Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.2000, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.2000, Síða 14
slæma, og þeim átti eftir að fjölga. j>eg- ar ég spyr hann hvort lifið sé enn þá tekið á fnllu rokki þá hikar hann örlít- ið. „Ehmm, ég er allavega orðinn ögn skipulagðari (hlátur). Málið með að vera í bandi er að eftir því sem þú ger- ir það lengur fara þær hliðar sem þess sem ekkert hafa með tónlistina að gera að skipta minna máli, um leið eykst vægi þess sem lýtur að tónlistinni. Hversu þroskaðir sem menn eru þegar þeir detta inn í þennan heim þá eru alltaf hlutir í boði sem hafa ekkert með tónlistina að gera en menn taka þá samt inn, allavega var það svo með mig þegar ég var 22-23 ára. Síðan kem- ur að því að menn átta sig á að það er Vantar týpur í bransann Hann fylgist glöggt með senunni en er ekkert voðalega hrifinn af stöð- unni í breskri tónlist um þessar mundir. „Ég sakna þess að fram komi furðufuglar sem ná að höfða til fólks, gæjar eins og Marc Bolan og Jarvis Cocker, það vantar týpur í bransann. Árið hefur einkennst af íhaldssömu og þurru poppi og mér finnst það sorglegt." Við leiðumst út í almenna hneykslan á framleiddum poppstjörnum, sölu á ímynd og útliti í pakka með innihaldslausu, niður- soðnu poppi, fuss og svei og ulla- bjakk. Það er alltaf gaman að vera sammála frægu fólki... Um tíma leit alls ekki vel út með að ná görpunum, en óskin var auð- vitað að ná tali af rúskinnsrengl- unni Brett Anderson sem er ótví- ræður forsprakki sveitarinnar. Stúdíóið sem þeir eru að vinna í er lengst uppi i sveit, að mér er sagt, og mig var farið að gruna að þar væru menn ekkert að standa í að halda úti nýmóðins tækjum á borð við síma. Um síðir fann bréfdúfa þó staðinn og málið leystist, Brett hreinlega hringdi í mig. Það hefur líklega ekki dulist að ég var dálítið upp með mér að fá að tala við hann, en hann virkaði mjög róleg- ur og viðkunnanlegur, alls ólíkur því sem ég hafði ímyndað mér (eins og gjarnan vill verða). Plata í mótun Það lá beint við að forvitnast um hvernig gengi með plötuna sem þeir eru að vinna og stóð ekki á svörum. „Megnið af þessu ári höfum við verið að semja og erum komnir með kring- um 20 lög. Það er að verða kominn timi á að velja 10 þeirra og fara að leyfa einhverjum að heyra.“ Ég geri ráð fyrir að við verðum hklega tO- raunadýr og hann jánkar því. „Þið komið til með að heyra mikið af nýju efni, við erum búnir að vera að æfa undanfamar vikur og hlökkum til að heyra hvað öðrum flnnst. Það erfiðasta við að loka sig svona af við lagasmíðar er að við erum einir um að gagnrýna, við þurfum að fá vottun, ef svo má segja, frá utanaðkomandi aðilum." Útgáfudagur er eitthvað sem ekkert er farið að ræða. „Ég býst við að það skýrist á íslandi, ef ykkur hst ekkert á þetta þá verðum við að byrja upp á nýtt...“ (Við hlæjum að tilhugsuninni um opinbera aftöku uppi á íslandi.) Talið berst að því hver muni „pródúsera" gripinn en slíkt er einmitt í skoðun í augnablikinu, hann útilokar þó að Ed Bueller komi aftur. (Ég þakka I hljóði fyrir að þeir skuli hafl sagt skilið við Steve Osmond sem sá um þá síðustu). „Við emm að skoða ýmsa að- ila, ég er alveg á því að vinna með óliku fólki, það gefur nýja vídd að fá nýjan aðila að verkinu. Að því gefnu að hann sé á svipaðri bylgjulengd og við.“ Orðinn skipulagðari... Ég man ailtaf greinilega hve það geislaði af honum á sínum tíma að hann yrði frægur þegar Suede spratt fram með samnefnda plötu 1992. Þá þegar hafði hann tileinkað sér marga tilburði rokkstjörnunnar, góða og ástæða fyrir þvi að þeir eru í þessu, hún er sú að fóiki líkar tónlistin og það er nauðsynlegt að leggja rækt við þá sköpun. Ég er mun rólegri í dag.“ En hvað skyldi þá gert við tímann sem fer í Suede, það kemur upp úr dúrnum að megnið af tíma hans fer í að spá í tónhst. „Ef ég er ekki að búa til músik þá er ég að kaupa músík. Ég kaupi mörg hundruð plötur á mánuði, fer ekki á skíði eins og sumt fólk... (hlátur).“ Ég viðurkenni að geta ómögulega séð hann fyrir mér í shku. ...Ég á eiginlega engin... áhugamál, það er hræðilegt! (meiri hlátur). Ég horfi mikið á kvikmyndir og svoleiðis en félagslíflð snýst mestmegnis um tónlist líka.“ Hljómsveitin Suede er íslendingum að góðu kunn þó svo hún sé ekki í hópi þeirra sem teljast til persónulegra vina. Svo verður þó ekki lengi þar sem þeir eru væntanlegir að spila á Airwaves-hátíðinni. Það athyglisverðasta er að þetta eru einu tónleikar sveitarinnar á árinu þar sem meðlimir eru önnum kafnir við að leggja drög að næstu plötu. Eftir fjölmargar tilraunir náði Kristján Már Ólafsson tali af Brett Anderson söngvara. ' 14 f Ó k U S 13. október 2000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.