Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2000, Síða 11
með Islendingum
Björn jörundur var ekki hættur þó Ut
að borða legði upp laupana. Hér var
um að ræða ódýrara konsept, hinir
ýmsu hópar voru heimsóttir og málin
rædd yfir dýrindis grillmat. Björn stóð
sig hreint ágætlega enda ágætis-
spjallari og þátturinn var fínn þó útséð
væri að hann gæti ekki gengið til
lengdar.
Silfur
Egils
Silfur Egils er án efa allra besta efnið
sem SkjárEinn hefur sent út en þáttur-
inn hefur verið í loftinu frá upphafi. Eg-
I Helgason er einn reyndasti blaða-
maður þjóðarinnar og í þáttunum hefur
honum tekist að fá til sfn skemmtilegt
fólk og umræðurnar hafa einatt verið
afar líflegar. Þessi þáttur er flaggskip
stöðvarinnar og vel til marks um hvað
hægt er að gera án þess að spreða
peningum frá hægri og vinstri.
Skotsilfur
Stjórnendur stöðvarinnar eru af þeirri kyn-
slóð þar sem veröbréf og viðskipti eru aðal-
málið og þá liggur auðvitaö í augum uppi að
þátturinn Skotsilfur fái pláss í dagskránni.
Undir stjórn Helga Eysteinssonar hefur
Skotsilfur verið hinn ágætasti þáttur fyrir þá
sem hafa einhvern áhuga á þessum mái-
um. Fyrir utan hvað Helgi á það til að að
vera afburðaskemmtilegur hefur þarna ver-
ið þryddað upp á nokkurri nýþreytni í sjón-
varpi og er meira að segja svo komiö að
Stöð 2 er að fara í loftið með þátt af svip-
uðum toga til að reyna að halda í Skjáinn.
Skotsilfur er eitt af þvf sem SkjárEinn hefur
gert einstaklega vel.
Málið
Þegar nokkurra mánaða reynsla var komin á fréttastofuna fór hún í gang með Málið sem
fylgdí á eftir seinni fréttunum. í upphafi voru það fréttamenn stöðvarinnar sem sáu um þenn-
an dagskrárlið og gekk það oft ágætlega upp. Nú á haustdögum var hins vegar tekin upp ný
stefna og fimm mismunandi aðilar fengnir til starfans. Öll eru þau þjóðþekkt og eru skoð-
anir þeirra og sýn á hversdagsleikann oft alveg magnaðar. Þaö hefur að sönnu verið eftirsjá
að fólki eins og Hannesi Hólmsteini, Merði, Eirfki, llluga og Auði úr sjónvarpi en nú hefur ver-
ið bætt úr því og á SkjárEinn hrós skilið fyrir uppátækið sem gefist hefur mjög vel það sem
af er.
Pétur og Páll var þáttur þar sem Sindri Kjartansson heimsótti hina ýmsu vinahópa og kannaði hvað þeir hefðu fyrir stafni, f fyrstu svolítið ómark-
viss en varð alveg afbragð eftir að Árni Sveinsson bættist f crewið. Hápunkturinn var þegar hljómsveitin Gyllinæð var tekin fyrir, algjör snilld sem
á skilið Edduverðlaun ef þau verða einhvern tfmann veitt aftur.
Þótt ótrúlegt megi virðast er komið ár síðan SkjárEinn fór í loftið. Stöðin hefur gengið í gegnum ýmislegt á þessu ári og hefur verið mikið í umræðunni á
þeim tíma. Mikið hefur verið rætt um útsendingar Skjásins sem nú virðast vera að fara að ná til allra landsmanna. Innlend dagskárgerð stöðvarinnar hefur
verið blómleg á þessu ári og hefur stöðin hlotið lof fyrir framtakið. Yfir 30 þættir hafa verið framleiddir svo ekki sé minnst á alla erlendu þættina sem bæst
hafsU'hópinn. Við þetta tækifæri er tilvalið að renna aðeins yfir þessa íslensku þætti sem sýndir hafa verið og kanna hvað hafi gengið upp og hvað ekki.
Teikni - Leikni var í umsjón Villa Goða sem er
orðinn einn af aðalmönnum stöðvarinnar. Al-
gjör nýgræðingabragur var á stöðinni þegar
þessi þáttur var tekinn inn enda entist hann
ekki nema nokkra mánuði. Þrátt fýrir ágætis-
spretti Villa Goða í upphafi var þátturinn orð-
inn nokkuð þreyttur þegar á leið og hvarf sfð-
an af skjánum..
Hugmyndin að Djúpu lauginni var komin frá
þeim Kristbjörgu Karf og Laufeyju Brá Jóns-
dóttur sem stjórnuðu þættinum í upphafi.
Þær stúlkur mega eiga það að hugmyndin
er góð en útfærslan var samt aldrei nógu
góð, alla vega var konseptið ekki fullnýtt.
Nú f haust tóku hins vegar þær Dóra
Takefusa og Marikó Ragnarsdóttir viö
stjórnartaumunum og þar fer reynslan og
ungæðingshátturinn vel saman. Afskap-
lega vel heppnað hjá þeim tveimur.
Nítró
Þátturinn Nftró er unninn í samvinnu
við Isak á Akureyri og er umfjöllunar-
efnið akstursfþróttir f víðum skilningi.
Þeir sem gaman hafa af þess konar
málum finna sig ábyggilega vel fýrir
framan kassann en aðrir væntanlega
ekki.
Rósa Guðmundsdóttir er orðin nokkuð
þekkt persóna í íslensku þjóðlífi. Eftir að
hafa skotist upp á stjörnuhimininn sem
helsti Madonnuaðdáandi landsins gerð-
ist Rósa skemmtanastjóri á Spotlight og
með klámkvöldunum sinum varð hún f
einu vetfangi holdgervingur lesbía á ís-
landi. Þar sem Rósa er þeirrar gerðar að
hún ertilbúin að tala um alltvið alla þótti
alveg tilvalið að fá stúlkuna til að stjórna
einum slíkum þætti á SkjáEinum. Þáttur-
inn hét einfaldlega Rósa og fór f loftið nú
í haust en ekki voru sendir út nema þrír
þættir áður en hann var tekinn af dag-
skrá. Tvennum sögum fer af starfslokun-
um, Rósa segir sjálf að allt hafl verið í
góðu og þetta hafi verið sameiginleg
ákvöröun. Aðrir segja þó að þátturinn
hafi einfaldlega ekki gengið upp því þótt
hann hafi verið í beinni útsendingu á
besta tfma á föstudagskvöldum hafi eng-
ar auglýsingar selst og yfirmenn stöðvar-
innar þvf ákveðið að kippa honum út.
Hvað sem þvi líður geta flestir líklega
verið sammála um að þátturinn hafi ver-
ið flopp, var settur upp sem spjallþáttur
en viðmælendurnir komust bara ekki að
fyrir Rósu.
Helgason leikara sem náði heldur ekki að
rffa þáttinn f þær hæðir sem þátturinn á að
geta náð. Þótti stjórnendum stöðvarinnar
Gunni greinlilega ekki rétti maðurinn til
starfans og þegar þátturinn sneri aftur eftir
sumarleyfi var Björn Jörundur Friðþjörnsson
tekinn við stjórninni. Björn og félagar hefur
gengiö alveg ágætlega upp og virðist sem
loksins hafi tekist að koma þessari ágætu
hugmynd f farveg.
sprengja
Nonni sprengja er einn slakasti þátturinn
sem sést hefur á SkjáEinum til þessa.
Gunnar Helgason leikari reyndi að feta í
fótspor Jerry Springer en það mistókst al-
gerlega. Þátturinn var afar slakur og voru
flestir fegnir þegar hann var tekinn af dag-
skrá. Þarna gekk stöðin líklega of langt í
að apa upp eftir Bandarfkjamönnunum.
Mótor var fyrst í umsjón Dagbjartar Reginsdótt-
ur sem viðurkenndi fúslega að hún hefði ekkert
vit á bílum en tókst samt að draga ótrúlegasta
fólk aö skjánum. Hressileiki Dagbjartar gekk vel
upp en við af henni hefur nú tekið Sigrfður Lára
Einarsdóttir sem fylgt hefur stöðinni frá upphafi.
Sigga Lára er enginn eftirbátur Dagbjartar en
hefur auk þess þann ágæta kost að hafa bæði
vit og áhuga á bílum. Mótor er bráðsniðugur
þáttur sem gengið hefur vel upp.
Perlur
Bjarni Haukur fékk f sófann ýmsa kyn-
lega kvisti og ræddi við þá um þaö sem
þeir vildu ræða um. Þetta var ágætlega
heppnað og fólkið fékk að njóta sín. Það
var þó með þennan þátt eins og marga
aðra að hann gengur ekki að eilífu.
I kjölfar útgáfu tímaritsins Adrenalín
sáu stjórnendur SkjásEins sér leik á
borði og buðu aðstandendunum að
vera með þátt þar sem ofurhugaíþrótt-
um væru gerð skil. Hugmyndin er góð
og útfærslan hefur verið hreint ágæt,
markaðurinn er svo sannarlega til stað-
ar og vfst er að þessi þáttur á sfna föstu
áhorfendur.
Djúpa laug
Eins og alvöru sjónvarpsstöð sæmir býður SkjárEinn upp á fréttastofu. í
upphafi var til kallaður Sigursteinn Másson með alla sfna reynslu og réð
hann til sfn nokkra óharðnaða fréttamenn. Sigursteinn valdi einhvern veg-
inn þá leið að feta f fótsþor hinna stöðvanna og sérstaða fréttastofu
SkjásEins varð engin. Þvf fór svo að skipt var út og tók varafréttastjórinn
Sólveig Kristbjörg við stjórninni nú I haust. Henni hefur tekist ágætlega að
skapa fréttastofunni sérstöðu en einhvern virðist vanta reynsluna sem Sig-
ursteinn haföi. Framtfðin er þó björt og leiðin getur ekki legið annað en upp
á við.
Inga Lind og Kjartan Örn fóru af stað með
þáttinn sem gekk út á það að hinu ýmsa
•fólki var boðið út að borða og ýmis mál-
efni voru rædd. Þátturinn var oft hin
ágætasta skemmtun og þar sem þetta
var f þeinni útsendingu spunnust oft upp
ansi skemmtilegar umræður. Björn Jör-
undur tók svo við af Kjartani og lagði þar
með grunninn að sjónvarpsferlinum.
Menningarþátturinn Tvfpunktur er eitt af flagg-
skipum stöðvarinnar. Þau Sjón og Vilborg Hall-
dórsdóttir hafa kafað djúpt í heim bókmennt-
anna og staðið sig vel að flestra mati. Þó lýs-
ingin á innihaldi þáttarins hljómi óneitanlega
eins eitthvað sem væri framleitt í Efstaleiti er
Tvfpunktur ansi ferskur þáttur sem greinilega
er kominn til að vera.
tækifæri fýrir stöðina að gefa efni út á
myndbandi þá er það með íslenskri kjöt-
súpu.
Nonni
íslensk kj
Islensk kjötsúpa kom eins og stormsveip-
ur inn f Iff landans f sumar og má hiklaust
segja að þar hafi verið athyglisveröasta
efnið sem sýnt var f íslensku sjónvarpi á
þeim tfma. Erpur Þ. Eyvindarson var töffar-
inn Johnny National sem ferðaðist um
borg og sveitir og fékk hið ótrúlegasta fólk
í spjall. Fyrirmyndin var grinarinn Ali G og
máttu aðstandendurnir hrósa happi yfir því
að íslendingar þekktu lítið til verka hans á
þeim tímapunkti sem þættirnir voru teknir
upp. Erpur fór oft á kostum f þáttunum og
hikaði ekki við að hakka grunlausa við-
mælendur í sig en aðalvopnið var aö við-
mælendurnir fengu ekki að sjá framan f
hann fýrr en viðtalið byrjaði. Þó svo að ólík-
legt verði að teljast að unnt verði að gera
aðra serfu af þáttunum munu þeir eflaust
lifa í minni fólks og ef einhvern tímann er
Fyrirsætan Anna Rakel og
Börkur Hrafn Birgisson úr
Jagúar fóru af stað með
Sílikon f upphafi og stóðu
sig alveg prýðilega, þó
svo að alltaf megi finna
eitt og eitt að þættinum. Þetta form á
sjónvarpsþætti féll meira að segja svo
vel f fólk að Stöð 2 var ekki lengi að
koma með ‘Sjáðu sem mótvægi. Nú í
haust hafði Anna Rakel svo fengið annan
félaga, Finn Þór Vilhjálmsson af frétta-
stofunni, og hefur þátturinn staðið vel fýr-
ir sfnu það sem af er.
Hvunndagssögur
Ásgrímur Sverrisson kallaði til sín hina ýmsu leikara sem
látnir voru spinna saman í þáttunum Hvunndagssögur. MyndaStyttUT
Varla hugsað sem mótvægi við Sunnudagsleikhúsið en Þama fengu ungir stuttmyndageröarmenn að
lenti oft í þeim farvegi. Ágætistilraun þó og vel frumleg. njóta sín ,neð verk sín. Slikan vettvang hefur
Jóqa len®' vanlað og þó eitthvað hafi mátt setja út
I umsjón Guðjóns Bergmanns get- _ )f|- ' á framsetninguna var Myndastyttur afbragös-
ur fólk komið sér rólega fyrir á Þá,,ur sem vel mætti endurvekja.
„ , ■ Æbf-'ém. raA > ... sitt tag og stigur ekki teilspor.
mu og skellt ser i ÆmSjk Innllt - Utllt 6 6
ðjón þykir ágætur i a I fyrra voru þaö Vala Matt og hann Þórhallur og nú hefur Fjalar bæst Nugget TV
" °® e f0 k er a Bfk Í hópinn f staö Þórhalls. Þarna er fjallað um allt sem viðkemur hönn- Leifur Einarsson sá um þennan þátt og kynnti hann áhc
>rð a þessari linu er un Qg arkitektúr og f|ejra ; þeim dúr Vaia er auövjtað ein af okkar endum ís|enskar rokknijómsveitir og senuna sent þe
að tjuna sig inn.^ reyndasta og skemmtilegasta sjónvarpsíólki þannig að þáttur meö fylgir. Harökjarnarokkið var í aðalhlutverki og þó þátturi
e er „præm æm ' ^ u henni getur vart klikkað. — hafi oft verið ágætur var Ijóst frá upphafi aö þetta væri
gæ sentsi . • jf Útlít Já ekki ótæmandi brunnur hér á landi.
Unnur Steinsson sá um þáttinn Útlit sem var á dagskrá stöðvarinnar f sumar. Þarna Brúðkaupsþátturinn Já var i gangi í sumar og gekk mjög vel. Þátturinn var auðvit-
var efniö nokkuð þrengra en í móðurþættinum Innlit - Útlit og fræddi Unnur fólk um að stílaöur inn á konur og þær virtust fíla hann vel. Hreint ekki svo galinn þáttur
allt sem viðkom hönnun utanhúss. Unnur stóð sig vel og fólk hafði gaman af þættin- til að brúa bilið fram aö vetrardagskránni.
L \.IÁ
stofugólfinu og skellt sér i
jóga. Guðjón þykir ágætur í
þættinum og ef fólk er á I
annað borð á þessari línu er |
tilvalið að tjúna sig inn.
Þetta er ekkert „præmtæm"
efni en ágætt sem slfkt.
2001 nótt
Bergljót Arnalds leggur sig ætiö fram
uni að sinna börnunum og það ger-
ir hún svo sannarlega í barna|>æni
sfnum á SkjáEinum. Þaö var sterkur
leikur hjá stjórnendum stöövarinnar
að næla sér í Bergljótu því hún kann
sitt fag og stígur ekki feilspor.
Nugget TV
Leifur Einarsson sá um þennan þátt og kynnti hann áhorf-
endum islenskar rokkhljómsveitir og senuna sem þeim
fylgir. Harökjarnarokkið var í aðalhlutverki og þó þátturinn
hafi oft verið ágætur var Ijóst frá upphafi að þetta væri nú
ekki ótæmandi brunnur hér á landi.
Kómíski klukkutíminn
Þaö var Bjarni Haukur Þórsson sem byrjaði með Kómíska klukkutímann þar sem hann fékk
til sfn hina ýmsu grfnara sem brugðu á leik. Sá hluti þáttarins var frekar sniðugur og vel af
hendi leystur. Þegar Bjarni hafði hins vegartæmt brunninn af fslenskum gamanleikurum tók
húshljómsveitin Buff við þættinum og þá hrundi hann heldur betur niður. Þetta var á þeim
tíma sem þeir piltar voru í annarri hverri útsendingu stöðvarinnar og hefðu betur sleppt
þessu uppátæki.
Samfarir Báru Mahrens
Samfarir Báru Mahrens er þáttur þar
gervi gamallar kellingar og fær til
sín gesti f spjall. Hið fýrsta sem
kemur upp í hugann við að horfa á
þáttinn er Elsa Lund, sem skelfdi
landann hér um árið hjá Hemma
Gunna, eða hreinlega Dame Edna
og veit maður varla hvort er betra.
Þátturinn hefur hreint ekki gengið
upp og viröist einungis fá að hanga
á dagskránni vegna gamals kunn-
ingsskapar stjórnandans við yfir-
menn stöðvarinnar.
sem leikarinn Bjarni Haukur Þórsson bregður sér f
Bak við
in
I upphafi var þátturinn Bak við tjöldin á dagskrá en
þar sá Dóra Takefusa um að fræða okkur um
fræga fólkiö í Hollywood og fleira f þeim dúr.
Skyggnst var bak við tjöldin að hætti Völu Matt og
gat verið alveg ágætt að fýlgjast með Dóru þegar
hún var í essinu sínu. Þátturinn entist þó ekki þó
hann hafi verið ágætur.
Allt
annað
Eftir fréttir er kominn tími á efni á léttu
nótunum. Allt annað er svona mini-útgáfa
af Sflikon sem gengiö hefur vel upp, sér-
staklega þegar Dóra Takefusa var við
stjórnvölinn. I þættinum er oftast slegið
á létta strengi og hafa stjórnendurnir oft
nælt sér f skemmtileg efni. Sjáum bara
*Sjáðu, var það ekki sett f gang til höf-
uðs þessu og Sílikon?
Topp20
I fýrravetur var það r&b gellan Maya
sem stjórnaöi Topplistanum þar sem
við fáum að heyra og sjá öll „bestu"
lögin á milli þess sem kynnirinn segir
okkur frá lögunum. Nú f haust tók
plötustýran og fyrirsætan Sóley svo við
þættinum og hefur hann rúllað ágæt-
lega undir hennar stjórn. Ágætisefni en
maður stillir ekki klukkuna til að ná
honum.
Pensúm
Þetta er ein af nýjustu viðbótum f dagskrá
stöðvarinnar og hefur farið ágætlega af
stað. Það eru háskóianemar sem sjá um
þáttinn og hann er tileinkaður Iffi þeirra
og verkefnum. Enn á eftir að komast
reynsla á Pensúm en aðeins virðist þurfa
að skerpa á þættinum svo hann rúlli al-
mennilega.
Axel,
Gunni,
Bjorn og L
félagar
Axel og félagar. Þátturinn fór af stað að
bandarfskri fýrirmynd og laðaði f upphafi aö
sér nokkuð af áhorfendum. Eitthvað vantaði
þó greinilega og þrátt fýrir reynslu Axels Ax-
elssonar úr útvarpi náði hann alls ekki að
vera nógu sannfærandi né skemmtilegur. Þvf
fór sem fór og Axel var skipt út fýrir Gunnar
f Ó k U S 20. október 2000
20. október 2000 f Ó k U S
10
11