Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2000, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2000, Page 9
Ifókus Vikan 20. október til 26. október lífið. Aldrei að vita nema Smekkvísir menn hafa löngum hampað hinum sérvitra gler- augnaglámi Jimi Tenor sem undri nútímatónlistar en að sama skapi átt bágt með að staðsetja hann í litrófi tónlistarstefna. Allt á þetta sér vafalítið rætur í skíðastökksferli Finnans en nú hefur hann sagt skilið við Warp-útgáfuna og ætlar að taka það rólega á Thomsen á sunnudagskvöldið kemur. ég troði upp í búningi „Ég hef leikið á tónleikum með stór- um hljómsveitum, í London, Brussel og Barcelona, meðal annarra staða. Bæði hafa þetta verið sinfóníuhljóm- sveitir og sveitir sem leika á vindhljóð- færi nokkurs konar. Mér var nýlega sparkað af Warp-útgáfunni þannig að ég er að leita mér að nýju útgáfufyrir- tæki um þessar mundir," svarar Jimi Tenor við spumingunni um hvað á daga hans hafi drifið síðan hann sótti ísland heim síðasta vor. Huernig stendur á því aö þú ert á leiðinni hingaö aftur? „Þetta kom skyndilega upp. Steph úr Gus Gus hringdi í mig og bauð mér að koma og þar sem ég er í hálfgjöru millibilsástandi, í sambandi við út- gáfumálin og þetta, ákvað ég bara að skella mér. Kannski að nýta þetta sem frí lika. Síðast hafði ég litinn tíma til að skoða mig um. Ég fór á Þingvelli, en þar var alveg brjálaður kuldi og við óðum snjó upp að klofi,“ segir tenor- inn og spyr um veðrið á íslandi nú. Honum léttir við tíðindin af snjóleysi. Maöur skyldi cetla að þú værir van- ur snjókomu þar sem þú kemur frá Finnlandi? „Jú, jú, ég er það. Ég er bæði gam- all hokkíleikari og skíðastökkvari, innan gæsalappa,“ segir Jimi og hlær. „Það eru nokkrar gerðir af skíðastökkspöllum. Ég stökk nú bara á þeim minnsta og var þar að auki blindfullur þegar ég gerði það fyrst. Það var varla annað hægt að aðhaf- ast þar sem ég bjó, en að drekka sig fullan og stunda skíðastökk. Bærinn sem ég kem frá, Latte, er frægur fyr- ir skíðastökk, enda hefur fátt annaö komið frá honum en skíðastökkvar- ar,“ segir hann. En hann hefur þá öölast eilitla tón- listarlega upphefð, meöfrœgö þinni? „Það er nú voða lítil frægð sem hefur fylgt mér en sinfóníuhljóm- sveit bæjarins er líka ansi góð. Ég lék nú sddrei með henni en mig minnir að ég hafi fengið að vera með á einni æfingu þegar ég var lítill." Viö hverju megum viö svo búast af þér á sunnudag, kemuröu með sinfón- íuhljómsveit meö þér? Nei, þetta verðum bara við konan mín og tónleikamir verða bara litlir og góðir klúbbatónleikar. Ég veit nú ekki upp á hár hvað ég geri en ég ætla að flytja efhi af öllum plötunum minum. Auðvitað verða það allt bara svona einsmannsútgáfur af lögunum. Ég kem með saxann og orgelið mitt og nokkur heimatilbúin hljóðfæri með mér, að minnsta kosti „Noise- boxið“ mitt. „Noise-boxið“ er brjálað- ur kassi sem inniheldur meðal ann- ars segulbandstæki. Ég tek upp ösk- ur í sjálfum mér og þegar ég spila þau í kassanum kemur það mjög skemmtilega út, eins og folsk öskur," útskýrir Tenor við nánari eftir- grennslan. „Svo er aldrei að vita nema ég troði upp í góðum búningi. Vinur minn í París saumar á mig búninga fyrir stærri tónleikaferðir, og ég á ágætis safh þeirra núorðið," segir Jimi og kveður með ósk um að sjá sem flesta á tónleikunum. Reykjavíkin mín Frosti Logason, útvarpsmaður á Radio-X og gítarleikari í Mínusi ÚT I1E» VINUN- un ■ BLÁI BARINN Ég er per- sónulega mjög óánægður með úrvalið af djammstöð- um I Reykjavík þessa dag- ana og það er búið aö loka staðnum sem ég fór mikið á. Þegar ég er að vinna seint á kvöldin finnst mér voða gott aö fara á Bláa barinn og og fá mér einn kaldan þegar ég er búinn að vinna. Það er þægilegur og nettur staður. ■ NQRÐURKJALLARINN í MH Norðurkjallarinn í Menntaskólanum í Hamrahlíð er líklega besti NORGUNHATUR ■ HEIMA HJÁ MÉR Morgunmatinn borða ég alltaf heima hjá mér og mér finnst lang- best að byrja daginn á því að fá mér einn disk af Cheerios. HÁDEGISHATUR ■ PRIKIÐ Oftast borða ég hádegismat heima en ef ég fer eitthvað út að borða T há- deginu finnst mér oft gott að koma við á Prik- inu og fá mér góða samloku. ■ NÚÐLUHÚSIÐ Núðluhúsið getur líka verðið góður kostur í hádeginu og þangað hef ég kíkt stundum. Þar mæli ég með rétti dagsins hverju sinni. tónleikastaðurinn í Reykjavík og er í miklu uppáhaldi hjá mér. Það er fátt betra en að fara á tónleika þar sem og að spila þar á tónleikum. Það mættu alveg vera oftar tón- leikar í Norðurkjallaranum. RÓHANTÍK í REVKJAVÍK Ég veit ekki um neinn stað í Reykjavík sem mér finnst rómantískari en aðrir þar sem ég hef ekki verið mikið fyrir rómantíkina enn sem komiö. Ég er því mjög lítið að hugsa um rómantíska staði. HEILSAN ■ LAUGARDAGSLAUGIN Það er gott að fara í sund í Laugar- dagslaugina. Laug- in er stór og þar er nóg pláss og svo get- ur maður synt langar leiðir. KVÖLDHATUR ■ SUBWAY Ég er alltaf að vinna vegna staðsetningar vinnustaðar- ins borða ég mjög oft kvöld- mat á Subway í Austur- stræti o g reyn þá aö f á m é r eitt- hvað hoilt og gott og eitthvað annað en franskar kartöflur og kokkteilsósu. ■ HORNIÐ Hornið er fínn veitingastaður, mat- urinn er góður og and- rúmsloftið rólegt. SUNDHQLLIN Það er gifurlegt að fíflast á stóra stökkbrettinu og hendast þar í loftköstum. VERSLANIR ■ BRIM Á LAUGA- VEGINUM í versl- uninni Brim á Laugaveginum er hægt að fá þægi- leg og flott föt á góðu verði. ■ LEVIS BUD- 1N Það eru ITka alitaf flott föt í Levis búðinni og ég fæ aldrei nóg af góðum Levis gallabuxum. Ofurtöffari sjöunda áratugarins, Shaft, hefur verið lífgaður við af engum öðrum en Samuel L. Jackson. Shaft lifir Á fimmtudagskvöldið verður forsýning á nýrri kvikmynd um ofurtöffarann Shaft i Laugarás- bíói. Fókus og FM957 munu bjóða 100 heppnum lesendum Fókuss á sýninguna og verður hægt að nálgast miöana á Fóku- svefnum á mánudaginn. Að sýn- ingunni lokinni verður villt partí i Kjallaranum þar sem hljóm- sveitin Jagúar mun trylla lýðinn. Einnig verða í boði léttar veiting- ar og veigar. Árið 1971 var hin upprunalega kvikmynd um Shaft frumsýnd með „seventís“-töffaranum Ric- hard Roundtree í aðalhlutverki. Myndin, sem byggð er á skáld- sögu Emest Tidymans, varð gíf- urlega vinsæl um allan heim. Nú í ár var frumsýnd ný kvikmynd um Shaft með hinum ofursvala Samuel L. Jackson í aðalhlut- verki. Ekki er leikstjómin heldur af verri endanum því hún er í höndum hins þekkta Johns Singletons, þess sama og gerði myndirnar Boys in the Hood og Higher Leaming. Hann á víst einnig stóran þátt í handriti nýju myndarinnar. í þessari nýju mynd má sjá hinum upprunalega Shaft, Richard Roundtree, bregða fyrir í gervi frænda Johns Shaft. Vanessa nokkur Williams leikur þar einnig annað aðalhlut- verkið og ekki ófrægari maður en Busta Rhymes fetar nokkur fót- spor á leiklistarbrautinni. Þá er bara að setja sig í ískaldar töffarastellingar og storma í bíó á fimmtudagskvöldið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.