Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2000, Síða 5
Ifókus
v j fc a n 2 7 . októ b e rtil 2. nóvember
lif ið
V—I—N—N—U
Stúdentaleikhúsið frumsýnir Stræti eftir Jim Cartwright í sal B Loftkastalans í kvöld. Þetta er harmleikur undir-
málsfólks með gleði og tónlist í forgrunni. Elfar Logi Hannesson leikstýrir fríðum hópi stúdenta. Hann segir frá
uppfærslunni ásamt þeim Hlyní Pálssyni, formanni leikhússins, og Stefáni Halli Stefánssyni framkvæmdastjóra.
Dug
„Hálfviti, hóra, aumingi, rúsína,
hóra, hóra, sætur, hálfviti, aumingi,"
glymur í veggjum skuggaports við
Loftkastalann og aðkomumaður gæti í
fyrstu haldið að þar færi fram mál-
fundur Tourette-sjúklinga. Svo er ekki.
Þama hafa aðstandendur Stúdentaleik-
hússins hreiðrað um sig og séð af dýr-
mætum stundum yfir námsbókum, til
þess að breyta kvikmyndaveri í leik-
hús með öllu. Og nú eru leikarar að
hita upp fyrir rennsli á sýningu sinni.
Gamanið smitar
„Torfhildur, félag bókmenntafræði-
nema endurvakti Stúdentaleikhúsið á
síðasta ári og setti upp Tartuffe eftir
Moliére," segja Hlynur og Stefán. „Þá
kom í ljós að mikill áhugi var á leik-
list innan skólans, en það virðist
sveiflast til eftir ámm og ræðst af því
hverjir eru í skólanum. Við héldum
námskeið í haust þar sem Elfar Logi
var með léttar leiklistaræfingar og í
framhaldi af því tóku flestallir þátt í
sýningunni, enda er það náttúrulega
besta námskeiðið," segja þeir. „Flest
þeirra sem að sýningunni koma eru að
stíga sín fyrstu skref, en sum eru mjög
reynd á öllum sviðum og kunna að
umgangast leikhús. En allir hafa gam-
an af þessu og þá smitar það frá sér,“
segir Elfar um leirinn sem hann fékk
í hendumar í haust og hefur nú full-
mótað í sjúskaðar persónur strætisins.
Lífskúnstner í neikvæðri
merkingu
Elfar fer nokkrum orðum um sögu-
þráð Strætis, en sumir ættu að kann-
ast við stykkið frá því að Þjóðleikhús-
ið færði það upp, við prýðilegar und-
irtektir, fyrir nokkmm ámm. Leik-
húsgestum er boðið í strætið," segir
Elfar og setur sig í stellingar. „Þar
tekur á móti okkur persóna sem heit-
ir Scullery, og hann leiðir okkur í
gegnum strætið og kynnir fyrir þvi
fólki sem þar býr. Það hefur flest lent
illa í liflnu og er ekki sátt við sitt
hlutskipti, en reynir að lifa með því.
Uppistaðan er hórur og rónar og
furðufuglar ýmsir. Til dæmis fyrrver-
andi fótboltabuUa, sem hefur snúið
sér að búddisma, skrautlegar mæðg-
ur sem búa þama og hermann sem er
orðinn öfugur. Atriðin tengjast ekki
beint saman, en fólkið hefur svipaða
sögu að segja. Scullery er sjálfur dug-
legur við að áreita kvenfólkið og hon-
um finnst sjússinn góður og ýmis
önnur vímuefni." „Hálfgerður
lífskúnstner 1 mjög neikvæðri merk-
ingu,“ bætir Stefán við. „Þessar litlu
sögur era harmleikur, en samt sem
áður er kómíkinni fléttað inn í það,
þannig að við fáum að hlæja að öllu
saman," segir Elfar.
Undirbúningur á Stræti var nokk-
uð sérstakur að sögn leikstjórans. „Þó
að ég sé ekki mikill method-maður,
sem er ein listgrein innan leiklistar-
innar, kennd við Stanislavsky, þá fór-
um við að vísu að hans dæmi með
eitt. Við vorum ansi dugleg að heim-
sækja pöbbana og halda partý. Það er
ekki svo vitlaust, vegna þess að það
er auðvelt að ofleika fulla mann-
eskju,“ segir hann.
Fá ekki að vera í leikhúsi
„Stúdentaleikhúsið er f samstarfí
við Loftkastalan um samnýtingu veit-
ingaaðstöðu og salerna," upplýsir
framkvæmdastjórinn. „Áhorfendur
mæta þangað og eru leiddir hingað
niður, og þá tekur bara geðveikin
við.“ „Við fáum ekki einu sinni að
vera í leikhúsi, það er málið. Okkur
er bara kastað út á götu og við emm
fost í strætinu," bæta hinir við. Fyr-
irhugaðar eru tíu sýningar á Stræti
og verður sú síðasta í lok nóvember.
„Miðaverðinu er haldið niðri. Það
kostar 700 krónur fyrir háskólanema
og nemendur annarra skóla, sem er
bara einn bíómiði, en 1200 krónur fyr-
ir aðra,“ segir Hlynur. Leikfélagið er
þegar farið að huga að sýningu eftir
áramót. „Við eram búin að efna til
handritasamkeppni, meðal nemenda
og kennara háskólans, þar sem þeim
gefst kostur á að spreyta sig í ritlist-
inni og ætlum að setja verðlaunaleik-
ritið upp. Það verður gaman að sjá
hvað kemur út úr því,“ segja þeir
Hlynur og Stefán. Að lokum vilja þeir
koma þökkum á framfæri til allra
sem hafa veitt aðstoð í hvers kyns
líki og benda á heimasíðuna
http://www.sl.hi.is þar sem nánari
upplýsingar er að finna.
Stórmyndin Bedazzled hefur fengið góð-
ar viðtökur í Bandaríkjunum enda skartar
hún ekki ómerkari leikurum en Elizabeth
Hurley og Brendan Fraser. Myndin
verður Evrópufrumsýnd í Stjörnubíói,
Kringlubíói, Nýja bíói, Keflavík, og
Borgarbíói á Akureyri í kvöld.
Elliot Richards (Fraser) er góð-
viljaður maður sem á stökustu
vandræðum i einkalíflnu, hann er
ástfanginn af konu I vinnunni sem
hefur aldrei tekið eftir honum og er
piltur orðinn nokkuð örvæntingar-
fullur fyrir vikið. í örvæntingu
sinni gerir hann samning við djöf-
ulinn sem er í gervi stórglæsilegrar
konu (Hurley) með afar sérstakan
húmor. í skiptum fyrir sál Elliots
veitir djöfullinn honum sjö óskir.
Tólin stækka ekki
Fyrsta óskin er að sjálfsögðu að
verða ríkur, áhrifamikill og giftur
konunni sem hann elskar. Þegar
hann vaknar hefur óskin ræst og
gott betur, Elliot er orðinn kól-
umbískur eiturlyfjabarón. Næsta
óskin er að verða tilfinninganæm-
asti maður í heimi. Við þetta breyt-
ist hann í vælandi aumingja og þeg-
ar hann óskar þess að verða sláni og
snillingur í körfubolta slær hann öll
met í NBA en tólin stækka í sama
hlutfalli. Elliot þarf að takast á við
það að vanda sig við óskimar, djöf-
ullinn er ansi slægur og snýr óskum
hans upp í verstu martraðir.
Einvalalið
Aðalhlutverkið er í höndum
Brendan Fraser sem hefur getið sér
gott orð í henni Hollywood undan-
farin ár og verður að teljast til eins
af efnilegri leikurum draumasmiðj-
unnar, en pilturinn hefur helgað sig
leiklistinni frá 12 ára aldri. Helstu
myndir Frasers sem ratað hafa í ís-
lensk kvikmyndahús eru The Mum-
my, Blast from the Past og George
of the Jungle. Þar með er þó ekki
allt talið því drengurinn þykir öílug-
ur sviðsleikari og hefur hlotið lof
fyrir verk sín á því sviði. Von er á
fjölmörgum myndum með Brendan
Fraser á næsta ári. •
Elizabeth Hurley er orðin nokk-
uð kunn leikkona þó svo að fyrir-
sætustörf hennar og sambandið við
Hugh Grant hafi i gegnum tíðina
líklegast vakið hvað mesta athygli
á henni. Hlutverk Hurley í Austin
Powers-myndunum, EDTv og
Permanent Midnight, hafa skap-
að henni ágætissess en auk þeirra
hefur hún undanfarið snúið sér
nokkuð að framleiðslu bíómynda
fyrir fyrirtæki þeirra Hughs Grant,
Simian Films.
Leikstjóri myndarinnar er
Harold Ramis sem einnig semur
handritið og framleiðir myndina.
Ramis er annálaður fyrir hæfileika
sína við að gera gamanmyndir og
meðal þeirra helstu eru Analyze
This sem hann leikstýrði og samdi
handritið með öðrum, Caddyshack
og National Lampoon’s Vacation.
Af öðrum myndum sem hann hefur
komið nálægt má nefna Ghost-
busters, Stripes, Club Paradise,
Back to School, Groundhog Day
og nú síðast Multiplicity. Auk
þessa hefur hann einnig leikið í
fjölmörgum myndum sem gengið
hafa vel.