Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2000, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2000, Side 3
MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 2000 21 DV Magdeburg trónir áfram í efsta sæti: Patrekur og Ólafur sterkir - skoruðu samtals 17 mörk fyrir lið sín í gær Mikilvægur sigur hjá Dormagen Guðmundur Guðmundsson og lærisveinar í Bayer Dormagen unnu mikilvægan sigur á úti- velli gegn Wuppertal, 16-23, og lagði Dormagen grunninn að sigrinum með frábærum vamar- leik. Heiðmar Felixson skoraði eitt mark fyrir Wuppertal og Ró- bert Sighvatsson þrjú mörk fyrir Dormagen. Wallau Massenheim tapaði dýrmætu stigi þegar liðið mátti sætta sig við jafntefli, 22-22, við Solingen á útivelli. -JKS Patrekur Jóhannesson hefur átt hvern stórleikinn á fætur öörum meö Essen í vetur. Hann skoraöi níu mörk gegn Wetzlar í gær. Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Magdeburg tóku Hameln í kennslustund í þýsku bundeslíg- unni í handknattleik um helgina. Magdeburg sigraði í leiknum með 29 mörkum gegn 14 eftir að staðan í hálfleik var 14-8. Vamarleikur og markvarslan hjá Magdeburg í síðari hálfleik var frábær og var Hameln, gamla félagið hans Al- freðs, leikið sundur og saman. Ólafur Stefánsson átti mjög góðan leik og skoraði átta mörk. Gústaf Bjarnason og félagar í Minden gerðu góða ferð til Gumm- ersbach og sigruðu með tveggja marka mun, 30-32, en í hálfleik var staðan 13-16 fyrir Minden. Gústaf Bjarnason skoraði fjögur mörk i leiknum en markahæstur var Duschebajew með átta mörk. Ekki gengur vel hjá Róbert Durnona og félögum hans í Nettelstdt en liðið lá á heima- velli fyrir Grosswaldstadt. 23-30. Duranona skoraði fjögur mörk og komu þrjú þeirra úr vítaköst- um. Hann lék lungann úr leiknum. Guðmundur Hrafnkelsson og samherjar í Nordhorn töpuðu fyrir Bad Schwartau í Lúbeck, 22-20, og færðust fyrir vikið neð- ar á töfluna. Liðið hefur leikið færri leiki en önnur lið í deild- inni. Guðmundur Hrafnkelsson stóð í markinu í 30 mínútur Patrekur Jóhannesson skoraði níu mörk fyrir Essen í gær í stórsigri á Wetzlar, 36-28. Patrekur var langbestur í liði Essen í leiknum. Sigurður Bjamason skoraði fjögur mörk fyrir Wetzlar. Frjálsíþróttakynning á Haustleikum ÍR: Þarft framtak IR-inga ÍR-ingar stóðu á laugardag fyrir fijálsíþróttakynningu þar sem stærstu nöfnin í fijálsíþróttaheiminum leið- beindu bömum og kynntu þeim hinar ýmsu greinar frjálsra íþrótta. Meðal leiðbeinenda vom Ólympíufaram- ir Vala Flosadóttir, Þórey Edda Elísdóttir, Guðrún Am- ardóttir og Magnús Aron Hallgrímsson, Einar Karl Hjart- arson hástökkvari, Vigdis Guðjónsdóttir spjótkastari og Þórdís Gísladóttir, íslandsmethafi í hástökki og þjálfari hjá ÍR, auk annama þjálfara gestgjafánna. Var greinilegt að þetta mæltist vel fyrir og áhuginn skein úr hverju and- liti og áhrif þess árangurs sem fijálsíþróttafólkið hefúr verið að ná undanfarið hafa bersýnilega vakið athygli og em íþróttinni til góðs. „Við vildum bjóða krökkum á höfuðborgarsvæðinu að hitta Ólympíufarana og ákváðum að sameina keppni og kynningu þar sem krakkamir gætu bæði keppt og feng- ið leiðsögn hjá toppíþóttamönnum," segir Þráinn Haf- steinsson, frjálsíþróttaþjálfari hjá ÍR. „Við höfúm fúndið það í haust að það er mjög jákvæður andi gagnvart fijáls- íþróttum og fleiri sem vilja prófa en áður. Fjöldi iðkenda véltur þó á mestu á starfinu hjá félögunum, það er gmnn- urinn. Þetta andrúmsloft sem nú er hefur þó vissulega áhrif. Áhugabylgjan kemur alltaf í kjölfar góðs árangurs. Sem betur fer virðist einnig sem framkvæmdir við inn- anhússaðstöðu séu í farvatninu og ég vonast til að innan tveggja ára getum við boðið upp á alvöru alþjóðlegt mót innanhúss," sagði Þráinn. -ÓK Þorey Edda Elísdottir stangarstökkvari og Sverrir Guömundsson frjálsíþróttaþjálfari leiðbeina unga fólkinu í þeirri íþrótt sem sjálfsagt er vinsælust hjá krökkunum um þessar mundir. DV-mynd KK Sport rfc* Rúnar Alexandersson: ^ ÞÝSKALAND Féll af hestinum \ Rúnar Alexandersson tók um Gummersbach-Minden 30-32 helgina þátt 1 fyrsta heimsbikar- Solingen-Wallau Massenheim . 22-22 mótinu í mótaröðinni 2000-2001. Nettelstedt-Grosswalstadt .... 23-30 Mótið fór fram í Stuttgart í Magdeburg-Hameln 29-14 Þýskalandi. Rúnar keppti á Bad Schwartau-Nordhorn .... 22-20 bogahesti og tvíslá á mótinu. Willstátt-Flensburg 25-32 Rúnar stóð sig vel á mótinu og Essen-Wetzlar 36-28 komst í úrslit á tvíslá með ein- Hildesheim-Lemgo 19-24 kunnina 9.525. í úrslitunum fékk Wuppertal-Dormagen 16-24 hann 9.500 og varð í sjöunda sæti. Magdeburg 14 11 2 1 367-279 24 Rúnar, sem hingað til hefur Flensburg 14 10 2 2 397-340 22 verið talinn langbestur á boga- Mssenheim 13 9 2 2 350-322 20 hestinum, hefur sýnt það undan- Kiel 12 9 0 3 339-287 18 farið að hann er orðinn mjög Essen 13 8 1 4 324-299 17 góður á tvíslánni líka og í raun Schwartau 13 8 1 4 303-307 17 engu síðri því æfingin hans þar Lemgo 12 7 2 3 291-285 16 er einnig dæmd út frá 10,0. Þar Grosswalds. 13 7 2 3 320-314 15 gekk hins vegar ekki allt upp að Nordhorn 12 6 2 5 313-271 14 þessu sinni og Rúnar féll einu Gummersb. 14 6 2 6 369-358 14 sinni af bogahestinum. Hann Solingen 13 6 1 6 323-326 13 hlaut 8.475 stig fyrir æfingar sín- Minden 13 6 1 6 336-342 13 ar en varð samt sem áður í 21. Nettelstedt 14 6 0 8 348-371 12 sæti af 27. keppendum. Eisenach 14 4 2 7 317-325 10 Um næstu helgi verður svo Hameln 14 4 1 9 323-356 9 síðasta heimsbikarmótið í móta- Willstátt 12 3 2 7 298-318 8 röðinni 1999-2000 og svo er Rún- Wetzlar 14 4 0 10 347-366 8 ar væntanlegur til íslands um Dormagen 14 3 1 10 294-349 7 miðjan desember til þess að táka Wuppertal 13 2 0 11 269-333 4 þátt í glæsilegri jólasýningu fim- Hildesheim 14 1 1 12 304-384 3 leikasambandsins 17. desember. -AIÞ Rassskelltir - Rangers fóru á kostum og sigruðu Celtic, 5-1 Skosku meistararnir í knatt- spyrnu, Glasgow Rangers, léku erkifjendurna og nágranna sína í Celtic sundur og saman í viðureign liðanna á Ibrox í gær. Rangers, sem ekki hafa þótt sannfærandi í vetur, sýndu loksins klærnar og sigruðu 5-1 eftir aö staðan í hálfleik var jöfn, 1-1. Þrátt fyrir ósigurinn hefur Celtic sex stiga forystu í efsta sæt- inu. Celtic hafði fyrir leikinn ekki tapað í 16 leikjum í röð en þetta var fyrsti tapleikur liðsins á þessu tímabili. Tore Andre Flo, sem Rangers, keyptu fyrir helgina frá Chelsea, skoraði mark í fyrsta leik sínum. Hin mörkin fyrir Rangers skoruðu þeir Barry Ferguson, Ronald de Boer, Leronzo Amoruso og Michael Mols. Henrik Larsson skoraði eina mark Celtic og var þetta 18. mark hans fyrir félagið í vetur. Úrslit i öðrum leik urðu þau að Aberdeen og Motherwell gerðu jafntefli, 3-3, Dundee United vann Dunfermline, 3-2, og var þetta fyrsti sigur liðsins í vetur. Hearts vann Dundee, 3-1, og St. Mirren og Hibernian gerðu jafntefli, 1-1. Celtic hefur 44 stig, Hiberni- an 37 stig og Rangers eru i þriðja sæti með 32 stig. Barry Ferguson fagnar marki sínu gegn Celtic í gær. Reuter f J É \ V "I p- *VV . M. Eins og skot á botninn! Þad er óheiðaríegt og hættulegt að nota lyf til að bæta íþróttaárangur. Viftu taka siíka áhættu?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.