sem á Vikunni og Bleiku & Bláu. Allt hefur þetta gerst á til- tölulega stuttum tíma. „Ég byrjaði hjá Eskimó fyrir ári og nokkrum dögum síðar fékk ég verkefrfi í tengslum við kynningu á James Bond-mynd.“ Spurð um fyrirsetur í New York seg- ist hún lítið hafa reynt að koma sér á framfæri þar. „Ég fer bara út til að slappa af. Módelbransinn er allt öðru- vísi þar. Ef maður ætlar að fá verk- efni þarna úti verður maður að vera nákvæmlega einn og áttatíu og fimm- tíu kíló. Ég eiginlega nenni ekki að standa í þessu." Aðspurð hvort fólk sé farið að veita henni athygli þegar það hittir hana á fómum vegi segir hún lítið um slíkt. „Einstaka ógeðsleg- ir kallar gripu í mig og sögðu við mig að þeim hefði þótt ég sexí á forsíð- unni, eftir að ég var framan á Bleiku & Bláu.“ Fílar teknó Sumir kynnu að kannast við snoppuna á Chloe, eftir að hafa lagt leið sína á Thomsen, en þar vann hún part úr síðasta vetri og segir staðinn oftast verða fyrir valinu ef hún ætlar að lyfta sér á kreik. Þannig að ég var alltaf þama, hvort sem ég var að vinna eða ekki og fólk var farið að líta á mig eins og hvert annað húsgagn. Þá hætti ég að vinna þar,“ segir Chloe. Hún er þó ekki al- veg hætt að sjást á Thomsen og segir engan annan stað henta sér. „Ég er ekki svona týpa sem klæði mig í pínupils og fer á Skuggabarinn eða Astró. Þarna þekki ég líka alltaf fólk- ið. Mér finnst hundleiðinlegt að fara út að skemmta mér úti í löndum, af því að þar þekkir maður engan. Mað- ur fer út á djammið til að hitta fólk. Ég fíla teknó og mér fmnst gaman að dansa á Thomsen. Samt er það oft svoleiðis að það er bara „ógeðslegt- dópista-sveitt-ógeð“ niðri, þetta er bara viðbjóðslegt stundum," segir hún um skemmtanalif sitt. Varð að loka heimasíðunni Chloe stundar nám við Fjölbraut í Ármúla, á upplýsinga- og tölvufræði- braut. Hún hefur fengist lítillega við heimasíðugerð i tengslum við námið og heldur nú úti einu íslensku síð- unni tileinkaðri rapparanum föla, Eminem. Hún segist nefnilega hafa gaman af hip-hop tónlist, eða eins og hún orðar það sjálf: „Ég var algjör skoppari þegar ég var lítil og fylgist enn þá mikið með Dr. Dre, Snoop Dogg, Little Kim og auðvitað Eminem.,Chloe hefur ekki nógu góða reynslu af þessu internetbrölti, eftir uppákomu sem tengdist hennar eigin heimasíðu og hún segir frá. „Ég setti upp siðu fyrir síðasta sumar, á með- an ég var í prófum. Ég var bara að leika mér. Setti einhverjar myndir af mér og myndir af vinum mínum. Ég átti eftir að setja fullt af dóti á síðuna, áhugamál mín og svoleiðis. Eftir svona tvær vikur var ég búinn að fá 2500 heimsóknir, og það er ekki einu sinni hægt að finna hana með leitar- vélum. Ég var úti og neyddist til að loka henni. Þá var ég búin að fá fullt af leiðinlegum kommentum í gesta- bókina, um hvers konar rusl og ógeð ég væri. Svo var annað fólk að segja: „meiri myndir, meiri myndir, þú ert geðveikt flott“. Það var ekkert þarna á milli. Þetta var bara vangefni," seg- ir vefarinn og hneykslast á fólki sem hefur svo lítið við tímann að gera að það nenni að standa í svona sending- um. Hún kann engar skýringar á þessum vinsældum en hafði af því veður að tengil á síðuna væri að finna á svokölluðum Gellugagna- grunni íslands. Húðflúruð fyrirsæta Eitt helsta áhugamál Chloe er húðflúr og ef heimasíðan verður opnuð aftur ætlar hún að fjalla þar sérstaklega um þau. „Mér finnst bara kúl að pæla í tattúum, en ég get ekki fengið mér fleiri. Ég er með fimm og það er eiginlega allt of mikið,“ segir hún. En skemma húðflúrin ekki fyrir henni möguleika á fyrirsætuverk- efnum? „Ég veit það ekki, og mér er eiginlega alveg sama, þú veist, annaðhvort vilja þeir mig eða ekki,“ segir gellan og yppir bara öxlum við. Hvað framtíðin ber í skauti sér fyrir Chloe segir hún alls óvisst. „Það er svo mikið sem maður get- ur gert. Ég var byrjuð að læra ljósmyndun, svo langar mig að verða fatahönnuður. Ég fór og skoðaði skóla úti, F.I.T, Fashion Institute of Technology. En ég kann eiginlega hvorki að sauma né teikna, ég er bara með fullt af hugmyndum í kollinum. Mig hef- ur einnig alltaf langað til að verða leikkona. Ég er nefnilega rosalega athyglissjúk," segir hún og hlær við. „Ég hef aldrei leikið áður, en það væri gaman að prófa,“ segir þessi annars óakveðna stúlka ákveðnum rómi. 13. október 2000 f Ó k U S 9

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.