Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2000, Qupperneq 4
4
Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 28. NÓVEMBER 2000
DV
Loftslagsráðstefnunni í Haag frestað fram í maí:
Arangursleysið í
Haag mikil vonbrigði
- segir Steingrímur J. Umhverfisráðherra bæði ánægður og óánægður
„Ég er ánægö og óánægð með ráö-
stefnuna," segir segir Siv Friðleifs-
dóttir umhverfisráöherra um lofts-
lagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í
Haag, sem frestað var um helgina
fram í maí á næsta ári. Hún er
ánægð með stöðu mála gagnvart sér-
stöðu íslands eða hinu svokallaða
„íslenska ákvæði“. íslenska tiilagan
var tekin fyrir hjá vísinda- og tækni-
nefnd á ráðstefnunni og er tilbúin tU
umfjöllunar.
Siv segir að það séu hins vegar
viss vonbrigði að ekki skyldi hafa
náðst samkomulag um útfærslu
Kyoto-bókunarinnar að þessu sinni.
Hún telur mjög mikilvægt að niður-
staða fáist í málinu á næsta ári og er
vongóð um að það takist. Siv segir að
til þess að samkomulag náist verði
Bandaríkjamenn og Evrópusamband-
ið að ná saman, þar sem þessir aðil-
ar losi um helming af öllum gróður-
húsalofttegundum í heiminum. Að
sögn Sivjar er vaxandi skUningur á
sérstöðu íslands og hvaöa áhrif
smæð hagkerfisins hefur í þessum
málaUokki. Hún segir að menn séu
einnig famir að gera sér grein fyrir
mikilvægi þess að nota endumýtan-
Slv Friöleifsdótt- Steingrímur i.
ir umhverflsráö- Sigfússon, for-
herra. maöur Vinstri
hreyflngar-græns
framboðs.
lega orkugjafa
eins og gert er hér á landi í stað orku-
gjafa eins og olíu, kola og kjarnorku.
„Á meðan Evrópusambandið stefnir
að því að 12% af þeirra orkugjöfum
verði endumýtanlegir árið 2020 eru
70% af okkar orkugjöfum endurnýt-
anlegir í dag,“ segir Siv.
Lofar ekki góðu
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur Vinstri hreyfingar-græns fram-
boðs, segir að árangursleysi fundar-
ins í Haag séu mikil vonbrigði, sér-
staklega þar sem nýjar upplýsingar
sýni að afleiðingar loftslagshlýnunar
Ámi Finnsson,
framkvæmda-
stjóri Náttúru-
verndarsamtaka
Islands.
I og breyttrar veðr-
áttu vegna gróður-
húsalofttegunda
verði að öllum lík-
indum enn hrika-
legri en áður var
talið. Hann segir
blóðugt að sjá tím-
ann liða ár af ári
' án þess að menn
komist af stað með
að uppfylla þau
markmið sem sett
hafa verið til að
draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda. „Mér frnnst
dapurlegt að sjá þann félagsskap sem
Island valdi sér og það skuli hengja
sig aftan í Bandaríkin, sem eru aðal
dragbíturinn á samkomulag í þessu
efnum,“ segir Steingrímur. Það gefi
auga leið að það sé ekki vænlegt til
árangurs ef Bandaríkjamenn séu að
klæðaskerasauma einhverja lausn
utan um sig þannig að þeir þurfi ekk-
ert að leggja að mörkum þrátt fyrir
að stór hluti gróðurhúsalofttegunda í
heiminum komi frá þeim. Steingrím-
ur vill vita hver hafi tekið þá póli-
tísku ákvörðun að ísland myndi
fylgja Bandaríkjunum og iðnríkjum
sem voru í skjóli af þeim. Hann telur
að framganga íslands og innlegg hafi
ekki verið okkur til sóma. þ.e.a.s. að
hafa ekki undirritað Kyotobókunina
og reyna þá að vinna í þessu ferli
innan frá. Steingrímur segist halda í
vonina um að þráöurinn verði tekinn
upp að nýju og menn gefist ekki upp
en þessar lyktir lofi ekki góðu.
Slæmt fýrir lífríki jarðar
Ámi Finnsson, framkvæmda-
stjóri Náttúruverndarsamtaka ts-
lands, segir að það séu mikil von-
brigði að þau ríki sem aðild eiga að
Kyoto-bókuninni hafi ekki sýnt
ábyrgð sína í verki varðandi losun
gróðurhúsalofttegunda og komist að
samkomulagi í Haag. Hann segir að
þetta sé mikill ósigur fyrir alla og sé
slæmt fyrir lífríki jarðar. „Það verð-
ur að komast að samkomulagi sem
fyrst, því nú þegar eru merki um að
loftslagsbreytingar séu hafnar og að
þær geti haft hrikalegar afleiðing-
ar,“ segir Árni og nefnir sem dæmi
rigningar og flóð í Skandinavíu, Mó-
sambík og Indlandi.
-MA
Fyrrum forseti íslands á jafnréttisráðstefnu í París:
Vigdís biðlar til karlmanna
- í viðtali við danska dagblaðið Aktuelt
„Ég er ánægð með að vera orðin
sjötug. Nú veit ég loks hvar ég stend
og sé allt skýrt,“ segir Vigdís Finn-
bogadóttir, fyrmm forseti íslands, í
viðtali í danska dagblaðinu Aktuelt
sem tekið var í tilefni af því að Vig-
dís var frummælandi á jafnréttis-
ráðstefnu sem haldin var í París í
fyrri viku. „Skilaboð mín til kvenna
eru skýr: - Menntið ykkur!“ segir
Vigdís í Aktuelt.
Vigdís Finnbogadóttir lætur svo
um mælt í viðtalinu aö afturkippur
hafí komið í jafnréttisbaráttuna á
síðari árum því yngri konur séu
ekki jafn ákafar í baráttunni og þær
eldri voru á sínum tíma. Vigdís
Vigdís í Aktuelt
Afturkippur í jafnréttisbaráttuna.
beinir orðum sínum til karl-
manna, aö nú sé komið að þeim
að fleyta jafnréttisbaráttunni
áfram. Konur geti ekki lengur
reitt sig einvöröungu á stuðning
annarra kvenna:
„Við karlmennina segi ég:
Hvetjið konur ykkar...Setjist nið-
ur og ræðið hvemig stuðningi
ykkar við konur verði best fyrir-
komið...Menntum konur í aukn-
um mæli í tæknigreinum og vís-
indurn," segir Vigdís og lýsir
jafnframt yfir ánægju með að
fjórði hver þátttakandi á jafnrétt-
isráðstefnunni í París hafi verið
karlmaður:
„Flestar rikisstjómir senda ein-
göngu konur á ráðstefnur þar sem
fjallað er um jafnrétti eða heilbrigð-
ismál. Ég sé fyrir mér jafnréttisráð-
stefnu þar sem karlmenn eru í mikl-
um meirihluta og konur aðeins brot
af þátttakendum. Ég vil einnig sjá
konur taka þátt í leiðtogafundum
þar sem fjallað er um efnahagsmál,
vísindi og varnarmál," segir Vigdis
í ákalli sínu til karlmanna og viöur-
kennir um leið að sjálf hefði hún
aldrei orðið forseti íslands án stuðn-
ings karlmanna. Nú sé komið að
þeim í jafnréttisbaráttunni.
-EIR
Veöríð í kvöld
Færö
6Í&A
Fimmtudaj
Vindur:
8-13 nv's
Hiti 5° til O'
Norðaustan 8-13 m/s og
rignlng cöa slydda
austanlands, slydda eða
snjókoma með köflum
norðanlands en þurrt að
mestu suðvestan til.
Laugard
MiJ
Vindur: /^ ~~ vL-~\
8-13 m/, «£> \
Hiti 5° tii 0°
Norðaustan 8-13 m/s og
rlgnlng eða slydda
austanlands, slydda eða
snjókoma með köflum
norðanlands en þurrt að
mestu suövestan tll.
Vindur:
8-13 m/t
Hiti 5° til O” O'/i'V'
Norðaustan 8-13 m/s og
rignlng eða slydda
austanlands, slydda eða
snjókoma með köflum
norðanlands en þurrt að
mestu suðvestan tll.
Sólariag í kvöld Sólarupprás á morgur REYKJAVIK 15.54 I 10.40 AKUREYRI 15.13 09.29
Síödegisflóö 19.54 00.27
Árdegisflóö á morgun 08.13 12.46
SkúÉufM á va&urtAknunn
J^VINDÁTT ^^VINDSTYRKUR 1 metrurn á sekúndu 10V-HITI 10° ^-FROST HEIOSKÍRT
£> £> O
LÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ ALSKYJAD
*.*,•/ w/ W
RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA
w w ÉUAGANGUR ÞRUMU- SKAF- ÞOKA
VEÐUR RENNINGUR
Noröaustanátt
Norðaustan 10 til 15 m/s meö dálítilli rigningu, fyrst suðaustan tii en
lengst af þurrt suðvestanlands. Hiti 0 til 6 stig.
Vlða talsverð hálka
Á Vestfjörðum er þungfært um
Dynjandisheiöi en hálka á heiöum.
Vegna vatnavaxta er ófært um
Selströnd milii Hólmavíkur og
Drangsness en búist viö aö þar opnist
fyrir hádegi. Annars eru flestir þjóðvegir
landsins færir en víða er talsverð
hálka.
Léttir víða til
Austlæg átt, 5 til 10 m/s og skúrir eða
slydduél með suðurströndinni en léttir víöa til
annars staðar. Gengur í norðaustan 10-15
m/s með dálítilli rigningu, fyrst suöaustan til í
nótt, en lengst af þurrt suðvestanlands. Hiti 0
til 6 stig.
CZlSNJÓR
mm ÞUNGFÆRT
■■ÓFÆRT
Lögreglumenn:
Meira líf í kon-
um þegar tungl
er fullt
Það er orðin alkunn staðreynd að
meira er að gera hjá starfsfólki
verslana þegar nýtt
greiðslukortatíma-
bil tekur gildi. En
fleiri starfsstéttir
finna fyrir korta-
notkun íslendinga,
til dæmis lögreglu-
menn. „Þetta eru
tvenn mánaðamót
sem viö verðum var-
ir við, þessi venju-
legu og kortamán-
aðamótin. Það er
meira af fólki á ferð-
inni á vertshúsun-
um en ekki endilega
fleiri útköll eða al-
varlegri brot, það er
bara fleira fólk á
ferðinni þegar það
getur farið að strauja eðlilega,"
sagði Geir Jón Þórisson, yfirlög-
regluþjónn lögreglunnar í Reykja-
vik. Hann útskýrði að ekki sé um
vísindalegar rannsóknir að ræða
heldur eru þetta hlutir sem lög-
regluþjónar taka eftir í starfi sínu.
„Þetta er svipaö og þegar fullt
tungl er, þá er meira líf, sérstaklega
í konum, þær eru fjölmennari í mið-
bænum en karlmenn. Eins þegar
stórstreymt er, þá sýnist okkur vera
meira líf í fólki. En þetta er ekki vís-
indalega rannsakaö," sagði Geir
Jón. -SMK
Útf á lífinu
Samkvæmt
mati lögreglu-
manna fara
fleiri konur út
aö skemmta
sér á fullu
tungli en karl-
ar.
Eldvarnavika LSS:
8 ára börnum
kynntar eldvarnir
Tæplega 5000 8 ára böm munu í
þessari viku taka þátt í eldvamaget-
raun og ræða um eld og hvernig má
fyrirbyggja eldsvoða. í tilefni eld-
varnaviku Landssambands slökkvi-
liðs- og sjúkraflutningamanna, sem
haldin er í byrjun desember, munu
slökkviliðsmenn heimsækja nær
alla þriðju bekki grunnskóla lands-
ins í þessari viku. Börnin munu
einnig æfa neyðarrýmingu á skóla-
stofum. í fréttatilkynningu frá LSS
segir: „Jafnhliða heimsóknunum í
skólana er afhent sérstakt verkefni
með eldvamagetraim í tilefni af eld-
vamavikunni. Dregið verður úr
innsendum lausnum í janúar og
verðlaun veitt. Verðlaunaafhending
fer fram í slökkviliðsstöðvum víðs
vegar um landið."
Tilgangur eldvarnavikunnar er
að kynna fólki leiðir til þess að
fækka eldsvoðum og fyrirbyggja
slys. -SMK
| Veðriö kl.6
AKUREYRI alskýjaö 2
BERGSSTAÐIR skýjaö 1
BOLUNGARVÍK rigning 3
EGILSSTAÐIR 0
KIRKJUBÆJARKL. skýjaö 2
KEFLAVÍK snjóél 3
RAUFARHÖFN hálfskýjaö 4
REYKJAVÍK rigning 2
STÓRHÖFÐI skúrir 4
BERGEN skýjaö 6
HELSINKI skýjaö -1
KAUPMANNAHÖFN skýjaö 6
ÓSLÓ alskýjað 5
STOKKHÓLMUR rigning 4
ÞÓRSHÖFN alskýjaö 7
ÞRÁNDHEIMUR léttskýjaö 0
ALGARVE skýjaö 15
AMSTERDAM súld 11
BARCEL0NA heiöskírt 10
BERLÍN skýjað 3
CHICAGO alskýjaö 1
DUBLIN rigning 10
HAUFAX alskýjaö 6
FRANKFURT rigning 6
HAMBORG rigning 5
JAN MAYEN alskýjaö 2
LONDON súld 13
LÚXEMBORG súld 7
MALLORCA léttskýjað 9
MONTREAL alskýjaö 2
NARSSARSSUAQ heiöskírt -11
NEW YORK hálfskýjaö 9
ORLANDO hálfskýjaö 10
PARÍS skýjaö 12
VÍN hálfskýjað 0
WASHINGTON hálfskýjaö 2
WINNIPEG skýjaö -6
■ áYKk'MllwáVfclLWtlidÆ'áaabaiftlBaiHi