Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2000, Side 10
10
___________________________________________________________________________________ ÞRIÐJUDAGUR 28. NÓVEMBER 2000
Útlönd I
Ehud Barak með
bráðabirgðalausn
Forsætisráöherra ísraels, Ehud
Barak, staðfesti í gær orðróm um að
hann væri reiðubúinn að falla frá
þeim kröfum sem hann setti fram í
viðræðunum í Camp David i sumar.
Barak stingur nú upp á viðræðum
um bráðabirgðalausn sem felur í sér
að Palestínumenn fái sjálfstætt ríki
nú þegar.
Hins vegar verði viðræðum um
lausn á deilunni um Jerúsalem og
flóttamenn frestað. Barak vonast til
að fá svar frá Palestínumönnum í
siðasta lagi í dag þegar lögð verður
fram tillaga á þinginu um nýjar
kosningar. Sérfræðingar telja að
Barak geti með svolítilli heppni ver-
ið við völd í marga mánuði til við-
bótar. Hann verði þó aö hafa friðar-
samning i höndunum.
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum
verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir:
Hlíðarbær 11. Hvalfjarðarstr. hr., þingl.
eig. Búi Gíslason og Harpa Hrönn Dav-
íðsdóttir, gerðarbeiðendur íbúðalánasjóð-
ur og Islenska skófélagið ehf., þriðjudag-
inn 5. desember 2000 kl. 10.
SÝSLUMAÐURINN í BORGARNESl.
Stuðningur almennings við varaforsetann fer dvínandi:
Gore segir að öll
atkvæði skuli talin
A1 Gore, forsetaefni demókrata,
bað kjósendur í gærkvöld um að sýna
biðlund á meðan hann vefengdi úrslit
forsetakosninganna i Flórída. George
W. Bush, forsetaefni repúblikana,
var lýstur sigurvegari þar aðfaranótt
mánudagsins og fær hann því 25
kjörmenn ríkisins. Það dugar til að
ná kjöri sem næsti forseti Bandaríkj-
anna þegar kjörmenn koma saman í
næsta mánuði.
Aðstoðarmenn Gores segja hins
vegar að varaforsetinn haft sigrað í
Flórída með níu atkvæða mun. Þá er
miðað við talningatölur sem kjör-
stjórn hefur ekki staðfest.
Demókratar líta svo á að Gore
hefði átt að fá 157 atkvæði í Miami-
Dade sýslu og 215 til viðbótar í Palm
Beach. Þar við bætist, segja
demókratar, að ógilda hefði átt 174
utankjörfundaratkvæði sem Bush
fékk. Þegar 372 ótalin atkvæði Gores
hafa verið lögð við opinberan at-
Al Gore í sjónvarpinu
Forsetaefni demókrata skýröi banda-
rísku þjóöinni frá því aö hann viöur-
kenndi ekki úrslitin í Flórída.
kvæðafjölda hans og 174 atkvæði
Bush dregin frá er niðurstaðan níu
atkvæða forskot Als Gores.
Skoðanakannanir benda til að á
brattan verði að sækja fyrir Gore
þegar hann reynir að fá úrskurði
kjörstjórnar Flórída hnekkt.
„Þetta er Ameríka. Þegar atkvæði
eru greidd teljum við þau. Við leggj-
um þau ekki handahófskennt til hlið-
ar af því að það er of erfitt að telja
þau,“ sagði Gore í sjónvarpsávarpi til
bandarísku þjóðarinnar í nótt. Hann
sagði að enn hefðu öll atkvæði í Flór-
ída ekki verið talin. Samkvæmt opin-
berum tölum sigraði Bush með 537
atkvæða mun.
Repúblikanar voru fljótir að svara
varaforsetanum og sögðu orð hans
ekki bera vott um góða stjórnvisku.
Ef marka má skoðanakannanir
vilja 60 prósent kjósenda, þar af
þriðjungur demókrata, að A1 Gore
játi ósigur sinn fyrir Bush.
HAPPDRÆTT.I
^dae
Vinningaskrá
30. útdrátíur 23. mivember 2000
Bifreiðavinningur
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
Fcrðavinningur
Kr. 100.000 Kr, 200.000 (tvöfaldur)
| 9 2 34 13 178 36969 71831 |
Ferðavinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
5823 10041 20861 41788 r" 56208 75443
8976 12444 26603 55286 72150 76426
Húsbúnaðarvinningur
Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur)
55 6941 16517 26469 36888 50702 58531 68613
68 5 7177 18859 28336 36930 51905 58608 70133
1545 9325 1 8991 30932 3821 0 51991 59052 7046 1
1681 9370 1 9543 31412 38366 52265 59 181 72949
4409 9458 196 93 31980 39468 52419 60061 74298
4491 1 0207 19909 3251 4 41593 52573 62067 74904
4504 10769 20624 32892 41774 54502 62306 7 5 586
4713 1 1992 21968 32908 4232 1 54952 62503 77915 !
5824 1 2065 22682 329 90 45474 55135 64617 78472
5923 144 42 23665 33700 45863 55150 64959
6247 15917 24548 34385 46688 56322 6604 1
6427 16143 25172 34519 46703 57391 66045
6788 16180 25452 34689 50663 58385 68376
Húsbúnaðarvinningur
Kr. 5.000 Kr. 10.000 (tvöfaldur)
2 7680 1 7727 26774 37712 48216 59776 7 1906
19 8383 17968 27389 39174 48968 59839 72152
295 8424 18089 27801 39218 49058 60032 72180
346 9084 18244 27838 39231 49319 60344 72228
622 9448 1 8290 27856 39471 50 220 60997 72598
787 9751 18468 27938 40412 50424 61112 72639
131 1 1 0057 18784 28158 40595 50676 61659 73505
1603 10299 19109 28215 40619 51050 61992 73678
1613 10756 19793 28274 41003 51376 62505 75467
1909 111 1 1 1 9843 29595 42059 52197 62736 75530
1914 1 1708 20789 29789 43315 52622 62845 75909
2332 12024 21326 30472 43617 52969 63902 76654
2477 1 2333 21881 30761 43757 53153 64266 76687
2537 13358 22409 30982 44640 53560 64368 76950
2709 13363 22422 30987 4491 7 54127 64760 77286
2785 1 3625 22920 31343 45469 54152 64789 77367
2905 13734 231 19 32184 45551 54283 65335 77652
3563 14035 23730 33013 46)80 55961 65869 77688
3609 14113 23915 33786 46304 56090 66090 78149
3615 14503 24792 33808 46444 56538 66936 78278
4216 14653 24853 3481 1 46730 56549 68096 78347
4304 1 4696 24886 35483 46735 56597 68250 78596
4346 1 4798 25070 35639 4 6 830 57022 68323 78599
4356 15024 25245 35808 47001 57374 69136 79247
4521 15188 25347 35995 47154 58227 69373 79630
4700 1 5272 25456 36227 47557 58869 69958 79981
5025 1 5884 25872 36523 47671 58898 70057
6138 1 5955 25962 36641 47810 58905 70135
6836 16005 26153 37166 47825 59223 70182
7199 16820 2631 5 3741 1 47885 59425 71022
7323 1 6878 26578 37492 48084 59428 71216
7410 17356 26666 37638 48214 59712 71795
Næslu úldrættir fara fram 30. nóv. 2000
Hcimasíóa á Interncti: www.das.is
Skin eftir skúr t Róm
Þaö var fallegt um aö litast viö hiö fræga hringleikahús Colloseum í Róm eft-
ir rigningar helgarinnar. Hestur og vagn spegluöust fallega í stórum polli.
Kúariðuótti um alla Evrópu:
Þjóðverjar fresta
kjötmjölsbanninu
Óttinn við kúrariðu breiðist út
um Evrópu og komið er að þýskum
neytendum að missa alla lyst á
nautakjöti.
Gerhard Schröder Þýska-
landskanslari vísaði í gær á bug öll-
um ásökunum um að stjórn hans
hefði ekki staðið sig sem skyldi eft-
ir að fyrsta tilfelli kúariðu fannst i
þýskum nautgrip.
Stjórnvöld reyndu að endur-
heimta traust neytenda á þýsku
nautakjöti með því að banna þegar í
stað notkun kjöt- og beinamjöls í
dýrafóður. Gildistöku bannsins hef-
ur hins vegar verið frestað til laug-
ardags, að minnsta kosti, þar sem
upphafleg neyðaráætlun stenst ekki
lög. Kúariða er talin geta valdið
nýju afbrigði af heilahrörnunar-
sjúkdóminum Creutzfeldt-Jacob.
Nautakjötið skoriö
Slátrarinn Georg Schlagbauer í
Munchen meöhöndlar nautakjöt í
búö sinni þrátt fyrir ótta almennings.
mssmmm-
Bænabann í vinnunni
Poul Nyrup
Rasmussen, forsæt-
isráðherra Dan-
merkur, sættir sig
ekki við allar venj-
ur múslíma. For-
sætisráðherrann
sagði til dæmis í
gær að í Danmörku
ætti að sinna skyldustörfum í vinn-
unni. Þess vegna væri ekki hægt að
gera bænahlé fjórum sinnum á dag.
Eldur í rútu í göngum
Þegar Nordalsgöngin í Noregi,
sem eru 24,5 kílómetra löng, voru
vígð í gær kom upp eldur i rútu sem
var komin hálfa leið inn í þau.
Skjótt tókst að slökkva eldinn.
Engar sannanir
Þremenningunum, sem handtekn-
ir voru í síðustu viku vegna gruns
um morð á sex ára dreng í bænum
Sebnitz i Þýskalandi, var sleppt i
gær. Ekki var hægt að sanna að þeir
tengdust morðinu á drengnum sem
átti íraskan föður.
Stillt til friðar
Vojislav Kostunica, forseti
Júgóslavíu, heimsótti í gær óróa-
svæði við landamæri Kosovo þar
sem komið hefur til átaka milli al-
banskra skæruliða og serbneskra
lögreglumanna. Kostunica sagði
íbúunum að reynt yrði að stilla til
friðar þar.
Endurtalning
Endurtalning atkvæða hófst í
Washington í gær þar sem
demókratinn Maria Cantwell er
með 1953 atkvæða forskot á
repúblikanann Slade Gorton. Sigri
Cantwell verður jafnræði í öldunga-
deildinn í fyrsta sinn í heila öld.
Peningaþvottur forsetans
Ríkissaksóknari
Perú, sem rannsak-
ar meinta spillingu
Montesinos, fvrr-
verandi yfirmanns
leyniþjónustunnar,
sagði í gær að hafm
væri rannsókn á
meintum tengslum
Fujimoris, fyrrverandi forseta, við
peningaþvott.
Sviptir salernisaðstoð
Vinnueftirlitið i Malmö í Sviþjóð
hótar að banna sjúkraliðum að að-
stoða sjúklinga á salerni og í sturt-
um á sjúkrahúsum á Skáni þar sem
tveir aðstoðarmenn komast ekki
fyrir við vinnu sína.
Wallenberg skotinn
Sænski stjórnar-
erindrekinn Raoul
Wallenberg var
skotinn í
Lubjankafangels-
inu 1947. Þetta full-
yrti í gær Alexand-
er Jakovlev sem er
formaður nefndar
er endurhæfa á fórnarlamb
pólitískra ofsókna.
Uppselt á 55 mínútum
Allir miðarnir á Evrópu-
söngvakeppnina i Danmörku í vor,
25 þúsund talsins, seldust upp á 55
mínútum i gær. Danir halda keppn-
ina vegna sigurs Olsensbræðra í
síðustu keppni.