Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2000, Síða 6
Grátbreslegur
einmanal e i
I
„Ég byrjaði að skrifa verkið í vor
en hugmyndin fæddist þó fyrir tveim-
ur árum,“ segir Vala um einleikinn
sinn, Háaloft. Ágústa Skúladóttir var
valin til að leikstýra mér en þar sem
hún býr úti í Bretlandi áttum við til
að byrja með öll okkar samskipti á
Netinu. Þar skiptumst við á hugmynd-
um því viö bjuggumst við mjög stutt-
um æfingatíma. Það reyndist rétt því
við fengum aðeins 3 vikur til að vinna
leikritið saman.“
Meðan Vala skrifaði verkið tók hún
viðtöl við fólk sem þjáðst hefur af geð-
hvarfasýki, aðstandendur þess, geð-
hjúkrunarfólk og aðra sem að þessu
málefni koma og segir hún að allir
hafi verið mjög hjálplegir. Einnig las
hún sér til um sjúkdóminn.
„Að því loknu bjó ég til 14 brot sem
við Ágústa röðuðum saman í fyrstu
æfingavikunni. Síðan varð ég að
ákveða hvemig ég tæki á þessu því
þetta er mjög flókið og viðkvæmt efni.
Venjulega era verkin mín frekar grát-
brosleg, svartar komedíur, þar sem ég
er fyrst og fremst gamanleikari. Ég
ákvað því að halda mínu striki og
vinna þetta verk í þeim anda, ekki síst
vegna þess að húmorinn hefur í gegn-
um tíðina verið mikið notaður sem
baráttuform í mannréttindabaráttu."
Fallhlífarstökk og
flugnám
Vala segir verkið íjalla um unga
konu sem heitir Karítas. „Hún er bók-
menntafræðingur og, eins og margir
maníusjúklingar, þá hefur hún sem
dæmi prófað hluti eins og fallhlífar-
stökk og flugnám. Hún hefur stofnað
fyrirtæki, rekið gistiheimili í útlönd-
um og margt, margt fleira. Hún er eld-
klár, jákvæð og dugleg kona sem þarf
að kljást við sjúkdóm sem gerir það
að verkum að stundum fer ALLT úr
böndunum. Þá missir hún algjörlega
tökin á lífi sinu og situr svo eftir í
skuldasúpu, atvinnulaus og á endur-
hæfingarlífeyri frá stofnunum. Þrátt
fyrir að vera á lyfjum og oft í þokka-
legu ástandi er hún alltaf jafnhrædd
um að hún sé að verða veik.“ Þetta
segir Vala vera nokkuö sem flest fóm-
arlömb þessa sjúkdóms lenda mjög
gjaman í. Fólk geti verið heilbrigt í
mörg ár en nái aldrei að slaka al-
mennilega á. „Þess vegna fer fólk í
feluleik og margir tala um að þegar
þeir hafa náð sér upp úr þessu þá
„díli“ þeir við samfélagið með eins
konar jafnaðargeði. Þeir eru stimpiað-
ir svo miklir sjúklingar að ef þeir
segja skoðanir sínar þá eru þeir orðn-
ir veikir. Það er því erfitt fyrir alla að-
ila að ekki skuli vera samþykkt að
fólk skipti skapi.“ Þrátt fyrir þennan
alvarlega undirtón tekur Vala fram að
verkið sé samt kómedía. Hún segir
sýningar hafa gengið vel og uppselt á
flestar þeirra.
Þekkti sjúkdóminn
Vala segist hafa þekkt sjúkdóminn
nokkuð vel áður en hún skrifaði Háa-
loft.
„Ég missti vinkonu mína úr þess-
um sjúkdómi fyrir mörgum árum og
svo kom hann upp í fjölskyldunni
minn, þannig að ég þekki þennan
sjúkdóm mjög vel.“
Vala segir að í rauninni hafi fátt
komið henni á óvart varðandi sjúk-
dóminn þegar hún fór að leita upplýs-
inga fyrir leikritið.
„Það sem kom mér frekar á óvart
var hve margt sjúklingarnir eiga sam-
eiginlegt þó að það séu auðvitað alltaf
persónuleg afbrigði. I verkinu sér
Karítas ofsýnir en það er í raun mjög
lítil prósenta geðhvarfasjúklinga sem
verða svo langt leiddir í veikindum
sínum. Hins vegar eru fleiri sem til
dæmis missa vinnuna og eyða mikl-
um peningum. Margir verða líka oft
mjög sexí, geta „manipulerað" annað
fólk og sannfært það um hvað sem er
á vissu stigi maníunnar. Flestir eiga
þá sögu að hafa eignast marga
„partnera" því kynorkan verður svo
mögnuð. Einnig einkennir líka marga
ofboðslegur dugnaður og hrundið er
af staö fjölmörgum verkefnum sem
gjaman komast ekki í höfn.“
Samið eitt Ijóð
Háaloft er ekki eina höfundarverk
Völu. Hún átti til dæmis ljóð í Bók í
mannshafið, ljóðabók sem kom út 1.
janúar síðastliðinn.
„Ég hef samið eitt ljóð um ævina og
það var gefíð út í þeirri bók. Nú er
alltaf verið að minna mig á þetta ljóð,
segir Vala og skellihlær. „Þarna voru
líka tvær örsögur eftir mig. Þær voru
reyndar upphaflega mjög löng saga
sem ég stytti niður í tvær örsögur."
Vala lærði leiklist í listaháskólan-
um Breton Hall Collage í Leeds í
Bretlandi. Eftir námið stofnaði hún
ásamt Önnu Hildi Hildibrandsdótt-
ur og Ágústu Skúladóttur The
Icelandic Take Away Theatre.
Ágústa og Vala sömdu þar meðal ann-
tvífarar £--9
Jörg Haider, lelðtogi Frelsisflokks-
ins í Austurríki
Tvífararnir að þessu sinni eru afskaplega líkir menn en eiga þó ekki
margt sameiginlegt. Valur Heiðar Sævarsson er söngvari hljómsveitarinn-
ar Buttercup sem hefur sent frá sér lög eins og Endalausar nætur og
Hvenær. Jörg Haider hefur aftur á móti haslað sér völl í pólitíkinni í Aust-
urríki sem leiðtogi Frelsisflokksins sem komst inn í ríkisstjómina síðast
þrátt fyrir umdeilda stefnu flokksins. Valur er um þessar mundir að senda
frá sér plötuna Buttercup.is (næstum því eins frumlegt og Stjómin@2000) og
hefur farið sigurfór um landið i sumar en Jörg Haider stjómar Austurríki á
bak við tjöldin. Þótt það sé harla ólíklegt er allavega gaman að imynda sér
Haider blindfullan á sveitaballi, dansandi við Endalausar nætur.
Valur Heiðar Sævarsson, söngvari
Buttercup
Vala Þórsdóttirsr a:nafnasöm ung
!elkkcna sem eikur um þessar
mond ■' : e n'eiknum Háalofti í
ir Kaffileikhúsinu Háaloft er
■ . ncfjndar ;erk Völu sjálfrar og
';a ar um jjngu konuná Kar-
Agla Magnúsdóttir
r. :ti Völu snémma
mérguþs í Kaffi-
éikhúsinu ogjf
forvitnaöist um,
efni éinleiksíns
og ýmislegt
annað sem
Vala heíur
ars saman tvö leikrit sem heita
Lemon Sisters 1 og 2.
„1 þessu leikhúsi riðum við á vaðið
með því að sýna tvo einleiki eftir mig.
Sá fyrri heitir Eða þannig... og var
frumsýndur hér heima árið 1996 og
sýndur um það bil 200 sinnum. Hann
er svart-hvít kómedía og fjallar um
fráskilda konu sem mótmælir fordóm-
um og leiðindum og klæðir sig upp
sem hugmyndalistaverk." Vala fór
meðal annars með hann í leikför um
ísland og Bretland og sýndi hann auk
þess í Lettlandi, Finnlandi, Danmörku
og á Ítalíu.
„Hinn heitir Kíkir, súkkulaði,
fýlugufa og rusl. Sá fjallar um ofsa-
lega feita konu og rosalega mjóan
mann sem hittast eftir að hann hefur
unnið kiki í bingó. Manninum fer að
þykja vænt um þessa konu sem gerir
ekki neitt nema reykja og borða
súkkulaði. Það verk er, eins og í raun-
inni ÖU verk sem ég skrifa, um ein-
manaleika."
Af hverju ertu upptekin af einman-
leika, ertu einmana?
„Ég held að það sé alveg rosalega
mikiU einmanaleiki í heiminum. Mér
var nú aUtaf sagt að ég hefði fæðst
með tárin í augunum. Ég byrjaði held-
ur ekki að tala fyrr en ég varð sex ára
og var víst voðalega „lónlí“ þó ég eigi
fimm systkini," segir Vala og skeUir
upp úr.
Passa ekki inn í
sjónvarpið
Vala segist í fyrstu aUs ekki hafa
ætlað sér að verða gamanleikkona.
„Ég varð i rauninni gamanleikari af
því að ég varð svo fúl þegar mér var
sagt að ég myndi aldrei geta komið
fólki tU að hlæja. Ég myndi bara aUtaf
vera í dramanu og fá alla tU að gráta.
Þannig að þegar ég fór í skólann úti í
Bretlandi þá ákvaö ég hreinlega að
leika með öUum kroppnum og fá fólk
tU að hlæja. Eftir skólann var mér svo
sagt að ég gæti aldrei unnið í sjón-
varpi svo nú er þaö næsta mál aö fá
rosalega alvarlegt hlutverk í sjón-
varpi,“ segir Vala og hlær dátt.
Af hverju var þér sagt aö þú gœtir
ekki unniö í sjónvarpi?
„Af því að aUar mínar hreyfmgar
em svo rosalega stórar og miklar. Ég
passa því ekki inn í sjónvarpið."
Vala hefur, auk þess sem áður er
talið, samið einleik um Dario Fo og
verkin hans og annan, sem nefnist
Hafrún, upp úr þremur þjóðsögum í
samstarfí við Möguleikhúsiö. „Sá er
hálfgerður látbragösleikur á móti gít-
ar.“
Hvaö er á döftnni hjá þér á nœst-
unni?
„Ég er með eitt sjónvarpshandrit í
vinnslu, sem er briUjant, og stuttmynd
sem er líka brUljant," segir hún og
glottir. Vala ætlar auk þessa að skrifa
bamabók sem upphaflega var þó hugs-
uö sem bamabíómynd. „Mér frnnst
svo mikið um að bömum sé vantreyst
þó þaö hafi verið aö breytast mikið
síöastliðin ár. Mig langar að gera
bamabók þar sem er svolítið spreU í
gangi og þar sem krakkamir sjálflr
takast á við lífið en ekki bók, uppfuUa
af endalausum siðferðislegum
móraliseringum." Á næstunni mun
Vala taka þátt í sýningu um íslenskar
konur f 100 ár sem frumsýnd verður
1 Kaffileikhúsinu 24. október, á 25 ára
f Ó k U S 20. október 2000
6