Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2000, Síða 1
19
Magdeburg
á góðu flugi
Lærisveinar Alfreðs Gíslason-
ar hjá þýska handknattleikslið-
inu Magdeburg
eru á miklu skriði
þessa dagana. Lið-
ið lagði Hildes-
heim, 18-27, í úr-
valsdeildinni í
gær. Liðið lék sinn
9. leik og er tap-
laust, sjö sigrar og
tvö jafntefli. Ólafur Stefánsson
skoraði sjö mörk fyrir Magde-
burg.
Patrekur Jóhannesson var
markahæstur liðs-
manna Essen, skor-
aði fimm mörk, þeg-
ar liðið sigraði
Wuppertal á úti-
velli, 22-24. Heið-
mar Felixsson skor-
aði fjögur mörk fyrir Wuppertal.
Guðmundur Hrafnkelsson átti
mjög góðan leik í marki
Nordhorn sem sigraði Nettel-
stedt, 28-23. Róbert Duranona
skoraði þrjú mörk fyrir Nettel-
stedt.
Gústaf Bjarnason skoraði eitt
mark fyrir Minden sem sigraði
Flensburg, 25-23. Róbert Sig-
hvatsson skoraði fimm mörk fyr-
ir Dormagen sem tapaði á heima-
velli fyrir Gummersbach, 23-30.
Magdeburg er í efsta sæti með
16 stig eftir níu leiki. Massen-
heim hefur 14 stig eftir átta leiki
og í þriðja sæti er Flensburg með
13 stig eftir níu leiki.
-JKS
Hughes byrjar vel
hjá Blackburn
Mark Hughes skoraði tvö
mörk í sinum fyrsta leik með
Blackbum gegn Tranmere í 1.
deild ensku knattspyrnunnar í
gærkvöld. Blackburn sigraði í
leiknum, 3-2.
Sheffield Wednesday vann
sinn fyrsta útisigur í vetur þegar
liðið lagði QPR, 1-2.
Nottingham Forest vann stór-
sigur á Bumley, 5-0, þar sem
Bart-Williams skoraði tvö af
mörkum Forest í leiknum. Þá
sigraði Birmingham lið GHling-
ham, 1-0, á heimavelii.
-JKS
Biðstaða hjá Tryggva
Tryggvi Guðmundsson hefur ekkert getað æft með
Blackbum Rovers vegna hælsæris sem hann fékk í leik
með Tromso um síðustu helgi. Tryggvi ákvað því i gær
að snúa heim til Tromsö og ná sér af meiðslunum og
skoða sín mál á meðan. Samkvæmt heimildum óskuðu
forsvarsmenn Blackburn eftir því að Tryggvi kæmi aftur
til æfinga.
-JKS
Guðmundur til Aalst
Belgíska 1. deildar liðið Aalst vill fá Keflvíkinginn Guðmund
Steinarsson leigðan út þetta tímabil. Liðið er í botnbaráttunni og
vantar tiiíinnanlega markaskorara.
„Þetta gæti verið spennandi dæmi en liðið vill fá mig út sem
allra fyrst. Keflvíkingar eiga eftir að samþykkja leiguna og ég á
ekki von á því að það verði fyrirstaða," sagði Guðmundur i
gærkvöld en hann er nýkominn heim frá æfmgum hjá Stockport
og leist ekkert á sig þar. -JKS
Givisoppu í avalli skoi-
íifil eitt marka Lazio i
stórsigri á Shakthm
Donetsk i Hom i gær-
kvold oc) r.í'-.t her tagna
þvi
Reutors
Kristín Rós Hákonardóttir tekur viö bronsverölaununum sínum á
Ólympíumótinu í Sydney í gær.
Þriðju verðlaun
Kristínar í Sydney
- kveðjur og heillaóskir hafa borist
Kristín Rós Hákonardóttir vann
í gær sín þriðju verðlaun á
ólympíumóti fatlaðra í Sydney.
Kristín Rós hreppti bronsverðlaun
í 100 metra skriðsundi, synti á
1:18,05 mínútum og setti
íslandsmet. Danielle Campo, 15
ára stúlka frá Kanada, sigraði i
sundinu á 1:14,64 minútum sem er
nýtt heimsmet.
Gunnar Örn Ólafsson keppti í
gær í 100 metra baksundi, synti á
1:16,27 mínútum og varð í 12. sæti.
Ólympíuhópur fatlaðra vill
koma á framfæri sérstöku
þakklæti til forseta íslands, Ólafs
Ragnars Grímssonar, og allra
þeirra sem sent hafa hópnum
hlýjar kveðjur og heillaóskir í
tilefni af árangri íslensku
keppendanna.
Aðrir aðilar hafa sýnt
keppendum þann heiður að draga
fána að húni í kjölfar árangursins
og má í því sambandi nefna
forsætisráðuneytið, menntamála-
ráðuneytið, heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytið og íþrótta- og
ólympíusamband íslands.
-JKS
ém
'