Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2000, Qupperneq 14
14
ÞRIÐJUDAGUR 28. NÓVEMBER 2000
ÞRIÐJUDAGUR 28. NÓVEMBER 2000
27
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiölun hf.
Stjórnarformaður og útgáfustjórí: Sveinn R. Eyjólfsson
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason
Aöstoöarritstjóri: Jónas Haraldsson
Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift:
Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíöa: http://www.skyrr.is/dv/
Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiölunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: Frjáls fjolmiölun hf.
Filmu- og plötugerð: ísafoldarprensmiöja hf. Prentun: Árvakur hf.
Áskriftarverö á mánuöi 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverö 180 kr. m. vsk., Helgarblaö 250 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og i gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiöir ekki viðmælendum fyrir viötöl viö þá eöa fyrir myndbirtingar af þeim.
EftirHaag er heimavinna
Fremur er ástæöa til aö lofa en lasta, að loftslagsráð-
stefna Sameinuðu þjóðanna fór út um þúfur í Haag um
helgina og verður fram haldið á næsta vori. Þau býti, sem
reynt var að bjóða í lokin, voru þess eðlis, að þau hefðu
aukið loftslagsmengun af mannavöldum.
Vandinn stafar af nokkrum ríkjum, sem ekki vilja taka
þátt í heimsátaki á þessu sviði og verja allri orku umboðs-
manna sinna til að komast undan aðild. ísland er í hópi
þessara ríkja, sem hafa ekkert jákvætt til málanna að
leggja, eingöngu meinta sérhagsmuni sína.
í ljósi alvöru málsins er ótækt, að ráðstefna um fram-
kvæmd Kyoto-sáttmálans snúist nær eingöngu um tií-
raunir þessara ríkja til að hlaupast undan merkjum og til-
raunir sáttasemjara til að brúa gjána milli þessara fáu
hagsmunapotara og meginþorra ríkja heimsins.
í þessum svonefnda Regnhlífarhópi eru það eingöngu
Bandaríkin, sem skipta máli. Stjórnvöld þar hafa áttað sig
á, að langur vegur er frá almenningsálitinu vestra yfir í
álit bandarískra þingmanna. Þeir eru hallir undir álit
mengunarfyrirtækja, sem borga kosningabaráttuna.
Því skiptir ekki máli, hvaða samkomulag er gert á fjöl-
þjóðavettvangi um miklar, litlar eða engar varnir gegn
auknum flóðum og stormum, ágangi sjávar og tilfærslu
hafstrauma og fiskistofna. Bandaríska þingið mun neita
að staðfesta hvaða samkomulag, sem verður ofan á.
Ekki eru horfur á, að ástandið batni að sinni að þessu
leyti í Bandaríkjunum. Ferlið er óheft i áttina frá lýðræði
almennings yfir í auðræði stórfyrirtækja. Þeir þingmenn,
sem nú hafa verið kjömir til tveggja ára, eru ekki fulltrú-
ar almennings, heldur óhefts peningavalds.
Baráttan fyrir endurheimt jafnvægis í lofthjúpnum fær-
ist nú að miklu leyti inn í Bandaríkin, þar sem eru öflug-
ustu umhverfisverndarsamtök heimsins. Þau eru að átta
sig á, að styrjöldin vinnst ekki á fjölþjóðavettvangi, held-
ur í kosningum innanlands í Bandaríkjunum.
Bandarísk umhverfissamtök hljóta að leggja aukna
áherzlu á að setja þingmenn á svartan lista, ef þeir eru
hallir undir mengunarhagsmuni. Þau hljóta að beina
kröftum sínum til að fá kjósendur til að skipta þeim út fyr-
ir umhverfissinna í næstu kosningum.
Hið sama verða raunar umhverfissinnar einnig að gera
í öðrum ríkjum Regnhlífarhópsins. Þeir, sem telja breyt-
ingar á loftslagi jarðar stefna í óefni, þurfa að taka hönd-
um saman um að setja þá stjórnmálamenn á svartan lista,
sem hafa unnið gegn umhverfissjónarmiðum.
Ósigurinn í Haag verður til að stappa stálinu í fólk.
Mikil reiði er um aflan heim vegna vangetu ríkisstjórna
heims til að staðfesta inntak Kyoto-sáttmálans og fram-
kvæma hann. Ríkisstjórnirnar munu fara undan í flæm-
ingi og vísa sök á hendur Regnhlífarhópnum.
Framvindan er fyrirsjáanleg. Loftslagið þarf að versna
enn, áður en það byrjar að batna. Við munum sjá fleiri og
verri flóð og storma og við munum sjá hafið ganga á land
í auknum mæli. Að lokum vöknum við til vitundar um, að
manngerð mengun er komin úr böndum.
Ekki má gleyma því, að samstaða Evrópusambandsins
að Bretlandi undanskfldu á fundinum í Haag var áfanga-
sigur, sem lofar góðu um, að ekki verði gefið eftir fyrir
mengunarsinnum á borð við rikisstjórn íslands, þegar
fundinum verður fram haldið á næsta vori.
Á meðan þurfa menn að vinna heimavinnuna sína, fara
niður í grasrótina í hverju ríki fyrir sig og beina spjótum
sínum að gæzlumönnum mengunarhagsmuna.
Jónas Kristjánsson
DV
Fjárhagsáætlun Reykjavíkur 2001:
Grafarvogur í góðum málum
Hrannar Björn
Arnarsson
borgarfulltrúi Reykjavík-
urlistans
Frumvarp að fjár-
hagsáætlun Reykja-
víkurborgar fyrir árið
2001 var tekið til fyrri
umræðu í borgar-
stjóm Reykjavíkur
fimmtudaginn 16. nóv-
ember sl. Fjárhags-
áætlunin ber þess
glöggt vitni að sá góði
árangur sem náðst
hefur í fjármálum
borgarinnar á undan-
fómum árum er nú að
skila sér i kröftugri
uppbyggingu og bættri þjónustu á
öUum sviöum borgarsamfélagsins.
Minni skuldir - miklar
framkvæmdir
Með þessari farsælu stjóm mála-
flokkanna hefur einnig myndast
svigrúm tU verulegra niðurgreiðslna
á skuldum borgarsjóðs. í heild verða
á árinu 2001 skuldir borgarsjóðs
greiddar niður um 2,8 miUjarða
króna og hafa skuldir borgarsjóðs þá
lækkað um ríflega 5,5 miUjarða frá
upphafs ári þessa kjörtímabils.
Fjárhagsáætluninni fylgja ítar-
legar starfsáætlanir allra mála-
flokka sem heyra undir fyrirtæki
og stofnanir Reykjavíkurborgar
og ítarleg sundurliðun á þeim
framkvæmdum sem fyrirhugaðar
eru á árinu 2001. Um leið og ég
hvet borgarbúa tU að kynna sér
fyrirliggjandi vU ég sérstaklega
vekja athygli á þeim uppbygging-
aráformum sem fram undan eru i
Grafarvogi árið 2001.
Umhverfi - íþróttir - skólar
_ Á árinu 2001 er blásið tU nýrrar
sóknar í íþrótta- og æskulýðsmálum
og mikU áhersla lögð á að styrkja
yngstu borgarhlutana, Grafarvogs-
hverfin, en þau fóstra flest bömin í
borginni. Samtals verður hálfum miUj-
arði króna varið tU skólabygginga í
Grafarvogi. Þyngst vega nýju skólam-
ir, Borga- og Víkurskóli, en talsverðu
fé er einnig varið til Foldaskóla,
Hamraskóla og Rimaskóla. Stærsta
einstaka framkvæmdin í íþróttamál-
um er bygging knattspymuhúss við
Víkurveg í Grafarvogi.
Fjárhagsáætlun ársins 2001 gerir
„Á árinu 2001 er blásið til nýrrar sóknar í íþrótta- og
œskulýðsmálum og mikil áhersla lögð á að styrkja
yngstu borgarhlutana. Alls verður ríflega milljarði
króna varið til framkvæmda og fjárfestinga í Grafar-
vogshverfum á árinu 2001.“
ráð fyrir 200 miUjón króna fjárveit-
ingu tU byggingar nýs knattspymu-
húss sem áformað er að opna árið
2002.1 tengslum við knattspymuhús-
ið er síðan reiknað með uppbyggingu
einkaaðila á frekari aðstöðu tU
íþróttaiðkunar. Framkvæmdir þess-
Bindindi er best
Tveir virtir læknar, gagnkunnugir
áfengismálum og skelfUegum fylgi-
fiskum neyslunnar, létu á dögunum
áþekk orð faUa um að fátt væri nú
templara í landi hér, enda heyrðist
varla í þeim í umræðunni um áfeng-
ismál. Hvoru tveggja má tU sanns
vegar færa, því miður. Sveit templ-
ara er aUt of þunnskipuð í dag og allt
of fáir úr okkar hópi leggja út á rit-
vöUinn, enda sannast sagna ekki
fýsilegt í þeirri vUltu og arfavitlausu
umræðu um þetta margrómaða frelsi
í áfengismálum sem raunar er
gæsalappafrelsið eitt ef grannt er að
gáð.
Skýr mörk?
Það er í raun alveg makalaust þeg-
ar menn tala um dýrð frelsisins í
sömu andrá og áfengisneysla er tU
umræðu, því fátt leiöir tU eins alvar-
legrar ánauðar og þessi neysla frels-
isdrykkjarins, eða hafa menn aldrei
kynnst þeim skelfilegu afleiðingum
hvarvetna um samfélagið sem þessi
„Menn hafa, vel á minnst, reynt að draga skýr mörk
milli áfengis og annarra eiturefna, áfengisunnendur
jafnvel barið sér á brjóst í heilagri hneykslan yfir
neyslu ólöglegra vímuefna á meðan setið hefur verið
slímusetum yfir ofurdrykkju á krám borgarínnar. “
Með og á móti
neysla, þessi ofuránauð hef-
ur í för með sér. Læknarnir
tveir sem glöggar og merk-
ar greinar rituðu um þessi
mál vita betur og þeirra
áliti, þeirra úrskurði ættu
allir hugsandi menn að
hlýða og hlíta.
Þeim er engin tæpitunga
á vörum, þeir eru ekki í lof-
gjörðarsveit villtrar frjáls-
hyggju sem aUt ætlar aö
æra, enda áfengisauðvaldið
samt við sig og hefur víða
úti sendimenn sem syngja áfenginu
lof og dýrð. Menn hafa, vel á minnst,
reynt að draga skýr mörk milli
áfengis og annarra eiturefna, áfeng-
isunnendur jafnvel barið sér á brjóst
í heUagri hneykslan yfir neyslu ólög-
legra vímuefna á meðan setið hefur
verið slímusetum yfir ofurdrykkju á
krám borgarinnar. Þessum mönnum
hefði verið hoUt að hlýða á sönn að-
vörunarorð Bubba Morthens á dög-
unum þegar hann rakti órofasam-
hengi áfengisneyslu og neyslu ann-
arra eiturefna, þar sem áfengið
kæmi aUtaf fyrst tU sögu.
Gömul aðvörunarorð
En heyrandi heyra þeir ekki og
því borin von að menn fái vitkast
þótt staðreyndir séu á borð bomar.
Þeim hefði líka verið hoUt að hlýða á
eina ágæta vinkonu mína sem hefur
barist frá unglingsárum við ofur-
veldi Bakkusar og segist nú fyrst
vita hvað raunverulegt frelsi til að
lifa lífinu sé. Hún dró þá sem tala
um vínmenningu sundur og saman í
beisku háði og sagðist á sinni löngu
samleið með víninu aldrei hafa fund-
Helgi Seljan
fyrrverandi
alþingismaOur
ið örðu af menningu, en
hins vegar hyldýpi ógæf-
unnar í hverju horni.
Máske lætur þessi greinda
kona í sér heyra eins og ég
hvatti hana tU, en hún
sagði það vafamál að á sig
yrði hlustað þegar aUt sner-
ist í umræðunni um hið
hömlulausa flæði þessa eit-
urs.
Hún minnti mig einnig á
gömul aðvörunarorð mín
gegn bjómum á sínum
tíma, þegar fuUyrt var óspart að með
lögleiðingu bjórsins myndi stórlega
draga úr heildarneyslu áfengra
drykkja, en ég hefði talið að um ör-
ugga viðbót yrði að ræða, sem hún
sagði nú aUar sölutölur ár eftir ár
sanna svo skelfilega, þar sem neysl-
an færi hraðvaxandi.
Hún sagði mig vel mega minna á
þetta nú þegar staðreyndir lægju svo
ljóslega á borðinu.
En merkUegast af öUu þótti mér
þó þegar hún minnti mig á gamla
grein sem ég hafði ritað sem bar yf-
irskriftina: Bindindi er best og hún
sagðist öðra hvoru lesa tU að fuU-
vissa sig enn betur um sannleiks-
gUdi þessa, aðeins saknaði hún sár-
an aUra hinna glötuðu ára þar sem
bindindið var víðs fjarri og örvænt-
ingin ein við völd.
Og ég minntist þess einu sinni enn
að aldrei hefi ég hitt neinn sem séð
hefur eftir bindindi sínu á móti þeim
ógnarfjölda sem hefur harmað hlut-
skipti sitt á valdi vímunnar. Því skal
enn sagt: Bindindi er langbest tU
heiUa og hamingju.
Helgi Seljan
tur í fasteignaviðskiptum?
Bjóst ekki viö að þetta ástand varaði lengi Ekki orðið var við samdrátt
j „Ef maður skoð-
ar árið í heild
■ sinni sést að sam-
■111 dráttur er 30 pró-
sent miðað við árið
í fyrra. Það skiptir þó náttúr-
lega miklu máli að árið í fyrra
var eitt það söluhæsta í lang-
an tíma þannig að þrátt fyrir
þennan samdrátt núna er ekki
hægt að segja að markaðurinn
sé í neinni verulegri lægð. Það
bjóst enginn við því að þetta
ástand sem var í fyrra myndi vara
mjög lengi því það var endalaus sala
og mikiU hraði á öUu og svo gífurleg
eftirspum í marga mánuði.
Það má líka túlka þetta þannig að
Guðrún
Árnadóttir
formaöur Féiags
fasteignasaia
markaðurinn sé bara að leita
að ákveðnu jafnvægi. Það hef-
ur hægt á viðskiptunum og
framboð á eignum er að
aukast.
Það era enn þá dæmi um
ákveðnar verðhækkanir og
það era líka dæmi um það að
verð er farið að lækka á ein-
hverjum fasteignum á ákveðn-
um stöðum.
Hraðinn í viðskiptunum er
ekki sá sem hann var fyrir ári
og ég held að það sé bara af hinu góða
því þetta erú viðskipti sem krefjast
þess að fólk gefi sér góðan tíma og
hafi ráðrúm til þess að hugsa og taka
ákvarðanir."
„Salan hefur
ekki dregist saman
undanfamar vUt-
f ur. Innan við helm-
ingur fasteignasala
á landinu er i Félagi fasteigna-
sala. Þar af eru 10 til 15 manns
sem eru virkir félagar og Guð-
rún, sem er talsmaður þeirra
manna sem eru að tapa við-
skiptum fyrir gamlar og úrelt-
ar aðferðir. Það er greinilega
samdráttur hjá þeim fasteigna-
sölum. Þetta er hrikalega mik-
ill samdráttur, að sögn Guðrúnar, hjá
þessum minnihluta, allt að 40 prósent,
en við höfum ekki orðið vör við þenn-
an samdrátt. Ef þú berð saman um-
Finnbogi
Kristjánsson
löggildur fasteigna-
sali hjá fasteigna-
sölunni Frón
ar verða veruleg lyftistöng fyrir
Grafarvogshverfm og íþróttastarfið í
borginni. ! sundlauginni i Grafar-
vogi er fyrirhugað að byggja litla
laug með rennibraut og bæta þannig
aðstöðu bama og fjölskyldna í Graf-
arvogi.
sóknir til íbúðalánasjóðs þá
sést að þær era heldur fleiri í
október í ár heldur en i októ-
ber 1999 og biðin hefur styst
hjá íbúðalánasjóði. Þjónustan
hjá íbúðalánasjóði hefur stór-
lega lagast. Ef íbúðalánasjóður
er lengi að afgreiða umsóknir
þá er málið gallað, annaðhvort
frá fasteignasala eða greiðslu-
matið frá bankanum. Ástandið
í þjóðfélaginu er heldur skárra
núna heldur en oft áður og
verkfóll og vextir hafa lítil
áhrif í þessari velferð. Við höfum búið
við miklu hærri vexti og verðbólgu og
fólk hefúr miklu meiri möguleika á að
kaupa sér íbúð í dag.“ -SMK
Félag fastelgnasala segir mikinn samdrátt vera i
eru ekki sammála þessari yfirlýsingu.
sölu fasteigna þessa dagana, eða 30 til 40 prósent miðaö viö sama tíma í fyrra. Aðrir fasteignasalar
Þá ætlar borgin að hraða uppbygg-
ingu göngu- og hjólreiðastíga í Graf-
arvogi, sem og að efla ræktun og
framkvæmdir við útivistarsvæði
hverfisins. Alls verður ríflega millj-
arði króna varið til framkvæmda og
fjárfestinga í Grafarvogshverfum á
árinu 2001.
Niðurskurður Sjálfstæðis-
flokksins í Grafarvogi?
Sjálfstæðismenn í borgarstjórn
hafa lagt til að framkvæmdir borgar-
innar verði skomar niður um 1.100
milljónir árið 2001 sem er sambæri-
leg fjárhæð og varið verður tO upp-
byggingar í Grafarvogi að tillögu
Reykjavíkurlistans. Ekki hafa sjálf-
stæðismenn treyst sér til að tilgreina
þau verkefni sem þannig ætti að
fóma. En Grafarvogsbúar þurfa ekki
að óttast niðurskurðarhugmyndir
Sjálfstæöisflokksins þar sem tillög-
um sjálfstæðismanna verður hafnað
og uppbygging Reykjavikurlistans
mun verða að veruleika. Það er því
óhætt að fullyrða að Grafarvogur
verður í góðum málum árið 2001.
Hrannar Bjöm Amarsson
Ummæli
Ný og dýrari lyf
„Vera má að notkun
nýrra lyfla sé Trygg-
ingastofnun þymir í
augum vegna þess að
þau eru í mörgum til-
vikum dýrari en hin
gömlu ... Það er vegna
þess að framleiðand-
inn þarf að ná inn öllum kostnaði við
þróun nýs lyfs á einkaleyfistímanum
eða meðan það er enn nýtt. Ekki má
heldur gleyma því að söluhagnaður af
lyflum fer að drjúgum hluta til frekari
framþróunar í lyflækningum og upp-
finningum nýrra lyfja.“
Stefán S. Guöjónsson, framkvstj. Sam-
taka verslunarinnar, FÍS,
í Mbl. 25. nóvember.
FBA stórmistök
„Þeir era að leita
að blóraböggli en geta
sjálfum sér um kennt.
Þeir sem halda um ís-
lenska efnahagsstjóm
ættu að horfa í eigin
barm frekar en að
gagnrýna lífeyrissjóð-
ina ... Almennt eru veikingaráhrif
krónunnar vegna þess að menn hafa
ekki trú á íslenska hagkerfmu. Það
voru í fyrsta lagi mistök að stofna
FBA. Hann var skilinn eftir með allt
of mikið eigið fé ... Áhrifin á markað-
inn urðu slæm sem hlutabréfamark-
aðinn. Þetta vora mjög afdrifarík
mistök."
Kári Arnðr Kárason, framkvstj. Lífeyris-
sjóös Noröurlands, í Degi
25. nóvember.
Sameining sveitarfélaga
„Það er mikið hagsmunamál íbúa
höfuðborgarsvæðisins, að sveitarfélög-
in á þessu svæði sameinist í tvö stór
sveitarfélög ... Vel má vera, að svo
miklir hagsmunir tengist skiptingu
höfuöborgarsvæðisins í mörg sveitarfé-
lög, að erfitt verði að fá forsvarsmenn
þeirra til að hafa forystu um frekari
sameiningu. En er ekki eðlOegt að íbú-
arnir sjálfir taki þessa ákvörðun?"
Úr forystugrein Mbl. 25. nóvember.
Innanlandsflug leggst af
Samkvæmt ummæl-
um Trausta Valssonar
skipulagsfræðings mun
reglubundið innan-
landsflug að mestu
leggjast af í framtiðinni
í kjölfar bættra bíla og
vega og vegna stytting-
ar akstursleiða. Hann telur að ílug til
Akureyrar muni fljótlega minnka,
hækki verð á flugvélabensíni verulega.
Einna lengst telur Trausti að flug muni
haldast til ísafjarðar, Egilsstaða og
Vestmannaeyja.
Ummæli Trausta Valssonar skipulags-
fræöings. Úr Degi 25. nóvember.
Skoðun
Hvernig gengur
endurtalning
atkvœðanna?
© ‘ooiH&BogfipNöuoRE
VV T(?VW& KÁEDlÁ sepvictí
Flögð undir fögru skinni
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
gekkst fyrir ráðstefnu um daginn um
einelti á vinnustöðum. Ráðstefnan var
mjög vel sótt og umræður voru lífleg-
ar að framsöguerindum loknum.
Margir vildu vita meira eða leggja orð
í belg. Þeir sem stóðu að ráðstefnunni
sögðu tímabært að hætta að þegja yflr
einelti, þessum ófógnuði sem flestir
þekktu en engir vildu nefna. Talað
var um gerendur, þolendur og hinn
þögla meirihluta sem tekur þátt með
því að hafast ekki að.
Undir fölsku flaggi
Umræðurnar rifjuðu upp fyrir
mér norska bók sem ég las í fyira og
heitir Sjarmör og tyrann. Heiti bók-
arinnar má þýða á ýmsa vegu: Heill-
andi harðstjóri, eða Flagð undir
fögru skinni. Höfundamir eru Alv A.
Dahl og Aud Dalsegg. Alv er prófess-
or í geðlækningum í Osló, Aud er
blaðamaður sem hefur sérhæft sig í
skrifum um heilbrigðismál. í bók-
inni lýsa þau fólki sem er persónu-
leikaskert en kemur afar vel fyrir
enda oft elskulegt og sjarmerandi.
Fólk af þessari gerð siglir þó oft
undir fölsku flaggi. Undir fáguðu,
glaðlegu yfirborði felst tilfinninga-
kaldur, harðsvíraður einstaklingur
sem kærir sig kollóttan um tilfinn-
ingar annarra. Þetta fólk kemst oft
vel áfram, nælir sér í stjómunarstöð-
ur á vinnustöðum og kemst til mann-
virðinga í þjóðfélaginu. Námsgáfur
eru ekki skertar, þannig að það get-
ur tekið ágæt próf. Að vísu skirrist
þaö ekki við að svindla ef svo ber
undir, hvorki í skólaprófum né í líf-
inu sjálfu. Það sem einkennir þetta
fólk er að það finnur aldrei til sekt-
arkenndar hvað sem það gerir - Allt
sem aflaga fer er öörum að kenna.
Þetta fólk á auðvelt með að vefja
öðrum um fingur sér, öðlast svo
mikla ást og umhyggju að aðrir eru
tilbúnir að vaða eld og vatn fyrir
það. Eini gallinn á þeirri fóm er að
hún er ævinlega til einskis. Margar
konur og karlar hafa reynt að
„lækna" fólk af þessu tagi með kær-
leika en allt slíkt er unnið fyrir gýg.
Að reyna að opna augu viðkomandi
er vonlaust vegna þess að þetta fólk
getur ekki sett sig í spor annarra,
sér bara sjálft sig og nýtur þess eins
að svala löngunum sínum og ná sínu
fram. Það nær gjaman miklu valdi
yfir öðrum og níðist þá á þeim með
ýmsu móti.
Það er einmitt fólk af þessu tagi
sem leggur aðra í einelti, hvort held-
ur ér á vinnustöðum, í skólum eða á
heimilum. Þetta fólk skapar ótrúlegt
óöryggi þeirra sem fyrir því verður
vegna þess að það getur aðra stund-
ina verið elskulegt og blítt, hitt veif-
ið miskunnarlaust og kalt. Fómar-
lömbin vita aldrei á hverju
þau eiga von og trúa því
lengi að síðasta óveðrið
verði það allra siðasta og
senn komi betri tíð. - Hvað
er til bragðs gagnvart svona
fólki?
Einelti eitt, fjölda-
ofsóknir annað
Alv og Aud hafa ýmis ráð á
takteinum, s.s. að byggja sjálf-
an sig upp en reyna ekki að
snúast til varnar vegna þess
að flestir þeirra sem leggja
aðra í einelti eru á höttunum eftir
stríði sem þeir hafa yndi af að vinna.
Stundum getur hjálpað að segja öðrum
frá eineltinu en því miður getur það þó
valdið vonbrigðum því að oftar en ekki
segja vinnufélagarnir vantrúaöir: „Ég
er svo hissa, aldrei er hann/hún svona
við mig.“ Það er einmitt lóðið. Einelti
er ekki það sama og fjöldaofsóknir.
Á fundinum hjá Verzlunarmannafé-
laginu kom fram að oftast gæfist fólk
upp og segði upp vinnunni
vegna eineltisins en margir
hafa ekki möguleika á því.
Ef stjórnandinn á ekki hlut
að máli getur hjálpað að
leita liðsinnis hans. Ef
hann treystir sér ekki til að
aðhafast neitt er hins vegar
illt í efni. Ef skúrkurinn er
yfirmaður eða millistjórn-
andi er spilið svo gott sem
tapað. Stjórnendum, þótt
lágt standi, verður sjaldn-
ast haggað, af hverju sem
það nú er.
Stundum eiga fórnarlömbin enga
undankomuleið, að því er virðist. Hún
er þó til. Viktor Frankl lýsir því í bók-
inni sinni, Leitin að tilgangi lífsins,
hvemig unnt var að hefja sig yfir mis-
kunnarlausar árásir og ofsóknir
kvalaranna, að fjarlægja sig innra
með sér. Fyrst slíkt var mögulegt i
einangrunarfangabúðum nasista
hljóta allir að eiga mikla von.
Hólmfríður Gunnarsdóttir
Hólmfríður
Gunnarsdóttir
„Fólk af þessari gerð siglir þó oft undir fölsku flaggi.
Undir fáguðu, glaðlegu yfirborði felst tilfinningakaldur,
harðsvíraður einstaklingur sem kœrir sig kollóttan um
tilfinningar annarra. “ (Tekið skal fram, að mynd þessi
tengist grein þessari aðeins óbeint - ef eitthvað er.)