Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.2000, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.2000, Síða 13
inna & vel og endaði með að ná platínu- sölu. Adidas-rokkið var fyrsta rokk- stefnan sem tileinkaði sér gesta- gangsæðið sem löngum hefur rikt í kringum rappgeirann. Limp Bizkit voru svo sannarlega gestrisnir og má ætla að nöfn Method Man, Jonathan Davis, Scott Weiland og DJ Premier úr Gang Starr, hafi gert sitt til að vekja athygli á Signi- ficant Other. Þeir eru þó ansi hreint liðlegir á eigin spýtur og rokk/rapp/hiphop-kokkteUl þeirra hefur lagst afskaplega vel I lýðinn. Upp á síðkastið hefur titillag Mission Impossible II verið upp um alla lista en þar fara strákarnir afskaplega vel með þetta gamal- gróna stef. Vinsældir þess hljóta að teljast vel unninn undirbúningur fyrir nýju plötuna sem er að detta í búðir og er örugglega drekkhlaðin góðum gestum sem ég kann engin deili á að svo stöddu. Maður augnabliksins Fred Durst verður að teljast sér- kafli í Bizkit-fræðunum og jafnvel þótt bandið liði undir lok þá held ég að hann sé búinn að ávinna sér var- anlegan sess í bransanum. Auk þess að reka kexverksmiðjuna hefur hann unnið við að þefa uppi bönd fyrir Flip Record-útgáfuna og land- aði til að mynda hljómsveitinni Staind sem einhverjir kannast ef- laust við. Hann stjómaði upptökum á annarri plötu félaga sinna í hljóm- sveitinni Cold og hefur líka leik- stýrt nokkrum myndböndum eigin sveitar og hannað sviðsmynd fyrir tónleikaferðir. Þá eru ótaldar heim- sóknirnar en Durst hefur sungið inn á lög með Kom, Videodrone og Soulfly, svo einhverjar séu nefndar. í dag er hann háttsettur hjá Interscope-útgáfunni, sem einmitt hefur Limp Bizkit á sínum snær- um, og rífst við aðrar stjömur gegnum fjölmiðla og „dissar" réttu aðilana. Einhverjar sögusagnir em á kreiki um að hann eigi kvik- myndahandrit í handraðanum þó ekkert sé opinbert. Svo mikið er víst að Fred Durst er einn af mönn- um augnabliksins og virðist ætla að njóta þess fyllilega. Útlit er fyrir að hann leytl hljómsveit sinni náð- arsamlegast að fljóta með. Þeir eru ófáir sem halda að Fred hafi hreinlega tattúerað sig inn í framlínu tónlistarsenunnar sem hljómsveitin tilheyrir. Söngvarinn síkáti vann nefnilega alfarið við þá listgrein lengi vel og þakti meðal annars Jonathan Davis og fleiri mæta menn af hans sauðahúsi. Þó er það nú svo að allt byggist þetta á vinnusemi (eða það segja þeir). Bandið samanstendur annars af gítarleikaranum Wes Borland, trommaranum John Otto, bassa- leikaranum Sam Rivers og plötu- skrímslinu DJ Lethal, auk forystu- sauðsins fyrrnefnda, Fred Durst. Ekki hafa samböndin í iðnaðinum skemmt fyrir þegar lagt var af stað, en það gerii sveitin í krafti plötu sem hún kallaði Three Dollar Bill. Sú þótti hin ágætasta og vakti þónokkra athygli sem magnaðist enn frekar þegar Durst heimsótti Kom-liða í laginu All in the Family sem varð gríðarlega vinsælt. George Michael örlaga- valdurinn Það má alveg ímynda sér dæmi- gerðari örlagavald til handa Limp Bizkit en glassúrpopparann Geor- ge Michael. Þó er það nú svo að það að útgáfa þeirra af lagi hans, Faith, varð vendipunktur í sögu sveitarinnar og vel það. Þarna haföi fólkið fengið eitthvað að syngja með og nóg var framboðið af tónleikum þar sem hljómsveitin gaf ekki löngu seinna út plötuna Signiflcant Other og túraði látlítið í kjölfarið. Strákarnir tóku þátt í bæði Ozzfest- og Family Values- tónleikaferðunum og hrúguðu inn stigiun. Platan seldist afskaplega Búnir ,að varanlea bran SÍBiBX plötudómar h vaöf fyrir hvernf ^t^öVe^n^cPi^r' niöurstaöa ★★★★ Fiytjandi: Radiohead Platan: Kid A Útgefandi: EMI/Skífan Lengd: 49:59 mtn. ★ ★★ Flytjandi: Blek Platan: Ink Útgefandi: Ba Da Bingl/Surefire Lengd: 42:12 ★ ★ Flytjandi: KuSa piatan: En gaman Útgefandi: Kýrhaus Lengd: 39:54 ★★ . Flytjandi: YmSÍr Platan: KllStUr Útgefandl: NME - 2000/Ný-ung Lengd: 51:36 ★ ★★ Flytjandl: Placebo Platan: Black Market Music Útgefandi: Virgin/Skífan Lengd: 55:48 Þá er hún loksins komin, nýja Radi- ohead-platan. Kid A er örugglega ein af þeim plötum sem beðiö hefur veriö eftir meö hvaö mestri óþreyju I popp- sögu síöustu ára. Hún kemur þremur árum á eftir meistaraverkinu OK Computer. Blek samanstendur í raun af einum einstaklingi, Paul Lydon, sem sér sjálf- ur um allan hljóöfæraleik og söng á Ink. Söngur er kannski dálítiö sterkt orö í þessu samhengi þvl oft finnst manni sem Lydon sé einungis að lesa upp Ijóð yfir tónsmíðar sínar. Tengsl lags og söngs eru yfirleitt lltil og stund- um virðast þau rofna meö öllu. Til bráðabirgða og með töluveröum fýr- irvara skulum við kalla Kusu pönk- hljómsveit. En gaman er ellefu laga plata og sveitinni tekst misvel upp við aö koma þessum lögum til skila. Eina stundina veit maður ekki hvort Kusa ætlist til að vera tekin alvarlega og þá næstu hugsar maöur: „Helv. er þetta efnilegt." Þann 15. júlí síðastliðinn kom út safndiskurinn Klístur og að útgáfunni stóðu Nemendafélag Menntaskólans á Egilsstöðum ásamt félagsmiðstöð- inni Ný-ung. Að sögn útgefenda er til- gangur útgáfunnar sá að kynna nokkr- ar af þeim fjölmörgu frambærilegu hljómsveitum sem Austurlandið hefur upp á að bjóða. Þriðja breiðskífa hljómsveitarinnar Place- bo sem samanstendur af gítarleikaran- um og söngvaranum Brian Molko, bassa- leikaranum Stefan Olsdal og trommaran- um Steve Hewitt. Samanstendur af Bandaríkjamanni, Svla og Englendingi. Skemmtileg blanda af ólíkum karakter- um sem hefur svo sannarlega sérstæðar tónlistarlegar afleiðingar. Með plötunum The Bends og OK Computer varð Radiohead eitt af stærstu nöfnunum I rokkheiminum. Önnur hver ný hljómsveit á markaðn- um I dag hljómar svolltið eins og Radi- ohead, þannig að það eru margir spenntir fyrir plötunni. Þeir sem vilja hrein og bein gítarrokklög gætu þó orðið fyrir vonbrigðum. Helst dettur mér I hug að líkja Ink við myrkari tónsmíöar The Doors og Velvet Underground. Ljóðastlll Morrisons ger- ir ótvírætt vart við sig á Ink og auk þess eru raddir þeirra Lydons og Reeds glettilega líkar. Auk ofan- greindra áhrifa mætti einnig benda á nærtækari tónlistarmenn á borð við Tori Amos (Go For Beginners). Helst fyrir þá sem hafa einlægan áhuga á grasrót íslenskrar tónlistar- menningar. Ótal. áhrifavaldar virðast gera vart við sig á plötunni og mætti þar helst nefna Pixies, Sonic Youth, Primus, Botnleðju og Sykurmolana sálugu. En gaman - áhugaverður kokkteill af rokki, fönki og svo pönki I ýmsum myndum. Meginuppistaða Klfsturs er rokktónlist I mismunandi þyngdarflokkum. Á plöt- unni er að finna sex hljómsveitir sem deila á milli sín ellefu lögum. Þær eru Spindlar, Öfund, Hroðmör, Shape, Duld og Attanloss. Eðli málsins sam- kvæmt er platan sundurleit og gæði tónlistarinnar breytileg. En Klístur er rokkplata engu að síður. Hver sá sem filar Ziggy Stardust Bowie plús dass af pönki og úrkynjun ætti að geta tengt við þessar afurðir. Forsprakk- inn Brian Molko er ekki alveg búinn að staðsetja sig sem kynveru og lýrikin oft vangaveltur tengdar kynlifinu, dópi eða jafnvel hreint og klárt bull, sem þó rím- ar. Þetta er drífandi og vafasöm múslk, á því leikur enginn vafi. Þrjár kenningar: 1. Meðlimir Radi- ohead vildu gera eitthvað nýtt en vissu ekki né voru sammála um hvað og þess vegna er útkoman svona skrýtin. 2. Radiohead er að spila með aödá- endur. 3. Kid A er verk hljómsveitar sem er I blóma og veit nákvæmlega hvað hún er að gera. Hvað heldur þú? Paul Lydon hefur áður gefið út verk á borð við Sanndreymi, Red Nubble Signal og auk þess vann hann tvö lög ásamt Craig Flanigan úr God is My Co- Pilot svo eitthvað sé nefnt. Heimasíð- ur Lydons: paul@blekink.com og á íslensku: blekink.com/is. „Listamenn ættu ekki að reyna að bæta og breyta. Þeir eiga einungis að bera vitni," stendur innan I umslagi plötunnar og vitnar sveitin þar I þýska myndlistarmanninn Otto Dix sem upp- lifði tvær heimsstyrjaldir. Hvers Kusa ber vitni er áhugavert íhugunarefni. Net- föng sveitarinnar: kyrhaus@simnet.is eða kusa@here.is. Eskiflöröur er yndislegur staður og tala ég þar af reynslu. Ég held meira að segja að ég hafi búið þar skamma stund meðan ég notaði enn þá bleyjur og snuö - en ég þyrfti helst að spyrja mömmu til staöfestingar. Ég á þó tölu- vert af skyldmennum þar og hver veit nema einhver af Klístrinu skipi þann hóp? Þegar David Bowie las viðtal við strák- ana þar sem þeir lofuðu hann óspart og viðruðu óskir um að vinna með honum hafði hann auðvitað samband við þá um hæl. Þeir buðu honum að velja sér lag af Pure Morning-plötunni sem þá var nýlega komin út og lagið Without You l'm Nothing leið svo sannarlega ekki fyr- ir aðstoð granna hvíta greifans. Þessi plata er sambland af hefðbund- inni Radiohead-uppskrift og nýjum hlutum, þar sem þeir eru að reyna fyr- ir sér með raftónlist. Að mlnu mati hefðu þeir aö ósekju mátt ganga lengra I tilraunamennskunni en útkom- an er samt flott plata. 7 lög af 10 eru góð og 7 góð Radiohead-lög er ekki vont mál. trausti júlíusson Líkt og þegar hefur verið minnst á er Lydon myrkur I sínum tónsmlðum. Óm- strlðnin er nánast gegndarlaus og textagerðin virkar á mann sem óreiðu- kennd. Ink er ekki auðvelt verk en und- ir réttum kringumstæðum getur hún verið mjög skemmtileg. Og þá helst bara lítið I einu. Auðveldustu titlarnir: Go For Beginners og Don't Take Too Long. hilmar örn óskarsson Platan er mistæk. Að mínu mati hefði sveitin betur látið Presley og Dylan (In The Ghetto og Up to Me) eiga sig og einbeitt sér þess I stað nánar að eigin efni. Titlar á borð við Mér finnst, Snjór, Disaster og 500 kallar eru skemmti- lega samansettir en það vantar tölu- vert upp á þegar heildin er annars veg- ar. hilmar örn óskarsson Spindla og Shape tel ég vera metnað- argiörnustu sveitirnar. Shape eröflug sveit en þyrfti að íhuga betur tónsmíð- arnar. Hroðmör djöflast og gerir það þokkalega. Duld byrjar vel með skemmtilegum Placebo-gltarleik en botninn dettur skjótt úr laginu. Öfund virkar stefnulaus og textagerðin er ekki að virka. hilmar örn óskarsson Placebo er ein þessara sveita sem alltaf eru aöeins sér á parti. Hér dufla þeir meira viö nútimann en vanalega, saman- ber Chemical Brothers lúppuna I fyrsta smáskífulaginu Taste in Men. Talsvert ber á forritunum og rappari kíkir I heim- sókn en allt er þetta á þeirra forsendum. Fin plata og rökrétt skref I framþróun sveitarinnar. kristján már ólafsson Íatur 13. október 2000 f ókllS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.