Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2000, Page 4
2
Þaö var ekkert gefiö eftir i viöureign
Liverpool og Olympiakos á Anfield
Road í gærkvöld. Elias Pousanidis
tekur hér ólöglegum brögöum til aö
stöðva Danny Murphy.
Reuters
dvsport@ff.is
Leikmenn Herthu Berlín gengu
hnípnir af San Siro-leikvanginum í
gærkvöld eftir ósigurinn gegn Inter
Milan. Það benti allt til þess að
Eyjólfi Sverrissyni og félögum i
þýska liðinu tækist að komast
áfram í 4. umferð UEFA-bikarsins.
Liðin gerðu markalaust jafntefli í
fyrri leiknum i Berlín og því hefði
1-1 jafntefli dugað Herthu. Þegar
ein mínútu var eftir af leiknum
skoraði Tyrkinn Hakan Sukur sig-
urmark Inter í leiknum og skömmu
síðar fjaraöi leiktíminn út. Eyjólfur
Sverrisson lék í sókninni hjá
Herthu og lék allan tímann.
Liverpool lék ágætlega gegn
Olympiakos á Anfield Road, Jafn-
tefli varð i fyrri leiknum, 2-2. Emile
Heskey og Nicky Barmby skoruðu
fyrir Liverpool og var Gerard
Houllier, knattspymustjóri Liver-
pool, mjög ánægður með liðið sitt í
þessum leik.
„Ég er stoltur af strákunum sem
börðust af krafti allan leikinn og
léku af skynsemi," sagði Houllier.
Gríski þjálfarinn sagði að sitt lið
hefði aldrei geflð upp vonina en
núna gæti liðið einbeitt sér að
keppninni heima fyrir og stefnan
væri tekin á að vinna tvöfalt, deild-
ina og bikarinn.
Árni Gautur Arason varði mark
Rosenborgar gegn spænska liðinu
Alaves. Bjartsýni ríkti hjá norska
liðinu eftir fyrri leikinn á Spáni
sem lyktaði með jafntefli. Alaves
var betri aðilinn í leiknum og náði
að skora þrjú mörk áður en Bent
Skammelsrud tókst að klóra i bakk-
ann undir lokin en það reyndist um
seinan. Spánverjamir fengu fyrsta
markið á silfurfati þegar Bent Inge
Johnsen gerði sjálfsmark og voru
leikmenn Rosenborgar þónokkra
stund að koma sér í gang eftir það.
-JKS
FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 2000
UErA'BIKARINN
Úrslit í gær: (Samanlagt)
W. Bremen-Bordeaux .... 0-0 (1-4)
Rosenborg-Alaves.......1-3 (2-4)
0-1 Johnsen (18. sjálfsm.), 0-2 Vucko
(37.), 0-3 Moreno (62.), 1-3 Skammels-
rud (89. vltasp.).
Sl. Prag-NK Osijek .... 5-1 (5-3)
1-0 Doisek (15.), 2-0 Zelenka (28.),
Turkovic (45.), 3-1 Dosek (53.), 4-1
Zelenka (90.), 5-1 Kuchar (90.).
Hamburger SV-Roma . . 0-3 (0-4)
0-1 Aldair (29.), 0-2 Delvecchio (58.),
0-3 Samuel (60.).
Liverpool- Olympiakos . 2-2 (4-2)
1-0 Heskey (28.), 2-0 Barmby (60.).
Lausanne-Nantes........1-1 (4-7)
0-1 Ziani (25.), 1-1 Lombardo (51.), 1-2
Moldovan (60.), 1-3 Carriere (90.).
Celta Vigo-Sh. Donetsk . 1-0 (1-0)
1-0 Catanha (28.).
Barcelona-C. Brúgge ... 1-1 (3-1)
1-0 Rivaldo (15., víti), 1-1 Verheyen
(27.).
Inter Milan-H. Berlín . . 2-1 (2-1)
1- 0 Recoba (6.), 1-1 Tretschok (54.),
2- 1 Sukur (89.)
VaUecano-L. Moskva . . . 2-0 (2-0)
1-0 Bolic (65.), 2-0 Alcazar (68.)
PAOK Saloniki- PSV ... 0-1 (0-4)
0-1 Bruggink (44.)
Porto-Espanyol.........0-0 (2-0)
Kaiserslautern-Rangers .. 3-0 (3-1)
1-0 Klose (8.), 2-0 Buck (65.), 3-0
Lokvenc (79.).
AEK Aþena-Leverkusen . . 2-0 (6-4)
1-0 Navas (17.), 2-0 Tsartas (49.)
Þaö var engin kátína á meðal
áhangenda Barcelona þegar leikmenn
liðsins gengu af leikvelli eftir viður-
eignina við Club Brtigge þótt sæti í
16-liða úrslitum væri í höfn. Liöið
þótti leika Ula og er megn óánægja
meö hvemig það leikur í dag.
'
m*.
íffkó
3. umferð UEFA-bikarsins í knattspyrnu í gærkvöld:
Sukur sökkti Herthu
- sex „fallistar“ úr riðlakeppni meistaradeildar féllu úr keppni
Róbert Schmidt í Borgar-
firði með nokkrar rjúpur
en veiðin hefur gengið
róiega það sem af er
veiðitímanum.
DV-mynd
Pálmi Gestsson
60
Svo virðist sem rjúpnaveiðin
hafi lltið skánað, enda hefur tíðar-
farið lítið breyst á stórum hluta
landins og enn þá vantar snjóinn.
Þeir skotveiðimenn sem við höf-
um heyrt í hafa flestir sömu sögu
að segja, lítið af fugli og rjúpan er
enn dreifð.
„Það sem ég hef frétt er svona
frekar í lakari kantinum miðað
i- við undanfarin ár. En margir eru
að fá ágætis veiði, allt frá 15 til 35
fugla í ferð og sumir hafa fengið
meira. Ég veit um tvo veiðimenn
sem fóru í Hengilinn og fengu
tæplega 60 fugla á tveimur dögum,
svo það er nú ekki alveg stein-
dautt,“ sagði Róbert Schmidt í
samtali við DV-Sport í gærdag.
„Tveir drengir fyrir norðan
fengu einnig 60 fugla á einum degi
og menn fyrir austan hafa verið
að kroppa ágætt inn á milli. Við
erum nokkrir í Húsafellslandinu
og erum að kroppa þetta frá 6 til
* 14 fugla í ferð en það vantar snjó-
inn 1 kjarrið. En þó svo að veiði-
menn séu ekki að skjóta marga
fugla á hverjum degi, þá er ekki
alltaf þar með sagt að menn þurfi
að veiða heil ósköp af rjúpu.
Menn ráða því sjálfir hvað þeir
komast oft á veiðar og góður mað-
ur sagði að betra væri að fara oft-
■ ar á veiðar og veiða þá minna í
senn. Það er nokkuð til í því. Það
er líka matsatriði hvað er góð
veiði og ekki. Fyrir suma eru
40-50 fuglar á dag frekar dræm
veiði en ég held að það séu ekki
sanngjarnir veiðimenr
Sjálfur er ég búinn að fá tæp-
lega 30 rjúpur í fáum ferðum og
um síðustu helgi fór ég til Minnea-
polis með félaga mínum og þar
veiddum við 24 fasana fyrir há-
degi á fallegum og sólríkum degi.
Að vísu fór ég á sömu veiðilendur
í fyrra en ekki á yfirstandandi
rjúpnaveiðitima eins og nú.
Þannig að þetta var ágætis til-
breyting frá dræmri rjúpnaveiði
hér heima. En það snjóar brátt og
þá fer maður í kjarrið á snjóþrúg-
unum til að fá faeinar til viðbót-
ar,“ sagði Róbert.
Verðið á rjúpunni
„Varðandi verðið á rjúpunni í
ár, þá á ég frekar vona á að fram-
boðið verði lítið en verslanir
koma sjálfsagt til með að selja þær
á sama verði og í fyrra, um 750
krónur fuglinn. Verði framboð
lítið þá ræðst verðið töluvert af
eftirspum hverju sinni og það er
eins og með allt. Ef framboð væri
lítið af kalkúna eða svínaham-
borgarhrygg yrði verðið sjálfsagt
hærra á þeim vörum en ella.
í heildina þá held ég að veiðin
hafi verið nokkuð undir meðallagi
og stofninn virðist vera i niður-
sveiflu. Annars veit maður varla
hverju maður á að trúa, fugla-
fræðingum eða veiðimönnum.
Merktar rjúpur eru að finnast
dauðar á friðuðum svæðum fyrir
norðan og í miklu magni miðað
við fjölda merktra fugla.
Mitt álit á fuglafræðinni varð-
andi stofnsveiflur og atföll er að
þessar kenningar eru komnar í
hring. Áður sögðu fuglafræðingar
að veiðar hefðu engin áhrif á
rjúpnastofninn. Núna er allt önn-
ur kenning i gangi, þrátt fyrir ára-
tuga rannsóknir. Eru þessir menn
að læra við sama skóla í sama
landi?
Vitanlega eru menn orðnir van-
trúaðir á þessar kenningar og
stofnstærðir eftir allt þetta tal.
Það þarf ekki skarpan mann til að
sjá að veiðar eru náttúrlega tals-
verður hluti í afíollum stofnsins.
Þegar um 150.000 rjúpur eru
veiddar árlega sjá menn að svo
mikill fjöldi mundi aldrei hafa
drepist á svo stuttum tíma af ein-
hverjum öðrum orsökum en veiði.
Og hvað er stofninn stór
1.000.000 fuglar? Hver veit það? Ég
held að rjúpurnar í þessu landi
séu fleiri en ílestir halda,“ sagði
Róbert Schmidt í lokin.
-G. Bender
- styttist í lok rjúpnatímabilsins. Sumir hafa fengið góða veiði