Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.2000, Qupperneq 9
Ifókus
Vikan 13. október til 19. oktéber
J-í-LiA
L B Y T N N II
B
Adam Freeland er vel
þekktur tónlistarmaður
og plötusnúður í
Englandi. Hann hefur
meira að segja komist
í Heimsmetabók
, Guinness fyrir að finna m
, , . , csrfmrtt
upp a nyrri gerð ton-
listar, „genre“.
Á laugardagskvöldið
verður Adam í kjallaran-
um á Kaffi Thomsen.
Fríríki á
Thomsen
Adam Freeland kemur til með
að spila í annað sinn á íslandi á
laugardaginn. Hann spilaði á
Thomsen í sumar og líkaði víst
dvölin svo vel að litlu munaði
að hann missti af vélinni heim.
Adam er háttskrifaður á
heimslista plötusnúða og gerir
sér vonir um að verða efstur á
heimslistanum innan fimm ára.
Hann er líka vinur Normans
nokkurs Cooks sem er betur
þekktur sem Fat Boy Slim.
Adam er metnaðargjarn tónlist-
armaður og dreymir um að gera
listræna plötu í ætt við Leftism
hljómsveitarinnar Massive
Attack. Hann segist vilja semja
góða tónlist sem þrátt fyrir það
muni höfða til almennings.
Adam segir einnig að gaman
væri að fá að semja tónlist fyrir
kvikmyndir. Hann heldur mikið
upp á kvikmyndina Pí þvi tón-
listin í henni samanstóð af
miklum „breikum“ og
„drum’n’bass" sem sverja sig í
ætt við tónlist Adams sjálfs.
Hann segist helst myndu vilja
semja tónlist fyrir myndir Tar-
antino og Cohen-bræðra en þó
ekki síður svo sem eins og eina
Star Wars-mynd. Honum fannst
hlutar nýjustu Star Wars-mynd-
arinnar líkjast mikið þeirri tón-
list sem hann semur, „brjáluð
„sc-fi“ hljóð sem enginn hefur
heyrt áður“.
Þrátt fyrir metnaðargirnina
er Adam samt sem áður óskap-
legur rólegheitagaur sem veit
ekkert betra en að „chilla”.
Hann segist alls ekki vera neinn
hippi en finnst hins vegar mjög
leiðinlegt að við skulum búa í
heimi þar sem hugmyndafræði
hippanna um ást og frið þykir
ekkert annað en þreytt klisja,
„Þetta er það sem lífið ætti að
snúast um.“
Á meðan Adam þeytir skífur í
kjallaranum á Thomsen á lauga-
dagskvöldið mun annar þekktur
þeytir að nafni Leo Yong sjá um
að halda dansgólfinu pökkuðu á
efri hæðinni. Leo Yong hefur
komið nokkrum sinnum áður
til íslands og snúðast á Thom-
sen við glimrandi undirtektir.
Reykjavíkin mín
Guðrún Sóley Gunnarsdóttir, fótboltakona í KR.
flORGUNHATUR
■ BAKARAMEISTAR-
INN SUÐURVERI
Ég myndi fara I Bak-
arameistarann Suöur-
veri og kaupa mér eitt-
hvað gott í morgun-
mat. Þetta er besta
bakaríið í bænum -
ótrúlega gott brauð og
bakkelsi þar.
HÁDEGIS -
VERDUR:
■ HARDROCKCAFÉ
HEILSA:
■ ÞOKKABÓT
Á veturna æfi ég þrisvar í viku I
Þokkabót og tek hraust-
lega á þv! með stelp-
unum i KR-liðinu.
■ KR-VÖLLURINN
K Þar æfum við í KR-
I liðinu bæði á vet-
urna og sumrin og
eyði ég flestum mín-
um stundum á KR-
svæðinu.
* -
Hard Rock Café
stendur fyrir sínu í há-
deginu. Maður fær
alltaf gott að borða þar. Ég
mæii sérstaklega með *»>
kalkúnasamlokunni.
KVÖLDVERDUR:
■ ÍTALÍA
Veitingastaðurinn Ítalía er staður að
mínu skapi. Þar er rosalega góðu
matur og er lambafille a la chef í
miklu uppáhaldi hjá mér.
ÚT Á DJAHHIfi:
■ SPORTKAFFl
Þar sem ég
er aðeins
19 ára göm-
ul stunda ég
enga sér-
staka staði.
Ég fer bara
þangað sem
vinahópurinn fer en ef ég fer eitthvað þá er
það kannski helst Sportkaffi.
RÓHANTÍK:
■ GÓNGUFERÐ ÚT Á NES
Mér finnst enginn staður rómantískari en
annar en það væri kannski helst að fara í
göngutúr út á Seltjarnarnes að kvöldlagi.
VERSLUN:
■ NIKE-BÚÐIN
Þar kaupi ég íþróttaföt og
vörur fyrir fótboltann. Gott
úrval og góðar vörur þar.
■ 12
Þegar ég fer í bæinn og
ætla að kaupa mér flott
föt þá verður verslunin 17
oftast fyrir valinu.
s! V
Þess hefur verið beðið í sextíu ár að fyrirtæki Walts heitins Disneys gefi
frá sér aðra fantasíumynd. Sú fyrri braut blað í kvikmyndasögunni með fallegum
stuttum teiknimyndum við undirleik klassískra tónverka. í kvöld sýna Háskólabíó og
Bíóhöllin Fantasíu/2000,
Fantasía/2000 samanstendur af átta stuttum
teiknimyndum. Hver þeirra segir sína sögu og
atburðarásin fellur að tónlistinni sem leikin
er undir. Tónverkin sem
spunnið er við eru frá tónskáld- ■
um eins og Beethoven, :
Gershwin, Shostakovich og
Stravinsky.
Myndirnar eru æði ólikar. í
einni þeirra er byggt á ævin-
týri H.C. Andersen um stað-
fasta tindátann en önnur lýsir átökum
góðs og ills, þar sem ýmis óregluleg form
leika aðalhlutverk. Ein umhverfisvæn
náttúrusaga flýtur með, dýrakaraival er
viðfangsefni annarrar, hvalir sem leika
lausum hala og daglegt stórborgarlíf er í
brennidepli í öörum. Ein saga úr hinni
upphaflegu Fantasíu er sýnd aftur hér. Það
er sagan um lærling galdramannsins. í
henni fór Mikki mús á kostum og öðlaðist
Tímalaus snilld
heimsfrægð fyrir. Nú fær
Andrés önd sitt tækifæri og
nýtt ævintýri búið til fyrir
hann. Árið 1940 var Fantasía
frumsýnd og rættist þar með
gamall draumur Walt Disney.
Sjálfur lýsti hann myndinni
sem tímalausu
verkefni, einhverju sem gæti lif-
að áfram. Honum þótti upp-
skriftin lofa góðu, bræðingur af
gríni og ímyndun, ballett og
drama. Hann reyndist sann-
spár, því upphaflega myndin lif-
ir enn góðu lífi. Hitt auönaðist
honum ekki, að gera eina
fantasíumynd á ári, líkt og
stefnt var að. Fyrirtækið lenti í
fjárkröggum og þurfti að einbeita sér að sölu-
vænni verkefnum. Myndin þótti mjög djörf til-
raun og margar nýjungar bárust með henni.
Hún varð til að mynda fyrsta myndin sem
sýnd var í víðóma hljómgæðum og hlaut fyrir-
bærið nafnið „Fantasiasound”. Þema
Fantasíu/2000 er nýtt upphaf á nýrri öld.
Margar stjömur koma fram,
líkt og Steve Martin, Bette
Midler, Quincy Jones, James
Earl Jones, Penn &Teller,
Itzhak Perlman og Angela Lans-
bury. Fjölmargir listamenn
koma að myndunum, en um-
sjónarmaður helildarmyndar-
innar er Donald W. Emst. Hann
er gamall jaxl hjá Disney og
framleiddi til dæmis Aladdin.
URSMIÐUR
Lpúgavegi 62- Sími: 551 4100